Vísir - 11.03.1953, Side 1

Vísir - 11.03.1953, Side 1
43. árg. Miðvikudaginn 11. marz 1953. 58. tbU öænskur dægurlagasongvarx syngur hér á vegum SIBS. Snoddas kemur hingað n. k. sunnuda£ og syngur í Austurbæjarbíó. Síesðra þt'tr droUningtma á iietdinum? ngiendiitgar ætla að klifa Everest i siiasta lagl á krýningardaginn. Leiðangurinn allur kominn til Nepals og farinn að rótum fjallsins. AiÉa tjaldbúðír útbúnav í lilíðunum. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Þótt ekkert hafi verið látið uppi um það, ef illa skyldi til takast, er það álit manna, að brczki fjallagönguleiðangurinny sem œtlar að klífa Mount Everest í vor, ætli sér að reyna að komast upp á tindinn í síðasta lagi á krýningardag Elisabetar drottningar. Væntanlegur er hingað n.k. sunnudag frægasti dægurlaga- söngvari Svía, Snoddas, sem á einu kvöldi varð frægur um alla Svíbjóð, og segja sumir á einu lagi, er feann söng í sænska útvarpið í Stokkhólmi. Snoddas, eða Göste Nord- gren, eins og hann heitir réttu nafni, er 25 ára gamali Svíi, sem söng fyrst opinberlega í útvarpið í Stokkhólmi fyrir lið- lega ári. En á þessu eina kvöidi varð hann strax landsfrægur, en hann söng þá dægurlagið „Flottar Kárlek“, sem siðan er raulað af ungum sem gömlum í Svíþjóð. Það var blaðamaður Thorsten Adenby, sem fyrstur kynnti Snoddas fyrir höfuðstaðarbú- um, en hann heyrði fyrst til hahs í bænum Haderanda í N.- Svíþjóð, og fékk hann með sér til Stokkhólms til að syngja í útvarpið þar. Hingað kemur Snoddas á vegum S.Í.B.S. og mun halda hér fjórar söngskemmtanir, en með honum verður kunnur sænskur harmonikuleikari John Formell og auk þess Thorsten Adenbý, blaðamaður. Syngur Snoddas í Austurbæjarbíó í öll skiptin, en vegna þess að hann hefur ráðið sig annars staðar á eftir, getur hann aðeins dvalið hér frá sunnudegi fram á þriðjudag. Saga Snoddas er mjög merki- leg, því fyrir rúmu ári var hann óþekktur fisksali í Norður- Svíþjóð, og það var hrein til- viljun sem réði því, að blaða- maðurinn Adenby var þar á ferð og heyrði til hans. En síðar. hafa vinsældir þessa unga Svía vaxið með degi hverjum. Það mætti nefna sem dæmi um vinsældir Snoddas, að á einu ári hafa plötur þær, sem hann hefur sungið inn á selzt • • Oryggismálin og varnirnar. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- anna í Keykjavík heldur í kvöld kl. 8,30 fund í Sjálfstæðishús- inu. ! Umræðuefni verður öryggis- málin og varnir landsins. Frum- mælandi verður Bjarni Bene- diktsson utanríkisráðherra. Mun hann þar m. a. gera að umtalsefni þau blaðaskrif, sem orðið hafa um stofnun innlends hers. Þess er að vænta, að fulltrú- ar mælti vel og stundvíslega, enda er mikil nauðsyn á því að ræða þessi mál í hópi trúnaðar- manna Sjálfstæðisflokksins. í 500 þúsund eintökum, en tekjur hans af þeim verið 24 þús. krónur. Þegar S.