Vísir - 27.04.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 27.04.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Mámidaginn 27. apríl 1953 93. tbl. Guðmundur Jónsson og Else Miihl í Rigoletto. Maður missir 10 þús. kr. í peningum í eldsvoða. íliáðarhústð Árdahir við Breíðhohs- veg stórskemmist í hrana x gær. Á sjötta tímamim síðdegis í gser kom upp eldur í íbúðar- húsinu Árdal við Breiðholts- veg, og varð fjölskyidan, sem jþar bjó, fyrir mjög tilfinnan- iegu tjóni, m. a. brunnu þar tön 10 þúsund krónur í pen- ingum. Árdalur er eiginlega sumar- faústaður, vandaður, sem Þóia Borg leikkona á, en nú haíði hann á leigu Bertel Sigurgeirs- son trésmiður, og bjó hann þar ásamt börnum sínum tveim, 8 og 19 ára. Slökkviliðið var kvatt þang- að kl. 17,25, og tókst að slökkva eldinn, þó ekki fyrr en skemmd ir höfðu orðið miklar, og má heita, að húsið hafi brunnið allt innan. | Mun eldurinn hafa magnazt svo skjótt, að Bertel tókst ekki að bjarga nema mjög litlu af innanstokksmunum sínum, en auk þess brunnu þar 10 þús. j krónur í peningum, svo og verð bréf fyrir 7000 krónur, er hann geymdi í húsinu. Um eldsupptök var Vísi ó- kunnugt 1 mogun, en upplýs- ingar þessar eru frá slökkvi- iiðinu og lögreglunni, Þá var slökkviliðið á ferðinni \ið tvö önnur tækifæri 1 gær, en í bæði skiptin af litlu til- Lögreglustjórinn var kyrktur. Lögreglustjórinn í Teher- an, sem hvarf fyrir skemmstu, fannst kyrktur skammt frá Teheran. Hafði hans verið leitað nokkra daga. Eftir að líkið fannst hafa ýmsir menn, þeirra meðal nokkrir háttsettir, verið tekn ir höndum. Drottningin í Persíu er ný- farin úr landi sér til heilsu- bótar. — Talið er að Mossa- degh hafi talið hana óvin- veitta sér og sú sé hin raun- verúlega orsök utanfarar- innar. efni. Um hádegisbilið voru slökkviliðsmenn kallaðir að Selabraut í Kópavogshreppi, en þar hafði kviknað í rusli í mið- stöðvarkleía. Var búið að slökkva, er slökkviliðið kom á vettvang, en skemmdir urðu engar. í gærkvöldi var tilkynnt, að eldur væri uppi á Lauga- vegi 47, en þar hafði kviknað í dúk eða tusku út frá sígarettu í herbergi inn af miðstöðvar- herbergi. Ekkert tjón varð af. liinuidyr Jónsson vann stérsifur Konungl. leikhúsinu í gærkveldi. ffi/amm r«r úhaft hylitur «/ þéttshipwwöw Ivikhuisitsu. Herliiigsíiie Tidextde segir iMitxid irúbæran söngvara. Kaupmannahöfn í morgun. — Frá fréttaritara Vísis. Guómundur Jónsson vann stórsigur í gærkvöldi, er liann kom fram í fyrsta skipti á sviði Konugiega lcikhússins í hlut- verki Rigolettos í samnefndri óperu Verdis. Belgiskur togari tekinn í landhelgi. Frá fréttaritara Vísis. — Vestm.eyjum í morgun. f fyrrinótt kom varðskipið Þór með belgiskan togara hing- að, sem tekinn háfði verið að veiðum í landhelgi, skammt frá Ingólfshöfða. Belgiski togarinn heitir Rub- ens og er frá Ostende. Mál skip stjórans er í rannsókn og hafði dómur ekki verið kveðinn upp yfir honum fyrir hádegið, Kanadískir ráðherr- ar í boði hér. Ráðherrarnir Bjami Bene- diktsson og Hermann Jónasson em væntanlegir til landsins í kvöld frá París, en í fylgd með þeim er Lester Pearson, utan- ríkisráðherra Kanada og tveir meðráðherrar hans. Flugvél þeirra er væntanleg til Keflavíkur kl. 7—8 í kvöld. Pearson utanrikisráðherra og fylgdarlið hans mun koma hing- að til bæjarins og sitja kveld- verðarboð í utanríkisráðherra- bústaðnum við. Tjarnargötu í kvöld. Hinir kanadísku gestir halda svo áfram vestur um haf í fyrramálið. Hitaveita í Budapest. Vatnið verður leitt úr ey í Duná. íbúur Budapcst, höfuðborgar Ungverjalands, fá ef til vill að sjá óskadraum rætast bráðum, — óskadraum, sem mikill f jöldi Reykvíkinga hefur þegar séð rætast. Það stendur nefnilega til að hita Budapest upp méð heitu vatni úr iðrum iarðar. Hverirnir, sem leið á vatnið úr, er á sankti Margretar-ey í Duná, og verður það leitt í pípum neðanjarðar margra km. vegarlengd. - í nágrenni Buda- pest er sagt vera mikið af heit- um uppsprettum, sem nýta mætti á sama hátt. 3 milj, ferðast dag- lega í jámbrautum Bretlands. London (AP). — 3 milljónir farþega ferðast daglega á brezkum járnbrautum og flytja 1 millj. lesta af vörum. Tekj- urnar af þessu nema 5 millj. punda, sem er talsvert meira en fyrir stríð. Kaupmannahafnarblaðið „Bérlingske Tidende“ nefnir Guðmund „hinh frábæra, ís- lenzka söngvara". . og lýkur miklu lofsorði á frammistöðu hans, og segir síðan: „Hinn