Vísir - 22.04.1953, Blaðsíða 1
43. árg.
Miðvikúdaginn 22. apríl 1953.
90. tbl.
af sókn Vietmin í
í Uos.
Oiíutekjur Irak
hraðvaxa.
Einkaskeyti 'fró AP. — Burma og yrðu þá mikil þátta-
London í morgun. | skil í styrjöfdinni í Indokína,
í hinu liíla konungsríki, Laos sem hefur stáðið í 7 ár, og tefla
í Indokína, var um miðbik þessa fyrrnefndum; tveimur löndum í
mánaðar fyrirskipuð allsherjar aukna hættu.
hervæðing, vegna liinnar yfir-
vofandi innrásarhættu Vieth-
minh-hersveita eða uppreistar-
sveita kommúnista. Talið er, að
hervæðingin nái til 60.000
manna.
Liði þessu er ætlað að berj-
ast með hersveitum Frakka, en
að sjálfsögðu líður nokkur tími
þar til það getur tekið virkan
þátt í vörninni. — Framsveitir
uppreistarmanna voru .um þess-
ar mundir komnar yfir landa-
mæri Laos. Þær voru, samkv.
fegnum í gærkvöldi, komnar
það langt inn í landið, að að-
setursborg konungsins, Sisa-
vang Vong, var talin í aukinni
hættu. Uppreistarmenn hafa til
þessa haldið sig í skjóli frum-
skóganna, svo að flugvélar
Frakka hafa ekki getað gert
mikinn usla í liði þeirra með
árásum.
Leiti uppreistarmenn út á
slétturnar, sem þeir nú verða
að gera til þess að komast til
höfuðborgarinnar, verður betri
aðstaða til þess að gera þeim
erfitt fyrir með flugvélaárás-
um. — Uppreistarmenn hafa
undirbúið þessa sókn vikum
saman og hafa að sögn þrjú
herfylki í sókninni. Heppnist
uppreistarmönnum þessi sókn,
kunna þeir að geta sótt til landa
mæra Thailands (Siam) og
a stMMireyri
Einkaskeyti frá AP. —
Bagdad í morgun.
Síjórnin í Irak fékk 34 millj.
stpd. eða 95,2 millj. dollara í !Bohlen, hinn nýi sendiherra
Lifiil dSrengur
druk'knar i
Bolungarvík.
f fyrrakvöld varð hörmulegt
slys í Bolungarvík, er lítill
drengur drukknaði í höfninni
þar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk í Bolungarvík í morg
un, er ekki vitað með hverjum
hætti slysið varð, en skipverjar
á vb. Heiðrúnu sáu drenginn,
sem hét Hreinn Magnússon, í
sjónum við brimbrjótinn. Voru
þegar hafnar lífgunartilraunir
á honum, og þeim haldið á-
fram á lækningastofu héraðs-
læknis í um 2 klst., en árang-
urslaust. Drengurinn hafði á-
verka á höf'ði, og talið líklegt,
að hann hafi misst meðvitund
í fallinu. — Hreinn litli var sjö
ára gamall, sonur Elísabetar
Sigurðardóttur og Magnúsar
Jónssonar, sem bæði eru látin.
olíutekjur frá marzlokum í
fyrra til sama tíma í ár. en
Irak fær helming orðs Irak-olíu
félagsins.
Stjórn olíufélagsins áætlaði i
fyrra, að þjóðartekjur Irak af
olíuframleiðslunni mundu auk-
ast um 400% 1951—1955.
Bandaríkjanna í Moskvu af-
henti Voroshilov forseta emb-
ættisskilríki sín í fyrradag.
i niergijri^
Allar vélar hraðfrystihússins ger-
eyðilagðar, en fiskur sennilega
óskemmdur.
Ebtiar aSlia* alvin mi rið itúsið.
Frá fréttaritara Vísis. — Suðureyri í morgun.
Stórbrum varð á Suðnreyri viS Súgandafiörð í
morgun, er eidur kom upp í hraSfrysihúsinu Isver h.f.,
og eySiIögðust aílar vélar.
í frystiklefunum voru um
12.000 kassar af fiski, eða um
300 lestir, en talið er líklegt,
að hann sé óskemmdur, að því
er verksmiðjustjórinn, Oskar
Kristjónsson, telur.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Vísir fékk um 11-leyt-
Tregur afli Homa-
fjarðarbáta.
