Vísir - 17.02.1953, Page 8

Vísir - 17.02.1953, Page 8
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. __* 1_& WBSIK. Þriðjudaginn 17. febrúar 1953 VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöi- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. Eflið manmíðarstarfseiiii Rauða kross íslands. A anorgain, öskudag, verda seld merki til ágóða fyrir staríið. Rauði Krossinn efnir til merkjasölu á morgun, svo sem1 venja er til á öskudaginn. Ekki þarf að efa, að Reyk- víkingar og aðrir landsmenn bregðist vel við að vanda, og kaupi merkin og styrki þannig ómetanlegt mannúðarstarf þessa líknarstofnunar. Fréttamenn áttu í gær tal við Þ. Scheving Thorsteinsson for- Garðyrkjumenn sækja um byggða- og garða- hverfl. Félag garðyrkjumanna hefur farið þess á leit við bæjaryfir- völdin að því yrði úthlutað sér- stöku byggingahverfi fyrir íbúðarhús garðyrkjumanna með tillieyrandi landssvæði fyirr væntanlega ræktun. Er þess helzt óskað að hverj- um garðyrkjumanni verði út- hlutað sem næst % hektara lands. Og er það gei't í því augnamiði að garðyrkjumenn- imir geti hagnýtt sér landið ; sem lið í atvinnurekstri sínum, ■ einkum á þeim tímum er þeir hafa ekki atvinnu annarstaðar. Gera má ráð fyrir að þarna verði komið upp vermireitum og gróðurhúsum til þess að . auðvelda skilyrðin fyrir hvers- konar ræktun. Málaleitan þessari var á sín- um tíma vísað til umsagnar samvinnunefndar um skipu- lagsmál og hefur nefndin mælzt til þess að málið yrði tekið til athugunar í sambandi við út- hlutun og útmælingu nýrra • erfðafestulanda. mann R.K.Í., síra Jón Auðuns dómprófast, formann Reykja- víkurdeildar R.K.Í. og aðra for- ustumenn félagssamtakanna, í sambandi við söfnunina og önn- ur störf R.K.Í. R.K.Í. á og rekur sjúkrabif- reiðir í Reykjavík, og fluttu þær s.l. ár talsvert á 4. þúsund sjúka menn og slasaða. Þá hef- ur félagsskapurinn beitt sér fyr ir sumardvöl barna, rak barna- heimili í Laufarási og Silunga- polli. Þetta kostar allt mikið fé og því er nú nauðsyn að styðja hana og efla. — Hollandssöfn- uninni verður haldið áfram jafn hliða merkjasölunni á morgun, sem rennur til innanlandsþarfa R.K.Í. Foreldrar ættu að hvetja börn sín til þess að taka merki á morgun til sölu. Þau ættu að koma í fyrramálið kl. 10 í ein- hvern eftirtalins staða: Skrifstofu R.K.Í., Thorv.str. 6 Skóbúð Reykjavíkur, Aðalstr. 8 Skrifstofu Loftleiða, Lækjarg. 2 Fatabúðin, Skólavörðustíg 21 Efnal. Vesturbæjar, Vesturg. 53 Elliheimilið Grund, herb. 40A (inng. s.v. enda) Verzl. Sv. Egilsson, Laugav. 105 Sunnubúðin, Mávahlíð 26 Siíli & Valdi, Háteigsv. 2 Eyjabúðin, Fossvogsbl. 31 Stóra-Borg, Baugsvegi 12 íþróttahúsið v. Hálogaland Stjörnubúðin, Sörlaskjóli 42 Holts Apótek, Langholtsv. 84 Verzl. Elís Jónsson, Kirkjut. 5. Samdráttur í vöruskiptum Sví- Ísjóðar 10—13% á sl. árí. TrjávSruútfiutningur minnkaði um 1,5 milljarð. Skautalands- mótið í dag. Skautalandsmótið, sem halda átti upphaflega í byrjun mán- aðarins á Akureyri, mun fara fram í dag. Ekki verður þó hægt að halda mótið á Akureyri, því að þar er ekkert svell. Var að vísu frost í gær, en í dag er mugga og næstum frostlaust. En for- vígismönnum mótsins tókst að finna svell inni í Eyjafirði, um 15 km. leið frá bænum, á svo- nefndri Espigrund fyrir framan Stokkahlaðir. Auk þess sem keppt verður í hraðhlaupi, mun Liaklev þjálfari sýna listir sín- ar. Keppendur héðan úr Reykja- vík voru komnir norður til þátt- töku í mótinu, en þeir urðu að fara suður aftur