Vísir - 30.05.1953, Side 8
Þeif sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðiS ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
VÍSIR
VÍSIR er óðýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í sima 1660 og gerist
áskrifendur.
Laugardaginn 30. maí 1953.
Ridgway hershöfðingi og frú við komu þeirra á Reykjavíkur-
flugvöl! í gær. (Foto.: Pétur Thomsen).
Á Þingvöllum kemur andinn
alltaf yfir mig.
Þar skrifar Eggert 3ja hincfið af „Lifinu"
„Eg ætla til Þingvalla í næstu
viku, og þar veit eg af reynsl-
unni, að andinn kemur alltaf
yfir mig. Það getur ekki farið
hjá því á þeim stað.“
Eggert Stefánsson söngvai i
— og þó er raunar réttara að
kalla hann rithöfund nú —
varð á vegi eins af tíðinda-
snönnum Vísis' í gær, sem tók
hánn þegár tali, því að Eggert
er skrafhreyfinn, hvort sem
hann er heima hér eða erlendis.
Og blaðamaðurinn hafði spurt
hann, hvort hann væri ekki áð
vinna við 3; bindi af' „I»ifinu“.
„Annað kvold les ég upp í
útvarpið," hélt Eggert áfram,
„og eg ætla að segja mönnum
frá Sikiley, því að þar var vagga
ítalskrar .menningar, sem hef-
ur síðan verið fyrirmynd alls
heimsiris. Auðvitað vita aPir,
að ítalir eru í rauninni feður
evrópskrar menningar, en þeir
eru því miður færri, sem hafa
hugmynd um það, að það er
Sikiley, eyja blóðhefndarinnar,
sem allir þekkja, er fóstraði
það,. sem allir dá nú og kenna
við Ítalíu, Auðvitað eiga íslend-
ingar að heimsækja Feneyjar,
Milano, Róm, Flórens og Napoli,
þegar þeir 'geta farið út fyrir
landsteinana, en þegar þeir
vilja finna rætur menningar-
ánnar, þá eiga þeir að fara
lengra. Það kostar hvorki miklu
meira fé eða tíma að bregða
sér yfir Messinasundið."
,,Þú hlauzt lof margra fyrir
fyrirlesturinn um hestinn og
öræfi fslands, eftir því sem ég
hef heyrt.“
„Jú, en því miður varð eg að
stytta þann kafla niður í það, að
60 mínútna lestur tæki aðeips
30 mínútur, og þótti mér það
mjög leitt, en það er auðvelt
fyrir menn að bæta sér það með
því að lesa bókina ... Og í Val-
höll og á Þingvöllum vonast eg
til að geta sett mig í samband
við náttúruandana, sem hafa
svo oft hvíslað ýmsu fögru að
mér. Og ef menn vilja lesa um
það eða hlýða á það, þá er til-
gangi mínum náð.“
Hér á að standa Nau u Nan,
en ekki Mau-Mau, bví að þetta
er nafn á þýzkri stálverksmiðju.
Safitasf ¥©S í sfyttu
af sr. Fr. Fr.
Fjársöfnuninni til styttu séra
Friðriks Friðrikssonar miðar nú
allvel áfram, enda er nú safn-
að af miklu Itappi bæði hér í
lbænum og út urn land.
Samkvæmt upplýsingum er
blaðið hefur fengið, er söfnun-
inni svo vel á veg komið, að
fullvíst má telja, að henni verði
að fullu lokið, er styttan kemur
hingað til lands, en það mun
sennilega verða nú fyrrihluta
sumars. Enn mun þó ekki end-
anlega ráðið, hvenær styttan
,verður%eist.
Samíð við ísræl.
Hinn 18. maí voru undirrit-
aðir í Stokkhólmi viðskipta-
og greiðslusamningar milli ís-
lands og ísraels. Dr. Helgi P.
Briem sendiherra undirskrif-
aði samningana fyrir fslands
hönd, en dr. Avraham Nissan
sendiherra fyrir fsrael.
Samningar þessir eru árang-
ur af viðræðum, sem áttu sér
stað í Síokkhólmi dagana 6.—8.
maí. Tóku þátt í þeim af ísra-
els hálfu þeir Helgi P. Briem
sendiherra, Þórhallur Ásgeirs-
son skrifstofustjóri og dr.
