Vísir - 23.05.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 23.05.1953, Blaðsíða 1
W1 43. árg. Laugardaginn 23. maí 1953. 114. tbl. Saltfiskur aðeins minni í ár en í fyrra. . .SaÍtfiskaflinn var nokkru minni á tímabilinu 1. janúar—15. maí í ár en í fyrra •— skorti 1467 lestir, að hann yrði jafnmikill . og/þá. Bátafiskur var svipaður að magni, en togarafiskur nokkru meiri í fyrra. — Heildarsalt- fisksaflinn á þessum tíma var miklum mun meiri bæði árin en á sama tíma í hitt eð fyrra, erida vár togarafiskur þá langt- um minni. Samkvæmt skýrslu Fiskife- lagsins var aflinn þessi þrjú ár (í./l.—-15./5.) sem hér ségir, miðað við fullstaðirin saltfisk: 19'53: bátáfiskur 17.053 sriiál. togaraf. ' 9.731 — Sariitals 26.784 smál. 19'52: bátáfiskur 17.527 smál. togaraí. 10.724 — Samtals 28.251 srnál. 1951: bátafiskur 13.864 smál. ; togaraf. 4,426 — Samtáls 18.290 smál. Undirbúnmgur fyrir 17. }úní hafinn. Uíulh-búningur er þegar haf- inn fyrir hátíðahöldin 17. júní ®g verða þau með líku sniði og áður. Beinir nefndin því til hús- eigenda og annarra, að þeir láti hreinsa og snyrta umhverfis hús sín, svo sem kostur er á, og heitir yfirleitt á alla, að þeir hafi góða samvinnu við hana, þegar sjálfur hátíðisdagurinn rennur upp. Einkum eru menn hvattir til að skemma ekki svip hátíðahaldanna með drykkju- skap, eins og talsvert bar á í fyrra, er komið var fram á kvöld. Foreldrar, sem það geta, eru hvattir til að gefa börnum, sín- um litla íslenzka fána til að bera í :?|krúðgöngunurn. 3 landsleikir ákveðnir. Það hefur nú verið ákveðið, að austurríska knattspyrnulið- ið, sein hingað kemur í næsta mánuðí, heyi hér landsleik. Verður sá leikur háður þann 29. júní, daginn eftir Alþingis- kosningarnar, og eru æfingar þegar hafnar hjá þeim mönn- um, sem til greina koma í lands- lið okkar, en síðar verður s'jálft liðið valið úr öllum hópnum. — Verður allt gert, sem unnt er, tií þess að liðið geti staðið sig sem allra bezt. Þar eð þessi leikur -hefur nú verið ákveðinn við Ausiur- ríkismenn, er alls búið að á- kveða, að háðir verða brír landsleikir á sumrinu. Sá fyrsti verður vlð Austurríkismennina hér heima, annar í Kaupmarina höfn þann 9. ágúst og sá þriðji í Bergen fjórum dögum síðar. Ahugí meðal íyi anna fyrir fjórveldafundi. Dulles segir þó, að fyrst verði friður að komast á í Kóreu. Myndin er af Eggert Guðrmmdssyni. listmálara í sýningar- salnum að Hátúni 11. Myndirnar að baki honum eru frá Ástra- líu. (Sjá frásögn á 8. síðu.) Fultráðið um gerð flugvailar í Grímsey í sumar. Tvær bryr byggðar í Eyjafirði. Fullráðið er nú að gera flug- völl í Grímsey í sumar, að því er Akureyrarblöðin herma. Var gengið frá þeim málum til fullnustu snemma í þessari viku og hefur nægjanlegt fé verið tryggt til framkvæmd- anna. Fyrir nokkru fóru tveir hreppsnefndarmenn úr Grírns- ey, þeir Magnús Símonarson hreppsstjóri og Óli Bjarnason útgerðarmaður, til Reykjavík- ur til viðræðna við flugmála- ráðherra og Flugráð um þessi mál. Fengu þeir þar góðar und- irtektir um aðstoð við fram- gang málsins, enda allir sam- mála um nauðsyn þess að þetta afskekkta byggðarlag kæmist í nánara og betra samband við umheiminn en áður. Hafa sam- göngur við Grímsey verið með öllu óviðunandi að undanförnu og reglubundnar bátsferðir ekki verið þangað nema ýmist á hálfsmánaðar eða þriggja vikna fresti. Með flugvelli í Grímsey ættu samgöngur við eyna að batna stórlega, auk hins mikla j öryggis, sem skapazt í sam- ,bandi við slys eða aðkallandi hjálp, en auk þess öryggi fyrir flugið, bæði síldarleitarflug og annað. | ^ Að þessum málum vann. og Árni Bjarnarson forstjóri á Ak- ; ureyri með þeim Grímseying- um, en hann hefur manna ó- trauðast og' ötulast barizt fyrir | flugvallargerð í Grímsey. • Áætlaður köstnaður við fram kvæmdirnar er 250 þús. krón- ur. Af því leggja Grímseyingar sjálfir fram 25 þúsund, aðrir Norðlendingar önnur 25 þús. kr., en 200 þus. þr. hafa verið fengnar að láni annars staðar og er búið að ganga frá samn- ingum um það. 1 Eyjafirði hafa tvær meiri háttar brúarbyggingar verið á- kveðnar í sumar. Önnur þeirra er brúin yfir Glerá við Akur- eyri, sem byrjað var á í fyrra. Er ákveðið að ljúka henni í sumar, en gamla Glerárbrúin verður rifin. Hin brúin er yfir Hörgá og verður hún byggð skammt frá gömlu brúnni. ——......... Déttir Stephans G. gestur ríkisstjórnarmnai Meðal Vestur-íslendinganna, sem koma til íslands 9. júní n.k. er frú Rósa Benediktsson, dótt- ir Stephans G. Stephanssonar. Frúin verður gestur ríkisstjórn arinnar meðan hún dvelur hér á landi. (Frá forsætisráðuneytinu.) Einkaskeyti frá AP. London í gær. Bandaríski sendiherrann í London gekk í gær á fund Churchills. Munu þeir hafa rætt uhdirbúning þrnælda- fundarins, sem til stendur að halda í næsta mánuði. Mjög almennt eru menn þeirr ar skoðunar, að þríveldafund- urinn kunni að leiða til fjór- veldafundar, og meðal hinna frjálsu þjóða er hugmýndinni yíirleitt mjög vel tekið. Blöð í V.