Vísir - 31.01.1953, Síða 1
43. árg.
25. tbl,
Laugardaginn 31. janúar 1953.
.- ........',V—■■■.1 .................... "" - ■'. ■—
Beðið um sufóbila fil
aðstoðar öðrum bílum
í slíkiam farariækjam
Mý|a- orknverið við Laxa
tekið í notknn í ágúit.
ekki Siaíaar.
Mannvirki öll hafa verið reist og
vélar eru komnar til landsins.
Framkvænidír hóíust tyrir 2 áruna.
Byggingu mannvirkja við Laxárvirkjunina nýju
er nú að mestu lokið, en þar er nú risið af grunni
myndarlegt stöðvarhús, svo og lokuhús, þrýstivatns-
pípan hefur verið lögð og sjálf stíflan að mestu fullgerð.
Nú, þegar samgönguerfið-
leiltar byrja byggða á milii,
vegna snjóalaga, er gott að geta
gripið til snjóbílanna.
Er nú svo komið að tveir
Reykvíkingar ráða yfir snjó-
bílum, þeir Guðmundur Jón-
asson, sem varð fyrstur íslend-
inga til þess að festa kaup á
snjóBíl og ferðast á honum um
landið, og Ingimar Ingimarsson,
er nýlega hefur keypt snjóbíl
af Volvogerð.
Vísir átti tal við annan þéss-
ara manna, Guðmund Jónas-
son, og innti hann eftir því,
hvort pantanir væru farnar a5
berast um snjóbílaferðir upp til
fjalla.
Að því er Guðmundur sagði,
hefur til þessa aðallega verið
beðið um snjóbíla til aðstoðar,
þar sem aðrir bílar hafa átt í
erfiðleikum vegna snjóalaga.
Þannig var snjóbíll Guðmund-
ar pantaður s.l. sunnudag til
að aðstoða bíl uppi á Sand-
skeiði, sem sokkið hafði á kaf
í hvarf, er myndazt hafði vegna
úrrennslis á veginum. En um
svipað leyti bar þar að krana-
bíl austan úr sveitum, er náði
bílnum upp, svo að til aðstoð-
ar snjóbílsins kom ekki. Hvarf-
íð, sem þarna myndaðist, var
mjög djúpt og stórhættulegt um
ferðinni, en Vegagerðin lét
strax fylla það með möl og
sandi, svo að þess vegna þurftu
bilar ekki að stöðvast á austur-
leiðinni.
f fyrradag var Guðmundur
fenginn til aðstoðar bílum á
Hvalfjarðarleið, sem áttu í erf-
iðleikum vegna ófærðar og m.
a. brotnuðu þar tveir bílar.
Hljóðfæraleikarar í Sym-
fóníuhljómsveitinni héldu fund
í gær og samþykktu bá vítur á
Jón Þórarinsson og Björn Jóns-
son.
Fundur þessi fjallaði um
grein þá, er þeir Jón, sem er
formaður hljómsveitarinnar og
Björn, framkvæmdarst. hennar,
birtu í Morgunblaðinu fyrir
skemmstu, en þar var m. a.
tæpt á því, að lélegri hluti
hljóðfæraleikara Symfóníu-
hljómsveitarinnar hefði ráðizt
til Þjóðleikhússins.
Mun mörgum hljómsveitar-
mönnum hafa þótt þetta jaðra
við atvinnuróg, og fyrir því var
fundurinn haldinn, og víturnar
samþykktar með öllum at-
kvæðum fuhdarmanna, en eng-
inn varð til þess að greiða þeim
mótatkvæði.
Enn er svo skammt liðið á
vetur að fólk er ekki tekið að
hyggja á langferðir í snjóbíl-
um, en búast má við því að eft-
irspurn eftir slíkum ferðum
aukist er fram í sækir og lengra
liður á vetur. Bjóst Guðmund-
ur við því að þeir Ingimar og
hann myndu hafa samvinnu um
slíkar ferðir eftir því sem við
yrði komið.
