Vísir - 18.03.1953, Blaðsíða 1
v
43. órg.
Miðvikudaginn 18. marz 1953
64. tbl.
Samníitaar við Dawson Rússum verður goldið í sömu mynt, ef
^ 1 ® r Jk . gr _ B 9
í dao?
IÆííBSMÍ M'i&ðÍM* í iiiSfj SmMSM™
ÍBttjsisppimst£ö srið iiiiitrmsi
Allar líkur benda til þess, að
samningar takist milli Félags
ísl. botnvörpuskipaeigenda og
Dawsons, en 'þessir aðilar munu
eiga fund saman í dag og ganga
frá ýmsu í sambandi við samn-
ingsgerðina.
Samkvæmt fréttum, sem Vís- i
ir aflaði sér laust fyiir hádegi
í dag, hafa þegar verið lögð
drög að samningi, en í dag verð-
ur væntanlega gengið frá ýms-
um smærri atriðum, enda um
mikilvægt mál að ræða, sem
bezt er að undirbúa sem vendi-
legast.
Vel má vera, að samningur
verði endanlega undirritaður í
dag, en Vísir þorir þó ekki að
fullyrða á þessu stigi málsins,
að svo verði, George Dawson
og fylgdarlið. hans fer héðan
aftur í nótt. flugleiðis heim til
Bretlands, og þá mun vafalaust
hafa verið gengið endanlega
frá þessum málum, þannig, að
Dawson taki að sér að kaupa
og dreifa íslenzkum ísfiski á
brezkan markað, og hefjist þá
landanir í ágúst í sumar, eins
og Vísir greindi frá í gær.
Sennilegt er, að FÍB gefi út
fréttatilkynningu um þessi mál
í dag eða svo fljótt, sem félagið
telur heppilegt.
Dawson átti í gær fund með
fulltrúum íslenzkra togaraeig-
enda, svo sem kunnugt er, en í
dag verður svo framhaldsum-
ræður um málið, eins og fyrr
greinir.
Um einstök atriði samnings-
uppkasts þess, sem þegar ligg-
ur fyrir, getur Vísir ekkert sagt
á þessu stigi.
Indiand áfram sam-
veldisland.
Indverska þingið hefur- fóllt
tillögu um, að Indland segi sig
úr brezka samveldinu.
Var tillagan felld með geysi-
miklum atkvæðamun eða 270
atkvæðum gegn 49.
Skðalandsmótinii aflýst hér.
Háð á Akairevri um páskana.
Skíðalandsmótinu hefur ver-
ið aflýst í Reykjavík vegna
snjóleysis.
Var ákvörðun um þetta tek-
in á fundi undirbúningsnefndar
skíðalandsmótsins hér í Reykja-
vík í gær. Áður hafði nefndin
beðið um frest til þess að taka
ákvörðun um málið í trausti
þess að hér kynni að snjóa það
mikið að fært yrði að halda
mótið. Nú er fresturinn útrunn-
inn og ekkert hefur snjóað svo
að ákvörðunin gat ekki orðið
nema á einn veg, þann að af-
lýsa mótinu hér sunnanlands.
Hefur Skíðasambandið á-
Bandaríkjamaður
játar árás á
Ólaf Ottesen.
Rannsókn út af árásinni á
Ólaf Ottesen sjómann í
Keflavík hófst í morgun.
Vísir átti í morgun stutt
tal við bæjarfógetan í Kefla-
vík, Alfreð Gíslason, sem
hefur' rannsókn málsins með
höndum.
Rannsóknin var þá að vísu
á hyrjunarstigi, en lá þó fyr-
ir játning af hálfu Banda-
ríkjamannsins að hafa barið
Ólaf tvö högg. Að öðru leyti
ber mönnunum ekki saman
og verður rannsókn málsins
haldið áfram í dag.
Líðan Ólafs var slæm í
morgun og lv. fur honum
hrakað frá því vtm helgi. —
kveðið að mótið skuli fara fram
á Akureyri um páskana og
héfst væntanlega á skírdag. Er
búist við að mótið haldi áfram
alla daga nema föstudaginn
langa, ef að venju lætur, og
ljúki annan í páskum.
Nú verður það fyrirkomulag
tekið upp að keppa aðeins í
einum flokki í hverri grein,
nema göngu. Þar verður keppt
í tveim flokkum. Aldurstak-
mark er miðað við 15—35 ára
aldur.
