Vísir - 02.02.1953, Síða 1

Vísir - 02.02.1953, Síða 1
43. árg. Mánudaginn 2. febrúar 1953 26. íbl. Erlendus' Björnsson sýslumaiur N.-MúSa- sýslu. Érléndur Björnsson, bæjar- stjóri í Seyðisfirði, hefur verið skipaður bæjarfógeti í Seyðis- f jarðarkaupstað og sýslumaður Norður-Múlasýslu frá 1. febrú- ar að telja. Tilkynning um veiting þessa embættis hefur verið gefin út af dómsmálaráðuneytinu. Um- sækjendur um embættið voru fjórir. Erlendur Björnsson hef- ur gegnt bæjarstjóraembættinu í Seyðisfirði í 13 ár, eða frá því að hann lauk lögfræðiprófi. Dulles og Stassen í París. Paris (AP) — Dulles og Stassen eru nú í París og ræða þar við franska ráðherra um efnahags- og landvarnamál. Þeir eru væntanlegir til London að þeim viðræðum loknum. — Þeir verða 11 daga alls á íerðalagi sínu og heim- sækja 7 lönd. Sumarbústaður skemmist af eldi. Á laugardagskvöld kom upp eldur í mannlausum sumarbú- stað við Fossvog. Var eldurinn orðinn æöi magnaður, er slökkviliðið kom á vettvang, en það gat þó fljót- lega kæft eldinn. Skemmdir urðu þó miklar á sumarbú- staðnum, því að hann er úr timbri. Inflúenzan er frá 1951. Það er álit brezkra lækna, að inflúenzan, sem geisar víða á Englandi, sé framhald farsótt- arinnar, sem geisaði árið 1951. Hafi veikin legið niðri, þar til í þokuvikunni miklu í desem- ber, er sýkillinn efldist vegna þess að viðnámsþróttur manna minnkaði. Eitir wnesta íárviöri í 4 aldir: Sfór liefii* gengið 70 km. a land upp í Hollandi. Lægðin fór hér hjá á föstudag. Óveðrir mikla sem geisaði á Bretlandseyjum og í Vestur- Evrópu fyrir 05 um heigina myndaðist á norðanverðu Atlantshafi og fór sunnanvert við ísland á föstudaginn var. Gerði hvassviðri þá við suð- urströnd íslands, en færðist svo smám saman í aukana er austar og sunnar dró og mun hafa náð hámarkí yfir Bretlands- eyjum og vestast á meginland- inu. Lægðin hefur síðan haldið áfram suður á bógin og mun nú vera komin suður um eða suður yfir Alpafjöll. Jafnframt er lægðin allmikið tekin að grynnast og mun ekki valda neinum ofsaveðri úr þessu. Brkfge: Sveit Einars or&in efst. Eftir f jórar umferðir í sveita- keppni meistaraflokks í bridge er sveit Einars B. Guðmunds- sonar nú efst með 8 stig. Næst í röðinni er sveit Harð- ar Þörðarsonar með 7 stig, en í gær tókst sveit Zóphoníasar að ná jafntefli við hana og þóttu það nokkur tíðindi. í 4. umferð, sem spiluð var í gær, fóru leikar þannig, að Einar Baldvin vann Hermann, Höx-ður gerði jafntefli við Zóp- honías, Gunngeir vann Jón, Ragnar vann Margréti, Ásbjörn vann Stefán og Guðjón vann Guðjohnsen. Fimmta umferð verður spil- uð í kvöld. Úttazt um Lancastervél með 9 manns innanborös. Lagði af stað frá Keflavíkurvelli í gær í leit að annari. Óttazt er, að kanadísk Lan- casterfiugvél, sem Iagði af stað frá Keflavíkurvelli um kl. 10.30 í gærmorgun, hafr farizt skammt frá Goose Bay í Labra- dor. Áður höfðu borizt fregnir hingað um, að Beeehcraft-flug- vél með tveim mönnum, hefði farizt á leið milli Goose Bay og Bluie West One-vallar á Græn- landi. Það mun hafa verið á Brúarfoss veröur fyrir áfalli við Engiand. Eitt af skipum Eimskipa- félags íslands, Brúarfoss, lenti í ofviðrinu mikla undan Bret- Iandseyjum fyrir helgina og varð að leita hafnar í Leith vegna sjóskaða er bað hafði orðið fyrir. Laust fyrir hádegið í morgun barst Vísi svohljóðandi til- kynning frá Eimskipafélagi ís- Iand: „Brúarfoss hafnaði sig í Leith kl. 14 í gær (sunnudagj vegna sjóskaða sem skipið hafði orðið- fyrir í ofviðrmu. Skemmdir hafa aðallega orð- ið á farþegaklefum, miðskips. Farþegar og póstur halda á- fram með Gullfossi, sem fer frá Leith á morgun til Reykja- víkur. Engin slys hafa orðið á mönn- um. Samkvæmt frekari upplýs- ingum murm 6 farþegar hafa verið með Brúarfossi. Ennþá haía akki borizt ljósar fregnir um hve tjónið hefur orðið mikið. Vitað er þó að rúður brotnuðu í farþegaklef- um. Viðgerð mun fara fram í Leith,- en ekki er vi.tað hve langan tíma liún tekur. föstudag. Átti Lancaster-vélin, sem héðan fór, að svipast um eftir henni, og flaug því mjög lágt, eða í 300 meti-a hæð. Þegar síðast fréttist til Lan- caster-vélarinnar, sem var með 9 manns innan borðs, átti hún eftir sem svaraði kortérs flug til Gobse Bayvallar-vallar. Þá vóru aðeins tveir hreyflar í gangi af fjórum og útlitið því slæmt, Síðan hefur ekkert spurzt til hennar. Um kl. 5.30 í morgun heyrð- ust neyðarmerki frá York- farþegaflugvél, sem var á leið milli Azoreyja og Gander á Ný- fundnalandi. Loks hafði frétzt til flugbáts af Short-Solentgerð, sem var á leið frá Lissabon, líklega til Madeira. Þar hafði eldur kom- ið uþp í eínum hreýflinum, og því verið snúið við. Ókunnugt er um afdrif hennar. — Þessar upplýsingar eru frá flugturn- ínum á Reykjavikurvelli. Gífurlegt tjón hefir orðið þar, í Belgíu, Bretlandi og Frakklandi. ÞHggía metra vaín á götunnm ■ Vlissingen í Hollandi. