Vísir - 26.01.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 26.01.1953, Blaðsíða 1
VI 43. árg. Mánudaginn 26. janúar 1953. 20. tbl. Glæsílegur sigur sjálf- stæðismanna í Þrótti. Listi þeirra hlaut 113 atkvæðl, bræðingsðistinii 35. Kristjánsson varaformaður, Sig Sameiginlegur listi kommún- ista og Alþýðuflokksiiianna fékk háðulega útreið í stjórn- arkosningum í vörubílstjórafé- laginu Þrótti, sem lauk í gær- kveidi. A-listi, sem hafði að for- mannsefni Friðleif Friðriksson, sigraði glæsilega, fékk 113 at- kvæði, en bræðingslisti komm- únista og Alþýðuflokksmanna, 85 atkvæði. Kosningin var geysiharðsótt, syo sem sjá má af því, áð af 220 félagsmönnum á kjörskrá greiddu 213 atkvæði, en 5 seðl- ar voru auðir. Kommúnistar höfðu haft geysimikinn viðbún- að og létu sigurstranglega fyr- ir kosningarnar, en stefndu rógi sínum einkum á hendur Friðleifi Friðrikssyni, sem ver- ið hefur formaður Þróttar und- anfarið. Þetta hafði þó ekki meiri áhrif en það, að sjálfur fékk Friðleifur 122 atkvæði, en listi hans 113, eins og fyrr greinir. . Þessir menn eiga sæti í stjórn Þróttar með Friðleifi: Þorsteinn urður Sigurjónsson ritari, Pét- ur Guðfinnsson gjaldkeri og Alfons Oddsson meðstjórnandi. B-lista.nenn lét’u í veðri vaka, að á lista þeirra væru „fjórir fyrrverandi formenn félagsins“, og átti það að vera mikils virði í kosningabaráttunni vegna frá- bærra vinsælda þeirra. B-lista- menn voru sagðir framlágir í dag, og láir þeim enginn. og meiðsli í Iðnó, éftir að lögreglan stöðvar dansleik þar. Stýrisvél Drangajökuls bilar í hafi. Eitt af flutningaskipum S.Í.9., Drangajökull varð fyrir bilun á stýrisvél í ofviðri í gær. Skipið var þá statt um 100 mílur suður af Hvarfi á Græn- landi, á leið til Ameríku. Vegna þess hve veður ,var vont var lengi eklti hægt að koma því við að gera við bilunina, en það tókst þó um síðir. Veður- athugunarskip, statt á þessum .slóðum, var þá á leið til aðstoð- ar og hafði samband við Drangajökul. 2ja ára fangelsi fyrir marg- vísleg afbrot sömu nóttina. Barði mann með rörbút, lenti í áflogum og stal bíl. Nýlega var í Sakadómi Keykjavíkur kveðinn upp dóm- ur í máli Birgis Sigurbjarts- sonar vélvirkja hér í bæ, fyrir innbrot, líkamsárás, bílþjófnað, ölvun við akstur, óspektir o. fl. Maður þessi hafði m. a. í fyrravetur brotizt inn í verzl- unina „Goðaborg" á Freyjugötu 1 og stolið þaðan riffli. Alllöngu seinna fór hann á dansleik einn hér í ' bænum, neytti þar á- fengis, og gerðist ölvaður mjög. Eftir að hann kom út hafði nann í frammi öspektir í Bankastræti með því að ráðast þar á mann. Að því búnu fór hann inn í vélasal Sænska frystihússins og réðst þar á vaktmann, Þórarin Breiðfjörð Pétursson varðgæzlunmann, með því að slá hann tvö högg í höfuðið með rörbút — Þórarinn höfuðkúpubortn- aði og fekk fjóra skurði á höfuðið að auki. Varð að flytja hann í sjúkrahús, bar sem hann lá nokkum tíma. Þegar Birgir var búinn að að- hafast þetta fór harm út úr hús- inu og lenti rétt. á eftir í áflog- um við mann nálægt Nvborg við Sölvhólsgötu. Síðan fór hann inn í Landsímaportið þar við grtuna, gnrði tilraun til að stela