Vísir - 21.05.1953, Side 1

Vísir - 21.05.1953, Side 1
43, árg. Fimmtutlaginn 21, maí 1953. 112. tbl. Brezkur þingmaður vill bjóða Eisenhower heim. Churchill ætlar að athuga málið. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Sir Winston Churchill var spurður að því í neðri málstof- unni í gær, hvort hann vildi bjóða Eisenhower Bandaríkja- forseta til London. Fyrirspyrjandi kvaðst gera /ráð fyrir, að þeir ræddúst við, Sir Winston- og Eisenhower, hversu ná mætti einingu um leiðir að því marki, sem að er stefnt af öllum hinum frjálsu þjóðum. —• Sir Winston kvað ekkert mundi gleðja sig meira og sam- starfsmenn sína í ríkisstjórn- inni, en ef af slíkri heimsókn gæti orðið á forsetatímabili Eisenhowers. Ef hann hefði vissu fyrir, að af henni gæti orðið, mundi hann taka málið fyrir við drottninguna, sem mundi þá bjóða Eisenhower, og yrði sá háttur hafður á, þar sem um þjóðhöfðingja er að ræða. Churchill hefur skrifað for- sætisráðherranum á eynni Malta og beðið hann að íhuga á ný afstöðu sína og þiggja boðið á krýningarhátíðina. Sagði Churchill, að honum yrði sýndur allur sá sómi, sem hon- um bæri sem forsætisráðherra eyjar heilags Georgs. Engin breyting. Sendiherra íslands í London var í dag afhent orðsending í brezka utanríkisráðuneytinu, og er meginefni hennar þetta: „Brezkú ríkisstjórninni urðu það vonbrigði, að íslenzka rík- isstjórnin hefir sett að sem skilyrði fyrir því, að umræður fari fram um það, á hvern hátt deilan um fiskveiðitakmörk ís- lands verði lögð fyrir alþjóða- dómstólinn í Haag, að brezka ríkisstjórnin ábyrgist að aflétt verði löndunarbanni því, sem brezkir útgerðarmenn hafa sett á íslenzkan fisk...Með til- Jiti til þessa, getur brezka rík- isstjórnin því miður ekki gert frekari tillögur til lausnar deilunni“. (Frétt frá utanríkis- ráðuneytinu). Lögreglufréttir : Tveir árekstrar. Dren^ir kveikja í sinu. Samkvæmt uppiý»ingum frá lögreglunni bar nokkuð s ölv- un í nótt — eins og endranær — voru 12 ölvaðir r.jenn sem ollu ónæði, settir í fanga- geymslu lögreglunnar Tveir árekstrar urðu í gær og nótt. Annar varð á motum Hofsvallagötu og Hringbrautar, um kl. 9 í gær, milli bifreið- anna R-4825 og í-'l. Sn.á- | vægilegar skem.fnd.tr urðu á I bílunum, en slys ekkert á I mönnum. í nótt tok lögreglan mann,.sem ók blí réttindalaus og varð valdur að árekstri, án þess að tjón yrði af. Kveiktu í sinu. Um kl. 10 í gærkveldi var lögreglunni tilkynnt frá veit- ingahúsinu Tivoli, að irengir væru að kveikja i sinu and- spænis dyrum skemmtistaðar- ins. ■ Fór lögreglan á vettvang og slökkti eldinn og handsam- aði drengina, sem voru að þcss- um hættulega leik. Allsherjar herför gegn mink og ref í Gullbringu- og Kjósarsýslu. í óeirðunum á Gullströndinni í vikulokin var brezkur liðs- foringi, afríkanskur lögreglu- maður og 8 menn aðrir drepnir. Elísabet á æfingu í gær. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Elisabet drottning og eig- inmaður hennar, hertoginn af Edinborg, dvöldust 1% klst. í Westminster Abbey í gær. Fór þar fram ein æf- ingin fyrir krýninguna. Drottningin var áhorfandi, en ensk hertogafrú tók að sér hlutverk hennar. McCarthy færist í aukana. lírefst skýrsio ssm viðskipti vift Eíána. Einkaskeyti frá "AP. — Washington í mergisn. McCarthy öldungardeildar- þingmaður krefst grelnar- gerðar um viðskipti annara þjóða við Kína. Sagði hann í gær, á fundi rannsóknarnefndarinr.ar, sem hann er formáður í, að hann mundi snúa sér til Eir.en- howers sjálfs, til þéss ao fá slíka greinargerð frá stjórninni. — McCarthy sagði áð Brétar hefðu svo mikil viðskipti vxð kommúnista í Kína, að þeir hefðu meiri hag af því en ó- hag af framlagi Breta í Kór- eustyrjöldinni. Þessi ummæli hafa vakið nokkurn kurr í London og hafa þegar heyrst þar raddir, um að neita beri opinberlega ummælum Mc- Carthys, en aðrir taka vægi- legar til orðá, og segja, að nauðsynlegt sé að gera fyllri grein fyrir viðskiptunum við kommúnista en gert hefur verið. Myudin hér að ofan sýnir hvernig ferð G-1249 lauk í nótí fyrir sunuan Hafnaríjörð, en fimm af sex manns, sem í bif- reiðinni voru, slösuðust meira eða minna. (Ljósmynd: Ásgeir Long). 