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. í Hollandi hafa yfir 300 manns farist, í mesta fárviðri, sem sögur fara af. Að auki er mikils fjölda saknað. Sjór hefur flætt nærri 70 kilometra inn í landið og stórhætta vofir yfir heilum landshlutum, ef ekki tekst að styrkja flóðgarða í tæka tíð. Montreal (AP). — Kanada- mennm og Svisslendingar munu í sumar gera út sameiginíegan leiðangur til Baffin-eyju. Brezka stjórnin hefur lofað íbúum Brezka Honduras n.ýrri stjórnarskrá. Um helgina hafa farist a. m. k. 160 manns á austurströnd Englands, en fjölda manns er saknað, og þúsundir hafa flúið heimili sín. Um 130 manns fór- ust er skipið Princess Victoria fórst á Ieið milli Skotlands og Norður-frlands, en 44 var bjargað. Ofviðrið skall á skyndil., svo að skipi ensku járnbrautanna, Princess Victoria, hvolfdi, á leið frá Skotlandi til Norður- írlands. Skip komu fljótt á vettvang, m. a. tundurspillirinn Contest, sem bjargaði 9 manns og flutti til Belfast, en annað skip bjargaði 7 og létust ö þeirra á skipsfjöl, og aðeins einn komst lifandi til lands. — Olíuskip var meðal þeirra, sem komu á vettvang, og dældi olíu á sjóinn. í sumum fi-egnum segir, að 133 menn hafi farist með skip- inu, en öðrum 128, en fregnum ber saman um, að 44 hafi vorið bjargað. Meðal þeirra, sem sent hafa samúðarskeyti út af þessu mikla slysi eru: Elisabet drottning, Churchill forsætisráðherra og De Valera. Tjónið er gríðarlegt. Tjón af völdum ofveðurs og sjávargangs er svo mikið, að ekki verður tölum talið, á aust- urströnd England, einkanlega frá Yorkshire til Thames-ósa, og hafa sem í upphafi var sagt 160 farizt svo að kunnugt sé, en því mun fara nijög fjarri að þar séú öll kurl komin til graf- ar. Tugþúsundir hermanna, lögreglumanna og sjálfboða liða unnu í nótt að alls kon- ar varnarráðstöfunum og m. a. að b-rottflutningi fólks, þar sem ótfast var að nýir, voveiflegir atburðir myndu gerast á háflæði, en k!.. 2 var mesta bættan taiin lið- in hjá. Veður hefur batnað allmjög. í mörgum hafnarbæjum rauf sjórinn skörð í hafnar-og vam- argarða, á einum stað 15 metra Símslit eru víða og erfitt að fá yfirsýn um tjónið, en við og við berast fréttir, sem bera með sér að tjón sé tniklu meira en í upphafi hafi verið haldið og muni manntjón jafnvel skipta þúsundum. Meðal annars hefur eyja í Thamesfljóti al- veg horfið, en þar bjuggu 250 manns. breitt, og viða flæddi yfir lág- hverfi bæjanna og er þar allt á floti. Frá bænum Harwich varð að flytja 3000 manns Á eyju nokkurri í Thames- ósum drukknuðu 30 manns og á annarri eyju eru 10.000 manns í hættu, en sambandslaust er við eyna. Sjór hefur flætt yfir víð- áttumikla akra, þar sem engin dæmi eru til, að sjór hafi flætt yfir áður, og sums staðar þar sem ekki sést til sjávar. Skozki sildveiðaflotinn mun hafa beðið mikið tjón í ofviðrinu. Mesta tjón í 4 aldir. Talsmaður hollenzku stjórn- arinnar sagði í gær, að hol- lenzka þjóðin hefði ekki orðið fyrir öðrú eins áfalli sem þessu Frh. á 5. síðu. Gylfi varð að „slowa.“ B.v. Gylfi frá Patreksfirðl hefur að líkindum komið til Aberdeen £ nótt og ekki lent í aftakaveðrinu. Hann var með 310 lestir af saltfiski, sem seldar voru í Aberdeen. Samkvæmt viðtali, sem blað- ið átti við Patreksf jörð í morg- un, barst skeyti frá togaranum, sent á miðnætti aðfaranótt sunnudags. Var togarinn þá 80 mílur frá Sule Skerry vindstig 6 og norðanátt eða á eftir og leið öllum vel. Áður hafði skip- íð „slowað", eins og sjómenn kálíá það, í 20 klst., vegna veðurs, en það er ekkert ó- venjulegt í vetrarferðum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.