Vísir - 30.01.1953, Page 2
VÍSIR
' Föstudaginn 30. janúar 1953.
Hitt og þetta
ÞaS er ekki hægt að vænta
l»ess, að ástandið í heiminum
batni, fyrr en einstaklingarnir
hafa tekið stakkaskiptum.
Láttu ekki daginn í gær nota
«f mikið af tíma þínum í dag.
•
Konungar höfðu þann sið
fyrr meir, að hafa fífl við hirð
sína til að skemmta sér og hirð
sinni. Lávarðurinn af Udney
hafði við hirð sína mjög frægt
fífl, sem orðlagt ■ var fyrir
fyndni og orðfimi. Hann hét
Jamie Fleeman og eru margar
sögur af honum sagðar.
Einn gárunginn tók Jamie
tali, vissi vel hver hann var,
en þóttist ekki þekkja hann og
spurði: „Hver ert þú?“
„Eg 'er fífl lávarðarins af
Udney. Hvers fífl ert þú?“
•
Innrauðir geislar hafa þegar
verið notaðir við bökun og ým-
iskonar ’þurrkun. Og nú hefir
verið reistur ljósturn einn i
mikill í Mílanó og er 'það gert
í tilrauna skyni. Turninn send-
ir ekki frá sér Ijós, en innrauða
geisla, sem eiga að hita Santa
Maria della Grazia-ldrkjuna.
Þrjár plötur eru efst á Ijós-
turninum og senda þær niður
hina heitu rauðu geisla. Er í
ráði að taka svona hitun upp
í dómkirkjunni í Mílanó og ef
það gefst vel, í mörgum stórum
kirkjum á Ítalíu. En það er al-
kunnugt að ítalskar kirkjur eru
mjög kaldar.
•
Málarinn var að sýna landa
sínum málverk, sem hann hafði
til sölu og sagði hreykinn:
'„Ameríkumaður hefir boðið
mér þrjú þúsund mörk fyrir
þessa mynd.“
Landi hans svaraði: „Ekki
vildi eg gefa meira fyrir hana
en fimmtíu mörk.“
Málarinn: „Jæja, blessaður
taktu hana þá. Eg held maður
þurfi ekki að selja öll meist-
araverk sín til útlanda.“
BÆJAR
/
rétti
r
Föstudagur,
30. janúar, — 30. dagur árs-
ins.
Rafmagnsskömmtun
á morgun, laugardag, kl.
10.45—12.30 í II. og IV. hverfi.
Ennfremur kl. 18.15—19, í V.
hverfi.
K. F. U. M.
Biblíulestrarefni: Lúk. 8,
26—39. Rekur út illa anda.
Landsmálafélagið Vörður
efnir til kvöldvöku í Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld. Þar flytja
ræður Ólafur Thors, formaður
Sjálfstæðisflokksins og Birgir
Kjaran, formaður Varðar. Vel
hefír verið vandað til skemmti-
skrárinnar að ræðunum lokn-
um, en síðan verður stíginn
dans.
Fundur um áfengismál
var haldinn í Borgarnesi sl.
sunnudag að tilhlutun stúkunn-
ar Borg. Guðmundur G. Haga-
lín rithöfundur flutti fram-
söguræðu af hálfu stórstúk-
unnar, en 10 manns tóku til
máls, auk hans. Á fundinum
var samþykkt tillaga, þar sem
lýst var yfir því, að fundurinn
væri mótfallinn bruggun áfengs
öls í landinu og að veittar verði
undanþágur til vínveitinga.
Lýst var ánægju yfir gildis-
töku laga um héraðabönn.
„Freyr“,
búnaðarblað, 2. tbl. þessa
árs, er nýkominn út. Einar Ey-
fells ritar greinina Hvenær er
tímabært fyrir bóndann að
kaupa traktor? Þá er viðtal við
Jón Þorbergsson á Laxamýri,
en Gísli Brynjólfsson á þarna
greinina Milli hrauns og hlíða.
Margar myndir eru í ritinu,
fréttir og sitthvað um búnað-
armál.
eða sveitarfélag
fyrir slikt hús.“
samþykkir
Bólusetning gegn barnaveiki.
Pöntunum veitt móttaka
þirðjud. 3. febr. n. k. kl. 10—12
f. h. í síma 2781.