-Evrópu leggja mikla á- herzlu á, áð alger eining skap- ist milli vestrænu þjóðarma, ekki aðeins um mark, heidiír og um leiðir. Helztu blöð Bandaríkjanna, — þeirra meðal Ncav York Times — telja að hentugur tími sé kominn fyrir hina vestræriu þjóðaleiðtoga, til þess að koma saman og ræðast við. Wiley öldungadeildarþing- maður, formaður utanríkis- nefndar deildarinnar, hefur iluriol ræftir við fv. I’orsii1 í is ráð- iserra. Farís (AP.) —Auriol Frakk- landsforseti ræddi í gær við ýnisa stjórnmálaleiðtoga um stjórnarrriýndun. Aðallega voru það fyrrver- andi fprsætisráðherrar, sern hann ræddi við, þeirra meðal Finay. ntt ti! Hafsiarframkvæmdir eru að Iiefjast i Grindavík og er ætl- mbIíi aðlengja eina bátabryggju þar allmlkið. i Hafa tvö steinker verið sótt og flutt til Grindavíkur, og Veiur hagstætt enn við Everest. 30 st. frost á há- tindirrum. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Indverska útvarpið tilkyiinti í dag, að veður væri enn hag- stætt í Himalayafjöilum. Vindhraði í efstu veður- athugunarstöðinni var 60—70 km. á klst. og í 9500 metra hæð, nálega hátindinum, 30 stiga frost á Celsius. Ekki er líklegt, að fregnir berist um að tekist hafi að klífa Mt. Everest fyrr en nokkrum dögum eftir að afrek ið hefur verið unnið, ef það þá heppást, því að fara verður með orðsendingar um þetta fótgang andi til höfuðborgar Nepals. lagt til, að Eisenhower forsetr - taki með sér á Bermuda-fund- inn fulltrúa beggja stjórnmála- flokkanna á þingi, svo að þeir geti fylgzt sem nánast með við- ræðunum. Dulles. utanríkisráðherra. Bandaríkjanna kom til Karachi í Pakistan í dag frá Nýju Dehli. Hann kvaðst ekki trúaður á árangur af fjórveldaráðstefnu, nema fyrst .tækist að leiða tiL lykta styrjaldirnar í Kóreu og Indókína. og koma á friðar- samnirigum við Áustúrriki. — Hann kvaðst ekki vera í vafa um, að stefna kommún'sta að útbreiða kommúnismar.n væri öbreytt, og meðan svo væri, yrðu frjálsu þjóðirnar að vera varar um sig ög við öllu bunar. Eht í dag, annað á morgun. Flokksnefnurnar þurfa ekki að vera stórar tii þess að geta klofnað, og sannast það ótvírætt á Lýðveldis- flokknum svonefnda, sem annars er venjulega kallað- ur Varðbergsflokkurinn hér í bænum. I Vestmannaeyjum hafa komið fram tvö fram- boð fyrir þenna vesaldóm, fyrst framboð Alexanders Guðmundssonar, og síðan frambóð Karls O. J. Björns- sonar bakarameistara. Segja kunnugir, að flokksstjórnin hafi ekki verið ánægð með væntanlegt framboð Alex- anders og verið biiin að leita hófanna hjá bakarameistar- anum, en Alexander varð á undan. Karl taldi sér þó bera skylda til að senda inn sitt framboð, samkvæmt samn- ingi við flokksstjórnina, en var síðan skipað að taka það aftur daginn eftir, til þess að koma í veg fyrir klofning! Vilja selja bænum íslenzk kél. Il.f. Kol hafa farið þess á leit við bæjarráð Reykjavíkur að bærinn kaupi ákveðið magn af kolum úr námu félagsins að Tindum í Dalasýslu. Vill hlutafélagið Kol gera samning við bæinn um að hann kaupi kol til handa varastöð- inni við Elliðaárnar, en hún brennir sem kunnugt er kclum. í fyrra var sýnishorn af Tindakolum sent vestur um haf til félags þess er smíðaði ket- mun bráðlega \Terða hafin vinna við að koma þeim niður við enda bryg'gjunnar. ilinn í varastöðina og óskað eft- ir því- að það léti rannsaka og: efnágreina sýnishornið. Rannsóknin leiddi í Ijós að kolin væru nothæf svo fremi sem álagið færi ekki fram úr- 80%, miðað við mesta vinnslu stöðvarinnar. Er félagið gat þess ennfremur að hægt væri lika að smíða sérstakan ketil í varastöðina miðaðan við hita- gildi Tindakola. Bæjarráð fjallaði um þetta mál á fundi sínum s. 1. föstu- dag', og ákvað þá að vísa því til umsagnar rafmag'nsstjóra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.