Vísir - 27.03.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 27.03.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Föstudaginn. 27. marz 1953. 72. tbl. BamMjósmyndakeppni Vísis: Oiafur H. Georgsson, LangLv. Ifann wair fir» 13 s keppfivitnl. ffii Þátttaka í barnamynda- getraun Vísis varð jafnvel enn meiri en búizt var viS, því að alls sendu 1843 les- endur blaðsins atkvæðaseSla, en sjálfri keppninni, sem var geysi-hörð og jöfn, lykt- Ólafur H. Georgsson í verðlaunaflíkinni. aði með þvi, að myndin nr. 13, hlaut flest atkvæði, eða 319. Hér verða ekki greindar atkvæðatölur hinna mynd- anna, en aðeins tekið fram, að öll áttu börnin sína áhang endur, flest mjög marga. Myndin nr. 13 reyndist vera af ÓLAFI HALLDÓRI GEORGSSYNI, sem er 3ja ára og 3ja mánaða, röskur piltur, sem á heima á Lang- holtsvegi 149. Foreldrar hans eru Margrét Kristjánsdóttir og Georg Ámason. Myndin af honum, sem tekin var af Sigurði Guðmundssyni ljós- myndara, hefur vakið mikla athygli, og skal þess getið, að við atkvæðatalninguna, sem fram fór í skrifstofu Vísis í gær, var snemma sýnilegt, að hún myndi sigra með nokkrum yfirburðum, enda þótt keppnin hafi ann- ars verið jöfn, eins og fyrr greinir. I gær fóru tveir síarfsmenn Vísis með Ólafi litla og móð- ur hans í Belgjagerðina, og þar valdi hann sér myndar- lega skjólflík, sem hann fékk sem fyrstu verðlaun. Vísir óskar Ólafi og for- eldrum hans til hamingju með úfsliíin í keppninni. Eins og tilkynnt háfði ver- ið, verða þáttíakendummeð- al lesenda veitt þrenn verð- laun. Var dregið inn þau í gær, og urðu úrslit þessi: BJÖRGVIN Á. BJARNA- SON, BJARNARSTÍG 12, fær vöfflujárn frá Raforku, Vesturgötu Z. HALLÐÓR KRISTMUNDSSON, ÁS- VALLAGÖTU 35 fær Kod- ak-myndavél frá Hans Fet- ersen. ÞÓRDÍS PÁLSDÓTT- IR, ÞINGHOLTSSTRÆTi 25, fær skrúfblýant frá Sv. Björnsson & Ásgeirsson. — Geta vlmiendurnir vitjað munanna í skrifstofu Vísis í dag eða á morgun. Þá hefur ritstjórn Vísis á- kveðið að veita aukaverðlaun þeirri telpunni, sem flest at- kvæði hlaut í keppninni. Hún var á mynd nr. 2 í keppninni, tekinn af Lofti h.f., Ijómandi lagleg stúlka með silkiband í hári, og heitir Almá Þor- láksdóttir, Hraunteigi 24, 3ja ára gömul, dóttir Önnu Sig- urðardóttur og Þorláks Guð- mundssonar prentara. Alma litlá fær mjmdarlegt og ljúf- fengt páskaegg, sem hún get- ur sótt í dag eða á morgun. Vísir vill hér með þakká öllum þátttakendum áhuga þeirra í keppninni, sem tókst mjög vel. Eftir páskana verður efnt til annarrar getraunar í blað inu, og verður nánar greint frá henni síðar. Þá má geta þess, að í ráði er að efna til annarrar barna-ljósmynda- keppni síðar, en með svolít- ið öðru sniði. Juitt hötar ai ia af iírefst meiri herafla. Paris (AP.) Juin marskálkur, yfirmaður landhers N.A.