Vísir - 16.01.1953, Page 6
V í S-l.H
Föstudaginn 16. janúar 1953.
þessarar tegundar. Er ;hér um
að. ræða. þá fisktegundina, sem
er einna eftirsóttust. og því auð-
seljanleg.
Steinbítsmagnið, sem áiland
kom, var. hins vegar nokkru
meira en eins og með ýsuna þá
er hér um tiltöluléga lítið magn
að ræða, aðeins tæplega 3% af
aflamagninu í heild. — Þessi
aukning á steinbítsaflanum
yarð. þrátt fyrir dragnótaveiði-
bannið . en . talsverður hluti
steinbítsaflans hefur jafnaðar-
lega fengist í dragnót. Árið
1951 hafði hinsvegar orðið-afla--
brestur, á steinbítsveiðunum og
var svo einnig 1950. Steinbítur-
inn er einnig mjög eftirsóttur
frystur eins og ýsan og því
auðseljanlegu.r. Er því æskilegt
að unt sé að auka veiði hans
. sem naest.
Af keilu og löngu var aflinn
ekki mikill, þó um talsverða
aukningu væri að ræða frá
fyrra ári, sérstaklega að því er
keiluna snertir. Þetta þarf þó
ekki að stafa af meiri veiði af
þessari tegund en áður heldur
er eins líklegt að um hafi verið
að ræða breytta hagnýtingu.
Allmikið var hert af keilu á
árinu en áður var meginhluti
keilu.aflans. látinn beint í fisk-
mjölsverksmiðjurnar til vinnslu
með úrgangnum.
Flatfiskurinn (þar með talið
heilagfiski) var nú aðeins um
% af því, ,sem hann var á fyrra
ári. Eins og með ýsuna koma
hér mjög greinilega fram áhrif
dragnótaveiðibannsins og minni
veiða togbáta en áður, en því
nær allur flatfiskaflinn var
veiddur með þessum veiðar-
færum. Iiér gildir einnig hið
sama. og um ýsuna, að hinar
helztu tegundir flatfisks, sem
hér veiðast er verðmætur fiskt
ur og sæmilega auðseljanlegur
svo sem áður var getið.
Það sem hér er talið ósund-
urliðað af togurunum var á ár-
inu 1951 að mestu leyti karfi,
sem fór til fiskmjölsverksmiðj-
anna. Á árinu 1952 er þetta að
mestu horfið.
Hagnýíing aflans
á þorskveiðunum.
Það liggur í hiutarins eðli, að
breytingar verða á. því frá ári
til árs hversu aflinn er hag-
nýttur. Verða menn í því að
haga sér eftir kröfum markað-
anna á hverjum tíma en þær
, geta verið ákaflega mismun-
andi í hinum ýmsu löndum.
Einnig getur aflamagnið haft
áhrif á hversu bezt sé að hag-
nýta aflann.
Vegna mjög breytilegra
markaðsskilyr.ða og einnig
vegna breytilegra aðstæðna
innanlands undanfarin ár hafa
breytingar á hagnýtingu aflans
á þorskveiðunum verið miklar
og skjótar. Hvernig þetta var á
árunum 1951 og 1952 má sjá .á
eftirfarandi yfirliti:
1951 1952
%„,af Iieildarafla
ísvarinn fiskui: 18.2 9.8
Til frystingar 32,3 . 42,2
Til .söltunar 24.2 39.9
Til herzlu 2.3 5.1
í fiskimjölsverk-
smiðjur 21.9 2.2
Annað 1.1 0.8
Hér haf'a sýnilega orðið all-
miklar breytingár á frá því, sem
var á fyrra ári. (Tölurnar fyr-
ir árið-1952 miðast að vísu að-
eins við nóvemberlok en það
breytir ' litlu .en þó sennilega
helzt því, að hluti saltfisksins
hefir aukist í desember, en hluti
isfisksins, hinsvegar minnkað).
