Vísir - 30.03.1953, Side 1

Vísir - 30.03.1953, Side 1
4.3. árg. Mánudaginn 30. marz. 1953. 74. tbL annst meðvltunda ístn herbergi á lau Ragnar Bjarnason bankamaður var enn rænulaus laust fyrír hádegi. snjóflóBi aðfaranótt sunnudags. Ragnar Bjarnason. bankarit- ari, Laugateigi 24, fannst með- viíunclarlaus í íbúð sinni síð- clegis á laugardag. Síðast var vitaS um ferðir Ragnars á fimmtudagskvöldiS um 11-leytið. Áður hafði hann verið lasinn af inflúenzu, en taldi sig vera á góðum bata- vegi eða jafnvel full-bata. Á fimmtudagskvöldið, seint, hitti maður í sama húsi hann að máli, og hafði Ragnar þá venð að koma heim til sín úr st.ræt- isvagni. Urðu þeir samferða inn um dyrnar, og skiptust á nokkr um orðpm, og. var Ragnar þá á allan hátt vel á sig kominn. Maður sá, sem kom með Ragn ari, fór inn i herbergi sit.t, sem er á næstu hæð fyrir neðan, og beint undir herbergi Ragn- ars. Sofnaði hann ekki fyrr en kl. 3—4 um nóttina, og heyrði hann þá, að Ragnar myndi vera í herberginu, og vissi enn frein- ur, að enginn myndi hafa komið inn til hans fram að þeirn tíma, þar til hann sofnaði. Svo þegar Ragnars verður ekki Vart, hvorki á föstudag eða fram eft- ir degi á laugardag, gerir Stefán Bjarnason, bróðir hans, ítrek- aðar tilraunir til þess að ná símasambandi við Ragnar, og hafði fyrst fengið þær upplýs- ingar í bankanum, að Ragnar væri lasinn, en þegar hann svarar ekki í síma heima hjá sér á laugardaginn, fer Stefán, ásamt systur þeirra, heim til Ragnars kl. 6 síðd. á laugardag. Þá er innri forstofan, sem til- heyrir ibúð Ragnars, og er á rishæðinni, læst, en skráarlyk- illinn stóð í að innan. Brutu þau þá rúði í hurðinni, gátu á þann hátt náð í lykilinn og opnað. . Þegar inn kom, lá Ragnar á gólfinu fyrir framan legubekk þann, sem hann hefur sofið á. Var svo að sjá, sem Ragnar hefði oltið fram af bekknum. Var hann bólginn hægra megin í andliti og meðvitundarlaus. Inni í herberg'inu var allt í: röð og reglu, og ekkert, sem: benti til, að þar hefðu nein' átök átt sér stað. Föt Ragnars lágu einnig samanbrotin, og ekkert sást á þeim. Ragnar var fluttur í Landsspítalann, og var hann ekki kominn til meðvit- ■ undar laust fyrir hádegi í dag. — Rannsóknarlögreglan óskar að fá upplýsingsr um Ragnar frá þeim mönnum, sem kýnnu að hafa haft tal af honum, eða vitað um ferðir hans á fimmtu- dagslcvöldið. Ný geíraun eftir páska, Þegar eftir páskana mun Vísir efna til nýrrar get- raunar fyrir lesenður sijia, og munu verðlaun verða þrenn, allt eigulegir og gagn- legir munir. Mun getraun þessi verða öðru vísi en sú, sem lauk fyrir skemmstu, er síðar er ætlunin, að efnt verði til nýrrar fegurðarsamkeppni milli barna, og mun þao verða tilkynnt nánar, er að því kemur. Lesendur eru hvattir til að vera með frá byrjun, og nýir kaupendur geta einnig fylgzí með, ef þeir hringja í tæka tíð í síma 1660. Myndin er af Filip hertoga af Edinborg, þegar hann var í heimsókn í N.-Þýzkalandi á dögunum. 