íslenzki söngvari, Guð- muiidur Jónsson, hefur fagra rödd og háþroskaða sönglist. Hljómurinn er mikill og per- sónulegur, en e. t. v. full-bjart- ur fyrir hlutverk Rigolettos. svo að á köflum mátti segja, að það skorti fyllingu, þrátt fyrir mjög fagra rödd söngvárans og geðríkan flutning. I dramatísku tilliti tókst Guðmundi mjög vfel upp, enda þótt framkoman á sviðinu væri á stundum dálítið einhæf (stereotyp). Þó er betra að hafa færri hreyfingar én innantóma leikhústilburði. Hjá þessum afbragðsgóða söngmanni vöktu Ijóðrænir og tilfinningaríkir kaflar mesta athygli, sér í lagi „pietá“-kafl- Viðræður hafnar í Kairo milli Breta og Egypta. Arabar vilja sjálfir hafa yfirstjórn varna landa sinna. Fonnlegar viðræður hófust í morgun í Kairo milli Breta og Egypta um ágreiningsmál þeirra, herstöðvar Breta á Súezeiði og brottflutning her- liðs þeirra, og Súdanmálið. Samningamenn verða ai hálfu Breta Sir Ralph Steven- son sendiherra þeirra í Kairo og Sir Brian Robertson, sem til skamms tíma var yfirmaður landhers Breta í löndunum við austanvert Miðjarðarhaf. Af hálfu Egypta verða þeir samn- ingamenn helztir Naguib hers- höfðingi og forsætisráðherra og utanríkisráðherra hans. Forseti Libanop sagði í Kairo í gær, að Arabaríkin yrðu að sjálfsögðu að gera þær kröfur, að þau hefðu sjálf með höndum að vemda frið og öryggi í lönd- um sínum og hindra ofbeldis- árásir. Tilboð um aðstoð til varnar væri sjálfsagt að athuga vandlega, svo fremi að sjálf- stæði Arabaríkjanna væri virt í hvívetna og þeim sýnd full virðing. Stórhríð víða norðanlamls. Fjallvegir teppast. Stórhríðarveður var á Akur- eyri í morgun og víðar norðan- lands og yfirleitt mikil snjó- koma um gervallt Norður- og Austurland. Heiðavegir hafa teppzt aftur og ekki fært um suma þeirra nema ef til.vill í snjóbílum. Norðaustan stinningskaldi var um allt land í morgun C'g á Austurlandi var allhvasst sums staðar. í Vestmannaeyj- um voru 9 vindstig. Hér í Rvilc var 1 stigs frost í mörgun, en norðanlands 1—3 stig á strönd- um frammi og mest í innsveit- um, 5 stig í Möðrudal. Mestur hiti.var 5 stig á Fagurhóismýri og í Loftsölum. Bjartviðri er suðvestan og suiman lands, en kóf nvrðra ,eða stórhríð, svo að vart sér milli húsa. inn, sem sunginn var á ítölsku, og hinar blíðu föðurtilfinningar i dúettinum með Gildu. Þar söng Eva Berge á móti G.ið- mundi. Mesta athygli vakti Guð- mundur Jónsson við flutning þessarar óperu, sem þarna vann mikinn sigur á leiksviði voru. Hann var að lokum ákaft hyllt- ur af troðfullu húsi og klapp- aður fram á sviðið, en auk þess hlaut Stefán Islandi, landi hans, sem lék hertogann, mik- ið löf fyrir þrjár aríur sínar.“ Guðmundi var fagnað með lófataki, er hann birtist fyrSt á sviðinu, en í bæði öðrum og þriðja þætti varð hlé vegna langvarandi lófataks, er náði hámarki við þrefalda framköll- un síðast, enda færðist haxrn greinilega í aukana. Mjög margir íslendingar voru í Konunglega leikhúsinu þetta kvöld, meðal þeirra sendiherra- hjónin. Að óperunni lokinni var stöð- ugur straumur landa í búnings- herbergi Guðmundar, sem íærði honum árnaðaróskir. Barst hon um feikn af blómum. Guðmundur tjáði fréttaritava Vísis eftir sýninguna, að hann hefði verið sérstaklega vel fyr- irkallaður, enda þótt æfingar hafi elcki verið mjög margar, en hins vegar verða sýningar aðeins tvær, hin síðari sunnu- daginn 3. maí. Ráðgert var að hafa sýningu þann fimrnta, en þá er þjóðminningardagur Dana, og þá er ávallt fluttur söngleikurinn „Álfhóll". Stefán Islandi tjáði frétta- itaranum, að Guðmundur hefði lagt hart að sér, enda uppskor- ið ríkulega. Fréttaritari. 35 þféðir titan - samtaka Sþ. ' Það, eru yfir 35 þjóðir, sem ekki eru í samtökum Samein- uðu þjóðanna. Þeirra meðal eru menningarlönd eins og Eire, og önnur, sem vegna tpgstreitu stórveldanna, hafa ekki fengið upptöku, eins og sum Aústur- Évrópúríkin. Mannekla við höfnina. í morgun voru fimm togarar að landa hér í höfn og var mik- ill skortur á verkafólki til þess að annast löndun þeirra. Meðal togaranna var llranus og voru kl. hálf níu í morgun aðeins komnir 7 menn til þess að vinna við togarann. Alls mun þurfa um 35 menn við hvern tógara meðan á afgreiðslu hans stendur. Þegar blaðið átti tal við togaraafgreiðsluna um há- degið höfðu verið lánaðir menn frá bænum og nokkurn veginn fullskipað á skipin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.