Vísir - 13.02.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 13.02.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Föstudaginn 13. febrúar 1953. Allir garðar héldu í nótí. Þó var hvassvidri og átt óhagstæd. Lontlon (AP). — Varnir bil- uðu hvergi á ströndum Hol- lands eða Bretlands á flóðinu í nótt, þrátt fyrir að hvasst væri og átt norðlæg. í Hollaiidi er lokið bráða- birgðaviðgerð aðalgarða, og tal- ið, að þeir muni ekki bila, nema í langvarandi hvassviðri brimi. — Á ströndum A.-Eng- lands flæddi sjór hvergi nema við Sutton-on-sea, raiif hvergi skörð í garðana. Bretar hafa orðið að leita til ýmissa þjóða og hafa beðið 10 millj. sandpöka. Hafa fengið loforð fyrir helmingnum, Fékk 3 minka á einum degi. Talsvert virðist um mink í Cleldinganesi um þessar mund- ir, að því er Carl minkabani telur. Hann fór út í nesið á ardag í venjulega „eftirlits- ferð“ og varð þegar var við minkaslóðir. Tókst honúm að vinna þrjá minka á skömmum tíma, en að auki varð hann var við fjórða, sem hann náði ekki, því að ógerlegt var að komast að þéim í fjörugrjóti. Minkamir, sem hann náði, voru feitir og pattaralegr, svo að þeir hafa ekki liðið skort í vetur. frá Bandaríkjunum, Ítalíu, Frakklandi, Vestur-Þýzkalandi, Belgíu og Norðurlöndum. Birgð ir frá nokkrum Evrópulöndum verða fluttar loftleiðis, fyrst í stað a. m. k. V&irtMrviki n MMuegiÍMulandinwM: hafa teppzt af fann- komu víða um lönd. Gin- og klaufa- veiki magnast. Gin- og klaufaveikin er allt- af að skjóta upp kollinum ann- að veifið á meginlandinu og hefir magnazt nokkuð aftur Danmörku og Hollandi. Englandsdrottning sést hér með föruneyti fara um flóðasvæðið í Norfolk i Englandi. Beztí söfnunar- dagurinn í §ær. Fjársöfnun Rauða krossins mun nú nema yfir 100 þús. kr. Höfðu safnazt í gærkvöidi til fólks á flóðasvæðunúm í Brét- lándi og Hollaxidi kr. 85.385.00. f gær söfnuðust kr. 24.854.00 og var það mesti .söfnunardag- urinn til þessa. Söfnuðust þá 10 þús. kr. meira en í fyrradag. — Gjöfum er veitt móttaka í skrifstofu R. k. í Thorvaldsens- stræti 6 alla virka daga. Sogi á síhistu 2 Raforkuframleiðslan eins míkil og hún getur orðið. Ástandið í rafmagnsmálum1 höfuðstaðarins má telja mjög viðunandi þessa dagana, enda hagstæð tíð undanfarið. Rafmagnsframleiðsla í orku- verunum við Sog og Elliðaár hefur verið eins mikil og unnt er með núverandi vélakosti, enda nægilegt vatnsrennsli, bæði í Sogi og Elliðaánum. Vatnsrennsli í Soginu nemur nú um 106 teningsmetrum á sekúndu ,og er það meira en verið hefur undanfarin tvö ár, þótt það sé hins vegar nokkru minna en meðalrennsli árinnar frá tþtiá er Sogstöðin tók til 1000 manns far- ast í Persíu. Teheran (AP). — Um 1000 manns hafa látið Jífið af Völd- um. landskjálfta í norðurhluta Persíu. Fjöldi húsa hefur hrundið í þorpunum á landskjálftasvæð- inu og þúsundir manna-orðið að flýja heimili sín. Menn óttast, að manntjón og eigna sé miklu meira en hér g'reinir, en nákvæmar fregnir eru ekki fyrir hendi vegna símabilana og samgönguerfið- ieika. starfa, en það telst um 114 ten.