Vísir - 09.02.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Mánudaginn 9. febrúar 1953. 32. tbl
ísbsizk sjóinasisiagiiis-
fijónusta I Höln.
Að áeggjan Ulf Andersens
bóksala, sem hingað kom s.l.
'sumar var haldin guðsþjónusta
í sjómannakirkjunni í Nýhöfn
í Kaupmannahöfn sunnudaginn
25. janúar.
íslendingafélagið auglýsti
guðsþjónustuna og voru all-
margir íslendingar ,sem búsett-
ir eru í Höfn, viðstaddir, þeirra
á meðal Sigurður Nordal sendi-
herra og Martin Bartels banka-
fulltrúi.
Síra Finn Tulinius prédikaði.
Að guðsþjónustunni lokinni
bauð danski sjómannaprestur-
inn öllum viðstöddum til kaffi-
drykkju og skemmtu menn sér
við ræðuhöld og söng undir
borðum. Auk sálma söng söfn-
uðurinn íslenzka þjóðsönginn og
annaðist frú Tulinius undirleik.
Hugþekkur blær hvíldi yfir
þessari samkomu og létu margir
í ljós ósk um að oftar yrði hægt
að hafa íslenzkar guðsþjónustur
í Kaupmannahöfn.
Bridge:
Sveit Harðar efst.
Sjötta umferð bridgekeppn-
innar var spiluð í gær.
Hörður vann Stefán, Einar
Baldvin vann Einar Guðjohn-
sen, Ásbjörn vann Ragnar, Jón
vann Zophonías, Gunngeir
gerði jafntefli við Guðjón og
Hermann gerði jafntefli við
Margréti.
Er sveit Harðar Þórðarsonar
efst með 11 stig, sveit Einars
B. Guðmundssonar hefur 10
stig og svejtir þeirra Ásbjarnar
Jónssonar og Gunngeirs Pét
urssonar hafa 9 stig hvor.
Sjöunda umferð verður spilttð
í kvöld.
íioilandi. Hún er tekin úr flug- j
vél af eynni Duigeland, en þar
brauí sjórinn skörð á 15 stöðum
í varnargarðana og keyrði allt
á kaf. Þegar myndin er tekin
hefir sjórinn flætt yfir allt
ræktað land, en aðeins sést
móta fyrir varnargörðunum,
sem eru nálega í kafi.
25 þús. kr.
til RKÍ.
Fjársöfnun Rauða Krossins til
fólksins á flóðasvæðunum í Bret
landi og Hollandi var árdegis
í dag komin upp í 25 þús. kr.
í s.l. viku söfnuðust 23.070
kr., m. a. bárust 5 þús. kr. frá
Shell h.f. og 2155 kr. frá skips-
höfninni á Neptúnusi. Kl. um
hálfellefu í morgun höfðu bor-
izt 1700 kr., samtals 24.770 kr.
frá upphafi söfnunarinnar 5.
þ. m. og mun hún nú komin
talsvert yfir 25 þús. kr.
Gjöfum er veitt móttaka í
skrifstofu Rauðkrossins í Thor-
valdssensstræti 6 kl. 10—7 alla
virka daga, nema laugardaga
til kl. 5.
Kalt háþrýstisvæði er nú
yfir Norðurlöndum. Mesta frost
sem Veðurstofunni er kunnugt,
var 23 stig í N.-Svíþjóð kl. 6 í
morgun. Frá Finnlandi hafði
Veðurstofan ekki fregnir.
í Guðbrandsdal í Noregi var
19 stiga frost í morgun og víða
um Suður-Svíþjóð um 15 stig,
en í Danmörku 8—10 stig,
sömuleiðis í Þýzkalandi. — í
Bretlandi var vestlæg átt og
3—5 stiga hiti, en iydda á
Hj altlandsey j um.
Snjókoma var í Hollandi og
Mið-Evróu yfirleitt og allt suð-
ur á Miðjarðarhaísströnd
ikfeiðarframleiðslaii stóraukin
v. 2—3-földuð.
Míúwt vtEB'ð 2335 smsúL ú
s, L úri 20 Bmiiiij* hr. riröL
Fiikhjallar reisíli* í wllsami
Söiumöguieikar á skreið kaía farið vaxandi síðustu
árin, auk þess sem íslenzkir útgerðarmenn kaía Iagt
meiri áherzlu á Iramleiðslu og sölu skreiðar vegna
sölutregou á öðrum fiski.
í fyrra stofnuðu nokkrir skreiðarframleiðendur til samtaka
sín á milli, er þeir nefndu Samlag skreiðarframleiðenda
(skammstafað S.S.F.). Er því fyrst og fremst ætlað að útvega
markaði erlendis og vinna að öðrum hagsmunamálum skreið-
arframleiðenda.