Magnús Z. Sigurðsson, verzl-
unarfulltrúi.
Samkvæipt samningunum
er .gert ráð fyrir jafnvirðis-
kaupurn milli landanna. ísra-
elsmenn munu aðállega kaupa
hér frystan fisk, en íslending-
ar eiga kost á að kaupa þær
vörur á móti, sem ísrael flytur
út, og eru ekki bundnir við
kaup á ákveðnu magni eða
vörutegundum.
Björgun járasms
erfiðari.
Þörf sérsfakra
tækja.
Klaustursbræður hafa enn
ekki hafizt handa um björgun
járnsins af Dynskógafjöru,
enda hafa allar aðstæður þar
eystra versnað síðan í fyrra.
Einnig hefur staðið allmjög
á leyfum fyrir sérstökum tækj-
um, sem ætlunin er að nota,
en þau munu auðvelda björgun-
ina til muna.
Ósinn, þar sem járnið liggur,
sem var í fyrra veitt burt fyrir
vestan járnið, hefur í vetur
rutt sér braut austur fyrir, svo
að enn torveldar það björgun-
ina. Einnig liggur járnið nú
mun nær sjónum en í fyrra.
Allt útlit er þó fyrir að björg-
un muni hefjast nú í sumar,
en framangreindar ástæður
tefja eðlilega fyrir, svo mjög
sennilegt er, að þeir bræður
geti lítið aðhafzt í júní, en þá
eru skilyrði með bezta móti,
enda nótt albjört.
inr
Morðu rlandaför
Heklu ákveðlffft
b. juiti.
Ákveðið hefur nú verið, að
m.s. Hekla leggi a£ stað í Norð-
urlandaferðina 6. júni, þar sem
öll nauðsynleg leyfi eru fengin.
Verður komið við bæði í
Vestmannaeyjum og á Aust-
fjörðum á útleið, og gefst mönn
um því tækifæri til þess að sjá
austurströndina áður en lagt er
af stað til Noregs.
Fararstjórar verða Þeir Ing-
ólfur Guðbrandsson, kennari og
Skúli Skúlason, ritstjóri. — í
Gautaborg hafa verið gerðar
ráðstafanir til þess að kynna
þeim, sem hug hafa á, skóla,
iðnað og fleira, sem lýtur að
borgarlífinu. Er fólki bent á,
að náuðsynlegt er að hafa vega-
bréf með í förina. Enn munu
nokkur rúm laus.
Næsta skemmtiferð, sem
Ferðaskrifstofa ríkisins gengst
fyrir er ráðgerð með m.s. Heklu
til Glasgow 29. júní. Farið verð
ur til Edinborgar og upp í há-
lendið. Verður það 19 daga ferð,
og verður komið heim aftur 17.
júní.
Fjármálasérfræð-
ingur vinnur að
stjórnarmyndun.
París (AP). — Pierri Mendés-
France, úr róttæka flokknum
(radical-socialistafl.), hefur fall
izt á beiðni Auriol ríkisforseta
Frakklands, að þreifa fyrir sér
um stjórnarmyndun.
Mendés-France kvaðst mundu
fara að dæmi Reynaud og kynna
fulltrúadeildinni stefnuskrá
sína, og ef hann fengi traust
hennar, ræða við leiðtoga flokk
anna, en fyrr ekki. — Mendés-
France mun flytja stefnuræð'u
sína næstkomardi þriðjudag
eða miðvikudag.
Hann er einn af færustu fjár-
málaséi’fræðingum Frakka og
það er vegna sérþeklcingar hans
og hæfileika á því sviði, sem
Auriol forseti hefur leitað tii
hans, en æ verr horfir um f jár-
hag ríkisins.
Erskine tekur vift
yfirstjórn í Kenya
London (AP). — Erskine
hershöfðingi hefur verið settur
yfir allan herafla í Kenya og
allar lögreglu- og varnarsveit-
ir. — Hann er einn af kunnustu
hershöfðingjum Breta.