Í.B.S fór þess á leit við Snoddas, að hann kæmi hingað, tók hann málaleituninni vel og bauðst til þess áð svngja á vegum sambandsins án end- urgjalds. Árás á flugvél barilega mótmæll Var skolin uigur yfir I^rzkalandi. Einkaskeyti frá AP. — Dulles utanríkisráðherra hefur falið sendiherranum í Prag að mótmæla eíns kröftug- lega og frekast er unnt árás- inni á bandarísku Thunderjet- flugvélina í gær. Voru tvær bandarískar Thunderjet-flugvélar á venju- legu eftirlitsflugi innan landa- mæranna, þegar tvær MIG- flugvélar komu aðvífandi frá Tekkóslóvakíu. Skotið var við- vörunarskoti, en MIG-flugvél- amar svöruðú skothríðinni, með þeim árangri, að önnur Thunderjet-flugvélin hrapaði til jarðar, en flugmaðurinn bjargaðist í fallhlíf ómeiddur. Hin Thunderjet-flugvélin varð ekki fyrir árás og lenti heilu og höldnu. Þetta gerðist í grennd við Regensburg um 23 kílómetra vestan tékknesku landamæranna. Á árinu sem leið voru 19641 farþegi fluttir milli íslands og útlanda, og er það hæsta far- þegatala í millilandaferðum frá því 1949. Til úllanda fóru héðan 9875 farþegar, sem er um 200 far- þegum fleira en árið áður, en hingað til lands komu aftur á móti 9766 manns, sem er um 900 farþegum fleira en árið 1951. Meira en helmingur þessa far- þegafjölda á s.l. ári voru ís- lendingar, eða 10105 talsins, en útlendingar voru 9536. Með skipum ferðuðust 11257 farþegar en 8384 með ílugvél- um. Sú var þó tíðin fyrstu ár- in eftir stríðið að mikill meiri hluti allra farþegaflutninga fór fram á flugvélum. En til þess lágu ýmsar ástæður, fyrst og fremst ónógur og slæmur skipa Háskáiahappdræt&iði: 25 þús. kr. féílu á ur. 7864. I gær var dregið í 3. fl. Happdrætíis Háskólans. Að þessu sinni voru vinning- ar. alls 600, og tveir aukavinn- ingar, samtals 272.400 krónur. Hæsti vinningurinn, 25 þús. kr., féll á nr. 7864, fjórðungs- miða, selda á ísafirði, Sel- fossi, Hofsósi og hjá Palínu Ár- mann. 10 þús. krónur féllu á nr. 1745, fjórðungsmiðar, aila hjá P. Ármann. 5 þús. krónur féllu á nr. 24.262, einnig fjórð- ungsmiða, tvo á Kópaskeri, og tvo hjá Pálínu Ármaim. Skipi „báf-volg" af geíslðverkttnimi. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Þrjú skipa þeirra, er notuð voru við kjarnorkutilraun Breta við Monte Bello-ey, eru enn hættuleg vegna geislaverkana. Þess er þó getið, að geisla- verkana hafi ekki orðið vart í þeim fyrr en þau voru dregin um sjó, þar sem þau „smituð- usí“ eftir sprenginguna. Segir flotamálaráðuneytið, að þau sé „hálf-volg“, en úr því verður bætt í þurrkvíum með sérstök- um ráðstöfunum. kostur, en tiltölulega góður flugvélakostur, hræðsla við tundurdufl og svo loks að pen- ingageta var þá almennt meiri hjá fólki. En eins og greina má af ofannefndum tölum ferðast nú nær 3 af hverjum 5 farþeg- um með skipum. Árið 1949 var metár eftir stríð í farþegaflutningum milli íslands og útlanda og ferðuðust þá 23294 manns milli landa. Jodl sýk'naður. Miinchen (AP). — Þýzkur elómstóll hefur sýknað Alfreð Jodl hershöfðingja af að hafa verið nazisti. Jodl var tekinn af lifi í Núrn- berg árið 1946 ásamt foringjum nazista. Dómstóllinn ákvað einnig , að eigur hans skyldi ekki gerðar upptækar. Nú líður enginn dagur svo, að ekki segi fleiri eða færri ensk blöð frá athöfnum fjall- göngugarpanna, en þeir eru all- ir komnir til Nepals, dvergrík- isins