Vísir - 05.03.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 05.03.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Fimmtudaginn 5. marz 1953 53. tbl. Landhelgis- brjótur játar. Belgískur togari, Marie José Rosette, var tekinn í Iandhelgi á mánudag undan Ingólfshöfða. Var staðarákvörðun gerð á skipinu næsta morgun, og far- ið með það til Vestmannaeyja. Skipstjóri játaði brot sitt og var sektaður um 7500 kr. fyrir ólöglégan útbúnað veiðarfæra. Hann ákvað að áfrýja dómn- Skiptapi vsð Engiand' vegna þoku. Eihkaslíeyti frá A.P. — Samgöngutafir urðu enn í gærkvöldi og nótt á Englandi og við strendur landsins. Af völdum hennar hefur 4000 smálesta sænskt skip sokkið á Norðursjó eftir árekstur. Hið sænska skip hét Vigo, en hitt Senegal, ítalskt, 1600 smál. Það laskaðist lítið. — Brezkt skip bjargaði áhöfn sænska skips- ins. Veðurfar í Bretlandi mun verða svipað í kvöld og nótt, eða niðaþoka er kvöldar. Stórbruni í Kaupm.höfn. EMur « skipasmíðaisíöd. J»ar sem skip E.l. eri« suiíðuð. Sjálfstæðismenn efna til happdrættis. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur ákveðið að efna til happ- drættis til eflingar starfi sínu. Eins og að líkum lætur krefst aukin flokksstarfsemi mikils fjár, og nú er heitið á stuðningsmenn og velunn- ara flokksins að taka happ- drætti þessu vel. Vinningar verða 50 að tölu, en verðmæti þeirra um 130 þúsund krónur. — Vísir mun síðar greina nánar frá happdrættinu, en afgreiðsla þess er í skrifstofu flokks- ins, sími 7100. Þetta eru ekki rússneskir hermenn, heldur þýzkir lögreglu- menn í A.-Þýzkalandi, sem klæðast rússneskum búningum. Hið fjölmenna lögreglulíð A.-Þýzkalands er æft eins og her væri. Rætist úr húsnæðismáhim íslenzkra Oslóarstúdenta. Hafa fengið 10 herbergi í stúdenta- bænum á Sogni, skammt frá ÓsJó. Nýlega fluttu tíu ísleitzkir stúdentar í bjartar og góðar vistarverur í stúdentabænum Sogn við Ósló. Þar hafa fengizt til fram- búðar tíu herbergi fyrir ís- lenzkt námsfólk, og hefur þetta í för með sér geysimikla breyt- Dregið hefir af Stalín. Andardráttur hans varð enn erfiðari í gær — hjartsláttur veikari. Einkaskeyti frá AP. — Moskva í morgun. Ný tilkynning, undirrituð af læknum Stalins og heilbrigðis- málaráðherranum, var birt í morgun, og var henni útvarpað til útlanda, eins og þeirri, sem birt var í gær, og einnig í heimaútvarpinu. Er hún endurtekin þar við og við, eins og fyrri tilkynningin, sem lesin var við og við allan daginn í gær. Samkvæmt hinni nýju tilkynningu varð andar- dráttur Stalins því erfiðarí sem a daginn Ieið í gær og var reynt að létía undir með honum með pencillin og súrefnisgjöfum. Hjart- slátturinn er veikur og Stalin er alveg rænulaus. Sérstakar messur voru sungnar fyrir Stalin í ýmsum helztu kirkjum landsins í gær og beðið fyrir honum í öllum kirkjum. — Sendiherrum og ræðismönnum Ráðstjórnar- ríkjanna hefur verið vottuð samúð ýmissa þjóðhöfðingja, stjórnmálamanna og annara, vegna veikinda marskálksins. ing til batnaðar í húsnæðismál- um íslenzkra Óslóarstúdenta. Þau frú Guðrún Brunborg og Bjarni Ásgeirsson sendiherra áttu frumkvæðið að því að tryggja ísl. stúdentum þessi herbergi, en þau gengu per- sónulega í ábyrgð fyrir fyrstu afborgun af herbergjunum, 20 þús. norskra króna, sem fengin hefur verið að láni. Frú Brunl>©rg er nú komin hingað til iands, og hefur með- ferðis afbragðs kvikmynd af vetrar-olympíuleikunum í Ósló, og látið setja við hana íslenzk- an tallexta og hefur það tek- izt ágætlega. Mun frúin ætla að sýna myndina hér til ágóða fyrir húsnæðismál íslenzkra stúdenta í Ósló ,en þeir hafa til þessa verið í hinu mesta hraki í þeim efnum. Auk þess hefur frúin með sér tvær mynd- ir aðrar, en hún gerir sér von um að geta greitt stúdentaher- bergin með fé því, sem inn kemur við sýningar á þeim. Má sennilegt teljast, að það takist, svo dugleg sem frú Brunborg er, og