- bandalagsins hefur tilkynnt, að hann muni segja af sér, fái hann ekki nægan herafla til varn anna við Saxelfí. Tjáði hann hermálanefnd franska þingsins, að hann liti svo á, að stjórnin ætti að hverfa frá kröfu sinni um á&geta flutt til hersveitir sínar úr Evrópu- hernum væntanlega, því að það mundi veikja hann um of. Franskfr ráéherrar hefja vfteéur í taflioltstiingum. ©r a 9 Frá fréttaritara Vísis. — Borgarnesi í morgun. I nótt sem leið brunnu útihús að Bakkakoti í Stafholtstung- um. París (AP), — Frönsku ráð- herrarnir eru ná komnir til Washington og munu þegar í dag hefja viðræður sínar við bandarísku stjórnina. Auk Rene-Mayers forsætis- ráðherra tekur Bidault utan- ríkisráðherra þátt í umræðun- um, fjármálaráðherra Frakka og ráðherra Indokína, Letour- neau. — Blaðamenn ræddu við ráðherrana við komuna til New York í gær. Kváðu þeir við- ræðuraar mundu snúast um varnir Evrópu.efnahags og fjár- hagsmál, styrjöldina í Indokína og vopnun hersveita þar o. fl. Svíar telja sig eiga hjá >jóð- verjum 500 millj. s. kr. frá því fyrir stríð. (SIP). Bólasólt kemur upp á EnglaudL Flytzf með Eirábaðmull. Tvisvar á ferðínni. af iitlu filefni. Slökkviliðið var tvisvar á ferðinni í gærkveldi, en í hvor- ugt skiptið var þó um alvar- legan eldsvoða að ræða. Kl. rúmlega 9 í gærkveldi fóru slökkviliðsmenn suður í Skerjafjörð að Fossagötu 2. Þar var eldur í sóti í reykháfi. Eld- urinn var fljótlega slökktur, án þess að tjón yrði . Þá var slökkviliðið kvatt að Bergstaðastræti 9B kl. 10.37 í gærkveldi. Þar hafði kviknað í feiti í bökunarofni. Geklc greið- lega að slökkva, en skemmdir ui'ðu litlar. Formósa mikil- New York (AP) — Mark Clark hershöfðingi hefur átt við ræður við Chiang Kai-shek marskálk á Formósu. Clark sagði í gær, að nauð- legt væri að sameina til nýrra átaka alla þá, sem berjast gegn kommúnismanum í Austur- Asíu. Hann kvað stöðu Formósu hina mikilvægustu og téfla bæri fram liði þjóðemissmna þar á réttum stað og réttri stundu. London (ÆP). — Fyrir nokkru kom upp bólusótt með- al verkafólks í baðmullar-verk- smiðjum á Englandi. Heilbrigðismálaráðherra Bret lands skýrði frá því í gær á þingi, að 14 menn hefðu tekið sóttina, en auk þess væru 4 grunsamleg tilfeili. Tveir menn hafa dáið úr bójuáóttinni. Hún barst til landsins með.hrábaðm- ull. — Ráðhcrrann sagði, að ekki væri vitað um nein dæmi þess fyrr eða síðar, að smit hefðu borizt ineð dúkum eða öðru, sem unnið var úr hrá- ■baðmulL Hann hvatti innflytj- endur til þess að gæta varúðar við innflutning þessa hráefnis. Brann þar hlaða með á annað hundrað hestum af töðu, áfast verkfæraskýli og hesthúsi, og brunnu þar 6 héstar inni. Ó- kunnugt er um eldsupptök. Seinast var gengið .um þarna í verkfæraskýlinu, kl. 11 í gær- kveldi, en er komið var út í morgun kl. 8, var allt brunnið — húsin fallin og hestarnir dauðir. Bóndinn hafði byggt nýtt f jós í sumar er leið, í nokk- urri fjarlægð. og var það ætlun hans, að 'reisa þar hlöðu, en rífa þá, sem nú er brunnin. í verkfærageymslunni var nýr Hert á eftirliti með Kínaferðum. Hongkong (AP). — Nýlendu- stjórnin í Hongkong hefur birt nýjar reglur um eftirlit með skipum, sem sigla til hafna á meginlandi Kína. Eru þær í samræmi við regl- ur þær, sem fyrir nokkrum dög um gengu í gildi í Singapore. Var? það að samkomulagi fyr ir nokkru, sem kunnugt er, á viðræðufundunum í Washing- ton, að hert væri á eftirliti með skipum er sigla til Kína, til þess að hindra að kommúnist- um bærust