5 manns slasast í bílslysi sunnan Þar af eru bílstjórinn og eiim far- þeganna stórslasaðir, en 3 stólkur meiddust minna. í nótt klukkan hálfþrjú varð1 bifreiðarslys skammt fyrir sunnan Hafnarfjörð, við svo kallaðann Háabrunna. Sex manns voru í bílnum, bílstjórinn og fimm stúlkur, og meiddust þau öll meira eða minna nema ein stúlkan, sem slapp ómeidd með' öllu. Bíl- stjórinn og ein stúlkan slö.suð- ust mikið^ og liggja rúmföst í Hafnarfjarðarspítala, en hin-' um stúlkunum var leyft að fara heim, þegar búið' var að gera að sárum þeirra og skrám- um. Sú stúlkan, sem mest meidd- ist, hlaut mjög stóran skurð á höfuð, en um meiðsli bílstjór- ans er blaðinu ekki kunnugt. Má þó búast við, að þau séu talsvert rnikil, þar eð stýrið gekk alveg aftur í sætisbak við áreksturinn. Bifreiðin, sem varð fyrir þessu skakkafalli, er splunku ný fólksflutningsbifreið af Lincolngerð og ber skrásetn- ingarmerkio G 1249. Bann hún út af veginum á.allmikilli fex’ð og sýnir myndin greinilega. hvernig fei*ð hennar hefur verið háttað, eftir að hún. rann út af vegir.um, því að hjólför- in eru merkt með hvítum strik- um. Ferðin tók enda við hátt 'braunbarð og við áreksturmn brotnaði önnur framrúðan mélinu smærra, og bíllinn ^agðist allur meira eða minna srr u: að framan og stór- s’-ommdist. Bílstjórinn - kvað sig ekki geta gert grem fyrir þvi, hvernig slysið atvikaðist að öðru leyti en því, að hann kvaðst allt í einu hafa mist stjórn á bílnum og hann runn- ið út af veginum. Þess skal getið að bílstjórinn var ekki undir áhrifum áfengis. Frakkar þurfa a& svara í sömu mynt. Einkaskeyti frá AP. — Paris í morgun. Navarre, hinn nýi liershöfð- ingi Frakka í Indokína, er kom- inn til Hanois. Frakkar gera sér miklar von- ir um hann, því að hann er sér- fræðingur í skærúhernaði og ,,neðanjarðar“baráttu síðan á heimsstyrjaldarárunum, og er talið að slík reynsla kunni að koma sér vel í Indokína. Er því m. a. haldið fram. að upp- í'eistarmenn verði aldrei sigr- aðir nema með þeirra eigin að- ferðum, og þurfi til þess létt- vopnaða herílokka framar öðru. Frakkar hafa hrundið nýrri árás Vieth-Mín manna suðaust- ur af Laos. -— Norður í Laos hafa Frakkar tekið herstöð, sem þeir mistu í innrás upp- reistarmanna þar fyrir nokkru. Ekki er kunnugt um afdrif setuliðsins þar. 1 Ref hefir mjög fjölgað síðustu árin. Mcnn tir liverjuiat lireppi kallaðir „til vopna.*’ Eftir hálfan mánuð verður hafin sókn til útrýmingar ref- úm í öllum hreppum Gull- hringu- og Kjósarsýslu, en þeim hefur fjölgað svo gífuvlega í seinni tíð, að knýjandi nauðsyn ér að grípa til róttækra útrým- ingarráðstafana. Vísir hefir spurt Tryggva bónda Einarsson í Miðdal um þessi mál. Höfðu þeir rætt þau sín á milli, haim og oddviti Mosfellssveitarhrepps, er síð- an hreyfði því á sýslunefndar- fundi, að allir hrepparnir sam- einuðust um allsherjar herferð gegn rebba og öllu hans skyldu- liði. Fékk þetta hinar beztu undirtektir, því að ekki stóð á því, að hinir óánægðu létu til sín heyra, enda álíta menn voða á ferðum, ef ekkert verður að gert. Þegar nýja féð kom s. 1. var ljóst, að hverju mundi stefna, en þess var vel gætt, svo að óvíða mun rebbi hafa valdið tjóni. Sauðburður er nú hafinn, því að hleypt var til í fyrra lagi, en ekki hefir frétzt, að dýrbitur hafi gert usla i fé, enda góðar gætur hafðar á því. Flestir láta bera í húsi eða heima á túnum, og er þetta hægt vegna þess, að enn er féð fátt. — Fjölgun á refum hefur verið alveg gífurleg, og það er algengt, að bílstjórar sjái til þeirra á vegum eða í námunda við þá. Nýlega voru tveir piltar að veiða í Hlíðarvatni, er refur labbaði í mestu makindum nið- ur að vatninu skammt frá þeim. Svo spakir eru þeir sumir orðnir og er þó eðli þeirra, að vera vai'ir um sig. Sóknin verður tvíþætt. Sókninni mun verða hagað þannig, að skipaðir verða flokk- ar og fyrirliði fyrir hverjum, og sem fyrr var sagt á nú eng- inn hreppur að sleppa, eins og oftast áður. Því aðeins getur líka sóknin. náð tilgangi, að hvarvetna verði leitað grenja. Yfirumsjón er í höndum sýslu- manns, en ekki kvaðst Tryggvi í Miðdal vita hvort yfirstjórn sóknarinnar yrði í höndum sér- staks manns, eða flokkaforingja, sem svo hefðu náið samstarf sín í milli. Fyrri þátturinn hefst 26. þ. m. og á grenjaleitinni að vera lokið 10. júní, en þá hefst eftirleitin. Eramh. á 2. síðu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.