í gær — gátu ekki beðið lengur. Þó gera menn sér vonir um það, að Kristján Árnason, skautameist- ari íslands, komist norður aftur í dag, ef flogið verður. Lögreglufréttír. Kona fótbrotnar i bíðslysi. Allmikið umferðarslys varð hér í bænuin síðdegis á laugar- daginn, er lcona varð fyrir bif- reið á Snorrabraut og fót- brotnaði illa. Slys þetta skeði um hálfátta- leytið á laugai-dagskvöldið, en þá varð kona, Sigríður Páls- dóttir að nafni og til heimilis að Njálsgötu 75 fyrir bifreið, er hún var að ganga yfir göt- una móts við Snorrabraut 52 og mun hafa verið komin upp á gangstéttina er slysið varð, Konan var flutt á Landspítal- ann en þar kom í Ijós að um opið fotbrot var að ræða. Var talið að hemlar bifreiðarinnar hafi ekki verið í fulikomnu lagi. Á laugardag varð annað um- ferðarslys, er telpa varð með fingur milli stafs og hurðar í strætisvagni og meiddist illa á tveimur fingrum. Hún var flutt á Landspítalann þar sem gert var að meiðslum hennar, en að því búnu var hún flutt heim til sín. Mstaba stjarna hin sama og vi5 fyrri gos. I vikublaðinu Fálkanum frá 13. þ. m. birtist spá Jóns Árna- sonar prentara, þar scm hann telur sólmyrkva þann 14. nóv. n. k. benda til eldgoss eða jarð- skjálfta hér á landi. Um þetta segir Jón Árnason m. a. í spádómi sínum: „Er myrkvinn í miðnæturs- Hornafjörð. Er hann á 25. stigi í Vatnsbera. Bendir á eldgos, jarðskjálfta eða hvorttveggja. Áður en Katla gaus 1918 var Úran á þessum sama stað í Vatnsbera og Satúrn í and- stæðu við hann frá Ljónsmerki. Myrkvi var á þessum sama stað í Vatnsbera áður en Vatnajök- ull gaus 1934. Einnig var af- staða í þessu sama merki Vatnsbera 1860 áður en Katla gaus þá. í Vatnsbera var einn- ig afstaða áður en Hekla gaus nú síðast og einnig áður en gos- ið brautzt út rétt hjá henni 1913“. Sturla Jónsson FljétsSiólum. Sturla Jónsson bóndi að Fljótshólum í Árnessýslu lézt hér í bænum s.l. laugardag af hjartabilun. Hafði hann kennt sér meins um nokkurt skeið og lá síðast í Landsspítalanum. Sturla var fæddur 1888 að Halldórsstöðum í Bárðardal í Þingeyjarsýslu. Á unga aldri varð hann fyrirvinna móður sinnar er bjó á Jarlsstöðum í Bárðai’dal, en fluttist skömmu síðar í Árnessýslu, kvæntist Sigríði Einarsdóttur frá Hæli og reistu þau bú að Fljóts- hólum. Þar hafa þau hjón búið hinu mesta rausnar- og mynd- arbúi síðan. Meðal barna þeirra er Einar söngvari Sturluson. Stokkhólmi. (S.I.P.). — Vöruskipti Svíþjóðar á árinu sem leið urðu óhagstæð um 845 millj sænskra kr., en voru hagstæð um 42 millj kr. árið 1951. Útflutningurinn minnkaði um 1134 millj. sænskra kr., og varð tæplega 8.1 milljarður, en innflutningurinn vai'ð 246 Bretar bíða tilkynningar. London (AP). — Eden utan- ríkisráðherra skýrði frá því í gær á þingi, að brezka stjórniji hefði ekki fengið neina tilkynn ingu frá Bandaríkjastjórn um fyrirhuga.ða ógildingu á Yalta- samþykktinni. .Tilefni.þessara ummæla voru Washingtonfregnir um, að Eis- enhower hefði rætt þetta mál með helztu leiðtogum sjnum á fundi í gær. Að honum lokn.um sagði Taft, leiðtogi republikana í öldungadeildinni, að tillaga1 um ógildingu allra samninga á stríðstímanum, sem. ekki hefði verið formlega gengið frá, yrði brátt lögð fyrir þingið. Hér er átt við alla samninga, sem Bandaríkjaþing hefur ekki stað fest. Mun þetta m. a. ná til leyniákvæða Yaltasamningsins o. fl. millj. s. kr. rýrari, eða alls 8.9 milljarðar. Mestur varð samdrátturinn í: útflutningi á allskonar trjá- vörum og slíkum