Frá fréttaritara Vísis. —
Hornafirði í mogun.
Hér er lítill afli um þessar
mundir og yfirleitt hefur afli
Hornafjarðarbáta verið frekar
tregur í vetur, eða frá tæpum
tvö hundruð skippundum í f jög-
ur hundruð.
Fyrir páska snjóaði allmikið
og varð algerlega haglaúst í
Lóni, en nú eru farnir að koma
upp rindar. í dag er blíðuveð-
ur, og fer gróðri vel fram á
Höfn, en snjóföl lilífði honum
í kuldakastinu um páskana. —
Framboð hafa enn ekki verið
ákveðin í Austur-Skaftafells-
sýslu nema hvað Ásmundur
Sigurðsson alþingismaður verð-
ur í kjöri fyrir kommúnista.
Dregur úr skipasmíöuiíi USA.
Hinn 1. apríl áttu Banda-
ríkjamenn í smíðum 82 skip,
samtals 1.764.775 smálestir.
Er það minna en nokkurn
tíma áður á undangengnum 21
mánuði.
Iokið og hafa nú úrslit fengizt
í öllum flokkum nema meist-
araflokki, bar er ein umferð
eftir.
Sömuleiðis er einni skák ó-
lokið í landsliðsflokki, sem raun
ar hefur ekki neina úrslitaþýð-
ingu og í 1. flokki þurfa brír
menn að lceppa til úrslita og
um það, hvor þeirra flytzt upp
í meistaraflokk.
Biðskákir í landsliðsflokki,
sem tefldar voru í. gærkveídi,
fóru þannig, að Guðm. S. Guðm.
vann Óla Valdimarss. og Sveinn
Krístinsson vann Steingrím
Guðmundsson, en skák þeirra
Baldurs Möller og Guðjóns M.
Sigurðssonar fór aftur í bið.
Allar líkur benda þó til þess,
að Guðjón muni vinna hana.
Staðan í landsliðsflokki er þá
þannig, að Friðrik Ólafsson er
efstur með 6 ¥2 vinníng, en næst
ir honum koma Guðm. S. Guð-
mundsson. og Sveinn Kristinss.
með 6 vinninga, enn fremur
Guðjón M. Sigurðss. vinni hann
Baldur, en annars hefur hann
ið í morgun, mun eldurinn hafa
komið upp um kl. 4V2 í morg-
un, og magnaðist mjög skjótt.
Hér er um að ræða gömul timb-
urhús, að mestu, með nokkrum
viðbyggingum úr steinsteypu,
þar sem frystiklefarnir eru.
Skilyrði til slökkvistarfs eru
góð þarna, með því að nóg er af
rennandi vatni og slöngur fyr-
ir hendi. Þó var óttast um fiski-
mjölsverksmiðju og íbúðarhús
skammt frá, og því tekið það
ráð að fá póstbátinn frá ísa-
firði með slökkvitæki til við-
bótar. Báturinn lagði af stað frá
ísafirði kl. rúmlega 7 í morgun,
; , , og var kominn til Suðureyrar
sakn- standa. Guðm. Agustsson kL rúmL 10. Þá mátti heita, að
hefur 51/2 vinmng _Eggert Gilfer tekizt hefði að ráða niðurlögum
4V2 vmnmg, Baldur Moller 4
Skákþingi íslendinga senn lokið.
Síðasta umferð í meístaraffokki tefíd
á sunnudaginn.
Skákþingi fslendinga er senri 5 vinninga og biðskák eins og
Siys á Snorrabraut.
Lítilsháttar umferðarslys varð
í gær á Snorrabraut, skammt
frá gatnamótum Flókagötu.
Þar varð telpa innan ferm
ingaraldurs, Hallfríður Kon-
ráðsdóttir, Drápuhlíð 2, fyrir
bíl. Meiðsli hennar reyndust ó-
veruleg og var hún flutt heim
til sín. '
Ovissan eftir andlát Stalíns
réttlætir ekki athafnaleysi.
vinninga og biðskák, Ingi R.
Jóhannsson 3, Óli Valdimarss.
2 og Steingr. Guðmundsson IV2
vinning. Skipa allir framan-
greindir 10 menn nú landslið
íslendinga, en áður voru það
aðeins skipað 8 mönnum.