Tvær meginbreytingar hafa á
orðið. í fyrsta lagi hefir hluti
ísfisksins og þess, sem fór til
fiskmjölsverksmiðjanna farið
mjög minnkandi og í öðru lagi
hefir hluti þess, sem fór til
frystingar og söltunar aukist
að sama skapi. Einnig er það
eftirtektarvert að sá hluti afl-
ans, sem fór til herzlú var meira
en helmingi, meiri nú en árið
áður,. þó enn hafi raunar ekki
nema rúmlega 5% aflans verið
hagnýtt á þann hátt. Það liggur
í augum uppi, að það, sem vald-
ið hefir því, að ísfiskurinn
verður nú hlutfallslega aðeins
um helmingur þess, sem hann
var á fyrra ári, er löndunar-
bannið í Bretlandi.- Fyrri hluta
ársins áður en löndunarbannið
var sett, lönduðu togararnir um
20 þús. smál. í Bretlandi en allt
árið 1951 lönduðu þeir um
44000 smál. Hefir þetta gert að
verkum, að togararnir hafa orð-
ið að hagnýta fiskinn á annan
hátt og hefir þá saltfiskverkun
helzt orðið f.vrir valinu. Þetta
hefir þó yaldið togaraútgerð-
inni margvíslegum erfiðleik-
um eins og gefur að skilja. Á
þessum tíma árs, þ. e. haustið
og fram á veturinn er aðstæð-
um þannig. háttað, að því er
snertir aflabrögð og. fiskteg-
undir, að hentugast er talið að
flytja fiskinn út ísvarinn en
hinsvegar óhentugt að þurfa að
salta. Auk þess er saltfiskfram-
leiðslan orðin allmikil á árinu
og því æskilegt að geta hagnýtt
fiskinn á annan hátt einmitt
á þessum tíma.
ísvarði fiskurinn hefur á ár-
inu alls numið um 29 þús. smál.
og fóru af því magni tæplega 8
þús. smál. til Þýzkalands . um
hau.stið.
Tjl, frystihúsanna. fór á, ár-
inu meira fiskmagn en nokk-
urntíma áður eða alls 120 þús.
smál. til nóvemberloka. Var
það nær 30% meira en allt árið
1951. Sá hluti aflans, sem fór
til frystihúsanna var rúml.
42 % heildaraflans og var ■.' því
mesíur hluti aflans hagnýttur á
þann hátt. Var það einkum á-
berandi hve mjög það jókst
á árinu, að togararnir legðu
afla sinn inn í frystihúsin
og var ;þar ekki aðeins um að
ræða karfa heldur einnig þorsk
og ýrnsar aðrar fisktegundir.
Mun heildarframleiðslan af
freðfiski hafa numið yfir 37 þús.
smál.
Nær 40% af aflanum fór nú
til söltunar og er um mikla
aukningu að ræða frá fyrra ári.
Alls nam , saltfiskframleiðslan
nær 60 þús. smál. miðað við
fuilstaðinn saltfisk. ■ Er það 29
þús. smál. meira en árið, áður.
Um ástæðurnar fyrir þessari
aukningu var áður getið.
Framh. á 7. síðu.
■Aðalfundur
Knattspyrnufélagsins
Víkings
verður fimmtudaginn 22.
janúar kl. -20 í húsi V. R.,
VÖnarstræti 4. — Félags-
skírteini fyrir árið 1952
gilda sem aðgöngumiðL
fsS/
SNJÓR!
SNJÓR!
VÍKNGAR!
SKÍÐADEILD.
Snjórinn er ltominn og hon-
um verður fagnað í skálan-
um með glæsilegri kvöld-
vöku um helgina. Þar: verður
m. a. til skemmtunar: — 1.
Kókódrykkja (hafið kökur
með í púkk). 2. Félagsvist
(glæsileg verðlaun). 3. Upp-
lestur (hver les?). 4. ?????
(hvað er nú það?) 5. Ókeyp-
is happdrætti (þá verður
Þórir með). 6. Saga deildar-
innar (óþekktur höfundur).
