Vísir - 25.03.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 25.03.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Miðvikudaginn 25. marz 1953. 70. tbl. Mary ekkjudrottning látin eftir skamma legu. Kún varð hálfriiræð. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Mary ekkjudrottning, ekkja Georgs konungs Y. og móðir, Georgs VI. konungs og Ját- ■ varðar VIII. fyrrverandi kon- * íings, síðar liertoga af Windsor,f lézt í gær að heimili sínu, 85 ára að aldri. í Hún hafði legíð rúmföst um hálfsmánaðartíma. í gær, er henni var mjög farið að hraka og sýnt var, a'ö hverju fara mundi, heimsóttu nánustu ást- : vinir hennar hana í hinsta sinni, þeirra meðal hertoginn .< af Windsor tvisvar. —- Mary var fædd prinsessa af Teck, en upp alin í Englandi. Hún var fyrst trúlofuð hertoganum af Kent, en hann lézt og giftist hún síðar yngri bróður hans, , hertoganum af York, er síðar *] varð Georg konungur V. Var* hún drottning hans um aldar- ) ijórðungs skeið. — Naut hún alla tíð mikillar virðingar og ástsældar í .öllu brezka sam- veldinu. Samúðarskeyti hafa • þegar borist víða að í tilefni af and- láti drottningarinnar, m. a. frá Eisenhower forseta. Þingfund- um í London og Ottawa hefur verið frestað. Mayer hótaði afsögn — og það nægði. Einkaskeyti frá AP. — Fjárveitinganefnd fuiltrúa- deildar þingsins felldi í gær tillögu Mayers, um að Frakk- landsbanki veitti ríkissjóði bráðabirgðalán að upphæð er svaraði til 80 milljarða franka. René-Mayer var að leggja upp í Washingtonferðina fyrir- huguðú. „Ekkert lán — engin flugvél“, er eftir honum haft og boðaði þar með, að hann hætti við ferðina, ef lánsheim- ildin væri ekki samþykkt. Tilkynnti hann svo deildinni formlega, að hann myndi segja af sér, ef hún samþykkti ekki heimildina, og bar þessi hótun tilætlaðan árangur. Deildin samþykkti tillöguna og René- Mayer er á leið til Washington. Sérstök glös fyrir hvíta. Höfðaborg (AP). — Veit- ingamönnum hefur verið fyrir- skipað að bera hvítum mönn- um veitingar í sérstökum glös- um. Hefur staðið í talsverðu stappi um þetta undanfarnar vikur, þar sem veitingamenn hafa ekki viljað hlýða lögregl- unni í þessu, en nú hefur stjórn Malans tekið af skarið. Á að merkja glös fyrir hvíta menn, svo að ekkí sé hætta á, að svart- ir drekki úr þeim. Wetwr imMímms fjemgtmm í ffmrö ú MorðmrlmmdL (Vlikii faimkoma á Sigkeflg’ði, snjóýfum beiff á géftmuin þar. Vétttr er nú genginn í garð fyrír alvöru á Norður- íandi — hóst með einmánuði, sem tók ríð af góu í gær. Hefur fannkoma verið mikil víða, og eru fiaö mikil viðbrígði fyrir menn, þar sem veður blíðan hefur veríð svo mikií, eins og alhjóð er kunnugt. — Vísir átti tal við fréttarita sína á ýmsum stöðum á Norður- landi í morgun og fara hér á eftir frásagnir þeirra. I nótt var tómri smurolíu- fötu hent i gegnuni rúðu á vinnu | stað einum hér í bænum, en ekki hlauzt þó siys af. S Skeði þetta um fjögurleytið í nótt í Prentsmiðju Þjóðvilj- ans á Skólavörðustíg. Fatan kom fljúgandi inn á gólf, en sem betur fer varð þó ekki neinn maður fyrir henni né glerbrotunum. — Starfsmenn prentsmiðjunnar fóru út og svipuðust um eftir spellvirkj- anum, en fundu ekki. Sömu- leiðis gerðu þeir lögreglunni að vart, en Ieit lögreglumannanna varð einnig árangurslaus. Zapotocki, hinn nýi forseti Tékkóslóvakíu, hefur staðfest ákvörðun þingsins, að Siroki varaforsætisráðherra verði for- sætisráðherra Iandsins. OSafur Ottesen látinn af áverkunum. Árásin var gerð á hann fyrtr XI dögum. Ólafur Ottesen, sjómaður, lézt í sjúkrahúsi í morgun af afleiðingum áverka þeirra, er hann hlaut í sl. vikur Svo sem menn rekur minni til, fannst Ólafur inni í bíl í Keflavík aðfaranótt 12. þ. ro. og var svo af honum dregið, er hann fannst, að hann mátti vart mæla. Var hann með mikla áverka. Þrír menn — tveir íslenzkír og einn amerískur — voru handteknir í sambandi við at- burð þenna og hafa tveir þeirra játað, að þeir hafi barið Ólaf. Kannaðist Bandaríkjamaðurinn við að hafa greitt honum tvö högg og var annað rothögg. Annar íslendinganna kannaðist og við að hafa greitt Ólafi högg síðar. Þríðji maðurinn hafði látið hann afskíptalausan. Mál þetta verður nú allt al- varlegra, er Ólafur er látinn, og yerður því væntanlega hraðað. Fréttaritarinn á Siglufirði skýrði svo frá, að