Frostlaust á Grænlandi
fennir í S.-Frakklandi.
ssiúió öfugt þó" \ veÓurfarfnu.
Frakldands. í Marseille var 1
stigs frost.
Um Grænland er óvanalega
milt, 2ja—16 stiga frost á norð-
austurströndinni, en frostlaust
á austurströndinni vestur af
íslandi.
í Bandaríkjunum er kalt í
veðri alllangt suður eftir og í
Kanada um 20 stiga frost.
Á Norðurlandi og hafinu
norður af íslandi er allhvöss
austanátt og snjókoma.
Lægðarmiðja er fýrir sunnan
ísland og líkur á austlægri eða
norðaustlægri átt.
Formaður félagsstjórnarinn-
ar er Óskar Jónsson útgerðar-
rnaður í Hafnarfirði, en fram-
kvæmdastjóri hefur verið ráð-
inn Jóhann Þ. Jósefsson alþm.
Eru nú milli 20 og 30 skreiðar-
framleiðendur þátttakendur í
samtökunum, en nokkurir
standa enn utan þeirra.
Þegar samlagið var stofnað í
fyrra var það til húsa hjá
Sölusambandi íslenzkra fisk-
framleiðenda, en brátt varð
staríið svo umfangsmikið að
ákveðið var að opna sérstaka
skrifstofu, sem verður í
Austurstræti 14 og veröur hún
opnuð einhvern næstu daga.
Vegna sölutregða á freðfiski
og saltfiski munu útgerðarmenn
leggja mikla áherzlu á skreið-
arframleiðslu í ár. Hefur Sam-
lag skreiðarframleiðenda þegar
selt ákveðið magn af fram-
leiðslunni fyrir fram á viðun-
andi verði. Fer sú skreið til
Þýzkalands.
Erlendir umboðs-
menn á ferð.
Ennfremur hafa verið hér
umboðsmenn fyrir brezk og
dönsk firmu, sem hafa gert
samninga um skreiðarkaup við
nokkura aðila, er standa utan
Samlagsins. Einnig þar hefur
verið um viðunandi sölu að
ræða.
Árið 1951 seldu íslendingar
skreið til útlanda fyrir hátt
á 8. millj. króna, en magnið
sem flutt var út nam röskum
1000 lestum. Þá var skreið
seldur til 8 landa, en Vestur-
Þýzkaland, Noregur og Brezka
Nígería voru stærstu kaup-
endurnir.
I fyrra jókst skreiðarutflutn-
ingurinn upp í 2355 lestir og
andvirðið nam nærri 20 millj-
ónum króna. Þá seldum við
skreiðina til tíu landa, en mest
til Vestur-Þýzkalands (895.7
lestir), Brezku Nígeríu (566.6
lestir), Finnlands (336.6 lestir)
og' Bretlands (283.2 lestir). í
þessu sambandi er þó rétt að
Framh. á 7. síðu.
30 ÍBifléesizti,”
Milt veður í
janúar.
2 st. yfsr meóallagi
á Akureyri.
Mest bar á suðaustan og suð-
vestanátt í janúar, samkvæmt
upplýsingum frá veðurstofunni.
Hitinn var alls staðar hærri
en í meðallagi. Einkum var milt
í sveitum norðanlands, t. d. var
mánaðarhitinn á Akureyri -4-
0.4 stig, en meðallag er talið
-4- 2.5 stig. í Bolungavík, á Rauf
arhöfn og Hólum í Hornafirði
var um hálfu stigi hlýrra en
meðallag, en í Reykjavík var
mánaðarhitinn 0.6 stig, tæplega
1° hærri en meðallagshiti. Hæst
komst hitinn hér í 7 stig þ. 19.
og 23., en lægst -4-11 stig þ„
31.
Úrkoman var í meira lagi
norðanlands, en einkum þó á
Vestfjörðum, allt að því þrefalt
meðallag. Minnst eftir hætti
var úrkoman á suðausturlandi,
um helmingur meðallags, en í
Reykjavík mældust 109 mm, á-
líka og við er að búast á þessum.
árstíma.
Inflúenzan hefur breiðst
mjög lítið út liér í bænum, og
er mjög væg.
Inflúenzutilfelli voru urn 30
í vikunni sem leið, en 17 vik-
una þar á undan, samkvæmt
upplýsir.gum frá skrifstofu
borgarlæknis.
Arabar óþægir
við Breta.
Kairo (AP). — Bretar eiga
í nokkrum vaudræðum með
sheik Subeihi-ættbálksins, sem
er granni Adennýlendunnar.
Á hann að gjalda nýlend-
unni skatt fyrir fiskveiðarétt-
indi, en hefur þverskallazt
lengi. Hefur hann vopnazt og
boðið sendimönnmn nýlend-
unnar byrgin, svo að nú mun
ætlunin að gera út leiðangur á
hendur honum.