afurðum, en hann minnkaði um hálfan ann- an milljarð. Útflutningur á við- arkvoðu minnkaði um rúmlega milljarð, á umbúðapappír um nærri 300 milljónir og heldur- meira á unnum viði. Svarar þetta til þess, að viðarkvoðu- útflutningurinn hafi minnkað um 379 þús. smál., og á um- búðapappír um 124 þús. smál., en útflutningur á blaðaþappír jókst um 10.000 smál. í 209 þúsund. Afurðir úr skógum landsins; námu 42% útflutningsins, en voru 55% árið áður. Vaxandi- útflutningur á málmgrýti, járni' óg stáli. skipum og vélum bætti þó verulega upp rýrnunina á sviði viðarafurða. Fluttar voru út 15.7 millj. smál. af járn- grýti (1-4.9 millj smál. 1951), og útflutningur á skipum meira en ferfaldaðist á árinu úr 110 millj. kr. verðmæti í 461 millj. króna. Á sviði innflutningsins varð aukning á málmum og korn- vörum, en mjög dró úr inn- flutningi vefnaðarvara. Hann varð 1571 millj. 1951, en 943 millj. á síðasta ári. ,iir veikur. Briissel (AP). — Baudoin Belgíukonungur liggur nú með háan hita suður í Nizza. Verður konungur að dveljast þar niarg ar vikur sér til heilsubótar. Van Hout forsætisráðherra sagði blaðamönnum frá þessu, að loknum stjórnarfundi i gær, ezi hann gerði sér ferð á fund konungs nú í vikunni .Vei’sn- aði Baudoin eftir ferð sína til flóðasvæðanna í Belgíu fyrir nokkru. Sagði van Hout, að nauðsynlegt væri að vaka yfir heilsu konungs. Eigum ekki réffarkröfu tii Græniauds. Álit sérfræðlnganGfndar komift á prentí. Út er komið á prenti álit sér- fróðrar nefndar, sem skipuð var árið 1948 til þess að rannsaka réfíarkröfur Islendinga fil Grænlands. Er þetta allmyndarleg bók og ítarleg, rúniar 160 bls. að, stærð, og er skemmst af að segja, að nefndarmennirnir þrír, þeir Gizur Bergsteinsson hæstarétt- ardómari, próf. Ólafur Jóhann- esson og Hans G. Andersen þjóðréttarfræðingur, telja, ,að ekki sé grundvöllur réttar- krafna af hálfu íslendinga til á málinu Grænlands. Gizur Bergsteinsson Iiíesta- réttardómari samdi rifgerð um málið, en hinir nefndarmenn- irnir báru'hana síðan saman við eigin athugariir, og lýstu yí'ir því, að þeir væru sammáta efn- isniðurstöðmn Gizurar. Geta má þess, að nefndar- mennirnir voru tilnelndir af hæstarétti, lagadeild Háskól- ans og utanríkéisráðuneyíiiiu, en enginn þeirra hafði áður látið í .ljós opiriberlega álit eitt Vaiur vann Aftureldingu, I.R. íram Fjórða umferð fór fram í gærkveldi í handknattleiks- meistaramótinu. Tveir leikir fóru fram, báðir í A-deiId. Fyrri leikurinn var milli Vals og Aftureldingar. Náði Valur yfirhöndinni strax í byrjun og leiddi leikinn út. Hálfleik lykt- aði 15:6 fyrir Val. í byrjun seinni hálfleiks gerði Aftureld- ing virðingarverða tilraun til þess að ná sér á strik, en tókst ekki að halda snerpunni til lengdar og náði aldrei festu eða samleik í leiknum, er að gagni kæmi. Úrslit urðu 27:12 fyrir Val. Dómari var Frímann Gunnlaugsson. Seinni leikur kvöldsins var milli Fram og Í.R. Mátti segja, að þetta væri sýningarleikur hjá Í.R., því svo mikla yfir- burði sýndu þeir í leiknum. Héldu þeir forystunni allan leikinn út. og sýndu oft prýði- legan leik. Lið Fram var hins vegar ósamstillt, náði ekki góð- um samleik og leikur þess yfir- leitt í molum. Hálfleikur end- aði 12:5 fyrir Í.R., en leikur- inn allur 26:11 fyrir sama fé- iag. Dómari var Hafsteinn Guð- •mundsson. Næstu leikir fara fram á íimmtudagskvöldið og keppa þá F. H. og K.R. í B-deild, en Ár,- mann og Víkingur í A-deild.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.