hernaðarnauðsjmj - ar sóleiðis. traktor, keyptur í sumar, og sitthvað fleira. Allt var óvá- tx-yggt, nema traktorinn. Tjón- ið er mjög tilfinnanlegt, ekki sízt að missa hestana og töðu- íorðann, á annað hundrað hesta af vel vei'kaðri töðu. í Bakkakoti býr Axel Ólafs- son frá Álftartungukoti, kvænt ur Kristínu, dóttur Kristjáns frá Steinum. Hafa þau búið í Bakkakoti um allmörg ár. Starrar hafa hór oft vetrardvöi. Það er algengt, að starrar hafi hér vetrardvöl á síðari ár- um, og kunnugt að þeir voru farnir að verpa hér fyrir 10 árum. Þetta bar á góma í stuttu símtali við dr. Finn Guðmunds- son náttúrufi'æðing, en frá því var sagt hér í blaðinu fyrii' skömmu sem sjaldgæfum at- burði, að starrar hefðu verið í allan vetur í Húsavík, og eins að þeir hefðu haft þar vetrar- dvöl 1929, en þá var vetur mild- ur. — Dr. F. G. kvað starranna hafa orðið vart víða um land, en það væri þó ekki fyrr en á síðari árum, sem þeir væru farn ir að ílendast hér. Starrar hafa t. d. verið hér í Reykjavík í allan vetur. Starrarnir munu koma frá Skandinavíu og þá sennilega frá Noregi. Lögreglaii leitar að ketti! Róm (AP). —- Ríkislögregl- an hefur verið beðin aðstoðar í leit að stpppnðum ketti. Kettinum var stolið í borg- inni Tréviglio,- en hann á sér þá sögu, að harfn er til minn- ingar um köt t nokkurn, er varð Valdur að hardaga milli ibúa tveggia þorpa ög irumiidrápum íárið 1215. 12 kbt ferð frá Fornahvamni til Blöoduóss í gær. Farið héðan alia leið til Akureyrar í dag. Áætlunarbifreiðin, sem fór frá Fornahvammi í birtingu í gærmorgun, kom til Blöndu- óss kl. 8—9 í gærkvöldi. Ferðin var erfið vegna mikils moksturs, einkanléga í Hrúta- firði. 45 manns voru veður- tepptir í Fprnahvammi frá þriðjudegi þar til í gærmorgun. Farþegar voru 26, sem áður var getið og hjálpuðu þeir til við moksturinn. Að Hrútaíjarð- ará var komið eftir 4 klst. í Hrútafirði hafði sett niður mik- inn snjó og varð að moka þar mikið. Talsverður snjór er iíka í Miðfirði, en þegar í Skaga- f jörð kemur, mun vera miklum mun snjóléttara en í Húnavatns sýslum og Öxnadalsheiði vel fær, að því er talið var í morg- un. Tveir bílar fóru frá Reykja- vík í morgun er vonast eftir að þeir komist alla leið til Akur- eyrar í kvöld. Engar verulegar tafir hafa orðið á Hellisheiði, og ekki hef- ur þurft að moka þar. Brattabrekka er ófær venju- legum bifreiðum.^en áætlunar- bifreiðin, sem hefur drif á öll— um hjólum, komát suður í gær, þótt erfiðlega gengi. Þar sem snjókoma var í nótt er hætt við, að brekkan sé orðin ófær. Fróðárheiði var farin í gær, en ófrétt um hvernig þar er nú. Vafalaust hefur færð þyngst mjög. Kerlingarskarð lokaðist í gær. Hvassafell yfir n línuna" í dag. Hvassafellið miin að líkind- um fara yfir Miðjarðarlínu í dag á leið sinni til Brazilíu. Skipið fór héðan, eins og kunnugt er, 13. þ. m. með salt- fisk frá SÍF til Rio og Santos. Hinn 21. þ. m. kom skipið við á Azoreyjum til þess að taka olíuforða, eins og rúð hafði ver- ið fyrir gert, í dag mun það fara yfir Miðjarðarlínu, og keraur væntanlega til Rio 3.—7. apríL

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.