Vísir - 24.02.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 24.02.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Þriðjudaginn 24. febrúar 1953. 45. tbl. Bohlen sendiherra USA í Moskvu. Einkaskeyti frá A.P. — Washington í morgun. Eisenhower hefur tilnefnt Charles Bohlen sendiherra í Moskvu í stað Kennans, sem féll í ónáð hjá Stalin fyrir ber- sögli sína um ófrelsið í Ráð- stjórnarríkjunum. Afturkallaði ráðstjórnin þá viðurkenningu sína á honum sem sendiherra. Bohlen er sér- fræðingur í málum, sem varða Ráðstjórnarríkin. Var hann túlkur Roosevelts forseta, er hann ræddi við Stalin á stríðs- árunum. Bandaríkin hjálpa Egypíum. Kairo (AP). — Bandaríkja- stjórn hefur ákveðið að veita Egyptum stuðning íil endur- reisnar og endurskipulagningar iðnaðar síns. Aðstoðin er veitt í samræmi við áætlun Trumans um hjálp til handa þjóðum, sem tækni- lega eru skammt á veg komnar. Skipverja tök út a! véí- báti, en hann náðist. H^rtn get haidið sér uppi, unz hjálp harst Það slys vildi til í gær á vélbátnum Hafþór SA 90, að vél stjórann tók út meðan verið var að draga línuna, en vegna þess að hann var syndur gat hann haldið sér á floti, þangað til komið var til hans bjarg- hring, og náðist hann aftur eftir um 10 mínútur. Slysið vildi til norðarlega í Kolluál, og var vélstjórinn, Margeir Magnússon fár Reykja- vík, að vinna aftarlega á bátn- um, er báturinn lenti í kviku og manninn skolaði fyrir borð. Aðrir bátverjar urðu strax var- ir við slysið og var þá skorið á línuna og bátnum snúið við. Síðar var látinn reka belgur og bjarghringur með línu til Margeirs, sem hann náði í eftir 7—8 mínútur. Samkvæmt frásögn skipstjór- ans á Hafþór, Eyjólfs Ólafsson- ar, mun björgunin hafa tekið um 10 mínútur, en báturinn var stirður í snúningum, þar sem línan vafðist um skrúfuna. Tel- ur skipstjóri björgunina hafa tekizt mjög giftusamlega og þama riðið baggamuninn að Margeir var syndur. Hafþór kom til Stykkishólms í gærkveldi og fór ekki í róður í dag. Var vélstjórinn nokkuð dasaður eftir volkið, en ekki talið að honum yrði að öðru leyti meint af. Fluifvélar fyrir bómulf. London (AP). — Brefar hafa selt Brasilíu 70 flugvélar með þrýstihreyflmrt, og ena þær af gerðinni Meteor. Brasilíumenn greiða ekki fyr ir flugvélarnar með peningum, heldur láta þeir 15,000 lestir af bómull fyiir. Veitir þetta 2000 flugvélasmiðum atvinnu fyrst um sinn. [ arasum. Tokyo (AP). — Risaflug- virki gerðu í morgun sprengju- árás á stöðvar kommúnista nálægt Pyongyang. Varpað var niður 180 lestum af sprengjum. Iðnaðarbankinn tekur von- andi til starfa þ. 1. maí. ■ * Ymíslegt feeíir íafið það. Iiægt væri að opna Itann fyrr. fðnaðarbankinn mun ekki faka til starfa 1. marz næst- komandi, eins og ráð hefði ver- ið fyrir gert, sagði Páll S. Páls- son, formaður banlcaráðsins, er Vísir átti viðtal við hann í gær. Húsnæði það, sem bankinn verður í, er ekki ennþá full- gert, en eins og áður hefir verið skýrt frá, verður bankinn til húsa í Lækjargötu 2, þar sem nú eru skrifstofur flugfélagsins Loftleiða h.f.. Afgreiðsla Loft- leiða mun flytja í Bíóbúðina, en bankinn að mestu fá vistarver- urnar, sem Loftleiðir höfðu áð- ur. Verið er að smíða innrétting- ar í væntanlegt húsnæði bank- ans, og það með öðru mun tefja að starfsemih hefjist á tilsett- um tíma. Það er þó ýmislegt annað, ekki veigaminna, sem kemur til. Ráðning bankastjóra tafðist talsvert vegna þess að (Fram a 8. síðu) tii lifs, að fyrir neðan geil í brimgarðinn. JÞíir er eíftftí^ styi&t til faíPjjðB í L*4&BB€ÍeBf$USm~ Sreínbimi MjjáSmars«»viii tökst með snarræði að losa gúmmxbátinu. ÞaS svipíega slys varS á mioura Vesfmannaeyjabáta í gær, að vb. Guðrtm-49 lestir, smíðaSur úr eik árið 1947 — fórst undan Landseyjasandi, og með honum fimm af níu skipsverjum. Er þetta fyrsti skipstapinn, sem verður á þessari vertxð, enda fyrsta aftakaveðrið, sem gengur yfir á vertíðinni er annars hefur einkennzt af góðviðri, svo sem veturinn yfirleitt. Góðnr her — og vendur Rauði herinn minntist í gær 35 ára afmælis síns með mikilli viðhöfn og viðeigandi ræðuhöldum. Þjóðviljinn, málgagn Rauða hersins á íslandi, gat þessa að sjálfsögðu í morgun undir fyrirsögninni: „Rauði herinn beztur í heimi.