Vísir - 05.03.1953, Síða 1
43. árg.
Fimmtudaginn 5. marz 1953
53. tbl.
Landhelgis-
brjótur játar.
Belgískur togari, Marie José
Rosette, var tekinn í Iandhelgi
á mánudag undan Ingólfshöfða.
Var staðarákvörðun gerð á
skipinu næsta morgun, og far-
ið með það til Vestmannaeyja.
Skipstjóri játaði brot sitt og
var sektaður um 7500 kr. fyrir
ólöglégan útbúnað veiðarfæra.
Hann ákvað að áfrýja dómn-
Skiptapi vsð Engiand'
vegna þoku.
Eihkaslíeyti frá A.P. —
Samgöngutafir urðu enn í
gærkvöldi og nótt á Englandi
og við strendur landsins.
Af völdum hennar hefur 4000
smálesta sænskt skip sokkið á
Norðursjó eftir árekstur. Hið
sænska skip hét Vigo, en hitt
Senegal, ítalskt, 1600 smál. Það
laskaðist lítið. — Brezkt skip
bjargaði áhöfn sænska skips-
ins.
Veðurfar í Bretlandi mun
verða svipað í kvöld og nótt,
eða niðaþoka er kvöldar.
Stórbruni í Kaupm.höfn.
EMur « skipasmíðaisíöd. J»ar sem
skip E.l. eri« suiíðuð.
Sjálfstæðismenn efna
til happdrættis.
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur ákveðið að efna til happ-
drættis til eflingar starfi
sínu.
Eins og að líkum lætur
krefst aukin flokksstarfsemi
mikils fjár, og nú er heitið
á stuðningsmenn og velunn-
ara flokksins að taka happ-
drætti þessu vel.
Vinningar verða 50 að
tölu, en verðmæti þeirra um
130 þúsund krónur. — Vísir
mun síðar greina nánar frá
happdrættinu, en afgreiðsla
þess er í skrifstofu flokks-
ins, sími 7100.
Þetta eru ekki rússneskir hermenn, heldur þýzkir lögreglu-
menn í A.-Þýzkalandi, sem klæðast rússneskum búningum.
Hið fjölmenna lögreglulíð A.-Þýzkalands er æft eins og her væri.
Rætist úr húsnæðismáhim
íslenzkra Oslóarstúdenta.
Hafa fengið 10 herbergi í stúdenta-
bænum á Sogni, skammt frá ÓsJó.
Nýlega fluttu tíu ísleitzkir
stúdentar í bjartar og góðar
vistarverur í stúdentabænum
Sogn við Ósló.
Þar hafa fengizt til fram-
búðar tíu herbergi fyrir ís-
lenzkt námsfólk, og hefur þetta
í för með sér geysimikla breyt-
Dregið hefir af Stalín.
Andardráttur hans varð enn erfiðari
í gær — hjartsláttur veikari.
Einkaskeyti frá AP. —
Moskva í morgun.
Ný tilkynning, undirrituð af
læknum Stalins og heilbrigðis-
málaráðherranum, var birt í
morgun, og var henni útvarpað
til útlanda, eins og þeirri, sem
birt var í gær, og einnig í
heimaútvarpinu.
Er hún endurtekin þar við og
við, eins og fyrri tilkynningin,
sem lesin var við og við allan
daginn í gær.
Samkvæmt hinni nýju
tilkynningu varð andar-
dráttur Stalins því erfiðarí
sem a daginn Ieið í gær og
var reynt að létía undir
með honum með pencillin
og súrefnisgjöfum. Hjart-
slátturinn er veikur og
Stalin er alveg rænulaus.
Sérstakar messur voru
sungnar fyrir Stalin í ýmsum
helztu kirkjum landsins í gær
og beðið fyrir honum í öllum
kirkjum. — Sendiherrum og
ræðismönnum Ráðstjórnar-
ríkjanna hefur verið vottuð
samúð ýmissa þjóðhöfðingja,
stjórnmálamanna og annara,
vegna veikinda marskálksins.
ing til batnaðar í húsnæðismál-
um íslenzkra Óslóarstúdenta.
Þau frú Guðrún Brunborg og
Bjarni Ásgeirsson sendiherra
áttu frumkvæðið að því að
tryggja ísl. stúdentum þessi
herbergi, en þau gengu per-
sónulega í ábyrgð fyrir fyrstu
afborgun af herbergjunum, 20
þús. norskra króna, sem fengin
hefur verið að láni.
Frú Brunl>©rg er nú komin
hingað til iands, og hefur með-
ferðis afbragðs kvikmynd af
vetrar-olympíuleikunum í Ósló,
og látið setja við hana íslenzk-
an tallexta og hefur það tek-
izt ágætlega. Mun frúin ætla
að sýna myndina hér til ágóða
fyrir húsnæðismál íslenzkra
stúdenta í Ósló ,en þeir hafa
til þessa verið í hinu mesta
hraki í þeim efnum. Auk þess
hefur frúin með sér tvær mynd-
ir aðrar, en hún gerir sér von
um að geta greitt stúdentaher-
bergin með fé því, sem inn
kemur við sýningar á þeim. Má
sennilegt teljast, að það takist,
svo dugleg sem frú Brunborg
er, og aikunna er.
Hin nýju stúdentaherbergi
Frh. á 7. s.