8 sækja um skólameistara- stöðu. Átta menn hafa sótt um embætti skólameistara við menntaskólann að Laugarvatni. Umsóknarfrestur um stöðuna var útrunninn 28. þ. m., og höfðu þessir menn sótt um embættið: Benedikt Sigvalda- son, B. A., dr. Broddi Jóhannes- son, kennari við Kennaraskól- ann, Guðmundur Þorláksson gagnfræðaskólakenn., Magnús Gíslason, skólastjóri við Skóga- skóla, Ólafur Briem, kennari á Laugarvatni, Steindór Stein dórsson menntaskólákennari, Sveinn Pálsson, kennari á Laug arvatni og dr. Sveinn Þórðarson . menntaskólakennari. Embættið verður veitt frá 1. apríl n. k. Barizt í jiini María Júlía sækir báta. Nokkru fyrir miðnætti í nótt var tilkjnnt, að vb. Stefnir úr Hafnarfirði væri með brotið stýri sunnan Reykjaness. Björgunarskútan María Júlía, sem stödd var í Reykjavík, brá þegar við- og fór bátnum til hjálpar. Var komið taug vfir í bátinn, og kom María Júlía til Hafnarfjarðar kl. 6.30 í morg un með bátinn í eftirdragi. Björgunarskútan lagði þegar af stað aftur að sækja annan bát, vb. Þrist; sem var með bil- aða vél úti af Garðskaga. Vísir átti í morgun tal við Henry Hálfdánarson, skrifstofu stjóra Slysavarnafélagsins, og tjáði hann blaðinu, að ekki væri kunnugl um neinar slysfarir eða skipatjón af völdum óveðurs- ins um helgina. /lonað snjófléð á verkfæra- Einkaskeyti frá AP, — Róm í morgun. Róstusamur fundur var hald- inn í efri deild þingsin í gær og hörðust þingmenn, en ekki voru þó menn vegnir. Það var kosningalagafrum- varpið, sem hleypti þessum hita í menn. Gripu menn til þingskjala og hentu hver í ann- an og hófst þannig. leikurinn, en brátt voru blekbyttur, vatns- Jcönnur og annað, er hendi var jiæst, á flugi um þingsalinn. Þrátt fyrir bardagann var frumvarpið, sem er stjórnar- frumvarp, samþykkt, og varð Jþað að lögum, því að fulltrúa deildin hafði áður afgreitt þaö Kommúnistar eru hinir æfustu út af frumvarpi þessu og telja því stefnt gegn sér. Enn voru 5 Kykyumenn rnyrt ir í gær í Kenya, þúsundir blökkumanna voru yfirheyrðir, og um 1200 úrskuyðaðir í gæzlu varðhald. Lmnulaus hríð á Húnaþingi. Vegir nær allir óíærir. Frá fréttaritara Vísis. — Blönduósi í morgun. Hér má heita, að hafi verið linnulaus hríð síðan fyrir helgi, nema síðdegis í gær, er rofaði til um tíma. í morgun var aftur versnandi veður, mikil hríð, svo að ekki sást nema nokkra metra. í byggð er víðast ófært nema þar sem snjóýtur eru fengnar til ruðnings, en fjallvegir állh’ ófærir.. Norðurleiðabílarnir brutust til Sauðárkróks í nótt, er ýta hafði farið fyrir þeim. Vitað er, að í Hrútafirði eru mikil snjóþyngsli, og að sjalf- sögðu á Holtavörðuheiði. Gera menn ekki ráð fyrir neinni umferð um heiðina næstu df ga, nema með snjóbílum. Ekki er vitað um tjón á mönnum eða skepnum. Cullfcss náígast Njörvasuná Frá fréttaritara Vísis. — Gullfossi í gær. Verðum klukkan 20,00 þvert af Finisterrehöfða, á hádegi á mánudag við Vincent-höfða. I Við höfum fengið suðvest- læga átt það, sem af er leið- inni ,og stundum allhvassa, en heilsufar er yfirleitt gott. Biðja ‘ allir fyrir kveðjur til vina og : vandamanna. 