aikunna er. Hin nýju stúdentaherbergi Frh. á 7. s. Stórbruni varð í Kaupmanna- höfn í morgun. Kom upp eldur árla morguns í birgðageymslum skipasmíða- stöðvar Burmeister & Wain. Slökkvilið borgarinnar fékk ekki við neitt ráðið og nemur tjónið milljónum króna. Ekki er víst um eldsupptök, en birgðageymslurnar urðu brátt aielda. Allt slökkvilið borgarinnar var kvatt út og mun hafa tekizt að verja næstu hús. Manntjón mun ekki hafa orðið. Þarna hefur brunnið geysi- mikið af efni, og er tekið fram, að mikið af teikningum muni hafa eyðilagst í eldinum,- m. a. uppdrætti að nýbyggingum, skipum í smíðum og öðrum, sem samið hafði verið um smíði á. — Margir bíða tjón. Er gert ráð fyrir, að öll skipa- félög á Norðurlöndum bíði geysimikið tjón af völdum eldsvoðans, þar sem skipasmíð- um fyrir þau mun seinka, ef til vill mjög rnikið. Sjémaður hverfur í Hafnarfirði. Sjómanns af togaranum Júlí er saknað í Hafnarfirði og hef- ur hans ekki orðið vart frá því aðfaranótt miðvikudagsins. Það er vitað um ferðir þessa sjómanns, en hann heitir Sig- urgeir Gíslason til heimilis á Öldugötu 23 í Hafnarfirði, að hann fór um borð í „Júlí“, sem lá við gömlu bryggjuna í Hafn- arfirði, laust eftir klukkan 1 í fyrrinótt, en síðan hefur ekkert til hans spurzt. Jakki Sigurgeirs fannst í skipinu er farið var að hyggja að honum, en allar eftirgrensl- anir eftir honum sjálfum hafa orðið árangurslaúsar. í gær- kvöldi auglýsti lögreglan í Hafnarfirði eftir honum í Rík- isútvarpinu, en það hefur held- ur ekki borið árangur. Sigurgeir er 33 ára gamall, meðalmaður á hæð, grannvax- inn og dökkhærður. Baitkastjórí Fram- kvæmdabankans ráðinn. Dr. Benjamín Eiríksson Iief- ur verið ráðinn bankastjóri Framkvæmdabanka íslands. Aðrir umsækjendur um stöð- una voru þessir: Bjöm Stefáns- son, kaupfélagsstjóri á Horna- firði, Jón Sveinsson, fyrrv, skattadómari, Sigurður Jónas- son framkvæmdastjóri og Þórður Valdimarsson þjóðrétt- arfræðingur. Vísir spurðist fyrir um það hjá Eimskipafélagi íslands, er þessar fregnir höfðu borizt, hvað liði skipasmíðum Bur- meister & Wain fyrir félagið. Hefur, sem kunnugt er, verið samið um smíði tveggja skipa í skipasmíðastöð þessari fyrir félagið, og er fyrir nokkru bú- ið að leggja kjölinn að fyrra skipinu, sem er 1700 lestir, en, hitt verður 2500 lestir, og verð- ur kjölurinn að því ekki lagð- ur fy^r en í vor. Eins og sakir standa er ekki vitað, að þessi bruni muni snerta skip Eimskipafélagsins beint, en annars hafði E. ísl. ekki fengið slteyti um brunann, er um þetta var spurt, og var beðið frekari fregna. Hiti 2° C yfir meðailagi í febníar s. I. Hitinn hér í Reykjavík sl. febrúarmánuð var 1,8° C og er það 2 stigum fyrir ofan meðal- lag. Á Akureyri var hitinn í sama mánuði 0,8° C, sem er 2,8 stig- um heitara en meðalhiti febrú- armánaðar er þar. Enda þótt manni virðist si. febrúar hafa verið óvenju mildur, er hér þó ekki um. neinn einstæðan hita að ræða, því á síðastliðnum 20 árurn hefir febrúarhitinn orðið 7 sinn- um hærri en hann er nú og í áttunda skiptið var hann jafn. hár. Heitastur varð febrúar 1932 því þá komst meðalhitinn í mánuðinum upp í 5,4 stig, enda mun það vera heitastii febrúar það sem af er þessari öld. Árín sem meiri hiti ' hefir mælzt í febrúarmánuði heldur en nú, eru 1923, 1926, 1929, 1932, 1934, 1942 og 1948, en árið 1938 var sama hitastig og í ár. Úrkoman hér í Reykjavík varð í sl. febrúarmánuði helm- ingi meiri en venjulega, eða 174 mm í stað 87 mm. Á Akureyri varð úrkoman £ sl. mánuði 40 cm, en þar er meðallagsúrkoma 34 mm. Fyrsti fundur í Washington í gær. Washington (AP). — Brezku ráðherrarnir Eden og Butlcr áttu í gær fyrsta viðræðufund. sinn með Dulles og Ilumphrey fjármálaráðherra. Viðræðufundunum lýkur á mánudag n. k. — Eden og Btul- er gegnu óvænt á fund Eisen-* howers í gær í Hvíta húsinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.