Vísir - 25.03.1953, Qupperneq 1
43. árg.
Miðvikudaginn 25. marz 1953.
70. tbl.
Mary ekkjudrottning látin
eftir skamma legu.
Kún varð hálfriiræð.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Mary ekkjudrottning, ekkja
Georgs konungs Y. og móðir,
Georgs VI. konungs og Ját- ■
varðar VIII. fyrrverandi kon- *
íings, síðar liertoga af Windsor,f
lézt í gær að heimili sínu, 85 ára
að aldri. í
Hún hafði legíð rúmföst um
hálfsmánaðartíma. í gær, er
henni var mjög farið að hraka
og sýnt var, a'ö hverju fara
mundi, heimsóttu nánustu ást- :
vinir hennar hana í hinsta
sinni, þeirra meðal hertoginn .<
af Windsor tvisvar. —- Mary
var fædd prinsessa af Teck,
en upp alin í Englandi. Hún var
fyrst trúlofuð hertoganum af
Kent, en hann lézt og giftist
hún síðar yngri bróður hans, ,
hertoganum af York, er síðar *]
varð Georg konungur V. Var*
hún drottning hans um aldar- )
ijórðungs skeið. — Naut hún
alla tíð mikillar virðingar og
ástsældar í .öllu brezka sam-
veldinu.
Samúðarskeyti hafa • þegar
borist víða að í tilefni af and-
láti drottningarinnar, m. a. frá
Eisenhower forseta. Þingfund-
um í London og Ottawa hefur
verið frestað.
Mayer hótaði
afsögn — og
það nægði.
Einkaskeyti frá AP. —
Fjárveitinganefnd fuiltrúa-
deildar þingsins felldi í gær
tillögu Mayers, um að Frakk-
landsbanki veitti ríkissjóði
bráðabirgðalán að upphæð er
svaraði til 80 milljarða franka.
René-Mayer var að leggja
upp í Washingtonferðina fyrir-
huguðú. „Ekkert lán — engin
flugvél“, er eftir honum haft
og boðaði þar með, að hann
hætti við ferðina, ef lánsheim-
ildin væri ekki samþykkt.
Tilkynnti hann svo deildinni
formlega, að hann myndi segja
af sér, ef hún samþykkti ekki
heimildina, og bar þessi hótun
tilætlaðan árangur. Deildin
samþykkti tillöguna og René-
Mayer er á leið til Washington.
Sérstök glös
fyrir hvíta.
Höfðaborg (AP). — Veit-
ingamönnum hefur verið fyrir-
skipað að bera hvítum mönn-
um veitingar í sérstökum glös-
um.
Hefur staðið í talsverðu
stappi um þetta undanfarnar
vikur, þar sem veitingamenn
hafa ekki viljað hlýða lögregl-
unni í þessu, en nú hefur stjórn
Malans tekið af skarið. Á að
merkja glös fyrir hvíta menn,
svo að ekkí sé hætta á, að svart-
ir drekki úr þeim.
Wetwr imMímms fjemgtmm
í ffmrö ú MorðmrlmmdL
(Vlikii faimkoma á Sigkeflg’ði,
snjóýfum beiff á géftmuin þar.
Vétttr er nú genginn í garð fyrír alvöru á Norður-
íandi — hóst með einmánuði, sem tók ríð af góu í
gær. Hefur fannkoma verið mikil víða, og eru fiaö
mikil viðbrígði fyrir menn, þar sem veður blíðan hefur
veríð svo mikií, eins og alhjóð er kunnugt. — Vísir
átti tal við fréttarita sína á ýmsum stöðum á Norður-
landi í morgun og fara hér á eftir frásagnir þeirra.
I nótt var tómri smurolíu-
fötu hent i gegnuni rúðu á vinnu
| stað einum hér í bænum, en
ekki hlauzt þó siys af.