í hlíðum Himalaja-fjalla, sem „á“ eina hlið Everest-tinds og hefur það því í valdi sínu, hverjir og hversu margir menn reyni að klífa fjallið á ári hverju. Sumir fjallgöngumannanna eru komnir til Katmandu, höf- uðborgar Nepals, en aðrir hafa farið til Bhatgon, en þaðan er 240 km. leið að rótum Everest- fjalls. Hafurtask leiðangursins — 4,5 smálestir — er komið þangað, og í gær fór fyrsti hóp- ur 300 buðrarmanna af stað á- leiðis til fjallsrótanna. Þaulvanir fjallamenn. í leiðangrinum eru 13 Eng- lendingar — alvanir „Alpinist- ar“ eða fjallamenn — og meðal burðarmanna þeirra er maður að nafni Tensing, sem var með Svissurum í fyrra. Hann er, eins og allir burðarmennirnir, af Sherpa-kynþættinum, er allir Everest-leiðangrar treysta á. Hefur verið ákveðið, að hann eigi að vera í þeim fámenna hópi, sem gerir Ioka-atlöguna að fjallinu, því að hann var annar tveggja í síðasta leið- angri, sem áttu aðeins um 800 fet ófarin á tindinn á sl. hausti, er illviðri neyddu Svisslendinga til undanhalds. Læra a£ reynslu annara. Svisslendingar þeir, er klifu fjallið síðast, telja að leiðang- urinn enski sé a. m. k. að einu leyti verr búinn en þeir. Álíta Svisslendingar, að súrefnistæk- in ensku sé of þung, en tæki þeirra sjálfra reyndust einnig of þung, þótt þau væru hin létt- ustu, sem notuð höfðu verið. Foringinn bjartsýnn. Fyrirliði leiðangursins brezka, John Hunt oíursti, er bjartsýnn um árangurinn. Hann bendir á, að leiðangurinn geti hagnýtt sér reynslu allra fyrri leiðangra, því að í þessu efni er ekkert„ sem heitir „hernaðarleyndar- mál“ — en er hann hefur rætfc um þetta við blaðamenn, hefur hann jafnan slegið varnagla og sagt: „Veðrið er það eina, sem getur brugðizt að öllu leyti eins og jafnan áður.“ Atlaga í maí. Síðasta þorpið, sem leiðang- urinn kemur við í, heitir Nam- chee Bazaar. Handan þess byrja erfiðleikarnir, og í hlíðum fjalls ins verður komið fyrir átta tjaldbúðum með hverskyns út- búnaði, en þær síðustu verða í 27—28,000 feta hæð. Þaðan. verður atlagan gerð, og hún. mun hefjast í maí — eða fyrstu dagana í júní, ef veður leyfir„ ítalir taldir eiga olíuna. Einkaskeyti frá AP. Róm í morgun. Dómstóll í Genúa hefur hafnað kröfu Brezk-iranska olíufélagsins um löghald á olíufarmi skipsins Miriella, sem flutti 5000 lestir af olíu frá Abadan. Löghald var lagt á farm- inn, meðan dómstóllinn at- hugaði kröfu félagsins, en farmurinn verður nú leystur úr lögbanni, þar sem dóm- stóllinn kontst að þeirri niðurstöðu, að olían hefði j verið löglega flutt frá Persíu. | Lík rekur eystra. í gærmorgun rak lík eina skipverjans á v.b. Guðrúnu„ sem fórst undan Landeyjar- sandi fyrir skemmstu. Þrettán ára unglingspiltur„ sem hafði gengið á fjörur aust- ur undir Dyrhólaey, fann í gær— morgun sjórekið lík. Gerði hannt þegar aðvart, og reyndist það vera af Guðna Rósmundssyni„. stýrimanni á vélbátnum. Amerísk þingnefnd hefur lagt til, að Hawaii verði 49. fylkiðj;. Nær 20.000 manns milli íslands og útlanda sl. ár. fflæsta farþegatala Irá 1949.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.