Vísir - 05.05.1953, Side 1
VI
43. árg.
ÞriSjudaginn. 5. maí 1953.
99. tbl.
Stórhópur V.-íslendritga
kemur hingai 9. júní.
Deflsí liér mánuðinn, ícrðast um.
30—35 Vestur-íslendingar
munu koma liingað í næsta
mánuði loftleiðis og dveljast
hér mestan hluta bess mánaðar,
Þessi fyrsta hópferð Vestur-
íslendinga hingað loftleiðis
verður væntanlega til þess, að
farnar verði margar slíkar í
framtíðinni.
Hugmyndina að þessari ferð
mun hafa átt Finnbogi Guð-
mundsson prófessor, sonur Guð
mundar heitins Finnbogasonar
prófessors. Finnbogi er kennari
í íslenzkum fræðum við háskól-
ann í Manitoba, en íslendingar
vestra komu því til leiðar með
samtökum og fjárframlögum,
að þessi kennarastóll var stocn-
aður. Finnbogitelur, að kynnis-
farir slíkar sem þessar, muni
mjög treysta menningarieg\
tengsl milli íslendinga vestan
hafs og austan, og hefur skrif-
að hvatningargreinar um mál-
ið í blöð vestra og skorað á
menn til þátttöku í ferðinni.
Að því er blaðið hefur fengið
upplýsingar um hjá Loftleiðum
mun hópurinn væntanlegur
hingað 9. júní og verða í honuni
samtals 30—35 manns. Loft-
leiðir munu aðstoða við að ná
hópnum saman í New York, en
þátttakendur verða frá ýmsum
stöðum í Bandaríkjunum og
Kanada. í New York er ráðgert,
að Hekla taki við þeim. Enn
fremur hefur blaðið frétt, að
líklegt sé, að Orlof skipuleggi
ferðir hér, en annars er ýmis-
legt í sambandi við þetta ekki
að fullu ákveðið.
Hekla kemur nú hingað aðra
hverja viku og fer til New
York. Flugvélin er hina vik-
una í Asiuflugi fyrir norksa
fliigfélagið Braathen, sem hef-
ur hana á leigu til þeirra ferða,
en endastöðvar í þeim eru Bang
kok eða Hongkong. Lagt er upp
frá Stafangri og komið á eftir-
töldum stöðum: Hamborg,
Genf, Rómaborg, Aþena, Kairo,
Abadan í Persíu, Karachi í Pak-
istan, Kalkutta og Bangkok (og
í annari hvorri ferð Hongkong).
f þessum ferðum mun að jafn-
aði, hvert sæti skipað.
Farið til samninga við Dawson:
Vilji hann breytingu á fiskverðinu,
cjetur reynzt erfitt að semja.
Frakkarnir komnir
heim frá Kóreu.
París (AP). — 14 franskir
borgarar, þeirra meðal settur
sendiherra Frakka í Seoul í
upphafi Kóreustyrjaldar, kom-
ust loks heim í gærkvöldi.
Flugvélin, sem átti að flytja
þá frá Moskvu, bilaði, og voru
Frakkarnir loks fluttir í rússn-
eskri flugvél frá Moskvu til
Berlínar. — Kommúnistar kyrr
setti fólk þetta í byrjun Kóreu-
sty r j aldarinnar.
Grænlandsmerkt-
ur ffskur vefddlst
á Bankanutn.
Veiðum var hætt á Selvogs-
banka fyrir mánaðamótin eins
og venja er.
Mikill fjöldi skipa er á Eld-
eyjarbanka, en afli mjög tek-
inn að t.regðast.
Flotvarpan kom að litlu
gagni á Selvogsbankanum á
þessari vertíð.
Þetta er takmarkað veijðar-
færi, sagði kunnur útgerðar-
maður við Vísi í morgun og til
þess að það komi að notum þarf
að vera mikill fiskur og laus
við botninn, en um slíkt hefir
ekki verið að ræða á vertíðinni.
Grænlandsmerktur
fiskur veiðist.
Nokkuð af Grænlandsmerkt-
um fiski hefir veiðzt á vertíð-
inni, en það er löngu sannað
með merkingum, að fiskur geng-
ur milli Grænlands og íslands,
og sum árin hefir komið fram
mikið af Grænalndsmerktum
þorski, svo sem árin 1929—’33,
og síðar, all-misjafnt, en alltaf
við og við.
