Vísir - 13.05.1953, Qupperneq 8
Mr sem gerast ksupenður VÍSIS eftir □Hnpqnp - VlSlB er ódýrasta MaSið eg þó það ÍJ8I-
19. kvers mánaðar fá MaðiS ókeypia tU \HrM mMjR. breyttasta Hringið í si<ra 1690 *g gerlst
mánaSamóta. — Siml 1C99. m áskrifendur.
Miðvikudaginn,13. maí 1953
Aburður látinn í ár og
til að auka fiskirækt í þeim.
M. a. ráð gert að
„bera á“ Meðal-
fellsvatn.
Talið meiri nauðsyn
að bæta lifsskilyrði
fiskanna en að
efla klak.
Á síðustu árum liafa menn
breytt um fiskræktaraðferðir
erlendis, þannig að í stað þess
að Ieggja aðaláherzluna á klak-
starfsemina, hefur nú verið
reynt að bæta lífsskilyrði fisk-
anna í ám og vötnum.
Ér hér um að ræða allmikla
byltingu á sviði fiskræktar og
í síðasta hefti „Veiðimannsins"
skrifar Þór Guðjónsson veiði-
málastjóri ítarlega um þetta
mál. Telur hann þar að sam-
kvæmt rannsóknum síðustu
ára sé það sýnt að náttúran sjái
að jafnaði ríkulega fyrir seið-
um, en vegna erfiðra lífsskil-
yrða í ám og vötnum, nái að-
eins lítið brot af seiðunum full-
um þroska, og sé þar mest um
að kenna átuskorti.
Nú er hægt að ráða bót á
lífsskilyrðum fiskanna á ýmsa
lund, m. a. að því að auka átu,
fjölga fylgsnum, stækka
hrygningarstöðvar og greiða
fyrir fiskför um ár og vötn.
Mörg ráð tiltækileg.
Ef árnar þykja ekki hafa
æskilega fjölbreytni í- botnefn-
um, má gera ýmsar úrbætur,
m. a. að' skapa fjölbreytni í
rennsli þeirra méð því að koma
fyrir í þeim mannvirkjum, sem
ýmist herða á straumnum eða
drága úr honum. Nokkrar
helztu gerðir mannvirkja, sem
hægt er að koma fyrir í ám í
þessu skyni, eru stíflur, garðar,
hólmar og þakfylgsni. Stund-
um getur og verið æskilegt að
flytja til steina í grýttum far-
vegi til þess að bæta skilyrði
fyrir fisk.
Nauðsynlegt er að gera ráð-
stafanir til þess að jafna vatns-
rennsli ánna, því að flóð og
vatnsþurrðir draga mjög úr
fæðuframleiðslu þeirra.
Nýmæli, sem vakið hefur
mikla athygli, er það að bera
áburð í ár og vötn til þess að
auka í þeim átu. Áburðurinn er
borinn í vötn til þess að auka
gróðurinn, en með auknum
gróðri batna lífsskilyrði fyrir
ilægri dýr, og fiskfæðan eykst
ímeð þeim afleiðingum, að fisk-
K. IL
Víking í gær.
í gær kepptu K.R. og VTíking-
ur á Reykjavíkurmótinu og
sigraði K.R., 2:1.
Liðin voru mjög áþekk og
leikurinn tvísýnn frá upphafi.
Víkingur skoraði. fyrsta mark-
ið og stóð hálfleikurinn 1:0 fyr-
ir Víking.
Um miðjan seinni hálfleilc
jafnaði K.R. og skoraði síðan
sigurmarkið skömmu fyrir
leikslok. Leikurinn var í heild
mjög fjörlegur.
Annað kvöld kl. 8.30 leika
Valur og Þróttur.
urinn vex örar og fleiri fiskar
komast upp. Bæði tilbúinn á-
burður ög húsdýraáburður hef-
ur verið notaður í þessu skyni.
Enn eru þessi mál að meira eða
minna leyti á tilraunastigi og
hér úti á íslandi hafa ekki
neinar tilraunir verið gerðar
enn í þessa átt.
Meðalfellsvatn rannsakað.
Undirbúningur að þvílíkum
tilraunum er þó hafinn hér
heima með ítarlegri undirstöðu-
rannsókn á Meðalfellsvatni í
Kjós. Þegar vitað verður ná-
kvæmlega um lífsskilyrði í
vatninu verður hægt að hefjast
handa um áburðartilraunir.
í Ameríku eru áburðartil-
raunirnar'lengst á veg komnar,
en hér í álfu hafa einnig
nokkrar þjóðir hafizt handa um
þær og m. a. standa slíkar til-
raunir yfir bæði á írlandi og
Skotlandi þessi árin.
Umbætur á stöðuvötnum eru
þær sömu sem -í ám, bætt átu-
skilyrði, fjölgun fylgsna og
stækkun hrygningarstöðva. En
umbætur á vötnum eru mun
erfiðari viðfangs, en á ánum, þvi
vandamálin éru þar flóknari
og það er fyrirhafnarmeira að
finna ágallana og bæta úr þeim.
