Vísir - 15.05.1953, Side 1

Vísir - 15.05.1953, Side 1
VI 13. árg. Föstudaginn 15. maí 1953 107. tbl. Þjófurinn hvarf. í nótt var tilkynnt frá Brú- arlandi að reiðhjóli hafi verið stplið frá Sólvelli í Mosfells- sveit. Var um kvenhjól að ræða og sást þjófurinn halda á brott] með það og fara geyst. Stefndi hánn eftir þjóðveginum í áttina til Reykjavíkur. Var bifreið fe’ngin til þess að elta þjófinn og auk þess • var lögreglan í Réykjavík beðin að koma á möti hjólreiðarmanninum ef bifreiðin yrði ekki nógu fljót. Á miðri leið mættust lögregl- an og bíllinn, sem fenginn hafði verið til þess að elta þjófinn, en hvorugt hafði orðið hans vart. Menn eiga aS hSusta um afSar jar&ir. London (AP). — BBC hefur mikinn viðbúnað til þess að all- ar þjóðir heims geti fylgzt sem bezt með öllu, er Elisabet drottn ing verður krýnd í næsta mán- uði. Sjónvarpað verður og útvarp að um allan heim og flogið til ýmissa landa með stálþræði og plötur, sem tekin hafa verið á helztu atriðiry, cmfæyp dlu eta varpsráðstafanir gerðar á meg- inlandinu, en-útvarpað verður á 40 bylgjulengdum á 45 tungu- málum, og annast kynningu og frásögn 200 manna starfslið, sem í eru færustu málamenn út varpsins. Hemingway safnar efni. Lóndon (AP). — Ameríski rithöfundurinn Ernst Heming- vvay er nýlega kominn til Af- ríku. Hann kom þangað ásamt konu sinni á flutningaskipi og segjast þau vera á skemmtiferð. Þó grunar flesta, að Heming- way ætli sér að sækja yrkisefni í hreyfingu 'Mau Mau-manna. Frost víða um land í nótt. I nótt var dálítið frost víðast hvar á landinu, en ekki þó í Reykjavík. Hitiim hér komst niður í 1 stig í nótt. Á Hólsfjöllum var fannkoma og 4ra stiga frost kl. 9 í morgun á Grímsstöðum og í MöðrudaL Víðast hvar á landinu er hæg austlæg átt, skýjað á Austur- landi, en víðast bjart sunnan lands og vestan og í innsveit- um norðanlands. Hiti við suður- og vestur- ströndina var 3—5 stig í morg- un kl. 9, en um írostmark við norðausturströndina. Veðurhorfur. Faxaflói: Aust- an gola fyrst, n.vaxandi norð- autsan átt og stinningskaldi þegar líður á nóttina. Bjart- viðri. Snarpir bar- dagar í Kóreu, Tyrkneski herflokkar hrundu í nótt árásum 2000 kommúnista á vesturvígstöðvunum í Kóreu. Talið e, að þeir hafi fellt og sært um 350 þeirra. Liðsmun- ur var mikill Tyrkjum í óhag. Á austurvígstöðvunum hafa bardagar einnig blossað upp og hafa framverðir átt þar í bar- dögum við og við undangengna 3 daga. Þar eigast við hersveit- ir kommúnista og Suður-Kór- eumanna. Loftárásir hafa verið gerðar á ýmsar stöðvar og m. a. áðist ár veksmiðju, sem var jöfnuð við jörðu, og um 100 flutningabif- reiðir voru eyðilagðar íyrir kommúnistum í loftárásum á birgðalestir þeirra. Júgóslavar og Rúmenar hafa náð samkomulagi um frjálsar siglingar á Dóná, þar sem hún skiptir löndum þeirra. Eisenhower hlynntur ráðstefnu — en aðalatriðið er friðarvilji kommúnista. Þessi mynd birtist á mánudaginn á forsíðu stórblaðsins Daily Mail í London. Er hún tekin, þegar fram haPði farið undir- skrift samninga við Dawson um kaup á ísfiski héðan. /rEg verð að berjast við brezka togaræigeiKÍiir" Dawson scgisi ekki búast vift mikktm bagnaði 1748 stýrimenn útskrifaiir. t>rír á lífi af sex í fyrsta árganginum, Uppsögn stýrimannaskólans fór fram í fyrradag, og voru þá liðin 60 ár frá því að fvrsta prófi var lokið við skólann. Árið 1893 luku 6 menu prófi' Árni Kristinn Magnússoti, Kin- ar Ketilsson, Jón Guðm. Þórð- arson, Pétur Ingjaldsson, Þor- steinn Þorsteinsson og Þorvald- u Jónsson. Skólástjóri lýsti hinu fyrsta prófi og bauð fulltrúa sexmenninganna, Árna Kristin Magnússon, fyrrv. skipstjóra og yfirfiskimatsmann, velkominn. Auk Árna eru Pétur og Þor- steinn á lífi en hinir þrír eru Iátnir. Síðan skólinn tók til starfa hefur hann brottskráð 1748 stýrimenn. í vetur voru nern- endur 174 og var í fyrsta skipti starfrækt varðskipstjóradeild og stunduðu nám í henni 4 varðskipastýrimenn. Kennarar voru alls 14 auk þeirra, sem kenndu sund, björgun og leik- fimi. Á skólaárinu eignaðist skól- inn ágætt radartæki, en þeir, sem brautskráðust árið 1927, færðu skólanum að gjöf radio- miðara. Var það vegleg gjöf, er bætti úr brýnni þörf. Skólastjóri ávarpaði að lok- um prófsveina, en 56 manns luku fiskimannaprófi, 21 far- mannaprófi og 4 varðskipstjóra prófi. Nám farmannadeildar er ári lengra en nám fiskimanna- deildar. Hæstu einkunn hlutu þessir nemendur: Fiskimannadeild: Eiríkur Sævar Guðlaugsson, Hafnarfirði 7,45. Farmanna- deild: Gústav Siemsen, 7,37 og varðskipstjóradeild: Garðar Pálsson, 6,67. Ðaily Mail segir í upphafi fregnir sinnar um samningana, að Dawsan ætli að kaupa allan fisk, sem íslendingar flytji til Bretlands. „Það táknar,“ sagði Dawson, „að ég mun flytja til landsins eitthvað milli 1500 og 3000 lest- ir mánaðarlega af fyrsta ílokks fiski fyrir miklu lægra verð tn þekkzt hefur.