Vísir - 09.03.1953, Blaðsíða 1
43. árg.
Mámidaginn 9. marz 1953.
56. tbl
Utför Stalíns með viðhöfn
r<ir
ú Mssseúgs torginr«.
Lögregiuinönniom þarf að
fföiga í Kefiavík.
Áðstreymi aðkomufólks veldur þar
miklum drykkjuskap og slarki.
Einkaskeyti frá AP. —
Moskvu í morgun.
Útför Stalins fór fram í
morgun. Líkið var Iagt í graf-
hýsið á Rauðatorginu næst líki
Lenins.
Malenkov flutti líkræðuria í
viðurvist fulltrúa ráðstjórnar-
lýðveldanna, sendinefnda frá
ýmsum löndum, erlendra sendi-
fulltrúa, rússneskra stofriana
og alþýðu manna. Var þama
geysilegt fjölmenni.
Fyrir kl. 6 (eftir ísl. tíma),
er athöfnin hófst, var húsi
verklýðsfélaganna, þar sem lík-
ið hefur hvílt á börum undan-
gengin dægur, lokað fyrir al-
menning, og biðu þá erm þús-
undir manna, sem höfðu staðið
í röðum alla nóttina, og sumir
Einkaskeyti frá AP. —
Lcndon í morgun.
Tito markskálkur, forseti
Júgóslavíu, lagði sl. laugardag
af stað frá Belgrad í ferð sína
til Bretlands, en þangað kemur
hann mánudag næstk. og dvelst
þar 5 daga sem gestur brezku
stjómarinnar.
Tilkynning um burtför Titos
var ekki birt í Belgrad fyrr en í
morgun. Hann fer þessa för á
jugóslavnesku herskipi, og eru
tveir júgóslavneskir tundur-
spillar í fylgd með því, en við
eyna Möltu bætast við tveir
brezkir, og er herskipin nálgast
Bretlandsstrendur, enn tveir
brezkir, og verður sama tilhög-
un, er Tito heldur heimleiðis.
Háttsettir
förunautar.
Með Tito í ferðinni eru, auk
einkaritara hans Popovich ut-
anríkisráðherra og háttsettir
menn úr landher, flugher og
flota.
De Gasperi forsætisráðherra
Ítalíu hefur gert ferð Titos að
umtalsefni. Drap hann á ræðu
Titos fyrir nokkru og ásakanir
hans í garð ítala. Kvað hann
þær ekki hafa við neitt að
styðjast. ítalir væru fúsir til
samkomulags um Trieste, á
þeim grundvelli, að Jugoslavar
héldu þeim hluta héraðsins, þar
sem þeir eru fjölmennari, en
ítalir þeim, sem að mestu eru
byggð ítölum. Ef ekki reyndist
unnt að ná samkomulagi á þess-
um grundvelli væru ítalir fúsir
að fallast á þjóðaratkvæða-
greiðslu í Trieste og héraðinu
öllu. — De Gasperi sagði, að
lengur, til þess að votta Stalin
hinztu virðingu, en urðu nú frá
að hverfa.
Líkið var flutt á Rauða torg-
ið, en athöfnin hófst með því.
að blásið var í verksmiðjuflaut-
ur um land allt, og alger vinnu-
stöðvun var í 5 mínútur. Öllum
skólum landsins er lokað í all-
an dag í tilefni útfararinnar.
Malenkov bar mikið lof á
Stalin og stefnu hans og kvað
hana hafa verið friðarstefnu,
sem yrði fylgt áfram. ,,Vér
munum reyna að afstýra styrj-
öld, því að ósk vor er að lifa i
friði við allar þjóðir“. Malenkov
lagði áherzlu á samstarf við
alþýðulýðveldið kinverska. —
Skotið vár af fallbyssum i
Moskvu og öllum helztu borg-
um landsins.
óskandi væri, að í ferðinni fengi
Tito aukið traust á Bretum og
samstarfi frjálsu þjóðanna.
Trieste-málið rætt. !
Það er yfirleitt talið alveg
vafalaust, að Triestemálið muni
bera á góma, er Tito ræðir við
brezka stjórnmálamenn, enda
kunnugt að Eden ræddi það mál
við Tito og júgóslavneska ráð-
herra, er hann var þar, en það
er skoðun hans og vestrænna
stjórnmálamanna, að það hefði
stórkostlega þýðingu til að
treysta samtök frjálsu þjóð-
anna, ef samkomulag næðist
um Trieste.
