Vísir - 16.01.1953, Blaðsíða 2

Vísir - 16.01.1953, Blaðsíða 2
2 V1 SIR Föstudaginn 16. janúar 1953. Hitt og þetta Eg sá mann detta út um glugga — og hvernig lízt þér á -— hann lifði eftir sem áður. Þetta er ekki mikið. Eg sá lieila járnbratarlest aka yfir mann. Og lifði hann eftir sem áður? Nei, hvað heldurðu? Hann ■<tó auðvitað. Æ, eg gleypti stærðar ána- Jnaðk! sagði Nonni. Þú verður að taka eitthvað við því, sagði Pési. Nei, eg held eg svelti bara lívkvendið, sagði Nonni. • Kerling ein þótt kunna ýmis- legt fyrir sér og leituðu margir til hennar um ráð, þegar éitt- livað ábjátaði. Einu sinni kom til hennar ung kona, sem var í •öngum sínum ; kvartaði hún um að bóndi sinn elskaði sig ekki lengur og bað hana um að gefa sér uppskrift af ástardrykk. „Eg skal gefa yður annað betra en uppskrift að ástardrykk,“ sagði kerling og var kankvís á svip. ,,Þér skuluð kaupa nautakjöt af ungu nauti, ljóst á lit og meyrt. Berjið kjötið og skerið það í þumlungsþykkar sneiðar. Skerið sundur lauk og núið kjötið með honum báðum meg- in. Dreifið hæfilegu salti og pipar á kjötsneiðarnar og steik- ið þær við góðan kolaeld. Látið síð'an væna smjörbita á hverja sneið og reynið að fá manninn til að borða þetta. Þetta mun reynast heilræði.“ • Einkennileg íkvikun. Fyrir uokkru kviknaði í liúsi í Tune í Noregi, en sem betur fer var fljótiega slökkt. Orsökin til hrunans var talin sú, að mað- tir liafði kastað rafhlöðu úr vasaljósi inn í skáp, en þar voru fyrir fín stálull og pappír. Varð þetta orsök sjálfsíkveikju. Xíhu Mmi úar.... í Vísi hinn 16. janúar 1918 xnátti m. a. lesa eftirfarandi: Hvalir og ísbirnir á Húnaflóa. Samfelldur ís, eða svo að segja, er sagður um allan Húnaflóa og Skagafjörð, ein íshella. í gær var símað frá Blöndu- <5si, að ísbjörn hefði gengið á land á Skagaströndinni ein- hvern daginn. Hann var þegar skotinn og birktur, og vóg fall- 5ð 300 pund. Hvalir hafa sézt í vök á Húnaflóa, og er ráðgert að vega að þeim á næstunni. deir hefur legið við Örfiriseyjar- garðinn undanfarna daga, en í xnorgun ruddi hann sér braut upp að bólvirkin og gekk vel að brjóta ísinn. í morgun var sjórinn lagður alla leið upp að Akranesi, að sjá. r HM. 1 SHSBÆJAR Föstudagur, 16. janúar, — 16: dágur árs- íns. Rafmagnsskömmtun verður á morgun, laugar- dag 17. janúar, kl. 10.45— 12.30 í III. og V. hvérfi. Enn- fremur að kvöldi kl. 18.15— 19.15 í I. hverfi. Borgfirðingafélagið heldur árshátíð sína í Sjálf- stæðishúsinu á morgun, laug- ardag, og hefst hún kl. 8 e. h. Meðal skémmtiatriða verður leikritið „Græna lyftan“, sem Leikfélag Akraness sýnir. Þá syngur kvartett úr Borgfirð- ingakórnum, en síðan verður stiginn dans. Öllu starfsfólki Sjálfstæðishússins hefir verið ságt upp atvinnu sinni frá 20. þ. m„ en ekki þjónum einvörð- ungu, eins og mishermt var í Vísi í fyrradag. Fréttamaður Vísis og Janus Halidórssön, formáður Matréiðslu- og fram- reiðslusambands, misskildu hvor annan, er þeir raéddu um þetta, og spratt missögnin af því. Fruiiisýning verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld á ballettinum „Eg bið að heilsa“, sem Bidsted dansmeist- ari hefir samið við kvæði Jón- asar. Karl O. Runólfsson hefir samið tónlistina, en uppistað- an er úr lagi Inga T. Lárusson- ar. Dr. V. Urbancic stjórnar