í 10. umferð meistaraflokks
vann Jón Pálsson, Anton Sig-
urðsson og Ingimundur Guð-
mundsson vann Þórð Þórðar-
son. Jafntefli gerðu Birgir Sig-
urðsson og Þórður Jörundsson,
Jón Víglundsson og Haukur
Sveinsson. Hinar tvær skákirn-
ar fóru í bið. Verða biðskákir
tefldar á föstudagskvöldið, en
síðasta umferð á sunnudag.
í 1. flokki urðu efstir og jafn-
ir Bjarni Linnet, Dónald Ás-
mundsson og Karl Þorleifsson
með 6 vinninga hver af 8 mögu
legum. Verða þeir að keppa til
úrslita og flytzt sigurvegarinn
upp í meistaraflokk.
í 2. flokki urðu efstir og jafn-
ir Grétar Jónsson og Jón Guð-
mundsson með 6V2 vinning af
8 mögulegum og flytjast þeir
báðir upp í 1. flokk.
inn, sem hefst á morgtLUfe
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Ráðherrafundur N.-Atlanfs-
hafsvarnarbandalagsins Iiefst í
París á morgun og er mikið
rætt í heimsblöðunum um í'und-
inn og'verkefni Iians. — Yfir-
leitt kemur þar mjög fram, að
taka verði á málunum af meiri
festu en áður.
Times bendir á, að skipu-
leggja verði þátt varnarsam-
takanna, en enn eimi eftir a£
því, að menn séu hikandi og' ó
eldsins, en tjón hafði orðið g'íf-
urlegt.
Hraðfrystihúsið mátti heita
fallið, bæði véla- og fisk-
vinnslusalur, en hins vegar
standa frystiklefarnir, nema
rífa varð þak á einum.
Þetta er ægilegt áfall fyrir
l þorpið og byggðarlagið, því að
þetta var eina hraðfrystihúsið
á þessum slóðum, en landburð-
ur hefir verið af steinbít und-
anfarna daga, og má heita, að
allir þorpsbúar hafi haft vinnu
við frystihúsið undanfarið.
Eldurinn komst ekki í fiski-
mjölsverksmiðjuna eða húsin í
grennd, en þorpsbúar tóku allir
þátt í slökkvistarfinu og gengu
vasklega fram. Norðaustan
kaldi og snjókoma var í morg-
un meðan á brunanum stóð.
Óvíst er um eldsupptök, en.
bruni þessi lamar nú athafna-
líf á Suðureyri.
vissir, síðan er menn fóru að
grípa til þess ráðs að skjota
sem flestu á frest vegna óviss-
unnar, sem ríkti ,vegna forseta-
kjörsins í Bándaríkjurium. Nú
sé ekki hægt að bera neinu sliku
við Iengur og varað við, að
sami andi verði ríkjandi áúam.
Óvissan eftir andlát Stalir.s rétt
læti ekki að menn halcli ao sér
höndum, en varnarsamtökin séu
alls ekki komin í það horf, sem
þurfi, og ekki seinna vænna að
kippa þvi í lag, sem laga parf.
'angaskiptin
ganga greiðlega.
Fangaskiþtunum var haldið
áfram í Panmunjon í morgun.
Kommúnistar skiluðu 100, en
S. þj. 500, og gengu fanga-
skiptin gréiðlega.
Kommúnistar skil-uðu aðeins
suður-kóreskum föngum að
þessu sinni, en á morgun skila
þeir nokkrum bandarískum og
Læknisskoðun á föngum, sem
kommúnistar hafa afhent,
bendir til, að meiri hluti þeirra
hafi tekið berklaveiki í fanga-
vistinni.
Lögreglustjóri
hverfur.
Teheran (AP). — Lögreglur.„
stjórinn i Teheran hvarf
skyndilega í gær með dular-
fullum hætti.
Hann var á ferð um úthverfi
í bænum í eftirlits skyni, en
síðan hefur ekki til hans spurst.
Getgátur eru uppi um, að hon-
um hafi verið rænt og sé hann
hafður í haldi einhversstaðar,
en aðrir ætla að hann hafi
strokið.
VÍSIR
kemur ekki út á morgun,
sumardaginn fyrsta, en næsta
blað kemur út á föstudag. —
Vísir óskar öllum lesendum
sínum glcðilegs sumars.