Vísir - 27.04.1953, Síða 1
43. árg.
Mámidaginn 27. apríl 1953
93. tbl.
Guðmundur Jónsson og Else Miihl í Rigoletto.
Maður missir 10 þús. kr.
í peningum í eldsvoða.
íliáðarhústð Árdahir við Breíðhohs-
veg stórskemmist í hrana x gær.
Á sjötta tímamim síðdegis í
gser kom upp eldur í íbúðar-
húsinu Árdal við Breiðholts-
veg, og varð fjölskyidan, sem
jþar bjó, fyrir mjög tilfinnan-
iegu tjóni, m. a. brunnu þar
tön 10 þúsund krónur í pen-
ingum.
Árdalur er eiginlega sumar-
faústaður, vandaður, sem Þóia
Borg leikkona á, en nú haíði
hann á leigu Bertel Sigurgeirs-
son trésmiður, og bjó hann þar
ásamt börnum sínum tveim, 8
og 19 ára.
Slökkviliðið var kvatt þang-
að kl. 17,25, og tókst að slökkva
eldinn, þó ekki fyrr en skemmd
ir höfðu orðið miklar, og má
heita, að húsið hafi brunnið
allt innan. |
Mun eldurinn hafa magnazt
svo skjótt, að Bertel tókst ekki
að bjarga nema mjög litlu af
innanstokksmunum sínum, en
auk þess brunnu þar 10 þús. j
krónur í peningum, svo og verð
bréf fyrir 7000 krónur, er hann
geymdi í húsinu.
Um eldsupptök var Vísi ó-
kunnugt 1 mogun, en upplýs-
ingar þessar eru frá slökkvi-
iiðinu og lögreglunni,
Þá var slökkviliðið á ferðinni
\ið tvö önnur tækifæri 1 gær,
en í bæði skiptin af litlu til-
Lögreglustjórinn
var kyrktur.
Lögreglustjórinn í Teher-
an, sem hvarf fyrir
skemmstu, fannst kyrktur
skammt frá Teheran. Hafði
hans verið leitað nokkra
daga.
Eftir að líkið fannst hafa
ýmsir menn, þeirra meðal
nokkrir háttsettir, verið tekn
ir höndum.
Drottningin í Persíu er ný-
farin úr landi sér til heilsu-
bótar. — Talið er að Mossa-
degh hafi talið hana óvin-
veitta sér og sú sé hin raun-
verúlega orsök utanfarar-
innar.
efni. Um hádegisbilið voru
slökkviliðsmenn kallaðir að
Selabraut í Kópavogshreppi, en
þar hafði kviknað í rusli í mið-
stöðvarkleía. Var búið að
slökkva, er slökkviliðið kom á
vettvang, en skemmdir urðu
engar. í gærkvöldi var tilkynnt,
að eldur væri uppi á Lauga-
vegi 47, en þar hafði kviknað í
dúk eða tusku út frá sígarettu
í herbergi inn af miðstöðvar-
herbergi. Ekkert tjón varð af.
liinuidyr Jónsson vann stérsifur
Konungl. leikhúsinu í gærkveldi.
ffi/amm r«r úhaft hylitur «/
þéttshipwwöw Ivikhuisitsu.
Herliiigsíiie Tidextde segir
iMitxid irúbæran söngvara.
Kaupmannahöfn í morgun. — Frá fréttaritara Vísis.
Guómundur Jónsson vann stórsigur í gærkvöldi, er liann
kom fram í fyrsta skipti á sviði Konugiega lcikhússins í hlut-
verki Rigolettos í samnefndri óperu Verdis.
Belgiskur togari
tekinn í landhelgi.
Frá fréttaritara Vísis. —
Vestm.eyjum í morgun.
f fyrrinótt kom varðskipið
Þór með belgiskan togara hing-
að, sem tekinn háfði verið að
veiðum í landhelgi, skammt frá
Ingólfshöfða.
Belgiski togarinn heitir Rub-
ens og er frá Ostende. Mál skip
stjórans er í rannsókn og hafði
dómur ekki verið kveðinn upp
yfir honum fyrir hádegið,
Kanadískir ráðherr-
ar í boði hér.