Ef leiðir austur yfir fjall
teppast vegna fanna, koma snjó
bílarnir fyrst að verulegu gagni,
og myndu þeir þá verða í ícr-
um austur yfir Hellisheiði,
bæði fyrir farþega og flutninga.
Miðað við það að leiðin úr
bænum og upp að Lögbergi yrði
fær venjulegum bifreiðum,, en
hins vegar fært að austan upp
í Kamba, myndi ferð frá Sel-
fossi til Reykjavíkur ekki taka
nema 2 klst,, enda þótt skipt
ýrði tvívegis um bíla.
Elkins ofursti, yfirmaður flug
hersins á Keflavíkurvelli, læt-
ur nú af störfum, og hverfur
heim til Bandaríkjanna, en hér
hefur hann starfað í rúmt ár.
Fréttamenn áttu í morgun
tal við Elkins,,svo og varnar-
málanefnd, en í henni eru. þeir
Hans G. Andersen þjóðréttar-
fræðingur, sem er formaður
hennar, Guðm. I. Guðmundsson
sýslumaður og Agnar Kofoed-
Hansen flugvallastjóri. Elkins
ofursti sagði, að sér hefði verið
það óblandið ánægjuefni að
dvelja hér og starfa. Hann hefði
gert sér far um að kynnast sem
bezt hinni íslenzku þjóð, og þau
kynni hefðu valdið því, að héð-
! an færi hann minnugur ágætra
manna, og þjóðinni allri bar
hann hið bezta orð.
Vestra mun Elkins taka við
flugvallarstjórn á Andrews-
velli, skammt frá Washington
Bretar urðu að
gera við sjálfir.
Járnsmíðameistarar hafa nú
gert me-3 sér samþykkt um það,
að brezk fiskiskip skuii ekki
fá viðgerð hér meðan Iöndun-
arbannið stendur ytra.
Hafði línuveiðari leitað hafn-
ar hér vegna bilunar á katli,
en skipstjóra hans var tilkynnt,
að hann mundi ekki fá viðgerð
hér af ofangreindurn ástæðum.
Bilunin var þó ekki meiri en
svo, að skipverjar gátu gert við
hana sjálfir.
1600—1700 ís-
Sendingar á
Keflavíkiirveíli.
Á Keflavíkurflugvelli vinna
nú 16&0—1700 íslendingar, og
verða fleiri er kemur fram á
vorið.
Elkins ofursti skýrði frá því
í morgun, er blaðamenn kvöddu
hann, að á vegum flughersins
væru nú starfandi um 600 ís-
lendingar við margvíslg störf,
og hefði samvinna við þá verið
með miklum ágætum. M. a.
starfa þeir í slökkviliði vallar-
ins, þar sem þeir hafa reynst
frábærlega vel og um 95% af
starfsliði hótelsins eru Islend-
ingar. Æskilegt væri, sagði El-
kins, að flugherinn réði 200
íslendinga til viðbótar, en hús-
næðisskortur hamlar því enn.
D. C., en það ér mikið ábyrgð-
arstarf, og ber vott um traust
það, er yfirstjórn flughersins
hefur á honum.
Hans Andersen lýsti sam-
starfinu við Elkins bæði í
varnarmálanefnd og' við önnur
störf, og sagði, að mikil eftirsjá
væri að svo færum manni og
miklum drengskaparmanni, sem
jafnan hefði gert sér far um að
leysa sem bezt hvert það mál,
er að höndum bar. Elkins ofursti
hefði aflað sér hér frábærra
vinsælda, er hann hefði fylli-
. lega unnið til.
Við starfi Elkins hér tekur
nú Baily ofursti, en hann hef-
ur til þessa verið næst æðstur
í þeirri deild ameríska flughers-
ins, er hefur björgunarmál með
höndum (Air Rescue Service).
Vísir átti í gær stutt viðtal við
Eirík Briem, rafveitustjóra
ríkisins, og spurði hann hvernig'
verkið gengi, og enn fremur
hvenær gert væri ráð fýjgir að
Laxárvirkjunin myndi taka til
starfa.
