Vísir - 07.02.1953, Side 1

Vísir - 07.02.1953, Side 1
43. árg. i7.............. ~ ~ Laugardaginn 7. febrúar 1953 31. tbl. Sfúlica skarsf á haitdle$fg9 er hún forðalli sér úf um glugga. í morgun kom upp cldur f j hluta hússins, sem Ágúst bjó í. mý variiförgarða á England. ¥fir 1600 manns hafa orðið fEóllunum að krað. húsinu Bræðratungu við Engja- veg, og skemmdist húsið mjög mikið, cn stúlka meiddist nokk- uð, er hún forðaði sér út um glugga. Húsið Bræðratunga er ein- lyft timburhús, múrhúðað, en rétt hjá er annað timburhús, einlyft, sem ber sama nafn. Slökkviliðinu barst bruna- kallið kl. 11.05, og brá þegar við og fór inn eftir með nokkra bíla. Þarna hagar svo til, að engin vatnsæð er þarna eða brunahanar, og má segja, að það hafi afstýrt stórkostlegum eldsvoða, að bílarnir höfðu vatnsgeyma meðferðis. Tókst að koma í veg fyrir, að eldurinn læstist í þá Bræðra- tunguna, sem austar er, en hitt húsið brann mjög mikið, eink- um vesturendi þess, en þar kom eldurinn upp, og kviknaði út frá Kolaeldavél. Brann þar allt innanstokks að heita má, en í austurenda tókst að bjarga hús- gögnum og öðru lauslegu. Svo skjótlega greip eldúrinn um sig, að stúlka, Soffía Sigur- geirsdóttir að nafni, varð að fara út um glugga, en skarst við það nokkuð á handlegg. Önnur meiðsl urðu ekki. í húsi þessu munu hafa búið um 10 manns: Sverrir Mey- vatnsson, húsráðandi og kona hans og eitt barn þeirra, og stjúpbörn. Ennfremur Ágúst Jónsson og kona hans og eitt barn. Kom eldurinn upp í þeim Demókratar gagnrýna Eis- enhower. Einkaskeyti frá AP. N. York í morgun. Demokratar gagnrýna ákvörð un Eisenhowers varðandi 7. Bandaríkjaflotann, Formósu og meginland Kína. Sparkman sagði í öldunga- deildinni í gær, að Eisenhower hefði ekki ráðgast við demo- krata um þetta. Hann kvað Þjóðernissinna ekki hafa bol- magn til neinna mikilla hern- aðaraðgerða, aðstoðarlaust. — Árásir þeirra á eyjar á valdi kommúnista og smástrandhögg, yrðu eins og títuprjónsstungur. Fregnir frá Washington benda til, að ákvörðun Eisenhowers leiði af sér aðrar fleiri og mikil- vægari, svo sem að Bandaríkja- flotinn leggi hafnbann á Kína. Radford, yfirflotaforingi Banda ríkjanna á Kyrrahafi, er sagð- ur því hlynntur. Vesturhluti hússins má heita ó- nýtur eftir brunann, en minni í austurenda, nema af vatni og reyk. Stjórnarkjör fer fram í Dagsbrún um miðjan mánuð- inn, og hafa verið bornir fram tveir lisíar. Annar listinn er borinn fram af kommúnistum í stjórn fé-, lagsins, og eru þar að mestu sömu menn og áður, en hinn listinn er borinn fram af Al- þýðuflokksmönnum, og er Al- bert Imsland í formannssæti. Stöðugur flóttamanna- straumur tii Yestur- Þýzkalands Bonn (AP). — Áform eru á döfinni um að flytja 30.000 flóttamenn frá V.-Berlín til V.- Þýzkal. mánaðarlega á þessu ári, eða 50000 fleiri mánaðar- lega en nú. Bonnstjórnin hefur lagt til hliðar um 32 millj. króna til hjápar flóttamönnum. Búist er við enn fleiri flóttamönnum frá A.-Þýzkalandi í ár en í fyrra. Gegnir störfum fræðslumálastjóra. Ingimar Jóhannesson fulltrúi hefur verið settur fræðslumála- stjóri í fjarveru Helga Elíasson- ar. Eins og Vísir hefur áður greint frá, mun Helgi Elíasson fræðslumálastjóri dvelja vest- an hafs um þriggja mánaða skeið í boði Bandaríkjastjórn- ar. Samkv. auglýsingu í nýút- komnu Lögbirtingablaði gegn- ir Ingimar Jóhannesson full- trúi á fræðslumálaskrifstofunni störfum hans á meðan, eins og fyrr greinir. Um Suezskurð titeð írauska oliu. Kóm (AP). — ítalska tankskipið Miriella hefur nú farið gegnum Suezskurðinn til Miðjarðarhafs. Skipið tók fyrir nokkru til flutnings í Perísu 5000 lestir olíu, en ekkert er enn kunn- ugt um hvar reynt verður að afferma skipið. Skipið cr á vegum ítalsks félags. Brezk blöð — svo sem Daily Mail — hafa sagt, að það muni verða stöðvað af Bretum. — Stjórnar flughern- um á Keflavíkur- velli. Eins og Vísir hefur áður greint frá, hefur M. A. Elkins ofursti Iátið af störfum sem yfirmaður flughersins á Kefla- víkurvelli, en við hefur tekið J. C. Bailey ofurstL Tók Bailey formlega við starfi sínu s. 1. þriðjudag, en Elkins mun farinn héðan til þess að taka við starfi sínu sem yfir- maður Andrews flugvallar við Washington Ð. C. J. C. Bailey er 36 ára gamall Texasbúi, en hefur verið í flug- hernum