7. Almennur söngur. (syng-
ur Reynir með?). 8. Snjón-
um hátíðlega fagnað (hvern-
ig?). — Hittumst heil á
fyrstu kvöldvöku vetrarins.
Ferðirnar verða auglýstar á
morgun. — P. S. Gleymið
ekki kökunum. — Nefndin.
ÞROTTUR.
Knattspyrnumenn!
1., 2. og.3. fl. Æfing
kl. 8 á íþruttavell-
inu. — Mjög áríðandi, að
allir mæti.
VALUR!
Handknattleiks-
æfing að Háloga-
landi í kvöld kl.
6,50 III. fl. karla. Kl. 7,40
meistara-, I. og II. fl. karla.
Nefndin.
UJMJFÆ.
GLÍMUÆFINGAR í kvöld
kl. 8 í Miðbæjarbarnaskólan-
um. Áríðandi, að allir mæti.
Stjórnin.
FYRSTA SKÍÐFERÐ
VETRARINS.
Farið verður í skíðaferðir
í Jósefsdal og skíðaskálana á
Helhsheiði um helgina cins
og hér segir:
Laugardag k. 9 f. h.
Laugardag kl. 2 e. h.
og laugardag kl. 4 e, h.
Sunnudag kl. 10 f. h.
Farið verður frá
skrifstofunni Orolf, Hafnar-
, stræti 21. — ,Sími 5965.
Mætið fyrsta skíðasnjó vetr-
arins. .
Skíðafélögin.
. KVENUR tapaðist fyrir
nokkrum dögum. Uppl. í
síma 4908. Góð fundarlaun.
_________________ (276
PARKER-penni, blár með
silfurlitaðri hettu, tapaðist
mánudag. Finnandi hringi í
síma 1078. (273
fcemiir&vJn/ýMpffrttiúons
Eaufáóvegi25;sími W65.
Sfilar ® Tá/œfingar ®-fáý(Íiinqar- e
KENNI vélritun. Einar
Sveinsson. Sími 6585. (81
ENSKUKENN SLA.
Einkatímar — talæfingar. —
Oddný E. Sen, Miklubraut
40. Sími 5687. (272
VILL, EKKI einhver lána
stúlku 2500 kr. gegn mán-
aðargreiðslu. Tilboð, merkt:
„Strax — 382“ sendist blað-
inu. (279
L£IGA
FUNDARSALUR til leigu.
S. V. F. í. Grófin 1. Sími
4897. (565
EINHLEYP kona óskar
eftir stofu og eldunarplássi.
Uppl. í síma 3420. (271
., HERBERGI . óskast til
leigu, 'helzt sem næst mið-
bænum. InnDyggður skápur
æskilegur. Tilboð sendist
afgr. Vísis fyrir hádegi á
laugai'dag, meikt: „Sjómað-
ur — 380.“ (267
1—2 HRAOLIUOFNAR
óskast til leigu um tíma ;eða
keyptir. Skiltagerðin Skóla-
vörðustíg 8. Sími 4896. (275
BEZT AÐ AUGLfSA i VISl
GOTT HERBERGI til
leigu. Afnot af síma nauð-
synleg.. Uppl. í síma 80521 í
dag. (266
GOTT herbergi til leigu í
Mávahlíð 37.
HERBE.RGI til leigu gegn
lítilli húshjálp. —• Uppl. á
Stýrimannastíg 3, 1. hæð eða
í síma 4950. (278
LÍTIÐ herbergi óskast. —
Uppl. í síma 7195. (283
FORSTOFUHERBERGI
til leigu í Laugarneshverfi.
Uppl. í sírna 81285. (282
STÚLKA, utan af landi,
óskar eftir vinnu, t. d. að
taka að sér litið heimili.
Reglusemi áskilin. Tilboð
sendist á afgr. Vísis fyrir
mánudagskvöld, merkt:
„Prúð — 381.“ (270
RÚÐUÍSETNING. — Við-
gerðir utan- og innanhúss.