S Skeði þetta um fjögurleytið
í nótt í Prentsmiðju Þjóðvilj-
ans á Skólavörðustíg. Fatan
kom fljúgandi inn á gólf, en
sem betur fer varð þó ekki
neinn maður fyrir henni né
glerbrotunum. — Starfsmenn
prentsmiðjunnar fóru út og
svipuðust um eftir spellvirkj-
anum, en fundu ekki. Sömu-
leiðis gerðu þeir lögreglunni að
vart, en Ieit lögreglumannanna
varð einnig árangurslaus.
Zapotocki, hinn nýi forseti
Tékkóslóvakíu, hefur staðfest
ákvörðun þingsins, að Siroki
varaforsætisráðherra verði for-
sætisráðherra Iandsins.
OSafur Ottesen látinn
af áverkunum.
Árásin var gerð á hann fyrtr XI dögum.
Ólafur Ottesen, sjómaður,
lézt í sjúkrahúsi í morgun af
afleiðingum áverka þeirra, er
hann hlaut í sl. vikur
Svo sem menn rekur minni
til, fannst Ólafur inni í bíl í
Keflavík aðfaranótt 12. þ. ro.
og var svo af honum dregið, er
hann fannst, að hann mátti vart
mæla. Var hann með mikla
áverka.
Þrír menn — tveir íslenzkír
og einn amerískur — voru
handteknir í sambandi við at-
burð þenna og hafa tveir þeirra
játað, að þeir hafi barið Ólaf.
Kannaðist Bandaríkjamaðurinn
við að hafa greitt honum tvö
högg og var annað rothögg.
Annar íslendinganna kannaðist
og við að hafa greitt Ólafi högg
síðar. Þríðji maðurinn hafði
látið hann afskíptalausan.
Mál þetta verður nú allt al-
varlegra, er Ólafur er látinn, og
yerður því væntanlega hraðað.
Fréttaritarinn á Siglufirði
skýrði svo frá, að heldur væri
farið að lygna, en snjókoma
var mikil. Umferð tépptist á
götum bæjarins vegna snjó-
þyngsla, og varð að nota ýtur,
til þess að farartæki kæmust
leiðar sinnar. Frost var tals-
vert.
Á Akureyri snjóaði einnig í
morgun, en ekki ýkjamikið.
Samgöngur hafa ekki teppzt
innanhéraðs, svo að vitað sé,
en áætlunarbílar, sem voru á
norðurleið í gær, voru tepptir
í Fornahvammi.
Fréttaritarinn á Blönduósi
sagði, að þar hefði staðið norð-
austan hríð í tvo daga, en stór-
hríð var í gær. Þar hefur snjó-
að talsvert, þó ekki svo, að
samgöngur hafi teppzt. Gífur-
legur vöxtur er í Blöndu, líkt
og í mestu vorleysingum. Hefur
það þó ekki komið að sök, enda
fellur áin víðast í djúpum far-
vegi eða gljúfrum, eins og kunn
ugt er.
í nótt snjóaði á Húsavík, en
ekki mjög mikið, og samgöngu-
leiðir eru opnar. Þá tók og að
frysta, og þykja þetta mikil við-
brigði eftir blíðuna undanfarið,
eins og raunar annars staðar á
landinu.
í gærkveldi voru greinileg
veðraskil um landið. Frost og
norðaustanátt með hríð víðast
um norðanvert landið, aUt suð-
ur að Snæfellsnesi, en sunnan
eða suðaustan átt sunnanlands
og 6—8 stiga hiti víðast runh-
anlands. I morgun var svo kom-
ið frost víðast sunnanlands, og
búizt við norðanstormi í dag og.
frosti.
Bílar á norður-
leið fepptir.
Héðan úr Reykjavík fóru
í gærmorgún tveir bílar
Norðurleiðar, annar með 26
fahþega, en hinn vörublll
með póst og faraugur.