rúm 16 ár. í síðustu styrjöld stjómaði hann flug- vélum, er þátt tóku í hernaði gegn kafbátum á Karíbahafi, en síðan barðist hann með flug- hernum á Ítalíu og á Kyrrahafi. Áður en hann kom hingað var harih næstæðstur í þeirri deild flughersins, sem fjallar um björgun, Air Rescue Service. Eldnr í Hamri í itiorgun. Klukkan rúmlega 9 í morgun var slökkviliðið kvatt vestur í vélsmiðjuna Hamar. Þar höfðu menn unnið að því að hreinsa ýmsa vélahluta upp úr benzíni á viðgerðarverk- stæði, sem er vestarlega í stór- hýsi Hamars við Tryggvagötu. Eldur hafði komizt í benzínið, og varð af allmikði bál í einu horni verkstæðisins. SlÖkkviliðið kom umsvifa- laust á vettvang og tókst fljót- lega að slökkva með háþrýsti- vatnsdælum, án þess, að eld- urinn breiddist út, né ylli telj- andi skemmdum. London í morgun (AP). Unnið verður kappsamlega að því að treysta varnargarða í Englandi og Hollandi um þessa helgi og verða þúsundir her- Q. Mary lagðist upp að hjálparlaust. N. York (AP). — Hafskipið Queen Mary Iagðist að bryggju hér í gær aðstoðarlaust. í fyrstu tilraun lá við að hið mikla skip rækist á bryggj- una, en í annari tilraun tókst að leggjast upp að. — Stóru hafskipin njóta venjulega að- stoðar dráttarbáta, en þá aðstoð var ekki hægt að fá nú vegna verkfallsins. Nýtt trygglngafyrir- tæki tekur til starfa. Nýtt tryggingarfélag hefur verið stofnað hér í bænum, að því er blaðið hefur heyrt. Er verið að ganga frá undir- búningi þess, að hið nýja félag taki til starfa. Þátttakendur í hinu nýja félagi eru Trolle & Rothe h.f. og Carl D. Tulinius & Co. sem bæði eru landskunn fyrirtæki. Formaður stjórnar hins nýja félags er Carl Einsen fram- kvæmdastjóri. Ræddust við í sjö klst. Kairo (AP). — Naguib for- sætisráðherra Egyptalands og Sir Ralph Stevenson sendiherra Breta ræddust við í 7 klst. í gær. Var þetta lengsti viðræðu- fundur þeirra til þessa um á- greiningsmál Breta og Egypta. |Boðað varf hð þeir mundu ræðast við aftur bráðlega. Innhrot Aðfaranótt sl. miðvikudags var brotizt inn á þrem stöðum á AkureyrL Tókst lögreglunni að hafa upp á þjófnum daginn eftir, og reyndist það vera 19 ára piltur. Hafðl hann einsamall verið að verki, en lítið haft upp úr krafsinu. Hann var settur í gæzluvarð- hald, en braust út úr fanga- klefanum í gærkveldi. En ekki hefur honum litist á að hann yrði lengi laus, því í morgun gaf hann sig aftur fram. manna, auk sjálfboðaliða, við þessi störf. — Grjót er flutfe loftleiðis frá Þýzkalandi tifi Hollands. Er það vegna þess að grjót íi varnargarða fyrirfinnst vart íi Hollandi. Bandarískar flugvél- ar eru notaðar til flutninganna.. Þykir mikils við þurfa, aS treysta varnargarðana, áður ea sjávarflóð ná hámarki aftura um aðra helgi. Hættan vex í EnglandL í Hollandi eru enn hundruS manna, sem bjarga þarf. í gærr var bjargað mörgum mönnum, sem höfðu hafzt við á efri hæð- um húsa, húsaþökum og trjá- krónum, sumir í 5 daga og 4; nætur. Var fólk þetta að sjálf— sögðu að fram komið. — Varn- argarðar brustu hvergi í nótt il Hollandi, en í gær myndaðist; nýtt skarð í garðana fyrir sunn- an Sutton on Sea í Englandia og hefur aftur flætt inn í borg— ina, en fólk var flutt burt það-» an fyrir skemmstu. 10 þús. hermenn. Er þarna talin mest hætta 4 ferðum og hafa verið til kvadd- ir verkfræðingar, sem unnu að> undirbúningi innrásarinnar S Normandi, til að segja fyrii? verkum. — 10—11.000 hermenra vinna að því að treysta varn- argarða og fylla í skörð, nú umt helgina, en annars verður unn- ið dag og nótt að þessum störf- um alla næstu viku. Tala drukknaðra 16—17 hundruð. 264 menn hafa farizt í En-» landi á hættusvæðunum, sam- kvæmt tilkynningu innanríkis— ráðherrans, en fréttastofufregn- ir segja, að upp undir 300 haf£ farizt, en í Hollandi hafa 135® drukknað svo að vitað sé. hennar. •Seinustu fregnir frá Hollandi?, hérma, að tala drukknaðra sés komin upp í 1370, og að vatra sjatni nú óðum á flóðasvæðiniu Þinglausnir í gær. í gær fóru fram þmglausnii? og hafði Alþingi þá setið í 129) daga — að meðtöldu jólahléi — og afgreitt 73 lög. Fundir höfðu alls verið 182^ og fyrir þingið höfðu verið lögS 156 lagafrumvörp. Bornar vorw. fram 52 þingsályktunartillög— ur og voru samþykktar 23 á-» lyktanir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.