Uppl. í síma 7910. (547
VIÐGERÐIR á dívönum
og allskonar stoppuðum
húsgögnum. Húsgagnaverk-
smiðjan, Bergþórugötu 11.
Sími 81830. (224
SNÍÐ og máta dragtir,
kápur, telpukápur, drengja-
föt. Sauma úr tillögðum efn-
um. Árni Jóhannsson, dömu-
klæðskeri, Grettisgötu 6.
Sími 4547. (159
FATAVIÐGERÐIN, Ing-
clfsstræti 6, annast allar
fataviðgerðir. — Sími 6269.
SKATTFRAMTOL og
leiðbeiningar um skattalög-
gjöf. Ólafur Björnsson lög-
fræðingur, Uppsölum, Aðal-
stræti 18. Sími 82275. Við-
talstími kl. 4—7 e. h. (233
Dr. juris HAFÞOR GUÐ-
MUNDSSON, málaflutnings-
skrifstofa og lögfræðileg að-
stoð. Laugavegi 27. — Sími
7601. (95
RAFLAGNÍR OG
VIÐGERÐIR ó raflögnum.
Gerum við straujárn og
önnur heimilistæki.
Raf tæk j a verzlunin
Ljós og Hiíi h.f.,
Laugavegi 79. — Sími 5184.
SKIÐASLEÐAR. Verð kr.
kr. 180. Lokastíg 20. (277
AF sérstökum ástæðum, er
góð píanóharmonika til
sölu á mjög lágu verði. Uppl.
i síma.6251, milli 6 og 7. ,274
SOKKAVIÐGERÐARVÉL
til sölu. Uppl. í síma 4045.
HÓFUM til sölu: borð,
stóla, stofuskápa, rúmfata-
kassa, dívana, skauta,
grammófóna, fatnað o. m. f 1.
Fornsalan, Ingólfsstræti 7.
Sími 80062. (280
KASSAR til sölu á Lauga-
vegi 8. (265
. TIL. SÖLU á Fálkagötu 32
taurulla, tauvinda og ullar-
gaberdinkápa, meðalstærð.
(268
KANAEÍFUGL (kven-
fugl) óskast til kaups. Uppl.
í sima 6978. (269
ELITE-snyrtivörur hafa
á fáum árum unnið sér lýð-
hylli um land allt. (385
FRÍMERKJASAFNARAR.
Afgreitt mánudaga og föstu-
daga kl. 5,30—7, laugardaga
kl. 2—4. Jón Agnars, Frí-
merkjaverzlun, Camp Tripoli
1. (128
KJÓLAR fyrir. afgreiðslu-
stúlkur, svartir og dökkbláir,
verð frá kr. 400. Einnig hvít-
ar strengsvuntur og hvítir
kappar. — Saumastofan
Uppsölum, Aðalstræti 16. —
Sími 2744,______________(200
Hinar heimfrægu
Píanóharmonikur
Orfeo — Borsini
og Artiste ný-
nýkomnar, 120
bassa með 5—7
og 10 hljóðskiptingum. Verð
frá kr. 3975, með tösku og
skóla. — Tökum notaðar
harmonikur sem greiðslu
upp í nýjar. Höfum einnig
mikið úrval af notuðum
harmonikum fyrirliggjandi;
allar stærðir. Verð frá kr.
650,00. Hjá okkur getið þér
valið úr 14 tegundum. —
Verð við allra hæf. — Send-
um gegn póstkröfu. — Verzl.
Rín, Njálsgötu 23. Sími 7692.
■ SPEGLAR. Nýkomið gott
úrval af slípuðum speglum,
innrömmuðum speglum og
speglagleri. Rammagerðin
h.f. Hafnarstræti 17. (252.
PLÖTUR á grafreiti. Út-
vegum .áletraðar plotur á
grafreiti. með s.tuttum fyrir-
vajra. Uppl. á - Rauðarárstfg;.
26 (kjallara). — Sími 6126.
• KAUPUM vel með farin
karlmannaföt, saumavélar
o. fl. Verzlunin, Grettisgötú
21. Sími 3562. ■ 1 (465