Herstjórn hans verður ekki
háð herstjórn Breta í löndunum
við austanvert Miðjarðarhaf,
eins og verið hefur, heldur tek-
ur hún aðeins við fyrirskipun-
um beint frá brezka hermála-
ráðuneytinu. Háværar kröfur
hafa veriö um slíka breytingu
sem þessa, því að mikilvægt er
talið, að yfirstjórnin í sókninni
gegn Mau-Mau geti einbeitt sér
að hlutverkinu, án íhlutunar
herstjórnar, sem , er milliliður
milli hennar og London.
Ármann J. Lárusson.
Íslandsglíman
háö a morgun.
Á morgun verður íslands-
glíman háð í 43. skipti, og fer
hún fram að Hálogalandi kl.
20.30.
Keppendur eru 10 að þessu
sinni og meðal þeirra heztu
glímumenn landsins. íslands-
glíman var fyrst háð 1906 á
Akureyri, en féll niður á árun-
um 1914—18, og er því Grettís-
beltið, sem keppt er um, orðið
47 ára gamalt. Handhafi þess er
nú Ármann J. Lárusson og sést
hann girtur beltinu hér að ofan.
Glímumennirnir eru annars:
Ármann J. Lárusson, Rúnar
Guðmundsson, Anton Högnas.,
Ferð Varðar
á morgun.
Varðarfélagar efna til
skemmtiferðar á morgun, m. a.
til þess að skoða stærstu og
merkilegustu mannvirki hér í
grennd.
Ferð þéssi er, fyrirhuguð að
Gufunesi, Reykjum og austur
að Sogi og verða framkvæmd-
ir Áburðarverksmiðjunnar,
Hitaveitunnar og Bafmagns-
veitunnar skoðaðar.
Ferðin er mjög ódýr, kostar
aðeins 30 krónur á mann og er
í því innifalið kaffi á Þingvöll-
um.
Er þess.vænzt að sem. flestir
Varðarfélagar taki þátt í för-
inni.
Gísli Guðmundss., Grétar Sig-
urðsson, Kristm. Guðmundss.,
Gunnar Ólafsson, Guðmunduv
Jónsson, Erlendur Jónsson og
Kristján Heimir Lárusson.
Ármann og Rúnar hafa unn-
ið kappglímur undanfarinna
ára á víxl, og er enn tvísýnt
um hvor muni sigra. Keppnin
getur því orðið spennandi auk
þess, sem allir keppendur eru á-
gætir glímumenn. Ferðir að Há-
logalandi verða frá Ferðaskrif-
stofunni.
Baráttan við Mau Mau
að breytast í hernað.
En þá telja Bretar aSstöðu stna betrf-.
Ehxkaskeyti frá A.P.
London, í gær.
Allt virðist benda til þess, að
viðureignin við Mau Mau-menn
í Kenya sé að breytast í skipu-
lagðan hernað.
Til skamms tíma hafa árás-
irnar verið gerðar af handa-
hófi, Mau Mau-menn borið
niður hingað og þangað, án
þess að hjá þeim virtist um á-
kveðin markmið að ræða önn-
ur en að vega menn. Nú er
hinsvegar svo komið, að árás-
irnar beinast fyrst og fremst
að þeim stöðum, þar sem von
er vopna og skotfæra, en öflun
þeix-ra er eitt af því, sem Mau
Mau verður að tryggja, til þess
að baráttunni vei’ði haldið á-
fram.
Gegn þessu vinná svo yfir-
völdin brezku með því, að
vopna þá af innbornum mönn-
um, sem sýht hafa að undan-
förnu, að þeim er treystandi
til þess að berjast gegn hermd-
arverkamönnum. Af þessu
leiðir að
Mau Mau-memi fara uú í
stærri hópum en áður, og
auðveldara er fyrir skipu-
lagða herflokka að sækja að
þeim, en þegar um marga
smáhópa er að ræða.
Vonir meíri
í nýlendunnL
Hefir af þessu leitt, að ný-
lendubúar eru nú vonbetri en
áður um, að takast megi að
• sigi'a Mau Mau-menn, og það
, áður en langt um líður. Að
mirinsta kosti á að vera hægt
að lama þá svo að þeir, sem.
undan komast úr bardögum,
hafi hægt um sig, því að hreyf-
ingin breiðist nu ekki meira út.
Mau Mau-sveitirnar enx nær
eing'öngu í Aberdaire-fjöllum,
og þrengja hersveitir Breta
smám saman hi’inginn um þær.