Sú breyting var einnig á-
kveðin í fyrra, að eftirleiðis
skylai brun fellt niður sem
keppnigrein á skíðalandsmót-
inu, en .stórsvig tekið upp þess
í stað. Keppnigreinarnar verða
því svig, stórsvig, ganga og
stökk. Kvennagreinar verða
svig og stórsvig.
Elnn þekktasti fimleika-
maður Svía kominn.
Fimleikadeild K.R. hefur
fengið hingað til lands einn af
beztu fimleikamönnum Svía.
Þessi fimleikamaður heitir
Ame Lind og er frá Stokkhólmi.
Hann er í sænska landsliðs-
flokknum og er talinn í allra
fremstu röð sænskra fimleika-
maniia.
Arne Lind mun dvelja hér um
þriggja vikna skeið og taka
þátt í fimleikaæfingum K. R.
sem „forturner". Mun hann
sýna æfingamar og rétt snið á
þeim svo aðrir geti leikið þær
eftir.
þeir ráðast á flugvélar vesturveldanna.
Alþýðumaðurinn:
verilun af-
farasælust."
Al'þýðuflokkurinn hefm-
um langi skeið svívirt verzl-
unarstéttina í blöðum sínum
fyrir það að hún leggi of-
mikið á vörurnar og okri
þegar hún sjái sér fært. En
nú kveður nokkuð við annan
tón í blaði flokksins á Akur-
eyri, ..Alþýðumanmnum“,
sem barmar sér mikið yfir
því að kaupmenn og kaup-
félög séu farin að selja vör-
urnar óheyrilega ÓDÝRT.
Blaðið segir meðal annars:
„— — — hafa nú ýmsar
nauðsynjavörur verið lækk-
aðar hjá kaupfélögunum svo,
að álagning er komin . niður-
fyrir lægstu álagningu á
ströngustu verðlagseftirlits-
tímum. Auðviiað er þetta
gott og blessað fyrir neyt-
andann í bili EN ÆTLI
HEILBRIGÐ VERZLUN SÉ
ÞÓ EKKI AFFARASÆL-
UST, ÞEGAR TIL LENGD-
AR LÆTUR?"
Alþýðuflokkurinn kallar
það ekki lengur heilbrigða
verzlun að selja vörur fyrir
lágt verð. Það væri gaman
að heyra, hvað flokkurinn
telji að vörur eigi að seljast
á HÁU verði til þess að
verzlunin geti talist „heil-
brigð“?
Brezki sprengjufiu'gvélaiflotinii
æfisigum í Vestur-
Háskcflasttídent-
ar halda fund
í dag.
Stúdentaráð Háskólans efnir
til fundar Háskólastúdenta í
Sjálfstæðishúsinu kl. 4 í dag.
Tuttugu og tveir kommúnist-
ar í Háskólanum hafa farið
fram á, að fundurinn yrði hald-
inn, en 20 eða fleiri geta krafizt
umræðufundar. Verður rætt um
„íslenzkan her“ og öryggismál
landsins, og leggja kommúnist-
ar að sjálfsögðu til framsögu-
manninn, þar sem þeir kröfð-
ust fundarins. Vafalaust fjöl-
menna Háskólastúdentar á
fund þemia, og verður fróðlegt
að sjá, hvað verður úr „friðar-
sókn“ kommúnista á þessum
vettvangi.
Bretar afnema
140 verksmiðjur
innan vébanda
F.Í.I.
Ársþing iðnrekenda, sem jafn
framt er aðalfundur Félags ísl.
iðnrekenda var sett í Tjarnar-
café, mánudaginn 16. þ. m.
Páll S. Pálsson, framkvæmda
stjóri félagsins, flutti ítarlega
skýrslu um hag félagsins og
störf þess á síðastliðnu ári.
Skýrði hann frá því í upphafi,
að margar verksmiðjur hefðu
gengið í félagið á árinu og væru
nú 140 vefksmiðjur í F.Í.I. Til
samanburðar skal þess getið, að
fyrir fimm árum voru 98 verk-
smiðjur í félaginu og hefur íé-
lagatala þvi vaxið um 42% síð-
an 1948. Eignir félagsin^ hafa
einnig aukizt verulega á þessu
árabili og árstekjur þess vaxið
um 115% á sama tíma. Síðan
rakti Páll þau mál er skrifstofa
félagsins og félagsstjórnin hafa
haft til meðferðar á árinu.
Stjórnina skipa nú: Kristján
Jóh. Kristjánsson, form., Axel
Kristjánsson, Sveinn B. Val-
.fells, Magnús Víglundsson og
Gunnar Friðriksson.