Það, scm hér
hefur verið gert.
Víða um heim er unnið að
umbótum á ám og vötnum,
einkum nú hin síðustu árin
eftir að mönnum varð ljóst um
hið takmarkaða gildi klaksins.
Hér á íslandi hefur síðustu árin
verið unnið að umbótum á
nokkurum ám og vötnum, sem
miðað hafa að því að auðvelda
fiskgöngur, gera veiðihylji og
miðla vatni, Hafa slíkar um-
bætur m. a. verið gerðar í Ell-
iðaánum, Laxá í Kjós, Bugðu
og Úlfarsá. Þá hafa og verið
gerðar tvær rammbyggilegar
stíflur í Úlfarsá við Hafravatn
og í Leirvogsá við Leirvogs-
vatn. Fyrrnefnda stíflan hefur
verið í notkun í nokkur ár og
gefizt vel, en hin síðarnefnda
var byggð s. 1. sumar og hefur
ekki verið notuð ennþá. Hér er
stórt spor stigið í rétta átt og
þess að vænta að áfram verði
haldið á sömu braut því verk-
efnin eru óþrjótandi.
Flytzt vestur
umhaf.
Það þykir nú orði? tíðindum
sæta þegar rosknir og ráðsettir
Islendingar taka sig skyndilega
upp og flytjast búferlum til
fjarlægra landa ásanit fjöl-
skyldu sinni.
Nú hefur eyfh'zkui’ bygg-
ingaiðnaðarmaður Snofri Páls-
son múrarameistari frá Staðar,-
hóli við Eyjafjörð ákveðjð að
flytjast vestur um haf méð
konu og börn og sétj'ast aðjfyr-
ir fullt og allt í New York. Þar
mun hann helga sig byggirígar-
iðnaðinum og eru öll leyfi til
fararinnar og dvalar véstra
þegar fengin.
Snorri dvaldi um marga ára
skeið vestur í Kalíforniu á1
yngri árum sínum.
Hver er stjarnan ?
Hér birtist 2. myndin
í getrauninni, og eiga þátt-
takendur að segja til um
það, af hyerjum myndin sé.
Nafn stjörnunnar er eitt af
4, sem hér em birt.
Er þessi mynd af:
A — Ginger Rogers?
B — Rosalind Russell?
G — Marilyn Mouroe?
D — Doris Day?
Geymið allar myndirnar,
þar til getrauninni er lokið,
og seðill fyrir svörin verður
birtur.
Verðlaunin eru:
1. Ritverk Daðvíðs
Stefánssonar.
2. Nýtízku straujárn.
3. Klukka.
Þetta er .:....
V.ÉsIendingar í stjórn
milijónafyrirtæki.
Fyrir nokkmm vikum var
Vestur-íslendingur kosinn í
stjórn milljónafélags eins vest-
ur í Vancouver.
Þarna var um að ræða Erling
Bjarnason, en hann byrjaði
fyrir 15 árum að vinna hjá
lyfjafélagi einu þar í borg, er
nefnist Cunningham Drug
Stores. Var það stofnað árið
1911 og þá af litlum efnum, en
starfrækir nú 37 lyfjabúðir og
eignir . þess nema milljónum
dollara.
Erling Bjarnason naut
snemma trausts í starfi sínu og
hefur hann hækkað stöðugt í
tign í fyrirtækinu unz hann var
nú fyrir skemmstu kosinn í
stjórn' þess og var þar með
sýndur óvenjulegur heiður.
HáskóSafyrirEestur á
vegum veðurstofunriar.
Dr. Irving Schell frá Woods
Hole Oceanographic Institution
flytur 3 fyrirlestra á vegum
Veðurstofu íslands í 1. kennslu-
stofu Háskólans, í kvöld, á
föstudag og laugardag kl. 20.30.
Fyrirlestrarnir verða flúttir
á ensku og fjalla um ránnsökn-
ir hans varðandi veðurspár og
spár um ísrek á vestanverðu At-
lantshafi, Þessar spár eru gerð-
ar fyrir all-löng tímabil.,
Fyrsta daginn mun dr. Schell
halda fyrirlestur um hafísépár.
Ollum er heimill aðgangur
að fyrirlestrunum.
Klíppið miðann iír blaðinu,
geymið hann og færið jafnóðum á hann svör yðar.
Skrifið þau síðan á getraunaseðilinn, er þar að kemur.
Nr. 1. . ...... Nr. 4........... Nr. 7.......
— 2. ......... — 5. .......... — 8........
— 3. ., ....... — 6............. — 9........
Kærði siálfan sig fyrir árás!
Unglingaf' steia ársbát.
Söngfuglar flognir.
Finnski óperuflokkurinn hélt
heimleiðis með Gullfaxa í nótt
og lagði vélin upp kl. 1 eftir
miðnætti.