Ný reglugerð
gekk í gildi 15. f. m. um
gjaldeyri ferðafólks í Þýzka-
landi. Frá þeim degi mega út-
lendingar hafa með sér allt að
200 mörk auk erlends gjaldeyr-
is og ferðatékka, en úr landi
mega þeir hafa með sér allt að
200 mörk, auk ferðatékka og
erlends gjaldeyris, sem til- j
kynntur hefir verið við komu;
til landsins. Keglur þessar ná
aðeins til ferðamanna, sem fara
til stuttrar dvalar til Þýzka-
lands. (Samkvæmt fregn frá
sendiráði íslands í Þýzkalandi),
Athugasemcl
varðandi lóðarúthlutun og
smáíbúðir. — Svo sem tekið
var fram í tilkynningu frá
skrifstofu borgarstjóra 14. þ.
m., hafði svo um samizt,
skömmu eftir að fjárhagsráð
var stofnað, að fjárfestingar-
leyfi skyldi vera skilyrði fyrir
úthlutun lóðar. — Rétt þykir
að taka fram, að þetta gildir
ekki um smáíbúðir, sem eru
undanþegnar ákvæðunum um
fjárfestingarleyfi. Eru þau
veitt öllum, sem fullnægja
skilyrðunum um smáíbúðahús,
sem fjárhagsráð setti með aug-
lýsingu 10. sept. 1951, en eitt
þeirra er, að viðkomandi aðili
hafi tryggt sér lóð, sem bæjar-.
Cíhu Aíhhí Var....
í Vísi- mátti lesa eftirfarandi
í bæjarfréttum hinn 30. janúar
1918:
í gær
og fyrradag gekk sú fregn
um bæinn og sögð vera eftir
loftskeyti, að Þjóðverjar hefðu
unnið heljarmikinn sigur gegn
Bretum og tekið rúman fjórð-
ung milljónar fanga. — Það er
haft eftir þeim, er geta tekið
við loftskeytum, að þessi saga
sé uppspuni.
Skipin og ísinn.
Með naumindum var það að
þau sluppu af Austfjörðum
Botnia og Lagarfoss. Er fullyrt,
að Lagarfoss hefði eigi komizt
af sjálfsdáðum. En svo heppi-
lega vildi til, að Botnia var
byggð að framan eins og ís-
brjóttir og ruddi hún veginn.
Hafði ísinn, sem hún braut,
verið sums . taðar 30 cm. þykk-
ur (um hálf alin). Oft urðu
skipin að snúa við, áður en
þau loksins slupp.u. Hafísinn
fyrir Austfjörðum er ,sam-
felldur frá Langanesi og suð-
ur að Papey út undan Beru-
firði.
tfrcMc/áta hk !%26
Lárétt: 1 Heyþurrkunar-
tæki, 6 á reikningum, 8 ástr-
alskur * fugl, 10 innan rifs, 12
úr ull, 13 guð, 14 á rúm, 16
þreytt, 17 ílát, 19 settækja.
Lóðrétt: 2 Greiðslubandalag,
3 samlag, 4 hátíð, 5 velta, 7
flanaði. 9 óslétts lands, 11 ó
kyrrð, 15 glöð, 16 nestispoka,
18 eldsneyti.
Lansn á krossgátu nr. 1825:
Lárétt:' 1 byrlaði, 6 bál, 7
RV, 9 sinn, 11 Job, 13 nes, 14
aðkí. 10 ,mý, 17 ern, Í9_,akfáK
L.óðrétt: 1 byrjár, 2'RB, ''lat.
4 alin. 5 inr.sýn;, 8 voð, 10 nem,
12 blek, 15 arf, 18 næ.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Antwerpen 26. jan. til Hull og
Rvk. Dettifoss er í Rvk. Goða-
foss er í Bremen. Gullfoss fer
frá K.höfn á morgun til Leith
og Rvk. Lagarfoss er í Rvk.
Reykjafoss er í Rvík. Selfoss
fór frá Liverpool 26. jan. til
Hamborgar. Tröllafoss er í
New York.
Ríkisskip: Hekla er væntan-
leg til Rvk. í kvöld að vestan
og norðan. Esja kom.til Rvk. í
nótt að austan. Herðubreið
kom til Rvk. í gærmorgun að
austan. Skjaldbreið er í Rvk.
Þyrill er á leið vestur og norð-
ur. Helgi • Helgason 'fór til
Vestm.eyja í gærkvöldi. Bald-
ur fór til Búðardals og Hjalla-
ness í gærkvöldi.
Skip S.Í.S.: Hvassafell er í
Stettín. Arnarfell er væntan-
legt til Austfjarða í dag með
timbur. Jökulfell fór frá New
York 24. þ. m. áleiðis til Rvk.
H.f. Jöklar: Vatnajökull fór
frá Reykjavík áleiðis til Israel
26. þ. m. Drangájökull er vænt-
anlegur til Reykjavíkur í fyrra-
málið.
Útvarpið í kvöld.
17.30 íslenzkukennsla; II. fl.
— 18.00 Þýzkukennsla; I. fl. —
18.30 Frönskukennsla. — 19.00
Þingfréttir. — 19.20 Daglegt
mál. (Eiríkur Hreinn Finnboga-
son cand. mag.). — 20.00 Frétt-
ir. —• 20.30 Kvöldvaka Þjóð-
ræknisfélags íslendinga: a)
Formaður félagsins, Ófeigur
Ófeigsson læknir, flytur ávarp.
b) Þorkell Jóhannsson prófess-
or flytur erindi: íslenzkur
kennarastóll í Vesturheimi.
c) Jón Sigurbjörnsson leikarí
og Sigurður Sigurgeirsson
bankaritari lesa upp. d) Síra
Sveinn Víkingur flytur erindi.
e) Vilhjálmur Þ. Gíslason
skólastjóri segir frá Vestur-
íslendingum. f) Ófeigur Ófeigs-
son læknir flytm' lokaorð. Enn-
fremur tónleikar af plötum. —
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
— 22.10 „Maðurinn í brúnu
fötunum“, saga eftir Agöthu
Christie; IX. (Frú Sigríður
Ingimarsdóttir). — 22.35 Dans-
og dægurlög (plötur) til kl.