heldur væri farið að lygna, en snjókoma var mikil. Umferð tépptist á götum bæjarins vegna snjó- þyngsla, og varð að nota ýtur, til þess að farartæki kæmust leiðar sinnar. Frost var tals- vert. Á Akureyri snjóaði einnig í morgun, en ekki ýkjamikið. Samgöngur hafa ekki teppzt innanhéraðs, svo að vitað sé, en áætlunarbílar, sem voru á norðurleið í gær, voru tepptir í Fornahvammi. Fréttaritarinn á Blönduósi sagði, að þar hefði staðið norð- austan hríð í tvo daga, en stór- hríð var í gær. Þar hefur snjó- að talsvert, þó ekki svo, að samgöngur hafi teppzt. Gífur- legur vöxtur er í Blöndu, líkt og í mestu vorleysingum. Hefur það þó ekki komið að sök, enda fellur áin víðast í djúpum far- vegi eða gljúfrum, eins og kunn ugt er. í nótt snjóaði á Húsavík, en ekki mjög mikið, og samgöngu- leiðir eru opnar. Þá tók og að frysta, og þykja þetta mikil við- brigði eftir blíðuna undanfarið, eins og raunar annars staðar á landinu. í gærkveldi voru greinileg veðraskil um landið. Frost og norðaustanátt með hríð víðast um norðanvert landið, aUt suð- ur að Snæfellsnesi, en sunnan eða suðaustan átt sunnanlands og 6—8 stiga hiti víðast runh- anlands. I morgun var svo kom- ið frost víðast sunnanlands, og búizt við norðanstormi í dag og. frosti. Bílar á norður- leið fepptir. Héðan úr Reykjavík fóru í gærmorgún tveir bílar Norðurleiðar, annar með 26 fahþega, en hinn vörublll með póst og faraugur. Vörubíllinn fór fyrr og munaði því, að hann komst að Hrútaf jarðará og við illan leik þó, en hinn var enn veð- urtepptur í Fornahvammi á ellefta tímanum órdegis í dag. Var þar þá glórulaus hríð, svo að ekik sást út úr hlaðvar p anum. Bifreiðunum sóttist seint ferðalagið, einkum er kom. upp í Norðurárdalinn, vegna dimmviðris. tiiullfoss leggur úr ieöfit k kvöld : eru sjoinenn, iðnaöarmenn, bændur og rar aupsysiumenn. erts, írú élÍMm htndsíjjárÖM et t/ sttts. Þegar Gullfoss leggur frá bryggjunni í kvöld í Miðjarð- arhafsför sína, verða innan- borðs 212 farþegar, 68 manna áhöfu, en auk bess verða með skipinu yfir 1000 Iestír a£ salt- fiski, eða fullfermi. Kórmenn eru 38 talsins, en skyldulið þeirra, sem með þeim fer, 29, en aðrir farþegar sam- tals 145. Áhöfn skipsins er nokkru fjölménnari í þessari för en ella, þvi nokkru þjón- ustuliði hefur orðið að bæta við, eins og vonlegt er. Áður hefur verið að því vikið, að með skipinu verða tvær hár- greiðslukonur og rakari, auk tveggja lækna. Éin lest full af mat. Skipið fer héðan vel búið vistum, sem teknar voru um borð hér og í Kaupmannahöfn, og má heita, að ein frystilest skipsins sé full af matvælum, enda ekki búizt við, að kaúpa þurfi matvörur í sjálfri förinni, nema mjög lítið af nýmeti. Gullfoss lestaði saltfisk hér og á Akureyri, og fer með full- fermi, eins og fyrr segir. Verð- ur fiskurinn að líkindum skip- að á land í Neapel og Genúa. Er að sjálfsögðu mikil búbót að fiskfarminum, en auk þess er búizt við, að skipið Iesti ein- hverjar vörur á.ítalíu og Spáni til flutnings hingað. Farþegar Gullfoss í þessari för mega heita af flestum stétt- um og landshornum. Meðal þeirra eru sjómenn, verkamenn, bílstjórar, iðnaðarmenn, bænd- ur og kaupsýslumenn, og þeih eru ekki aðeins úr Reykjavík og nágrenni heldur frá Akur- eyri, Hornafirði, Vopnafirði og yíðar. Héðan fer Gullfoss beint til Algier á norðurströnd Afríku, og kemur væntanlega þangað eftir 150 kist. siglingu. Síðan verður haldið áfram til Palermo ,á Sikiley og Neapel. Flöð víð Ferju- kot i gær. Frá fréttaritara Vísis. —* Borgarnesi í morgun. -— Um kl. 3 í gær var komið hér tveggja stiga frost, en hélt þó áfram að rigna enn um stund. en fór svo að snjóa. Ekki hefur sett hér niður snjó að ráði niðri í héraði, en. kóf er ti lfjalla, og mun hafa, snjóað þar talsvert í nótt. í fyrrinótt rigndi feikn mikið og flóðu Norðurá og Hvítá yfir veginn fyrir sunnan og vestan. Ferjukot, og varð að vaða á undan bihim þarna í gær. Nýtt kjarnorku- vopn pró!að. N. York (AP). — Nýtt kjarri- orkuvopn hefur verið prófað, á Nevadasandflæmunum. Var því skotið af 100 metra háum turni, en aö því búnu. flugu nokkrir tugir flugvéia yfir sprengingarsvæðið, þ. á- m. 12 flugvirki af gerðinni B-27„ en 1300 hermenn voru í skot- gröfum í 4 km. fjarlægð, og sakaði engan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.