hljómsveitinni, sém léikur með. UrcMqáta nt. ISI4 75 ára afmæli á í dag Steinvör Sigurðardóttir, systir Stefáns heitins skálds frá Hvítadal. Heimili hennar er að Stóra-Ási, Seltjarnarnesi. Mishermi var þáð í frásögn Vísis í gær af láti Oskars Ha,l.ldórssonar útgerðarmanns, að hann hafi verið fæddur á Akureyri. Þetta átti að vera á Akranesi. Vísir biður velvirðingar á mistök- unum. Háskólafyrirlestur. Símon Jóh. Ágústsson pró- fessor flytur erindi n. k. sunnu- dag, 18. þ. m. kl. 2 stundvíslega, í hátíðasal háskólans. Nefnir hann erindið: List og sálkönn- un. Kenning Freuds um geð- vernd og uppeldi er almenn- ingi hér orðin fyrir löngu kunn í stórum dráttum, en hitt vita færri, að sálkönnuðir hafa einn- ig beitt rannsóknaraðferð sinni til skýringar á list. Fyrir- lesarinn mun gera grein fyrir nokkrum helztu atriðunum í kenningu sálkönnuða um list, aðallega þeirra Freuds, Jungs, Ottos Ranks og Chr. Baudouins. Hann mun segja deili á þeim duldu (complexum), sem koma hér helzt við sögu, rekja skýr- ingar sálkönnuða á goðsögnum, hetjusögnum og þjóðsögum, koma með dæmi þess, hvernig listaverkin vaxa úr ytri og innri reynslu listamannsins samkvæmt kenningu sálkönn- uða. Loks víkur háhn nokkuð að áhrifum sálkönnúnárinnaf á list og tilfaunum listamahna til að færa sér þessar kenning- ar í nyt við listasköpun. — Öllum er heimill aðgangur að erindi þéssu. Leiðrétting. I minningargrein um Carl Ólafsson í blaðinu í gær féllu niður orð og línúr. Á að standa: Carl vár einn aðalhvatamaður að stofnun Ljósmyndarafélags íslands. Og síðar í greininni á að standa: .... og eigum við nokkrir starfsbræður hans margar ógleymanlegar stundir þaðan, sem gott er að mega minnast. Carl var vinur vina sinna, og vináttu hans var gott að eiga, hún var svo afdrátt- arlaus og hrein. Hvar eru skipin? Eimskip: Brúarfoss hefir væntanlega farið frá Leith í fyrradag til Grimsby og Bou- logne. Dettifoss fer. frá New York í dag til Rvk. Goðafóss er á Drangsnési. Gullfoss er í Khöfn. Lagarfoss fór frá Gauta- borg í fyrrad. til Leith og Rvk. Reykjafoss fór frá Rotterdam í fyrrad. til Antwerpen og Rvk. Selfoss fer í kvöld til Vest- mannaeyja, Dublin, Liverpool og Hamborgar. Tröllafoss fór frá Rvk. í fyrrad. til New York. Ríkisskip: Hekla er á Aust- fjörðum á norðurleið. Esja var á Akureyri síðdegis í gær á austurleið. Herðubreið verður væntanlega á Akureyri í dag. ■Þyrill var í Vestm.eyjum í gær. Skip S.Í.S.: Hvassafell kom í gær til Álaborgar á útleið. Arnarfell kemur í dag til Mán- telyuoto í Finnlandi. Jökulfell kom í gærkveldi til New York. Útvarþið í kvöld. KÍ: 19.20 Tónleikar: Harmo- nikulög (plötur). — 20-.30 Kvöldvaka: a) Sigurður Þórar- insson jarðfræðingur flytur er- indi: Sagan af kúlunni kon- ungsbana. b)Karlkórinn „Söng- bræður“ á Selfossi syngur; Ingimundur Guðjónsson stjórn- ar. c) Grétar Fells rithÖfundur les frumort kvæði. d) Jón Norð- mann Jónasson kennari flytur frásöguþátt: Göngur og réttir fyrir 90 árum. — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 „Mað- urinn í,brúnu fötunum", saga eftir Agöthu Christie; III. (frú Sigríður Ingimarsdóttir). — 22.35 Dans- og dægurlög: Arite Shaw og hljómsveit hans leika (plötur). -—- 23.00 Dagskrárlok. Kynnir sér slysa- varnir erlendis. Jón Otldgeir