-..— *
38 þúso tíf HolEandssÖfn-
unarinnar í lyrradag.
Skrifstofa Rauðakrossins hefur
nú tekið við samtals kr. 474.500
en talsvert fé hefur enn ekki
borizt utan af landi.
Söfnuninni lauk formlega í
fyrradag, en þann dag bárusí.
38 þúsunr krónur. Meðal gef-
anda þann dag voru íbúar
Dyrhólahrepps 2045 kr., kven-
félag Tilraun 1 Svarfaðardal,
kr. 15.450, og ibúar á Landbroti
á Síðu, 1550 krónur.
Vitað er, að allmiklar fjár-
hæðir hafa safnazt á Akureyri,
Neskaupstað og víðar, en skila-
grein hefur enn ekki borizt
þaðan. Má þvi örugglega búast
við, að söfnunin hafi farið tals-
vert yfir 500 þúsund, eins og
Vísir greindi frá í fyrradag.
Eldtii* í skipl
i Óundée.
London (AP). Eldur kom upp
í gær í 7000 lesta skipi í liöfn-
inni í Dundee í Skotlandi.
Eldurinn var mjög magnaður
hafði ekki tekizt að slökkva
hann i nótt sem leið. Skipið
var með farm frá Pakistan.
Skýrsla væntan-
feg um skóg-
rækthér.
Raymond F. Taylor skóg-
fræðingur, sem kom liingað til
lands á vegum FAO í september
sl., er fyrir nokkru kominn
aftur til höíuðstöðvar sinnar í
Juneau, Alaska.
Hann er yfirmaður tilrauna-
stofnunar skógræktarinnar í
Alaska og kom hingað til þess
að kynna sér íslenzka skóga og
skógræktarskilyrði. Dvaldist
hann hér í 3 vikur og ferðaðist
um landið, og skoðaði m. a.
uppeldisstöðvar Skógræktar-
innar.
Héðan fór hann til Róma-
borgar, höfuðstöðva FAO —
matvæla- og landbúnaðarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna —
og gekk frá skýrslu um ferð
sína hingað til lands. Að því er
Vísir hefur fregnað mun skýrsl-
an væntanleg hingað innan
skamms og verður þá kunnugt
um álit Taylors og tillögur.
Öryggissveitir hafa fellt 8
hryðjuverkamenn á Malakka-
skaga og sært 5.
Brýna nauðsyn ber til að
auka löggæzlu í Keflavíkur-
kaupstað vegna aðstreymis að-
komufólks.
Vísir hefur átt tal við Alfreð
Gíslason, lögreglustjóra í Kefla-
vík. Sagði hann, að á kvöldin
hefði lögreglan vart undan að
annast drukkna menn á göt-
um bæjarins, en drykkjuskap-
ur og slark er þar meiri syðra
en venja er til, vegna gífurlegs
aðstreymis aðkomufólks. Auk
aðkomusjómanna á vertíðinni
flykkjast menn, sem vinna á
flugvellinum, til kaupstaðarins
á kvöldin, en mikill fjöldi býr
í Keflavík og í Njarðvíkum.
Horfir þetta til vandræða, þar
eð ekki eru nú nema 4 lögreglu
nienn í Keflavík, sem eðlilega
eiga erfitt með að halda uppi
reglu. Telur lögreglustjóri
nauðsyn bera til, að ríkið leggi
til 2—3 menn til viðbótar, en
slíkt hefur tíðkazt annars stað-
ar, t. d. á Siglufirði um ver-
tíðina.
Innbrot framið.
Aðfaranótt föstudags var
brotizt inn í Varðabúð, sem er
smávöruverzlun, sem stendur
neðan við Hafnargötu, við sjó-
inn. Hafði verið brotizt inn um
Kaupmaðurinn hafði sjálfur
Kaupmaurinn hafði sjálfur
komið þangað um kl. 1 um nótt
ina, og tekið með sér peninga,
sem þar voru, svo að þjófurinn
eða þjófarnir komust ekki yfir
neitt í reiðu fé. Hins vegar mun.
hafa horfið ýmislegur varning-
ur, fyrir um 2000 krónur, að
því er kaupmaðurinn telur.