Sækja ekki til Luang
Prabang í hili.
París (AP). — Hersveitir
upprcistarmanna við Laos hafa
ekki enn byrjað árásir á Luang
Prabang, og er ætlun manna.
að beðið sé eftir liðsauka.
Annars staðar í Laos er sókn
haldið áfram og á einum stað,
suðvestur af Laos, stefna komm
únistar að bæ, sem er 65 km.
frá landamærum Thailands
(Síam). — í Síam hefur verið
komið á fót bækistöð fyrir
flóttafólk frá Laos.
Bretar og Egyptar
ræðast við.
London (AP). — Viðræður
um brezk-egypsku deilumálin
hófust í morgun í Kairo.
Sir Ralph Stevenson, sem er
í sjúkrahúsi um þessar mundir,
mun koma á fundinn. — Sendi-
herra Bandaríkjanna í Kairo
ræddi í gærkvöldi við utanrík-
isráðhérra Egypta.
Þessí unga stúlka, Anja Siljsa,
er af finsk-þýzkum ættum og
hefur getið sér mikla frægð fyb-
ir söng. Hún er aðeins 12 ára
gömul og kom nýlega til Kaup-
mannahafnar, þar sem hún mun
syngja opinberl. m. a. í útvarp.
Hvafveiðar hefj-
ast í f». mánuði.
Hvalveiðarnar munu hei'jast
um svipað Ieyti og vant er, eða
upp úr miðjum maí óg er und-
irbúningi að starfsrækslu h.f.
Hvals á sjó og landi langt kom-
Hvalveiðibátar félagsins eru
sem kunnugt er fjórir, og verða
nú eingöngu á þeim íslenzkir
menn, að undanteknum einum
norskum skipstjóra. Eigum við
nú orðið þjálfaða menn til hval-
veiðanna, og um landmenu er
einnig það að segja, að þeir eru
einnig orðnir vel þjálfaðir í
sínu starfi, og vinna eingöngu
íslenzkir menn í hvalveiðistoð-
inni.
Á skipunum munu vera um
80 manns og samtals hjá fcélag-
inu á sjó og landi hátt á annað
hundrað manns.
Sendiherra af-
íiendir skilríki.
Dr. Darko Cernej, hinn ný-
skipaði sendiherra Júgóslavíu,
á .íslandi afhenti í gær forseta
íslands trúnaðarbréf sitt við
hátíðlega athöfn að Bessastöð-
um, að viðstöddum utanríkis-
ráðherra.
Að athöfninni lokinni sat
sendiherrann hádegisverðarboð
forsetahjónanna, ásamt nokkr-
um öðrum gestum.
Handtökur í
Argentínu.
Einkaskeyti frá AP. —
B. Aires í morgun.
Lögregían handtók í gær-
kvöldi 5 manns og saka'ði um
sprengjuíílræði við utanríkis-
ráðherra Argentínu s.I. laugar-
dag.
Segir hún, að fundizt hafi
skotfæri og sprengiefni í bíl
manna þessara, sem auk þess
háfi gert tilraun til þess að
koma fyrir sprengju í bifreið
ráðhérrans. Segir og, að hér sé
urn yfirstéttarfólk að ræða, m.
a konu, sem kunn sé í sam-
kvæmislífinu, og 2 lækna.
Mau fefau morð-
ingjar eltrir.
London (AP). — Herflokkar
í Kenyu voru í morgun að el.ta
uppi flokk 200 Mau-Maumanna,
sem ráðist höfðu á heimavarn-
arstöð, fgllt bar 19 menn og
haft 3 á brott með sér.
Lögreglan hafði 'komizt á
snoðir um, hver er fyrirliði
flokks þessa. Sextán manna
flokkur Mau-Maumanna réðst
í gær á hvítan landnema, sem
ásamt heimamönnum hratt á-
rásinni.
Bóndinn skaut einn árásar-
manna til bana í setustofu sinni.
Díscðfeli kemur
í foyrjun júní.
Dísarfell, hið nýja skip SÍS,
í smíðum í Hollandi, er vænt-
anlegt hingað til lands í byrjun
næsta mánaðar.