þaðan bifreið, en er það mistókst, tók hann aðra og ók henni ölvaður upp að Þyrli, en þar ók hann út af. Fyrir þetta var Birgir dæmd- ur til 2ja ára fangelsisvistar. Iiann var ennfremur sviftur kosningarrétti og kjörgengi, svo og bifreiðastjóraréttindum ævilangt. Honum var gert að greiða Peter Carlo Petersen, eiganda Goðaborgar, kr. 500, Þórarni Breiðfjörð Péturssyni 5000 kr. og Landsíma Islands kr. 1300.80. Loks var Birgir dæmdur til þess að greiða allan sakarkostnað. Hann hefur á- kveðið að áfrýja málinu til hæstaréttar. Skákþingið hé i Gestur ríkis- stjórnarinnar. Hér hefur dvalið undan- farið norskur hershöfðingi, Bjarne Öen ’S nafni, sem hingað kom að beiðni rík- iisst j órnarinn - ar og sem gestur henn- ar. Var hann ttm skeið yf- irmaður flughersins, en trúnaðarmaður Noregs í aðalstöðvum varn- arsamtaka lýðræðisþjóð- anna í París. Hefur ríkis- sfjórrún ráðfært sig við hann um ýms atriði varð- andi vamir íslands, og í því sambandi einnig sameigin- legar varnir þess og annarru Atlantshafsríkja. íslending ar eiga enga hernaðarsér- fræðinga, og er því vel til faílið, að þeir leiti áilts og ráðlegginga hjá frændþjóð sinni, Norðmönnum, sem fást nú við sömu vandamál- in varðandi varnir lands síns. Kommúnistar hafa gert sér fa rum að breiða út þá iygafregn, að hershöfðing- inn sé hér til að undirbúa síofnun íslenzks hers. Er það uppspuni frá rótum, enda hefur hershöfðinginn ekkert rætt um slíkt mál. Fönm mantfs þurftu að fá aðgerð i Slysavarðstofunni. Iii^gi*eglan stöðvaði dansleikiun um kl. 1 vegna almennar öhunar viðstaddra. Síðastliðið Iaugardagskvöld lét lögreglan Iiér í bænum stöðva dansleik í Iðnó vegna ölvunar og óláta og að svo búnu ruddi hún húsið og Iokaði því. London (AP). — í fyrra- kvöld voru brezk hjón myrt á búgarði símim í Kenya ásamt syni þeirra, á sjöunda ári. Svo sem kunnugt er, er ekki vínveitingaleyfi í Iðnó — frek- ar en annars staðar — og því óheimilt að neyta þar áfengis. En á laugardagskvöldið var lög- reglan þrásinnis kvödd þangað vegna drykkjuláta og ryskinga. Mest var þarna um unglings- fólk að ræða og m. a. fjöldi unglinga undir 21 árs aldri, sem samkvæmt lögum mega ekki neyta áfengis. Flösku- og grjótkast. Er kom fram um miðnætti og drykkjulátum linnti ekki, á- kvað yfirlögregluþjónninn að dansleiknum skyldi slítið og húsið rutt. Þegar þetta var til- kynnt í húsinu, hófst þar hark mikið, sem stöðugt færðist í aukana. Kastað var glösum og flöskum í salnum og hentust af því skrámur og önnur minni- háttar meiðsl. Töluverðar hnipp ingar og strimpingar urðu í húsinu, þegar sveit lögreglu- manna ruddi salinn. Greip þá æsing mannfjöld- ann er hóf árás á húsið með grjótkasti og voru á þann hátt allmargir gluggar brotnir. En smám saman leystist hópurinn upp og komst ró og kyrrð á. Lögreglan handtók nokkra menn í sambandi við atburð , þennan og flutti þá í fanga- geymsluna. Ingólfur ver 140.000 kr. til slysavarnamála. SI'elMIsa. siolnai* IiiJisIiTggiiigas|©ll. Skákþingið hél’í á ' ~ jyu 3 fvggi* og var þriðja umferS tefld þá. í meistaraflok.d vst: ;n Lárus Johnsen Ólaf Ein:. t, Hauk- ur Sveinsson va n ' Þóroar- son, Jón Pálsson r ns • Guririár Ólafsson en Ingi ,R. íóhánns- son og Óli Váldimarssv >n i gérúu jafntefli. Hinar tvœ; s kákirnar fóru í bið. Á áðalfundi Slysavarnadeild- arinna<' Ingólfs í Beykjavík í gær vorit samþykkt fjárframlög til slysavarna samtals 140.000 krómii har af 40 búsund kr. til stpfnunar sjóðs fyrir heimilis- byggÍRcu filysavarnafélagsins. Ingólfui er fjölmennasta deildin i Slysavamafélagi ís- lands'.og eru í henni yfir 1800 lögiegir ‘ Fundurinn i' gær var 1.! :: lennur og hinri fjörugasij, og kom fram mikill áhugi i'vj'ir slysavörnunum og 25. ára afmæli félagsins, eins og eínriig kom f.'-am 5 fjárveiting- um-þei.m, sem ■ amþykktar voru. Jakob Jónsson, en hann hefur gegnt formennsku í 8 ár, baðst- eindregið undan endurkosningu, og var kjörinn í hans stað síra Óskar J. Þorláksson dómkirkju- prestur, en að öðru leyti er stjórnin óbreytt, en hana skipa, auk síra Óskars, Þorgrímur Sig urðsson, gjaldkeri, Jón| Lofts- son stórkaupmaður, Ársæll Jónasson kafari og Henry Hálf- danarson fulltrúi. Reykj avíkurdeildirnar, Ing- ólfur og kvennadeildin monnast aldarfjórðungs afmælis félags- ins sem er 29. þ. m. með sam- oiginlegu kaffisamsæti í Sjálf- Formaáur dciidarinnar, síra I stæðishúsinu. Frásögn sjónar- votts. í frámhaldi af því, sem að ofan greinir, hefur Vísir átt tal við einn dansgestanna, sem fluttur var í slysavarðstofuna vegna áverka, sem hann hlaut á þessum eftirminnilega dans- leik. Skýrir hann svo frá: „Það mun hafa verið laust fyrir kl. 1, að lögreglan birtist í húsinu, og hljómsveitarstjórinn til- kynnti, samkvæmt skipun henn. ar, að dansleiknum skyldi hætt vegna ölvunar viðstaddra. Fram að þessu hafði ekkert skeð, þ. e. engin áflog eða háskaleg ölv- unarlæti, en ölvun var talsverð- á dansleiknum, sem vitanlega var „vínlaus“, eins og aðrir, sem haldnir hafa verið síðaix um nýár. Þegar tilkynnt var, að dans- skemmtunin yrði svona enda- slepp, og ekki til kl. 2, eins og: ákveðið hafði verið, ætlaði allt um koll að keyra. Glös og flösk- ur flugu um salinn, bekkjum var rennt um gólfið. Sumir dansgestir heimtuðu hástöfum,, að „ballið héldi áfram“, aðrir heimtuðu aðgöngumiða sína endurgreidda, og varð af þessu. feikna hávaði. Fimm hlutu læknisaðgerð. Lögreglan, líklega 10 menn. eða svo, tók sér stöð'u í stigan- um upp á aðra hæð hússins, þar sem veitingasalirnir eru, eri. margir gestir vildu freista þess. að komast upp. Varði lögregl- an stigann og beitti kylfunum.. Nokkrir munu hafa meiðzt við: þetta. Eg stóð nokkru fyrir neð- an stigann og horfði á það, sem. fram fór. Allt í einu kom glas' fljúgandi og lenti ofan á höfð- inu á mér, og féll ég við, ert missti þó ekki rænu. Hlaut eg: skurð allmikinn á höfði, og; blæddi illa úr sárinu. Var síð- an farið með mig í lögreglubíl. á slysavarðstofuna, þar sem, skurðurinn var saumaður sam- an. Eg vissi, að fimm mar.ns hlutu lækiiisaðgerð í slysavarð- stofunni vegna áverka á bessum, dansleik, en einn var svö il'Ja útleikinn, að hann féll í öngvit. í bílniun á leiðinni, og var hann, fluttur í spítala." \

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.