Axel Helgason lögreglumað-
ur í Reykjavík var kvaddur
suður eftir, og náði hann fingra
förum af rúðubrotum. Mun.
hann nú vera að rannsaka,
hvort hér hafi verið á ferðinni
einhver kunningi lögreglunnar.
Þá var nýverið gerð tilraun til
innbrots í kaupfélagið í Kefla-
vík, en án árangurs.
Pólverjar fá
ekki flugvélina.
Einkaskeyti frá AP.
Khöfn í morgun.
Danska stjórnin hefur neitað
kröfu pólsku stjórnarinnar um
að afhenda pólsku MIG-flug-
vélina, sem lenti á Borgundar-
hólroi.
í fyrsta lagi er flugvöllurinn
þar of lítill fyrir hana, til þess
að hefja sig til flugs, og í öðru
lagi verður rannsakað, hvort
allt hafi verið með felldu um
flugið, en í flugvélinni hafa
fundizt skotfæri og myndavél.
Flugvélin hefur verið tekin
sundur og flutt til Khafnar.
Fangar skotnir
í Kóreu.
Tokyo (AP). — f fangaupp-
þoti á ey við suðurströnd Kóreu,
skammt frá Koje-ey, voru 23
menn felldir en 42 særðir á
laugardag.
Fangi hafði gerst sekur um
agabrot, en er átti að hegna
honum risu félagar hans upp,
og voru fangverðir grýttir.
Herlið var kvatt á vettvang, eni
var og grýtt. Var þá gripið til
táragass, en það dugði ekki,
enda hafði þá uppþotið gripið
um sig til nýrra fangahverfa,
og tóku þátt í uppþotinu 2000
fangar.
Var loks skotið á fangana, er
viðvörunarskotum hafði ekkfi
verið sinnt.
-----♦....
10 stiga hiti á Akureyri.
Hiti er um allt land en þeit-
ast var á Akureyri, 10 stig, kl.
8 í morgun.
Áttin er víðast suðlæg eða
suðvesturlæg og víðast úrkoma
eða spáð úrkomu í dag. Víða er
allhvöss sunnan átt, eins og t.d.
við Faxaflóa rok á miðum svq
bátar hafa ekki farið í róðurj
Hvaða barn er fallegast?
Vísir efnir fil keppni um
falfegusfu barnamyndina.
Allir hafa gaman af að skoða góðar myndir af fallegum
börnum, og þess vegna hefur Vísir leitað til atvinnuljós-
myndara bæjarins, og fengið aðstoð þeirra við að hrinda af
stað einskonar fegurðarsamkeppni fyrir börn — fjögurra
ára ög yngri. Hefst hún á morgun.
Mun blaðið birta um cða yfir 20 myndir, sem ljósmynd-
ararnir hafa valið sjálfir, og verða birtar tvær myndir á
degi hverjum, nnz allar hafa komið fyrir augu lesenda.
Verða þær allar númeraðar og nafn ljósmyndara þirt með
hverri mynd, en síðan er þess óskað, að lesendur dæmi um,
hvaða barn sé fallegast.
Er fólk áminnt um að geyma mjuidirnar, þar til allar
hafa verið þirtar, en þá verður prentaður í biaðinu reitur,
þar sem menn eiga að rita númer beirrar myndar, er þeir
teija bezt, ásamt nafni sínu og heimilisfangi Það barn, sem
flest atkvæði fær, hlýtur failega flík, en til þess að þakka
Iesendum fyrir samvinnuna, munu 3 seðlar verða dregnir
úr atkvæðunum þeim, sem féilu á vinningsmyndina, og
fá sendendur þeirra einnig faliega og góða gripi. Verður
nánar skýrt frá þessu í blaðinu á morgun.
Þessir Ijósmyndarar hafa verið blaðinu hjálplegir: Alfreð
D. Jónsson, Asis, Barnaljósmyndastofan, Borgartúni 7, Erna
og Eíríkur, Jón Kaldal, Ljósmyndastofa Lofts, Óskar Gísia-
son, Sigríður Zoega, Sigurður Guðmundsson, Vigfús Sigur-
geirsson og Þórarinn Sigurðsson.
Fyigist með þessari keppni frá byrjun, og sendið blaðinu
síðan atkvæði yðar.
Tito lagður af stað sjó-
ieiðis tii Bretlands.
Mun hafa þar 5 daga viðdvöl.