Tveggja ára verk.
Vinna við Laxárvirkjunina
hófst raunverulega voiáð 1951,
en þá var öllum undirbúningi
undir verkið að mestu lokið.
Hefur verkinu miðað allsæmi-
lega áfram og' er nú öllum
byggingarframkvæmdum lokið.
All stórt stöðvarhús hefur verið
reist, sem er frá botni á sog-
röri og að þaki 25 metrar. —
Stíflan er auðvitað mikið
mannvirki, 110 metrar, og er
því verki að mestu lokið. Milli
stíflunnar og stöðvarhússins
liggur þrýstivatnspípan, sem
ér bæði úr tré og riiálmi, 345 m.
tré og 40 m. málmpípur.
Vatnsjöfnunarturn.
Á þrýstivatnspípunni verður
vatnsjöfnunartum, sem verður
Lögreglan má ekki
bera kylfur.
Vín (AP). — Samkvæmt
kröfu hernámsstjórnar Rússa
í Austurríld mega lögreglu-
þjónar á rússneska hernáms-
svæðinu ekki bera kylfur við
skyldustörf sín, því að kylf-
ur sé „vopn“. Er álitið, að
Rússar geri þetta eftir ósk
austúrrískra kommúnista,
svo að lögreglan standi verr
að vígi, ef beir efna til ó-
spekta.
19 metra há bygging og 13 m.
í þvérmál. Turninn er eina
sjálfstæða mannvirkið, sem
ekki hefur verið reist, en efnið
í hann kom í nóvember í haust
og verður hafizt handa um
byggingu hans í vor, en méð
honum má heita að komið sé að
niðursetningu véla, sem þó fer
fram að mörgu leyti samtímis
öðru verki.
Véianiðursetningin.
Vélar og rafbúnaður til stöðv-
arinnar eru komin til landsins.
Vatnsvélar (turbínur) hafa
verið settar niður og steypt
hefur um, en að því verki hef-
ur verið unnið undanfarið og
lauk því 29. þ.m. Nú er unnið
að því að steypa undirstöður
undir rafalinn, og gert ráð fyrir
uppsetningu hans í marzmán-
uði. — Jafnframt því verki
verður unnið að uppsetningu
rafbúnaðar, bæði við Laxár-
virkjuriina og í aðalspennistöð-
inni á Akureyri. En nauðsyn-
legum byggingum aðalspenni-
stöðvar á Akureyri var lokið í
haust er leið.
Háspennulína reist.
Þá er það háspennulínan, en
því verki hefur ekki miðað eins
vel áfram og æskilegt hefði
verið, en nauðsynlegt efni til
línunnar verður ekki komið tii
landsins fyrr en í marz, en þá
verður hægt að hefjast handa
fyrir alvöru, og mun sá hluti
verksins því ekki tefja stöðina
neitt. Allir staurar liafa verið
reistir, en ekki hefur verið
hægt að strengja vírana, þar
sem nokkuð af efni til hans er
ókomið. Það sem á vantar er þó
væntanlegt í marz, og má því
gera ráð fyrir að vírar verði
strengdir eftir staurunum í vor.
Ætlunin er að því verki, sem
enn er eftir, geti miðað það vel
áfram, ef engar sérstakar ó-
fyrirsjáanlegar hindranir verða
á vegi, að raforkuverið geti
tekið til starfa í ágúst. Til þess
að svo geti orðið þarf í raun-
inni stöðin að vera til talsvert
fyrr, en ýmsar nauðsynlegar
prófanir þurfa að fara fram
fyrir þann tíma, en út í það
þarf ekki nánar að fara.
Með þessari nýju virkjun
eykst aflið í stöðvunum við
Laxá úr rúmlega 4000 kw.
rúmlega 12000 kw. eða nær
þrefaldast.
i Myndin er af stíflunni og mannvirkjum Laxárvirkjunarinnar.
Elkins ofursti lætur af
stjórn flughersins hér.
íslendingar bera honum frábærSega vel söguna