Ráðherrarnir Bjami Bene-
diktsson og Hermann Jónasson
em væntanlegir til landsins í
kvöld frá París, en í fylgd með
þeim er Lester Pearson, utan-
ríkisráðherra Kanada og tveir
meðráðherrar hans.
Flugvél þeirra er væntanleg
til Keflavíkur kl. 7—8 í kvöld.
Pearson utanrikisráðherra og
fylgdarlið hans mun koma hing-
að til bæjarins og sitja kveld-
verðarboð í utanríkisráðherra-
bústaðnum við. Tjarnargötu í
kvöld. Hinir kanadísku gestir
halda svo áfram vestur um haf
í fyrramálið.
Hitaveita í
Budapest.
Vatnið verður leitt
úr ey í Duná.
íbúur Budapcst, höfuðborgar
Ungverjalands, fá ef til vill að
sjá óskadraum rætast bráðum,
— óskadraum, sem mikill f jöldi
Reykvíkinga hefur þegar séð
rætast. Það stendur nefnilega
til að hita Budapest upp méð
heitu vatni úr iðrum iarðar.
Hverirnir, sem leið á vatnið
úr, er á sankti Margretar-ey í
Duná, og verður það leitt í
pípum neðanjarðar margra km.
vegarlengd. - í nágrenni Buda-
pest er sagt vera mikið af heit-
um uppsprettum, sem nýta
mætti á sama hátt.
3 milj, ferðast dag-
lega í jámbrautum
Bretlands.
London (AP). — 3 milljónir
farþega ferðast daglega á
brezkum járnbrautum og flytja
1 millj. lesta af vörum. Tekj-
urnar af þessu nema 5 millj.
punda, sem er talsvert meira en
fyrir stríð.
Kaupmannahafnarblaðið
„Bérlingske Tidende“ nefnir
Guðmund „hinh frábæra, ís-
lenzka söngvara". . og lýkur
miklu lofsorði á frammistöðu
hans, og segir síðan:
„Hinn íslenzki söngvari, Guð-
muiidur Jónsson, hefur fagra
rödd og háþroskaða sönglist.
Hljómurinn er mikill og per-
sónulegur, en e. t. v. full-bjart-
ur fyrir hlutverk Rigolettos.
svo að á köflum mátti segja, að
það skorti fyllingu, þrátt fyrir
mjög fagra rödd söngvárans og
geðríkan flutning. I dramatísku
tilliti tókst Guðmundi mjög vfel
upp, enda þótt framkoman á
sviðinu væri á stundum dálítið
einhæf (stereotyp). Þó er betra
að hafa færri hreyfingar én
innantóma leikhústilburði.
Hjá þessum afbragðsgóða
söngmanni vöktu Ijóðrænir og
tilfinningaríkir kaflar mesta
athygli, sér í lagi „pietá“-kafl-
Viðræður hafnar í Kairo
milli Breta og Egypta.
Arabar vilja sjálfir hafa yfirstjórn
varna landa sinna.
Fonnlegar viðræður hófust í
morgun í Kairo milli Breta og
Egypta um ágreiningsmál
þeirra, herstöðvar Breta á
Súezeiði og brottflutning her-
liðs þeirra, og Súdanmálið.
Samningamenn verða ai
hálfu Breta Sir Ralph Steven-
son sendiherra þeirra í Kairo
og Sir Brian Robertson, sem til
skamms tíma var yfirmaður
landhers Breta í löndunum við
austanvert Miðjarðarhaf. Af
hálfu Egypta verða þeir samn-
ingamenn helztir Naguib hers-
höfðingi og forsætisráðherra og
utanríkisráðherra hans.
Forseti Libanop sagði í Kairo
í gær, að Arabaríkin yrðu að
sjálfsögðu að gera þær kröfur,
að þau hefðu sjálf með höndum
að vemda frið og öryggi í lönd-
um sínum og hindra ofbeldis-
árásir. Tilboð um aðstoð til
varnar væri sjálfsagt að athuga
vandlega, svo fremi að sjálf-
stæði Arabaríkjanna væri virt
í hvívetna og þeim sýnd full
virðing.
