Vísir - 22.01.1953, Síða 1

Vísir - 22.01.1953, Síða 1
43. árg. Fimmtudaginn 22. janúar 1953 17. tbl. ^HIjómsveit stofnuð við Þjóðieikhúsið, þrátt fyrir andóf stjornar Symíóníusveitarinnar. Joseph W. Martin var kjörinn forseti fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings og sést á myndinni með fundarhamarinn, sem er tákn virðingarembættis hans. Nú er steinfaíturinn tannlaus. En brátt fær liasaei tennnrnai* aítnr og i'iíaaar þá afinr á kúfisksáti. Eins og getið var í Vísi í fyrradag eru nú margir togar- ar á veiðum í salt. Nokkrir afla fyrir frystihús, steinbít, sem flakaður er og frystur, og nú mun verða farið að fiska meira til herzlu, aðal- lega ufsa, þorsk og keilu. Karfi er minna eftirsóttur en áður, a. m. k. í bili, enda betra verð vestra fyrir steinbíts- en karfaflök. Steinbíturinn veiðist helzt á miðum fyrir Vesturlandi, en veiddist líka áður þó nokkuð á miðum hér í flóanum, en þau munu upp urin. 7 Cá' og klaufa- veðci fer í vöxt í Danmörku. Steinbíturinn er magur um þessar mundir og með tóman maga, enda tannlaus! Það er sérstætt um þessa fisktegund, að hún fer að fella tennur á haustin (seint í nóvember) en er nú um það bil að taka tenn- ur aftur. Er steinbíturinn fellir tennurnar, fer hann á djúpmið, en leitar svo nær, er hann fer að geta „tekið til matar síns“. Hann lifir nefnilega á kúfisk- skeljum, og þegar tennurnar eru komnar, bryður hann skel- ina með öllu saman. Fitnar hann þá fljótt. Veiðist oft vel af steinbít, á miðum fyrir vest- urland, þegar kemur fram í fe- brúar og á sumrin. Fiskafli á togara hefur verið fremur tregur að undanfömu. Þeir hafa verið á miðum fyrir vestan land. Dágóðar hrotur hafa komið. Gæftir hafa verið fremur góðar miðað við það sem vanalega er á þessum tíma árs. ræðir stjornar- Fjölmennur Varðarfundur ræddi stjórnarskrármálið í gærkveldi, og var Bjarni Benediktsson utanríkismála- ráðherra málshefjandi. Auk framsögumanns tóku til máls þeir Gunnar Thor- oddscn borgarstjóri og Jón Pálmason, forseti Sameinaðs Alþingis. Sjálfstæðismenn í stjórn- arskrárnefnd, þeir Bjarni Benedihtsson, sem er for- maður hennar, Gunnar Thoroddsen og Jóhann Haf- stein hafa þegar lagt fram tillögur sínar í nefndinni. Mikill áhugi ríkir um mál- efni Varðar, og geta má þess, að í fundarbyrjun las for- maðurinn, Birgir Kjaran, upp nöfn 50 nýrra félaga. — Vegna þrengsla verður frá- sögn Vísis af fundinum að bíða til morguns. Almemiliigiir fmrðar sig á köldks sfríðl66 þessara aðila. 59 Stfofiianirsasir æíáia að viitma saman, esida kostaðar a£ opioltcni £é. Stofnuð hefur verið sérstök hljómsveit við Þjóðleikhúsið. enda þótt slitnað hafi upp úr samningum þess við Symfóníu- hljómsveitina, og verður dr. V. v. Urbancic aðalstjórnandi hennar. 1335 rauðliðar drepnir. Manilla (AP). — Á árinu sem Ieið urðu hersveitir stjórnar- innar 1335 Hukuppreistar- mönnum að bana á Luzen. Gin- og klaufaveiki hefur aftur færst í aukana í Dan- mörku, en er mest útbreidd í Póllandi og Frakklandi um þessar mundir. Samkvæmt skeyti sem yfir- dýralækni barst nýlega, voru í Danmörku 4 ný tilfelli fyrstu vikuna í janúar og 39 í 2. viku mánaðarins, en nýjum tilfellum hafði fækkað niðúr í 4—5 á viku í desember. í Hollandi má faraldurinn heita um garð genginn, sömuleiðis í Bretlandi, þótt þar kæmi upp eitt tilfelli eigi alls fyrir löngu, og einnig skaut hún upp, kollinum á Skáni í Svíþjóð, en í hvorugu þessara landa hefur hún náð útbreiðslu aftur. í Finnlandi hefur hún gert vart við sig, en verst er ástatt í Frakklandi og Póllandi. Veikin hefur aldrei náð til írlands og Noregur er laus við hana, en þar hefur hún að eins komið upþ á einum stað 1951, en breiddist ekki út. Hér á landi eru varúðarráð- stafanir áfram í gildi. ítalskur hjólreiðamaður hef- ur hjólað 1000 m. á 1:10,6 mín. og er það talið heimsmet. Uppreistarmenn, sem eru kommúnistar, létu einkum til sín taka í norðurhéruðum eyj arinnar, og voru ofangreindir menn allir felldir þar. Fjörutíu hermenn féllu í viðureignum við þá. Vísir hefur áður greint nokk- uð frá hinu hvimleiða og ó- smekklega stríði, sem virðist standa yfir milli Symfóníu- hljómsveitarinnar og Þjóðleik- hússins. Mál þetta varðar vissu- lega allan almenning, þar sem um er að ræða stofnánir, sem starfa fyrir opinbert fé, og því hefur blaðið aflað sér nánari