- metra á selcúndu. í leysingunum um daginn komst vatnsrennsli Elliðaánna upp í 60 ten.metra á sekúndu, sem er óvenjulega mikið. Þá varð að sjálfsögðu að hleypa vatni framhjá stíflunni við Ell- iðavatn. Ekki er þess þó að vænta, að unnt verði að draga úr raf- magnsskömmtuninni í bráð, enda mikil rafmagnsþörf þessa dagana, ekki sízt til hraðfrysti- húsa og annars iðnaðar. En horfur fara þó vænkandi eftir því sem daginn lengir, eins og að líkúm lætur. Ouradur-morð- tngjamir dæmslir. Einkaskeyti frá AP. — París í mogrun. Dómur hefur nú verið kveð- inn upp vegna Ouradur-morð- anna, sem framin voru sumarið 1944. í júnímánuði það ár voru yfir 600 íbúar þorpsins Ouradur í Mið-Frakklandi skotnir, stungn ir eða brenndir til bana af SS- mönnum. Náðust um 20 SS- mannanna á síðasta ári, og fóru réttarhöldin fram í Bordeaux. Dómur hefur nú verið kveðinn upp og var einn mannanna sýknaður, tveir dæmdir til dauða og hinir í 5—12 ára fang elsi, Annar hinna dauðadæmdu eru frá Elsass, eins og margir, sem í SS-rSveitinni voru. 7,8 mm. úrkoma á aðeins 3 klst Hægviðri og þíðviðri er nú um land allt. Úrkoma er mjög niikil, eink- um sunnanlands og suðvestan, og mest í Rvik, en utan Rvíkur mest á Síðumúla í Mýrarsýslu. Frá kl. 5 síðdegis í gær til kl. 8 í morgun mældist úrkoma hér í bænum 30 mm., og frá kl. 5 í morgun til'kl. 8 var hún 7,8 mm., sem er mikil úrkoma á eigi lengri tíma (3 'klst.). Á Síðumúla var úrkoman 27 mm. frá kl. 5 í gær til kl. 8 í morgun, á Loftsölum 18 mm., Skoruvík á Langanesi 12 og Akureyri 4 mm. Lögreglufréttir. í gærdag var lögreglunni til- kynnt, að drengur hefði meitt konu á götu úti hér í bænum. Var þarna um að ræða 13 ára gamlan dreng, sem hafði kastað járnstykki í höfuðið á gangandi konu, sem var á leið eftir götunni. Var farið með konuna til læknis. í gærkveldi kærðu nokkrir drengir yfir því, að stolið hefði verið peningum úr fatnaði þeh'ra á meðan þeir voru í Sundhöllinni. Létu þeir í ljós grun um hver valdur myndi vera að hvarfi peninganna og var ransóknarlögreglunni feng- ið málið í hendur. Olfar gera vart við sig í Fihnlandi. Siglingar erfiðar a EystrasaKi og í döoskiim suitdiiiii. Einkaskeyti frá AP. —* London í morgun. Verði veðurfar með líkum hætti á Norðurlöndum næstu vikur og verið hefur, mun þetta verða með meiri frostavetrum síðari ára. Frosthörkurnar eru þeira mun meiri sem norðar dregur og austar, og raunar er vetrar- ríki mikið suður um alla álf- una, og á Bretlandseyjum hef- ur snjóað mikið við og við. Þá eru frost ekki .alveg eins mik- il nú og þau hafa oft verið síð- ustu vikur, en mest hefur frost mælzt um 50 stig í Finnlandi og í Norður-Noregi hefur það komizt yfir 40 stig. Kalt loft að austan. Það er kalt loft, sem kemur austan af steppum Rússlands, og jafnvel alla leið austan úr Síberíu, sem veldur kuldum þessum. Leggur það vestur á bóginn og fylgja því fimbul- kuldar, eins og ævinlega, þeg- ar það er yfirgnæfandi, svo að hlýrri vinda af Atlantshafi gæt- ir ekki, en á mörkum hinna hlýju og köldu vinda eru fann- komurnar mestar. Úlfar gera 1 vart við sig. Finnar eru uggandi yfir því, að úlfar eru nú aftur farnir að gera vart við sig, en þeirra varð ekki vart á síðast liðnum vetri, eftir að stjórnarvöldin höfðu notað flugvélar til þess að elta þá uppi og strádrepa. Hafa þeir ekki gert verulegan ulsa í hreinhjörðum Lappa, en með áframhaldandi kuldum sjá menn fram á, að þeir muni verða fyrir miklu tjóni. Snjóalög mikil. Snjóalög eru mikil beggja vegna Eystrasalts, og siglingar eru einnig með erfiðasta móti, svo að ísbrjótar verða að vera sífellt í gangi. Á það ekki að- eins við þar, heldur og í sund- unum dönsku, þar sem ísar torvelda oft siglingar. Snjóalög- in hafa einnig truflað sam- göngur á landi, og sums staðar Frh. á 7. s.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.