3 menn tók út — 2 var bjargað. Línuveiðarinn Strath Allan frá Aberdeen kom hingað síð- degis í gær. Hafði hann orðið fyrir ólagi í veðrahamnum, laskast all- verulega og misst út menn. Þetta gerðist, er skipið var að veiðum 100 mílur úti í hafi. Fékk línuveiðarinn á sig mik- inn sjó og missti út þrjá menn, en tveir náðust aftur. Skipið Iagðist alveg á hliðina, en rétti sig brátt aftur. Björgunarbát- inn missti hann og ýmislegt brotnaði eða gekk úr skorðum ofan þilja. Skulielsfirði. Frá fréttaritara Vísis, Isafirði í morgun. Aðfaranótt sunnudags féll snjóflóð á skíðaskála Skíðafé- lags ísafjarðar í Seljalandsdat og gjörónýtti hann. Skáli þessi var 18X10 metrar að stærð, og tók flóðið um 14 metra af honum, en norður- endinn stendur eftir, en undii’ honum var steyptur kjallari. Brakið af húsinu er að mestu á kafi í fönn, nema þak skálans, sem fauk 15—20 faðma leið í: aðra átt en snjóflóðið féll, og má af því sjá, að veðurhæðin. hefur verið geysimikil. Sem betur fór, var enginn f skálanum um þessa helgi vegna óveðurs. Skíðafélagið hefur orðið ,fyrir tilfinnanlegu tjóni. í húsinu, sem byrjað var að byggja árið 1939, voru sex her- bergi, stór salur g eldhús. Þar voru „kojur“ fyrir um 20 manns,, dýnur, ábreiður, eld- húsáhöld og borðbúnaður fyrirt fjölda manns. Óvenjulegt er, að snjóflóð falli þarna, því að bratti er ekki nærri, en talið, að það hafii myndazt langt uppi í fjalli og] runnið svo langt vegna þess, að harðfenni var og því lítil mót-« spyrna. Annað snjóflóð féll sl. föstu- dag á verkfærageymslu á Kirkjubóli i Skutulsfirði og eyðilagðist hún, svo og ýmis verkfæri, en bifreið sem þap ‘ var, laskaðist mikið. Árásin í Keflavík: Dánarorsök heilahrist- ingur og lungnabólga. Málsskjölin vegna árásarinn- ar á Ólaf Ottesen sjómann, er leiddi hann til bana, hafa nú verið afhent dómsmálaráðu- neytinu. Alfreð Gíslason, bæjarfógeti í Keflavík, hefur nú lokið rann- sókn í máli þessu, og afhenti í dag skjölin ráðuneytinu, sem síðan mun taka ákvörðun um, hvað gera skuli, en væntaniega verður gefið út ákæruskjal á hendur Bándaríkjamanninum og ísléndingnum, sem að áverk- unum voru valdir. Krufning á líki Ólafs Ottesens i leiddi i ljós, að dánarorsökin I var heilahristingur og lungna- j bólga. Gríska lögreglan hefur und- anfarið handtekið fjölda kom- múnista í Þrakíu. 10J kynnir sér slysa- varnir erlendis. Jón Oddgeir Jónsson, fulltrúf SVFÍ, er um þessar mundir staddur í Stokkhólmi, þar sens hann kynnir sér ýmis öryggis-* mál. Jón Oiddgeir fór utan um áramótin til þess að kynna sér* slysavarnir, hjálp í vi/Iögura og fleira, er að starfi hans lýtur. Ferðast hann á vegum Samein- uðu þjóðanna, og hefur dvaliéi í Sviss, Bretlandi og nú síðast í Svíþjóð þessara erinda. Ilana er væntanlegur heim í apríllolv, Viðræður hafnar í Ottawa. París (AP). — Viðræðuií franskva og kanadiskra ráð- hérra eru nú hafnar í Ottawa, Bidault utanríkisráðherra Frakklands kom þangað á laug- ardag frá Washington, og Rene- Mayer forsætisráðherra hans í gær.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.