Stórbruni varð í Kaupmanna-
höfn í morgun.
Kom upp eldur árla morguns
í birgðageymslum skipasmíða-
stöðvar Burmeister & Wain.
Slökkvilið borgarinnar fékk
ekki við neitt ráðið og nemur
tjónið milljónum króna.
Ekki er víst um eldsupptök,
en birgðageymslurnar urðu
brátt aielda. Allt slökkvilið
borgarinnar var kvatt út og
mun hafa tekizt að verja næstu
hús. Manntjón mun ekki hafa
orðið.
Þarna hefur brunnið geysi-
mikið af efni, og er tekið fram,
að mikið af teikningum muni
hafa eyðilagst í eldinum,- m. a.
uppdrætti að nýbyggingum,
skipum í smíðum og öðrum,
sem samið hafði verið um smíði
á. —
Margir bíða tjón.
Er gert ráð fyrir, að öll skipa-
félög á Norðurlöndum bíði
geysimikið tjón af völdum
eldsvoðans, þar sem skipasmíð-
um fyrir þau mun seinka, ef
til vill mjög rnikið.
Sjémaður hverfur
í Hafnarfirði.
Sjómanns af togaranum Júlí
er saknað í Hafnarfirði og hef-
ur hans ekki orðið vart frá því
aðfaranótt miðvikudagsins.
Það er vitað um ferðir þessa
sjómanns, en hann heitir Sig-
urgeir Gíslason til heimilis á
Öldugötu 23 í Hafnarfirði, að
hann fór um borð í „Júlí“, sem
lá við gömlu bryggjuna í Hafn-
arfirði, laust eftir klukkan 1 í
fyrrinótt, en síðan hefur ekkert
til hans spurzt.
Jakki Sigurgeirs fannst í
skipinu er farið var að hyggja
að honum, en allar eftirgrensl-
anir eftir honum sjálfum hafa
orðið árangurslaúsar. í gær-
kvöldi auglýsti lögreglan í
Hafnarfirði eftir honum í Rík-
isútvarpinu, en það hefur held-
ur ekki borið árangur.
Sigurgeir er 33 ára gamall,
meðalmaður á hæð, grannvax-
inn og dökkhærður.
Baitkastjórí Fram-
kvæmdabankans ráðinn.
Dr. Benjamín Eiríksson Iief-
ur verið ráðinn bankastjóri
Framkvæmdabanka íslands.
Aðrir umsækjendur um stöð-
una voru þessir: Bjöm Stefáns-
son, kaupfélagsstjóri á Horna-
firði, Jón Sveinsson, fyrrv,
skattadómari, Sigurður Jónas-
son framkvæmdastjóri og
Þórður Valdimarsson þjóðrétt-
arfræðingur.
Vísir spurðist fyrir um það
hjá Eimskipafélagi íslands, er
þessar fregnir höfðu borizt,
hvað liði skipasmíðum Bur-
meister & Wain fyrir félagið.
Hefur, sem kunnugt er, verið
samið um smíði tveggja skipa
í skipasmíðastöð þessari fyrir
félagið, og er fyrir nokkru bú-
ið að leggja kjölinn að fyrra
skipinu, sem er 1700 lestir, en,
hitt verður 2500 lestir, og verð-
ur kjölurinn að því ekki lagð-
ur fy^r en í vor.
Eins og sakir standa er ekki
vitað, að þessi bruni muni
snerta skip Eimskipafélagsins
beint, en annars hafði E. ísl.
ekki fengið slteyti um brunann,
er um þetta var spurt, og var
beðið frekari fregna.
Hiti 2° C yfir
meðailagi í
febníar s. I.
Hitinn hér í Reykjavík sl.
febrúarmánuð var 1,8° C og er
það 2 stigum fyrir ofan meðal-
lag.
Á Akureyri var hitinn í sama
mánuði 0,8° C, sem er 2,8 stig-
um heitara en meðalhiti febrú-
armánaðar er þar.
Enda þótt manni virðist si.
febrúar hafa verið óvenju
mildur, er hér þó ekki um.
neinn einstæðan hita að ræða,
því á síðastliðnum 20 árurn
hefir febrúarhitinn orðið 7 sinn-
um hærri en hann er nú og
í áttunda skiptið var hann jafn.
hár. Heitastur varð febrúar
1932 því þá komst meðalhitinn
í mánuðinum upp í 5,4 stig,
enda mun það vera heitastii
febrúar það sem af er þessari
öld.
Árín sem meiri hiti ' hefir
mælzt í febrúarmánuði heldur
en nú, eru 1923, 1926, 1929,
1932, 1934, 1942 og 1948, en árið
1938 var sama hitastig og í ár.
Úrkoman hér í Reykjavík
varð í sl. febrúarmánuði helm-
ingi meiri en venjulega, eða
174 mm í stað 87 mm.
Á Akureyri varð úrkoman £
sl. mánuði 40 cm, en þar er
meðallagsúrkoma 34 mm.
Fyrsti fundur í
Washington í gær.
Washington (AP). — Brezku
ráðherrarnir Eden og Butlcr
áttu í gær fyrsta viðræðufund.
sinn með Dulles og Ilumphrey
fjármálaráðherra.
Viðræðufundunum lýkur á
mánudag n. k. — Eden og Btul-
er gegnu óvænt á fund Eisen-*
howers í gær í Hvíta húsinu.