upplýsinga um það. Rétt er að taka fram, að Vísir hefur ekki fengið upplýsingar sínar hjá Þjóðleikhúsinu, en hins vegar borið þær undir Guðlaug Rós- inkranz Þjóðleikhússstjóra til þess að tryggja, að rétt væri frá skýrt. í hinni nýju hljómsveit eru 14 mönn, til að byrja með, og hafa þeir verið ráðnir til loka leikársins. Horfir nú vænlegar um flutning óperunnar La Tra- viata, með því að nú er fenginn sá tónlistargrundvöllur, sem unnt er að byggja á í sarribandi við óperuflutning. Þá þarf að sjálfsögðu að bæta mönnum við, helzt allt upp í 35 menn, en það tekst væntanlega nú. í sambandi við samningaum- leitanir Þjóðleikhússins og Symfóníuhljómsveitarinnar skal þessa getið: Þjóðleikhúsið fór fram á að fá að ráða 16 menn úr henni að Þjóðleikhúsinu, og yrði þessi Fiskherzla verlur aukin verulega. Brátt hægt að taka 5000 S. hjá bæjar- útgerðinni. Aiikiaa lierxla ltS&a amtíirssáís slar. að koma þar upp trönum til xdðbótar, og er stækkun þessarar herzlustöðvar er lokið, mun verða nnní að herða þar allt að 5000 lesiir af blautfiski. Skúli Magnússan kom af ís- fiskveiðum í morgun, | Aflinn fer í frystihús dg herzlu, þær tegundir, sern bezt eru til slf's fallnar. Bæjarút-; jgerðin hefur sem kvmnUgt er : homið upp'.fisktrönum á Ðig 'á- j neshálsi op. er hægt: •að'-herða j þar 2500 ,.l.e§tir áf •blaUtfiski. . Verið er ■ ' 'A'i"- - í Hainarfirði og viðar er og bætt við trönum til herzlu á fiski, en markaður er góður íyr ir .bertan fisk, aðallega í Afríku og verð sæmilegt. Munu útgerð armenn og útgerðarfélög hafa mikinn áhuga fyrir að hagnýta sem bezt þau markaðsskilyrði, ■; sem þar eru. Hefur verið flutt : -áis vert af hertum fiski til■ Af- ííku á undangengnum árum og i hefur hann líkað ágætlega og er eftirspurnin vaxandi. Þá er það mönnum aukin hvatning að nýta sem bezt öll skilyrði til aukinna markaða fyrir íslenzk an fisk, til þess að bæta upp tónið sem íslenzkri útgerð er búin af löndunarbanninu í Bretlandi. Fjórir af togurum Bæjarút- gerðar Rvíkur veiða nú í salt: Ingólfur Arnarson, Þorsteinn j Ingólfsson, Pétur Halldórsson og Jón Baldvinsson (fer í kvöld). Hallveig Fróðadóttir og Jón Þorláksson eru í höfn til eftir- lits (klössunar) og Þorkell máni vegna breytinga, sem áður heí- ur verið gerð grein fyrir. hljómsveit aukin upp í 35 menn í sambandi við flutning óperu. Fyrir þetta skyldi Symfóníu- hljómsveitin fá 380 þús. krón- ur. Stjórn Symfóníuhljómsveit- arinnar setti það skilyrði, að hún fengi að flytja óperuna Tosca með sænskum kröftum, sem hún hafði staðið í samn- ingum við í Stokkhólmi. Á þetta gat Þjóðleikhússtjóri ekki fallizt, enda löngu vitað, að á- formað var að flytja La Travi- ata með íslenzkum kröftum eftir því, sem við yrði kbmið. Auk þess mátti stjórn Symfón- íuhljómsveitarinnar jafnvel vera kunnugt um, að Þjóðleik- húsið áformaði að flytja Tosca síðar, í íslenzkri þýðingu Frey- steins Gunnarssonar, sem er í höndum leikhússins. Mál þetta hefur vakið mikið umtal meðal almennings, og er það að vonum. Menn skilja ekki, hvers vegna samvinna þessara aðila getur ekki tekizt. Bæði eru fyrirtæki þessi rekin af opinberu fé, og ekki virðist starf Symfóníuhljómsveitar- innar svo mikið, að hún geti ekki leikið á vegum Þjóðleik- hússins, án þess að raska eðli- legum starfsgrundvelli sínum. Þá þykir mönnum eðlilegt, að íslenzkir söngvarar fái að spreyta sig á óperusviði hér, fái tækifæri til þess að notfæra sér og sýna kunnáttu þá, er þeir hafa öðlazt eftir nokkurra ára nám á Ítalíu og víðar, sem að verulegu leyti er kostað af al- mannafé. Það sýnist því vera vafasamt að fá hingað erlendan óperuflokk í samkeppni við ís- lenzkan, enda þótt slíkt kynni að vera ágæt skemmtun og tónT- listarviðburður. Þetta dularfulla „kalda“ stríð Symfóníuhljómsveitarinnar og Þjóðléikhússins er í meira lagi ósmekklegt, og nær engri átt. Nú virðist Þjóðleikhúsið hafa unnið þessa lotu stríðsins með stofnun hinnar nýju hljómsveit- ar. Mun almenningur yfirleitt líta svo á, að það séu hæpnar tiltektir hjá stjórn Symfóníu? hljómsveitarinnar að setja Þjóðleikhúsinu óaðgengileg skilyrði til þess að hljómsveit- in leiki í einu tónlistar- og leikmenntahöll þjóðarinnar. Amsterclam (AP). — Elzta dagblað HoIIands, Algemen ! Handelsblad, er orðið 125 ára : gamalt.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.