London (AP). — Neðri mál-
stofan samþykkti í gærkvöldi
frumvarpið um þjóðnýtingu
járn- og stáliðnaðarins, með 33
atkvæða meirihluta.
Umræður voru harðar, og
deildu jafnaðarmenn hart á
stjórnina, en af stjórnarinnar
hálfu var því haldið fram, að
það mundi verða til þess að
auka framleiðslu og útflutning,
að þjóðnýtingin verður afnum-
in. — Umræður um málið hafa
staðið hálfan mánuð.
London AP. — Bretar og
Bandaríkjamenn munu fram-
vegis verjast árásum rúss-
neskra flugmanna. Birt var til-
kynning í gær þessa efnis.
Flugmönnunum er að sjálf-
sögðu ekki heimilt að skjóta
að fyrra bragði, en skjóti Rúss-
ar, mega þeir grípa til byssna
sinna. Ekki mega flugmennirn-
ir fljúga nálægt landamærun-
um — þeir eiga að vera a. m.
k. í 15 km. fjarlægð frá þeirn,
og er þetta fyrirskipað, til þess
að forða árekstrum.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
bandamenn hafa gripið til jafn-
róttækra ráðstafana og þessara,
en þeir voru til neyddir, vegna
ofbeldisárása Rússa og banda-
manna þeirra.
Af því er virðist, hafa fiug-
menn í Bandaríkjaflughernurn
yfirleitt fengið sömu fyrirskip-
anir, því er rússnesk MIG-
flugvél réðist nýverið á banda-
ríska sprengjuflugvél austan
Kamstjakaskaga, guldu Banda-
ríkjamenn í sömu mynt. Hvor-
ug flugvélanna laskaðist.
Brezki flugherinn
að æfingum.
Brezkar sprengjuflugvéiar
hófu æfingarárásir í gær og er
flogið frá stöðvum í Bretlandi
til æsingaárása á staði í Vest-
ur-Þýzkalandi. — í gær fóru
Canberra þrýstiloftssprengju-
flugvélar þangað, varðar orr-
ustuflugvélum. Á heimleiðinni
lentu flugvélarnar í niðaþoku
yfir ströndum Englands, en
lentu allar heilu og höldnu.
Þetta eru mestu flugæfingar
þessarar tegundar eftir síðari
heimstyr j öldina.
Vélbátur frá Keflavík strandar
á Geréhélna undan Garði í nétt.
Mannliörg, en báturinn líklega ónýtur.
V.b. Svanu; KE 6 frá Kefla-
vík strandaði kl. 1 síðastliðna
nótt á Gerðhólma út af Gerð-
um.
Björgunarsveit Slysavarnafé-
lagsins í Garðirium sótti áhöfn-
ina, 6 menn.
Lágsjávað var, er báturinn
strandaði, austffliátt og hvass't,
en sjór .áðJ'aUandL Aðstaðan
var að því leyti góð til björg-
unar, að afl ndsvindur var, en
strandstaðu- er fyrir opnu
hafi, sjór örí aðfallandi og mik-
ið brim við stK .lina. Báturinn
var vel fiska.' • og reyndu skip
verjar að léus har,n með því
að varpa fiski fyrir borð, því
að þeir töldu að anntmundi að
ráða við leka.nn, en er hækkaði
reyndist lekinn óviðráðanlegur.
Samband var allan tímann við
. bátinn, t i :• i < 31 <- unarskip
komu á vettvang og björgunar-
sveitin í Garðinum var tilbúin.
Ekki vár talið reynandi að ná
út bátnum í nótt, Slysavarna-
félagið á björgunarbát í Garð-
inum og var áhöfn Svans, 6
menn, flutt á land í honum.
Viðbót vi ðstrandið ............
Eigandi v.b. Svans er Stein-
dór Pétursson útgerðarmaður í
Keflavík. Á bátnum voru þessir
menn: Sigurhans Sigurhansson
skipstjóri, Ingimundur Jónsson
vélstjóri, Kristján Ásgeirsson
stýrimaður, Hlynur Dagnýsson
matsveinn, Arnmundur Jónas-
son, háseti og Knútur Matthí-
asson hásetj.
í viðtali, sem blaðið átti við
Keflavík í morgun var talið ó-
líklegt að bátnum yrði bjargað.
Svanur var talinn bezti bátur-
inn í Keflavík miðað við stærij
og gæði. j