Jónsson, full- trúi hjá Slysavarnafélagi ís- lands, dvelst um þessar mundir erlendis og kynnir sér slysa- varnir á landi. Nýtur hann fyrirgreiðslu UNESCO (menningar og fræðslustofunar Sameinuðu þjóðanna) og sækir námskeið um umferðarmál, sem haldin er á vegum hénnar, og kynnir sér margt, sem honum má að gagni koma í stárfinu. Lagði hann leið sína til Genfar, aðal- stöðvar UNESCO í Evrópu, og dvaldist þar viku tíma, en héð- an fór hann 6. janúar. Frá Sviss fór hann til Englands og þaðan fer hann til Danmerkur og Sví- þjóðar. Alls mun hann verða 4 mán- uði að heiman. Togararnir. - Lárétt: 1 flýtir sér, 6 krot, 7 55 (rómv.), 9 draugsnafn, 11 verzlun við Lvg, 13 votlendis- gróður, 14 höfn í Afríku, 16 tónn, 17 í bakstur, 19 sjórinn. Lóðrétt: 1 banki við hann kenndur, 2 fréttastofa, 3 lær- dómur, 4 kvendi, 5 setur í um- búðir, 8 árstími, 10 rándýr, 12 narta, 15 í andliti, 18 ósamstæð- ir. Lausn á krossgátu nr. 1813: Lárétt: 1 bygging, 6 tón, 7 LH, 9 agar, 11 vot, 13 arð, 14 afar, 16 fa, 17 rum, 19 oftar. Lóðrétt: 1 bölvar, 2 GT, 3 góa, 4 Inga, 5 garðar, 8 hof, 10 arf* 12 tarf, 15 Rut, 18 MA. Irigólfur Arnarson landaði hér í Reykjavík í gær afla sín- um, sem var að mestu salt- fiskur. Alls var aflinn 225,490 kg. og þar af saltfiskur 214,210 kg. í morgun kom Uranus og hófst löndun úr honum. Mun i togárinn vera með um 200 ; lestir af saltfiski og eitthvað af fiski til herzlu. Hvalfellið kem- ur í dag milli kl. 4-—5, af salt- fiskveiðum. Grindavik. Ellefu bátar frá Grindavík voru á sjó í gær og var |fli þeirra svipaður og áður, meston afla hafði Ægir, 7 lestir. í dag er aðeins einn bátur, Hafrenn- ingur, á sjó, en sjóveður er ekki gott, norðvestan hvassviðri. Akranes. Akranesbátar voru ekki á sjó í gær og heldur ekki í dag vegna óveðurs. 6UN«AR og nokkrar trillur. Gætir hafa verið íitlar það sem af er. Yms- ir stærri bátar munu fara á vertíð hér syðra, eða stunda togveiðar síðar. Ekki hefur ver- ið róið í nokkra daga. René-Hiayer fer til London. Pan's (AP). — René Mayer forsætisráðherra Frakklands til kynnti í gærkvöldi, að hann mundi fara til London fljótlega cftir lieimkomu Churchills, til viðræðna við hann og helztu ráðherra hans. Sandgerði. Bátar róa þar ekki í dag vegna vestan strekkings og mikils brims. í gær voru flest- ir á sjó og var aflinn frá 4—6 lest. Keflavíkurbátar eru heldur ekki á sjó í dag, en í gær var afli þeirra 3—6 lestir, og því með tregara móti. Veðrið. Alldjúp laegð fyrir norðan ísland á hægri hreyfingu norð- austur eftir. Horfur: Allhvass vestan og snjókoma með köfl- úm. — Veðrið í morgun kl. 8: Reykjavík V 5 -Hl. Stykkis- hólmur VSV 7, -f-2. Horn- bjargsviti V 9, -f-6. Siglunes SV 5, -f-3. Ákureyri S 3, =1. Grímsey V 9, -í-2. Grímsstaðir SV 5, -4-7. Raufarhöfn SV 4, -r-5. Dalatangi V 8, 2. Djúpi- vogur VSV 1, -f-2. Vestmanna- eyjar V 7, —1. Reykjanesviti V 5, -f-1. Þingvellir, logn, -í-7. Keflavíkurflugvöllur V 6, 0 st. Siglufjörður. Þrír dekkbátar verða gerðir út á línuveiðar frá Siglufirði, ©sJkíM* llalMorssðífis útgerðarasaður aindaðist 15. þ.m. í Landakosspítala. Aostandendur. er ódýrastur í áskrift. Sparið fe og kaupið Vísi. Ntjfir hawpentiur fá blaö* iö ókeypis tii vmáms&öa- máta —! MBristyiö é tiéssMs imo

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.