Vörubíllinn fór fyrr og
munaði því, að hann komst
að Hrútaf jarðará og við illan
leik þó, en hinn var enn veð-
urtepptur í Fornahvammi á
ellefta tímanum órdegis í
dag. Var þar þá glórulaus
hríð, svo að ekik sást út úr
hlaðvar p anum.
Bifreiðunum sóttist seint
ferðalagið, einkum er kom.
upp í Norðurárdalinn, vegna
dimmviðris.
tiiullfoss leggur úr ieöfit k kvöld :
eru sjoinenn,
iðnaöarmenn, bændur og
rar
aupsysiumenn.
erts, írú élÍMm htndsíjjárÖM et t/ sttts.
Þegar Gullfoss leggur frá
bryggjunni í kvöld í Miðjarð-
arhafsför sína, verða innan-
borðs 212 farþegar, 68 manna
áhöfu, en auk bess verða með
skipinu yfir 1000 Iestír a£ salt-
fiski, eða fullfermi.
Kórmenn eru 38 talsins, en
skyldulið þeirra, sem með þeim
fer, 29, en aðrir farþegar sam-
tals 145. Áhöfn skipsins er
nokkru fjölménnari í þessari
för en ella, þvi nokkru þjón-
ustuliði hefur orðið að bæta
við, eins og vonlegt er. Áður
hefur verið að því vikið, að
með skipinu verða tvær hár-
greiðslukonur og rakari, auk
tveggja lækna.
Éin lest full
af mat.
Skipið fer héðan vel búið
vistum, sem teknar voru um
borð hér og í Kaupmannahöfn,
og má heita, að ein frystilest
skipsins sé full af matvælum,
enda ekki búizt við, að kaúpa
þurfi matvörur í sjálfri förinni,
nema mjög lítið af nýmeti.
Gullfoss lestaði saltfisk hér
og á Akureyri, og fer með full-
fermi, eins og fyrr segir. Verð-
ur fiskurinn að líkindum skip-
að á land í Neapel og Genúa.
Er að sjálfsögðu mikil búbót að
fiskfarminum, en auk þess er
búizt við, að skipið Iesti ein-
hverjar vörur á.ítalíu og Spáni
til flutnings hingað.
Farþegar Gullfoss í þessari
för mega heita af flestum stétt-
um og landshornum. Meðal
þeirra eru sjómenn, verkamenn,
bílstjórar, iðnaðarmenn, bænd-
ur og kaupsýslumenn, og þeih
eru ekki aðeins úr Reykjavík
og nágrenni heldur frá Akur-
eyri, Hornafirði, Vopnafirði og
yíðar.
Héðan fer Gullfoss beint til
Algier á norðurströnd Afríku,
og kemur væntanlega þangað
eftir 150 kist. siglingu. Síðan
verður haldið áfram til Palermo
,á Sikiley og Neapel.
Flöð víð Ferju-
kot i gær.
Frá fréttaritara Vísis. —*
Borgarnesi í morgun. -—
Um kl. 3 í gær var komið hér
tveggja stiga frost, en hélt þó
áfram að rigna enn um stund.
en fór svo að snjóa.
Ekki hefur sett hér niður
snjó að ráði niðri í héraði, en.
kóf er ti lfjalla, og mun hafa,
snjóað þar talsvert í nótt.
í fyrrinótt rigndi feikn mikið
og flóðu Norðurá og Hvítá yfir
veginn fyrir sunnan og vestan.
Ferjukot, og varð að vaða á
undan bihim þarna í gær.
Nýtt kjarnorku-
vopn pró!að.
N. York (AP). — Nýtt kjarri-
orkuvopn hefur verið prófað, á
Nevadasandflæmunum.
Var því skotið af 100 metra
háum turni, en aö því búnu.
flugu nokkrir tugir flugvéia
yfir sprengingarsvæðið, þ. á-
m. 12 flugvirki af gerðinni B-27„
en 1300 hermenn voru í skot-
gröfum í 4 km. fjarlægð, og
sakaði engan.