Arnarfellið er væntanlegt til
Reykjavíkur 14. þ. m. úr Braz-
ilíuferðinni og mun skipið verða
rétta tvo mánuði í ferðinni.
Hingað flytur Arnarfellið frá
Brazilíu fullfermi af káffi og
sykri, eða samtals 17—1800
lestir.
Þjófar látnlr lauslr -
ekki hugsandi menn.
London (AP). — Fanganáð-
unin í Tékkóslóvakíu er rædd
í brezkum blöðum í morgun.
Er m. a. vakin athygli á því,
að náðunin nái ekki til þein a,
sem hafi leyft sér að hafa aðra
skoðun á þjóðrnálunum og
heimsmálunum en valdhafarn-
ir. —
Hugsandi menn með sjálf-
stæðar skoðanir, segir eitt blað-
ið, voru ekki náðaðir, en þj ófar
og slíkur lýður fengu aftur
frelsi.
Varð mHÍi vörubíls
og steinstólpa.
I moi'gun vildi bað slys til
við Verbúðirnar, að maður varð
milli vörubíls og steinstólpa,
og slasaðist..
Slysið vildi til um 8-leytið í
morgun, en um nánari atvik
er Vísi ókunnugt. Maðurinn,
sem heitir Rafn Ragnarsson,
Flugvallarbraut 5, mun hafa
verið við vinnu sína, er slysið
vildi til. Hann var þegar flutt-
ur í sjúkrahús, en ekki mun
vera um lífshættuleg meiðsl að
ræða.
Nefnd frá FÍB fór
til Bretlands
í morgun.
Dawson óskaði
viðræðiia >lra.
Meðal farþega með Gullfaxa
í morgun til Skotlands var
samninganefnd frá Félagi ís~
lenzltra botnvörpueigenda.
Félagið kaus nýlega nefnd
þessa, en í henni eru Kjartan
Thors, formaður félagsins, Jón
Axel Pétursson, framkvæmdar-
stjóri, og Loftur Bjarnason, út-
gerðarmaður í Hafnarfirði.
Eins og Vísir gat um á sín-
um tíma, lauk Félag íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda við upp
kast að samningi við George
Dawson hinn enska, er vill
kaupa fisk af íslenzkum tog-
urum, fyrir tæpum mánuði, og
var það síðan sent honum til
athugunar. Eftir því sem Vísir
hefur frétt, gerðist það næst í
þessu máli, að orð barst um
það frá Dawson, að hann ósk-
aði eftir því, að til Englands
kæmu fulltrúar frá íslenzkum
útgerðarmönnum, til þess að
ræða þar samningsuppkast
þetta við hann, og því er nefnd-
in nú farin til Lundúna.
Tíðindamaður Vísis náði sem
snöggvast tali af einum nefnd-
armanna, Jóni Axel Pétui'ssyni,
í morgun, áður en Gullfaxi
lagði af stað. Vildi hann ekk-
ert um það segja, hver árang-
ur þeir nefndarmenn teldu, að
mundi verða af för þeirra og
viðræðum við Dawson, en þeir
væru vitanlega við öllu búnir.
Það gæti farið svo, að Dawson
þætti verðið of hátt, sem Félag
íslenzkra botnvörpuskipaeig-
enda hefði farið fram á í samn-
ingsuppkastinu, sem honum var
sent, en um það yrði þó ekki
sagt á þessu stigi málsins. Verð-
ið væri hins vegar það, sem ís-
lendingar yrðu að fá, til þess að
veiðar þessar borguðu sig fyrir
þá, og vildi Dawson, að það
væri lækkað eitthvað, væri al-
veg eins viðbúið, að ekkert yrði
af samningum.
Allra hluta vegna væri þó
æskilegt, að samningar tækjust
þó við Dawson, en vitanlega
kemur ekki til mála, að íslend-
ingar semji af sér í máli þessu.
IHalik á leið
fil London.
Malik, hinn nýi sendiherra
Rússa í London, lagði af stað í
morgun áleiðis hangað.
Sendiherra Breta var meðal
þeirra, sem voru viðstaddir burt,
förina. — Malik mun taka við
hinu nýja embætti sínu í vik-
unni.