23.00.
Kvenréttindafél. íslands
heldur afmælisfagnað sinn í
kvöld kl. 8.30 í félagsheimili
V.R., uppi.
NÝK0MIÐ:
hvítt léreft
140 cm. breitt á 13,45.
90 cm. breitt á 8,90
mislitt léreft á 7,10
Þurrkuefni á 6,95
Sirs, margar gerðir á 7,50
H. Toft
Skólavörðustíg 8.
Uxahalasúpa
Kraftsúpa
Sveppasúpa
Tómatsúpa
með ísl. leiðarvísir.
Veðrið.
Fyrir suðaustan land er lægð
á hreyfingu austur eftir. Hæð
er yfir C-rænlandi, en lægð yfir
Labrador á hreyfingu norðaust-
ur á bóginn. Horfur: NA-kaldi
eða stinningskaldi, bjartviðii
og skafréhníngur með köflum.
Veðrið kl. 8 í morgun: Rvík
N 6, : 7, Stykkishólmur NA
4, Hornbjargsviti NA 3, ~6,
Siglunes N 3; ~ 5, Akureyri A
1, ~ 11, Grímsey NNA 5, 6,
Grímsstaðir logn, ~ 20, Rauf-
arhöfn. NA 5, -t- 6, Dalatangi
N 3, 5, Djúpivogur N 3, 5,
Vestmaur- jar N 4, -f-4, Þing-
vellir NNA 1, 10, Reykjanes-
viti NNA o, 8, Keflavíkur-
völlur NA 6. -f-' 7.
Reykjavík. r r ,
Reykjávíkus bátay voru yfir-
leitt á sjó í gær, þ. e. a. s. þeir,
sem b; rjaðir eru róðra. Þrír
leggja upp frá Fiskiðjuveri rík-
isins, Hagbarður 5 ; . lest, Skíði
og Svanur með tæpar 4 lestir.
Ásgeir, ffá Ingvari Vilhjálms-
syni, fór í fyrSta róðyU’ í gær og
var aflinn 3 lestif. Hvíta kom
úr útilegu í vikunni og' var með
3 lestir .eftir eina lögn. Hvítá,
Björri Jónsson og Rifsnes eru
alíipi| útilegáflöíil '&ri þéiiífafu:
á veglun Ingvars Vilhjá’msson-
ar. ’ Faxaböfg, Sigurður Pétur
og Sæfell eru lík'a í útilegu.
Marz og Áslaug frá Faxaveri
h.f. eru í útilegu.
Akranes.
Allir bátar voru á sjó og var
afli allgóður hjá þeim yfirleitt,
5—7 Vz lest. Akranesbátar lögðu
línurnar á venjulegum slóðum,
norður frá. í dag eru Akranes-
bátar aftur á sjó.
Sandgerði.
Sandgerðisbátar voru allir á
sjó í gær og var afli þeirra mjög
sæmilegur ýfirléxtt, eða 4—7
lestir. Hæstir voru Muninn og
Faxi með 7 lestir hvor. í dag
er gott sjóveður og eru allir
bátar á sjó.
Grindavík.
Aðeins tveir bátar frá Grinda
vík voru á sjó í gær, og var
afli þeirra lélegur. Von frá'
Grenivík fékk Wz lest og Óðinn
3 lestir. Munu báðir bátarnir
hafa verið með stuttar línur. í
dag eru Grindavíkurbátar á sjó
og er þar ágaétt sjóveður.
Kellavík.
Keflavíkurbátar voru flestir
á sjó í gær og var afli þeirrá
4%—6 lestir. Einn bátur,
F. 'ykjaröst, er byrjaður með
net og var afli bátsins 5
kstir ílróðri ií gfér.. Atanar neta-
’útur mun vera að búa sig'á
voiðar. Bátar- eru aftur á sjó í
’lag, en sjóveður er gott.
Kuldaúlpur
mikið úrval.
UerrabúíiH
Skólavörðustíg 2, sími 7575.
Þurrkaða
ifraBimaetid
licfur reynst ágætlega
Snittubaunir
Selleri
Gulrætur
Púrrur
Rauðkál
Hvítkál
Pcrsille
Laukur
BI. Súpujurtir
fæst í
VFRZLi/N
SIMI 'tlQb
mjög fallegir
Sk rauthnappa:
og
Máin.ieggingar
Toft
Í .1. ð
Skólavörðustíg 8.