í gærdag hélt Þjóðleikhús-
stjóri flokknum kveðjusamsæti
og voru þar margar ræður flutt
ar, en að því búnu skiptu Finn-
arnir sér niður milli vina og
kunningja í bænum og var fjöi-
menni samankómið á flugvell-
inum í nótt til þess að kveúja!
þá. .
Finnarnir létu mjög vel yi'jr
dóölinni hér og töldu hana
mundu verða sér ögleymanlega.
Þeir fljúga héðan til Khafnar
en halda þaðan strikbeint til
Helsingfors og eiga að sýna í
óperunni þai; á föstudagskvöld-
ið.
ir
Á vegum Ferðaskrifstofunnar
hefur nýlega verið fuligerð
Iandkynningarkvikmynd.
Heitir kvikmynd þessi Jewel
of the North, og hafa tekið hana
Þorvarður Jónsson, starfsmað-
ur skrifstofunnar, ásamt útlend-
ingi. Var blaðamönnum sýnd
þessi mynd í gær, ásamt ann-
arri, er fjallar um örævi lands- ;
ins en hana hafa tekið Svein-
björn Egilsson og Magnús Jó-
hannsson. Eru báðar myndirn-
ar fallegar.
í gærkveldi bar það til tíð-
inda á lögregluvarðstofunni að
maður kom þangað inn og
kærði yfir áás og barsmíðum.
Sá sem kærði, hafði þó ekki
orðið fyrir árásinni, heldur var
það hann sem hafði veitzt að
félaga sínum og barið hann og
kom nú á lögregluvarðstofuna
til þess að ákæra sjálfan sig
fjn-ir athæfið.
Grunsamlegur sölumaður.
í gærdag var lögreglunni til-
kynnt um mann er var að reyna
að selja karlmannsfrakka á
Barónsstíg. Þótti athæfi hans
grunsamlegt og tók lögreglan
hann fastan.
Báti stoiið.
í gær stálu tveir strákar báti
inni í Vatnagörðum. Eigandi
bátsins varð stuldsins var, rétt
eftir að piltamir voru komnir
á flot. Gerði hann þá lögregl-
unni aðvart, en þegar hún kom
á vettvang var báturinn horf-
inn. Hann fannst svo í gær-
kveldi í fjörunni skammt frá
irkjúsandi og var þá ái’alaus.
íkviknun. 1
Laust fyrir hádegið í morgun
kviknaði í litlum sendiferðabíl,
R-596, sem stóð fyrir utan
Hverfisgötu 98. Skemmdir urðu
talsvert miklar, einkum á raf-
leiðslum. Auk þess voru hjói-
barðarnir að framan byrjaðir
að ioga.. Slökkviliðið var kvátt
á vettvang, en búið var að
mestu Ieyti að slökkva í honum
þegar það kom á staðinn.
B-1903 keinttr
hvngao ■ juði.
Gunnar Már Pétursson for-
maður Víkings tjáði Vísi í
morgun, að hingað kæmi 2t)—
22 manna knattspymulið frá
B. 1903 hinn 16. júlí í sumar.
B. 1903 er eitt hinna fimm
knattspymufélaga í meistara-
flokki, sem fyrst. voru stofnuð
í Danmörku. Hin félögin eru
A. B., K. B., Frem og B. 93.
Dönsku knattspyrnumenn-
irnir munu dveljast hér í 10
daga og keppa fjómm sinnum,
þeir fljúga til Hafnar með
Gullfaxa þann 26. júlí. Næsta
sumar býður B. 1903 Víkingi til
Danmerkur, en hingað koma
þeir í tilefni af 50 ára afmæli
sínu.
Piparsveinar drekka
mest.
St.hólmi (AP). — Sænsk
yfirvöld hafa látið fram fara
atliugun á drykkjuháttum þjóð-
arinnar.
Kom þá í ijós, að mestu
svamparnir eru ókvæntir menn
á aidrinum 35—50 ára, en í
hópi kvenna drukku fráskildar
konur mun meira en hinar
giftu.
|[ straumnr feröa-
mmz ti! Sviþjóðar.
Búizt er við mörgum ferða-
mönnum til Svíþjóðar í sumar.
Eru gistihús nú þegar nærri
fullskipuð gestum, en alltaf er
hægt að- fá herbergi hjá Stokk- :
hólmsbúum, sem leigja ferða- ]
mönnum um surnarmánuðina.
Sænsku jámbrautirnar hafa
lækkað fargjöld frá 1. júní. ■
Ridgway hcrshöfðingi hefur
látið af j-firstjórn herafla NA,-
bandalagsins.
Við tekur Grúnther hershöfð-
ingi, forseti foringjaráðsins og
fyrr aðstoðarhershöfðingi Eis-
enhowers, er hann gegndi þessu
hershöfðingj astarf i.
Ridgway verður yfirmaður
herforingjaráðs bandaríska
landhersins, en Radford flota-
foringi á Kyrrahafi tekur við
yfirstjórn hins sameinaða her-
ráðs Bandaríkjanna, af Ornar
Bradley, sem lætur af störfúm
fyrir aldurs sakir.