“ — Beztur í hverju? Ekki skyldi það þó verá í hermennsku, mann- vígum, að maður segi ekki morðum, eins og friðarvinir á borð við Þorvald Þórarins- son myndu orða það. Ef til vill á Þjóðviljinn aðeins við að Rauði herinn sé slyngast- ur í þjóðdönsum eða söng- list, því að Rauði herinn hlýt ur að vera öðru vísi en aðr- ir herir, annars mundi Þjóð- viljinn, merkisberi „friðar- ins og mannúðarinnar“ ekki geta mn afmæli hermennsku stofnunar. Sem sagt: Rússneskur her er ekki aðeins „góður“, held- ur „beztur í heimi“. Hins vegar er amerískur her, brezkur eða norskur „vondur her“. Ottast var um opinn bát. Eftir að hríðinni Iétti í gær, var hafin lext að opnum vélbát frá Hellissandí, sem óttast var um. Var hann á leið til lands, en hvarf í hríðinni. Fjói'ir bátar frá Ólafsvík og Sandi leituðu hans og önnur nærstödd skip voru beðin að leita. V.b. Farsæll frá Hellis- sandi fann bátinn á reki í Kollu ál um kl. 4 og dró hann til hafnar. — Veður var hið versta í hríðinnx og mun sjór hafa komizt í vélina. — Voru memi mjög uggandi vestra um bát- inn og áhöfn hans, og þykir hér hafa farið giftusamlega. , Samkvæmt nánari upplýsing- um frá Slysavarnafélaginu hafði báturinn verið mjög hætt kominn. Voru bátverjar langt komnir að draga, er óveðrið skall á, og var báturinn fullur af fiski. F-yllti bátinn og stöðv- aðist vélin. Urðu þeir að ryðja burt öllúm fiskinum, en gátu ekki komið vélinni í gang, og rak bátinn þá æ lengra. Fjórir xnenn voru á bátnum. Skipverjar á v.b. Guðrúnu höfðu síðast samband við önn- ur skip um klukkan hálfeitt. Höfðu þeir þá tal af vitaskip- inu Hermóði, sem gegnir eftir- litsstörfum fyrir sunnan land, og var þá allt í lagi á bátnum, búið að draga netin og „gera klárt“ til heimsiglingar. Var þá dimmt yfir og veðurhæð mikil. Um það bil hálfri klukku- stund síðar reið brotsjór yfir bátinn, svo að haim fór á hlið- ina, og var hann ekki búinn að rétta sig, þegar annað brot skall á honum og reið það hon- um að fullu. Eftir því sem næst verður komizt — að því er Lárus Ár- sælsson útgerðannaður skýrði Vísi frá í morgun — munu 4— 5 menn hafa verið í stýrishúsi bátsins. Urðu þeir að brjótast út úr stýrishúsinu, og sýndi Sveinbjörn Hjálmarsson sér- stakt snarræðr, er hann losaði um gúmmíbátinn, því að allt gerðist þettá á svipstundu. Hvolfdi hvað eftir annað. Gúmmíbátur þessi er þannig gei'ður, að hann fyllist af lofti, ef kippt er í streng á honum, en hann var á hvolfi í fyrstu. Tókst þeim fjórum, sem kom- ust af, að rétta hann eftir nokkurn tíma, en veður og sjór hvolfdu honum hvað eftir ann- að, meðan hann rak að landi. Munu þeir hafa komizt að landi um það bil hálfri fjórðu klukkustund eftir að báturinn fórst, og gengu til Hallgeirs- eyjar, sem var næsti bær. Geil í brimgarðinn. Brimgarðurinn er mjög breiður fyrir söndunum þarna, enda útfyri mikið, og hefur Lárus Ársælsson útgerðarmað- ur það feftir bóndanum í Hall- geírsey, að fxar sem skiphrotsmenn hafi horið að landi, sé geil í brixn- garðinn, og hafi það orðið þeim tií lífs, að þeh* komu þar að en ekki þar sexn brím- garðurimx er breiðari. Þá er einnig styzt til bæja í Landeyjum frá þeim stað, þar sem gúmmíbátui'inn tók land, og sagði Guðjón á Hallgeirs- ey, að hraktir og þrekaðir menn mundu ekki hafa komizt öllu lengra. Skipbrotsmenn eru í Hall- geirsey, þar sem þeim var tek- ið ágætlega og hlynnt að þeim á allan hátt. Verða þeir þar að minnsta kosti fram eftir degi. Sveinbjörn meiddist nokkuð en ekki alvarlega. Fimm fórust. Þeir, sem fórust, voru: Óskar Eyjólfsson skipstjóri, sem verið hefur aflakóngur Eyjanna und- anfarin ár, Guðni Rósmunds- son stýi'imaður, Kristinn Aðal- steinsson, ættaður úr Reykja- vík, Sigþór Guðnason og Elís Hinrikson, ættaður úr Fá- skrúðsfirði. Þeir voru allir kvæntir og áttu börn. Þeir, sem a£ komust, eru allir úr Vestmannaeyjum og heita þeir: Jón Björnsson frá Ból- staðarhlíð, Hafsteinn Júlíusson, Sveinbjörn Hjálmarsson og Bergþór Reynir Böðvarsson. 13.000 liðhiaupum býðst uppgjöf saka. London (AP). — 13.000 Bret- um, sem gerðust liðhlaupar á stríðstímauum, stendur nú náð- un til boða. Ákvörðunin er tekin vegna krýningar Elísabetar drottn- ingar á sumri lipmanda. Menn verða að sækja um náðun skrif- lega — þurfa ekki að koma x „eigin persónu“. Flestir þessara manna hafa farið huldu höfði árum saman. Fjallið tepptist skamma hríð. Síðdegis í gær var hafist handa um að ryðja IIellisheið-» axrveginn, en þar hafði sett nið- ur talsverðan snjó. Mjólkurbílar komust þó hindrunaiiaust til bæjarins í gær og eins í morgun, og var heiðin teppt aðeins nokkrar klst. í gær, aðallega meðari veðrið var verst.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.