Vísir - 25.02.1953, Síða 1

Vísir - 25.02.1953, Síða 1
43. árg. Miðvikudaginn 25. febrúar. 46. tbl„ Nýlega brann egypzkur bær að heita mátti til kaldra kola og urðu eftir eldsvoðann þúsundir manna húsnæðislausir. Margir fórust í eldinum og aðrir brenndust svo flytja varð þá í sjúkra- hús. Myndin er af konum með börn sín, sem h afast við í húsarústum. Kórfossi hleypt af stokkunum á sunnudag. Siglir um goturnar tii styrktar Karlakór Reykjavíkur. Fékk tadnrdyfi i vðrpuna. B.v. Jón Baldvinsson fékk tundurdufl í vörpuna í gær- morgun, er liann var að veiðum á Eldeyjarbanka. Var duflið tekið á þilfar og tilkynnt hingað um það. Sigldi svo togarinn til Reykjavíkur og lagðist á ytri höfnina og var j tundurduflið gei't óvirkt. Voru skipverjar í Magna, meðan á þessu stóð, og var honum siglt nokkuð frá, í öryggisskyni. Það var Haraldur Guðjóns- son, bóndi að Markholti í Mos- fellsvseit, sem gerði duflið ó- virkt. Hann hefur haft með höndum fyrir Skipaútgerð rík- isins, að gera óvirk tujidurdufl sem fundist hafa hér syðra, en hefur stundum farið norður slíkra erinda. Skipbrotsmenn farnir að austan. Skipbrotsmenairnir af vb. Guðrúnu lögðu af stað frá Hall- geirsey í Landeyjum áleiðis til Reykjavíkur í morgun. Vísir átti tal við Guðjón bórida Jónsson í Hallgeirsey í morgun, og tjáði hann blaðinu, að skipvérjar hafi verið hress- ir, tæpast kvefazt, enda hraust- menni. Guðjón fór með Svein- bimi Hjálmarssyni, sem slas- aðist, til læknis í gær, og gerði hann að sári hans, og er ekki búizt við, að Sveinbirni verði meint af. Úr vb. Guðrún hafði ekkert rekið nema tvo bjarghringa og tvær fiskifjalir, en ekki var búið að ganga á fjörurnar í morgun. Suðvestan stormur var þar í morgun og mikið brim. Fióttamanna- straumurinn vex enn. Bonn (AP). — Flótta- mannastraumurinn til V.- Berlínar fró A.-Þýzkalandi er enn hraðvaxandi. Hefur hann aukizt um 5000 frá því í janúar, sem var metmón- uður. Þá komu 25.000 flótta- menn, en 30.000 eru komnir í þessum mánuði og munu margir við bætast til lielgar og sennilega koma upp undir 35 þúsund samtals í febrúar. Seinustu tvo dagana hafa nefnilega komið 6000 flótta- menn til borgarinnar og hald ist sá straumur til helgar er fyrirsjáanlegt, að 35 þúsund a. m. k. verða komnir á mið- nætti n. k. laugardagskvöld. Á sunnudaginn kemur hleyp- ur „Kórfoss“, hið mikla skip Karlakórs Reykjavikur, af stokkunum og er honum ætlað að sigla um götur Reykjavík- urbæjar næstu daga þar á cftir. Óvíst er um áhöfn skipsins, nema hvað fullráðið er að skip- stjóri verður um borð til að stýra skipinu gegnmn boða og framhjá blindskerjum. Skipið er af Ford-gerð og uppistaðan í því gamalt bíl- skrifli, sem einn félagi karla- kórsins á. Síðan hefur skips- líkan verið búið til úr kross- viði utan um bílinn og er þessa dagana hamast við að mála „dallinn". Á sunnudaginn verð- ur honum hleypt af stokkunum eins og áður getur, og „siglt“ um götur bæjarins ef vélin veið ur þá í gangfæru lagi. Lokasóknin. Tilgangurinn með „Kórfossi" er að hefja allsherjarsókn með sölu happdrættismiða kórsins til ágóða fyrir Miðjarðarhafs- förina. Verður þá og næsta hálf an mánuðinn á eftir selt það, sem eftir verður af happdrært- ismiðununi. Á sunnudaginn kemur selja ýmsir kórfélagar happdrættismiða víðsvegar í bænum eins og gert var s.I. sunnudag. Eins er það vel þeg- ið, ef eirihverjir vildu taka áð sér sölu happdrættismiða gegn góðum sölulaunum, og er þá ekki annað en snúa sér til Ferða skrifstofunnar Orlofs. Siglt til Afríku. Þann 25. marz, kl. 10 að kvöldi, er gert ráð fyrir að kór- inn verði svo efnum búinn, að hann geti lagt af stað til Suð- urlanda og verður þá Gullfoss notaður sem farkostur í stað Kórfoss. Fyrsta höfn, sem komið verð- ur til, er Algier á Afríkuströnd. Þar efnir kórinn til hljómleika. og syngur e. t. v. einnig í út- varp. Þaðan