Stórhríð víða
norðanlamls.
Fjallvegir teppast.
Stórhríðarveður var á Akur-
eyri í morgun og víðar norðan-
lands og yfirleitt mikil snjó-
koma um gervallt Norður- og
Austurland.
Heiðavegir hafa teppzt aftur
og ekki fært um suma þeirra
nema ef til.vill í snjóbílum.
Norðaustan stinningskaldi
var um allt land í morgun C'g
á Austurlandi var allhvasst
sums staðar. í Vestmannaeyj-
um voru 9 vindstig. Hér í Rvilc
var 1 stigs frost í mörgun, en
norðanlands 1—3 stig á strönd-
um frammi og mest í innsveit-
um, 5 stig í Möðrudal. Mestur
hiti.var 5 stig á Fagurhóismýri
og í Loftsölum. Bjartviðri er
suðvestan og suiman lands, en
kóf nvrðra ,eða stórhríð, svo að
vart sér milli húsa.
inn, sem sunginn var á ítölsku,
og hinar blíðu föðurtilfinningar
i dúettinum með Gildu. Þar
söng Eva Berge á móti G.ið-
mundi.
Mesta athygli vakti Guð-
mundur Jónsson við flutning
þessarar óperu, sem þarna vann
mikinn sigur á leiksviði voru.
Hann var að lokum ákaft hyllt-
ur af troðfullu húsi og klapp-
aður fram á sviðið, en auk þess
hlaut Stefán Islandi, landi
hans, sem lék hertogann, mik-
ið löf fyrir þrjár aríur sínar.“
Guðmundi var fagnað með
lófataki, er hann birtist fyrSt á
sviðinu, en í bæði öðrum og
þriðja þætti varð hlé vegna
langvarandi lófataks, er náði
hámarki við þrefalda framköll-
un síðast, enda færðist haxrn
greinilega í aukana.
Mjög margir íslendingar voru
í Konunglega leikhúsinu þetta
kvöld, meðal þeirra sendiherra-
hjónin.
Að óperunni lokinni var stöð-
ugur straumur landa í búnings-
herbergi Guðmundar, sem íærði
honum árnaðaróskir. Barst hon
um feikn af blómum.
Guðmundur tjáði fréttaritava
Vísis eftir sýninguna, að hann
hefði verið sérstaklega vel fyr-
irkallaður, enda þótt æfingar
hafi elcki verið mjög margar,
en hins vegar verða sýningar
aðeins tvær, hin síðari sunnu-
daginn 3. maí. Ráðgert var að
hafa sýningu þann fimrnta, en
þá er þjóðminningardagur
Dana, og þá er ávallt fluttur
söngleikurinn „Álfhóll".
Stefán Islandi tjáði frétta-
itaranum, að Guðmundur hefði
lagt hart að sér, enda uppskor-
ið ríkulega.
Fréttaritari.
35 þféðir titan
- samtaka Sþ.
' Það, eru yfir 35 þjóðir, sem
ekki eru í samtökum Samein-
uðu þjóðanna. Þeirra meðal eru
menningarlönd eins og Eire, og
önnur, sem vegna tpgstreitu
stórveldanna, hafa ekki fengið
upptöku, eins og sum Aústur-
Évrópúríkin.
Mannekla við
höfnina.
í morgun voru fimm togarar
að landa hér í höfn og var mik-
ill skortur á verkafólki til þess
að annast löndun þeirra.
Meðal togaranna var llranus
og voru kl. hálf níu í morgun
aðeins komnir 7 menn til þess
að vinna við togarann. Alls mun
þurfa um 35 menn við hvern
tógara meðan á afgreiðslu hans
stendur. Þegar blaðið átti tal
við togaraafgreiðsluna um há-
degið höfðu verið lánaðir menn
frá bænum og nokkurn veginn
fullskipað á skipin.