“ Síðan segir blaðið, að Kjart- an Thors, formaður félags is- lenzkra botnvörpuskipaeigerida, og Þórarinn Olgeirsson. konsúll, umboðsmaður félagsins í Gnms by, hafi undirritað samninginn fyrir hönd íslendinga, og hafi menn skálað af því tilefni, s:vo sem sést á myndinni. Andstaðan. Síðan segir Dawson við frétta ritara Daily Mail: „Tilgángur minn er að koma meira nútímasniði á innflutn- inginh á islenzkum fiski, og sjá svo um. að brezkar húsmæður fái hann fyrir eins lágt verð og' hægt er. Eg legg rnitt eigið fé í þetta fyrirtæki —- eg get ekki sagt, hversu mikið fé eg legg fram, en það er býsna mikið — og ég geri ekki ráð fyrir, að hagnað- urinn verði mikill. Eg verð að berjast við andstöðu brezkra togaraeigenda. Þetta er í fyrsta skipti, sem einn maður hefur get samning um að kaupa allan fisk, sem hægt er að flytja út frá íslandi.“ Hér mun að vísu dálítið mál- um blandað, en hitt er rétt, að enginn einstakur maður hefur gert samning um kaup á eins miklu fiskmagni og Dawson. Frá Leith ti! Reykjavikur á 53 st. M.s. Gullfoss setti nýtt met milli Leith og Reykjavíkur í seinustu ferð sinni, en hingað Var hann 53 klst. á leið- kom skipið kl. 7 í gærkvöldi. inni frá þ\ri, er hann skilaði af sér hafnsögumanni, og var meðalhraöi skipsins 16 !á sjómíla, og er það ágætur ganghraði, Skipið flutti hingað 172 far- þega og 740 lestir af vörurn. Þetta var seinasta ferðin, sem telst vetrarferð. Laugardag 30. maí byrjar hann hinar venju- legu hálfsmánaðar sumavferðir milli Khafnar og Reykjavíkur. Ðulles í Jórdaníu. DuIIes og Stassen komu í gær til Amman og var Hussein kon- ungur viðstaddur komu þeirra. Dulles ræðir í dag við forsæt- is- o-g utanríkisráðherra Jord- aníu. Þar næst verður haldið til Damaskus. Þeir geta sýnt hani] í verki, ef þeir vilja Ekki Htikíll álaeign vesíra. segir Timcs, Einkaskeyti frá AP. London í morgun. Heimsblöðin ræða i dag urrt undirtektir þær, sem tillögur Churchills um ráðstefnu liöfivð- leiðtoga stórveldanna um heims vandamálin,hafa fengið, eink- anlega yfirlýsingu bandaríska utanríkisráðuneytisins um hana og bað, sem fréttamenn hafa eftir Eisenhower forseta, er hann ræddi við þá í gær. Var það að sjálfsögðu í sama anda og yfirlýsingin, þ. e. að hann hefði ávallt verið hlynnt- ur því, að slík ráðstefna Væri haldin, ef sýnt væri að lum kæmi að notum, en höfuðskil- yrðið væri einlægur friðarviii kjommúnista, og hann gætu þeir sýnt í verki með því að sam- þykkja friðarsamninga við Aust urríki. Væri þá meii líkur fyrir samkomulagi um enn mikil- vægari deilumál. Það hefur vakið nokkra at- hygli, að rússneska útvarpið hefur nú gert grein fyrir skoð- unum Eisenhowers, en áður hafði verið skýrt frá ræðum þeirra Churchills og Attlees í meginatriðum, en engar skoð- anir látnar í ljós um þæ. í Moskvuútvarpinu hefur verið endurtekið það, sem Eisenhow- er sagði um háleitan tilgang Churchills með að bera fram tillögu sína, en því var slepptv er Eisenhower sagði, að kornm- únistar hefðu ekki enn sýnt- friðarvila sinn í verki. Times segir augljóst, að greinilegt sé, að í Washington sé ekki mikill áhugi fyrir til— lögu Churchills. Mög brezk blöð leggja áherzla á, að ágreiningurinn milli Breta. og Bandaríkjamanna sé um að- ferðir en ekki markmið — það sé eitt og hið sama. Um þetta ríki misskilningur vestra, sem komi mjög fram i blöðum. Fulhrúará&shmdtii í kvöld. FuIItrúaráð Sjálfstæðisféí Iaganna í Reykjavík kemur saman á fund í kvöld kl.. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu. Þar verður rætt um tillög- ur kjörnefndar um fram- boðslista Sjálfstæðisfloklcs- ins hcr í bænum. Fulltrúar verða að sýna skírteiní við rnnganginn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.