verður haldið til Palermo og Sikiley og sungið þar bæði í hljómleikasal og í útvarp. Síðan er förinni heitið (Fram a 8. síðu) Þing Sþ: Búizt er við rfeiltifn strax* New York (AP). — Dagskrár- nefnd alísherjarþings S. Þ. kem ur saman til fundar í dag. Tekur hún ákvarðanir um, hvaða mál skuli tekin fyrir á þinginu og í hvaða röð þau skuli rædd. Búast menn við, að talsvero- ur ágreiningur verði í nefnd- inni um þetta. Bretar hækka gjökl til hersins. London (AP). — Áætluð út- gjötd íil brezka hersins á næsta fjárhagsári eru 636 millj. stpd. Hækkunin nemur um 56 millj. stpd., miðað við núverandi fjár hagsár. — Þess er að geta, að verðlag á ýms-u, sem herinn þarfnast hefur hækkað mjög mikið. Þýzki hershöfðinginn von Rundstedt andaðist í gær í Hannover, 77 ára að aldri. EvrófHfherinn rærfrfur í rfag. Róm (AP). — Utanríkisráð- herrar Vestur-Evrópu halda í dag áfram fundi sínum og verð- ur nú aðalvandamálið á dag- skrá. Það er Evrópuherinn og við- aukatillögur Frakka eða skil- yrði fyrir fullgildingu. Aðalræðumenn munu verða Bidault utanríkisráðhei'ra, sem gerir grein fyrir afstöðu Frakka og Adenauer kanslari V.-Þýzka lands, sem gerir grein fyrir mótbárum Vestur-Þjóðverja gegn frönsku tillögunum. Dr. Sveinn Bergsveinsson er fyrir nokkru farinn til Þýzka- lands, til 'þess að taka við próf- essorscmbætti við Beriínar- háskóla. Dr. Sveinn var boðin staðan sem prófessor í hljóðfræði við Berlínarháskóla í Austur-Ber- Iín, til eins árs, frá 1. nóv. s. 1. að telja. Ekki gat hann farið af stað héðan fyrr en í janúar, og mun hann nú hafa tekið við kennslu, en kemur væntanlega heim aftur í júlí, er sumar- leyfi heíjast, en starfar síðán á- fram þar til í nóvember, eða lengur. Dr. Sveinn Bergsveinsson er kandídat í íslenzkum fræðum frá Háskóla íslands, en varði KSVFI fékk 20 þús. kr. Góudagssöfnun kvennadeild- ar Slysavarnafélagsins í Reykjavík s. 1. sunnudag gekk vel. Söfnuðust yfir 20 þúsund krónur. Þetta er ágóði af merkjasölu og kaffisölu deildarinnar, sem árlega efnir til slíkrar söfnunar í þágu slysavarnanna. Ekki eru komin skil frá öllum, en 20 þúsund kr. hefur verið skilað, svo að enn verður um dálitla hækkun að ræða. Árangurinn mun vera svipaður og í fyrra, og má heita mjög góður, miðað við það hve mjög hefur- verið leitað samskota í seinni tíð. Sækir farm af trönuefni. Eins og sagt hefur verið frá ítarlega hér í blaðinu er nú mikill hugur í mönnum að auka sem mest framleiðslu á skrcið til útflutnings. Hefur verið flutt inn mikið af timbri í trönur til herzlu á fiski á ýmsum stöðum, m. a. hér í Reykjavík, á Akranesi og víðar. Þróunin í þessa átt held- ur áfram og verður innan skamms sóttur til Finnlands heill skipsfarmur af timbri í trönur. Arnafell, sem nú er í Kefla- vík, sækir timbrið til Finnlands. Peron í heimsókn í Chile B. Aires (AP). — Peron fór nýlega til Santiago í Chile í 6 daga opinbera heimsókn. Ók hann ásamt forseta Chile til bústaðar argentiska sendi- herrans í opinni bifreið, en þúsundir raanna hylltu hann. Pei-on var seinast í Santiago fyrir 16 árum og var þá hern- aðarlegur ráðunautur argen- tiska sendiráðsins. doktorsritgerð við Hafnarhá- skóla um hljóðfræðileg efni. Hann hefur ritað mikið um hljóðfræðileg efni í erlend tímarit, en dvaldi í Berlín á stríðsárunum, aðallega við þá stofnun Berlínarháskóla, sem fjallar ‘ um „experimental. fonetik“. Vann hann þar með próf. Westermann, kunnum. hljóðfræðingi. Nýlega lauk hann við að> semja fyrsta bindi af nýyrða- safni, en það verkefni var hon- um falið af nefnd þeirri, sem um það mál fjallar, en í henni; eiga sæti prófessorarnir Alex- ander Jóhannesson Háskóla- rektor, Einar Ól. Sveinsson og Þorkell Jóhannesson. Dr. Sveinn Bergsveinsson prófessor við Berlínarháskóla. Rádínn til eins árs til að byrja með.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.