Vísir - 04.06.1953, Blaðsíða 1
43. árg.
FLmmtudaginn 4. júní 1953.
123. tbU
Fásinna al draga
ur loftvörnum.
Washington (AP). — Eisen-
hower flutti útvarps og sjón-
varpsræðu í gærkvöldi og minnt
ist m. a. á Bermudaráðstefnuna
fyrirhuguðu.
Eg mun hefja umræður um
mörg heimsvandamál, sagði
hann, en rætt verður um það,
hvaða leiðir skuli fara til þess
að leysa hnútana. — „Þar verð-
ur ekki höggvið á neinn hnút“.
Vandenberg hershöfðingi, yf-
irmaður foringjaráðs flughers-
ins, hefur lýst yfir, að það sé
fásinna, að draga úr loftvörn-
um, meðan
Rússar hafi miklu fleiri
þrýstiloftsknúnar sprengju-
flugvélar en Bandaríkja-
menn og haldi áfram að víg-
búnaði af miklu kappi.
Vandenberg varaði einnig við
smíðum Rússa á kjarnorkuvopn
um. Hann er nú að láta af
störfum sem yfirmaður for-
ingjaráðsins.
Luktar dyr —
fundi frestað!
Meðalfellsvatn er þrefalt betra
til veiða en miðlungsvatn í IMoregi.
Ný framhalds-
saga á morgun.
Eins og skýrt hafði verið
frá, mun ný framhaldssaga
byrja hér í blaðinu, þegar
lokið er frásögninni af bar-
,áttu brezka leiðangursins
við Everestfjall árið 1924.
Ný lýkur þeirri frásögn í
dag, og byrjar sagan því á
morgun. Hún heitir
Amta Lucasta
og f jallar hún um örlög
ungrar stúlku, dóttur fátæks
drykkjumanns, sem reynir
að gifta hana efnuðum
manni Saga þessi hefur ver-
ið kvikmynduð, og lék Paul-
ette Goddard aðalhlutverkið
með miklum ágætum. Fylg-
ist með sögunni frá byrjun
-----og gerist áskrifandi, ef
þér eruð það ekki þegar. —
Tokyo (AP). — Fundur var
haldinn í Panmunjom í morgun.
Var hann haldinn fj'rir lukt-
um dyrum — og viðræðum síð-
an frestað til laugardags, að
þessu sinni að beiðni Samein- j
uðu þjóðanna.
Suður-Kóreustjórn sendi ekki
ekki fulltrúa sinn á fundinn. —-
Hún er enn við sama heygarðs-
liornið — neitar öllum tillög-
um, sem ekki girða fyrir, að
Kórea verði klofin áfram í tvo
hluta.
Krakkar kveikja
í smu.
Slökkviliðið var í gær kvatt
suður í Fossvog til þess að
slökkva þar í sinu.
Gerðist þetta skömmu eftir
hádegi í gær, og var mikill eld-
ur í sinu við húsið Fossvogs-
blett *47. Höfðu krakkar kveikt
í sinunni, og magnaðist eldur-
inn svo, að menn óttuðust, áð
spjöll kynnu að verða á mann-
virkjum af völdum hans.
Slökkviliðið sípkkti fljótlega í
sinunni, án þess, að skemmdir
yrðu.
Loftskeytsstöð Ve.
séð fyrlr rsforku.
Hinn 4. maí eyðilagðist önn-
ur aflvél rafstöðvarinnar í Vest
mannaeyjum og var þá tekin
upp rafmagnsskömmtun þar.
Ráðstafanir voru þegar gerð-
ar til að leggja sérstakan raf-
streng frá næstu spennistöð til
landssímahússins svo hægt væri
að sjá símstöðinni fyrir stöð-
ugu rafmagni og er því verkí
nu lokið. Til frekara öryggis
hefur nú verið send 10 kw
dieselrafal-samstæða, sem sett
verður upp í símstöðinni á næst
unni sem varavél fyrir símann.
Loftskeytastöðinni í Vestmanna
eyjum á þar með að vera tryggt
stöðugt rafmagn, einnig á þeim
tíma meðan viðgerð fer fran,
á aðal-aflvél rafstöðvarhmar.
Á myndinni sjást rúmensku hjóninValeriu Georgescu og kona
hans. Synjr þeirra tveir eru hafðir í haldi í Rúmeníu* en hjónin
eru vestan hafs. Nýlega kom fuiltx*úi rúmenska sendiráðsins í
Washington að máli við Georgescu, og vildi fá hann til njósna
fvrir Rúmena gegn því, að sonum hans yrði sleppt úr landi,
Georgeseu hafnaði tilmælum þessum,en allt er í óvissu um
öiTög drengjaima.
Óhemjumagn af svartfugli
berst nú á markaðinn.
Fiskkölliift fékk á 4. þú$. í gæa*.
Óhémju mikið af svartfugli
barst á markað hér í gær, meira
en dæmi eru til um mörg ár,
að því er Steingrímur Magnús-
son í Fiskhöllinni tjáði Vísi í
morgun.
höllin hefði fengið hátt á f jórða
Sagði Steingrímur, að Fisk-
þúsund af fugli (aðallega lang-
víu), en það eru menn á trillu-
bátum, sem skjóta fuglinn. —
Sama verð er á fuglinuni og í
fyrra, eða 7 krónur óhamflett-
ur. Þykja þetta ágæt matar-
kaup, því að yfirleitt vegur hver
fugl upp undir 1 kg., en mörg-
um þykir hann lostmeti.
Reitingsafli hefur verið á
trillubáta, sem héðan róa, en
þeir eru nú fjölmargir. Sagði
Steingrímur, að óhætt væri að
fullyrða, að afli hefði yfirleitt
verið mjög tregur undanfarið,
og því ekki um sérlega ai'ðbær-
an atvinnurekstur að ræða. -—
Bæði er það, að birta hamJar
veiðum, og svo er hitt, að íisk-
urinn er nú fullur af aíli, en þá
veiðisf minna á færi.
Nokkrir bátar hafa vevið. á
haukalóðum (skötulóðum) svo-
nemendum, og fengið lúðu. Róa
þeir allt vestur undir Jökul
eða undir Mýrar, og hafa sum-
ir fengið dágóðan afla.
Nógur fiskur er nú í íiskbúð-
um bæjarins, bæði ýsa. lúða og
rauðspretta.
anngrúinn stöðvaði
bifreið drottningar.
Fyrsta ökuferöin af fjorum tim borgina.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Elísabet II. drottning var
hyllt £ gær af tugþúsundum
manna, er hún ók um norðaust-
urhluta borgarinnar.
Um kvöldið kom hún fram á
svalir Buckinghamhallar, en
fyrir utan hana höfðu safnazt
saman 30.090 manna, þrátt fyr-
ir úrkomu og næðing, til þess
hennár. Þar sat Ólafur rík-
hma t.ignu gesti, er sátu veizlu
að hénnar. Þar sat Ólafur rík-
auka koianám.
Ankajra (AP). — Það er von
tyrknesfe u stjórnarinnar, að
koíaútfhitníngur landsins verði
bráíí margfaldaður.
Hefur Bandaríkjastjórn veitt
fé til þess að í'ullkomna vimislu-
tæki kblanámanna við Zongulak
við Svartahaf. Hefur fram-
leiðslan verið um 3,3 millj.
smál. og á að aukast í 5 millj.
en útflútnihgurinn á að aukast
úr 200,000 lestum í 750,000 á
ári.
isarfi Noregs — henni á hægri
hönd, en Alex Danapris á
vmstri. MeSal gesta voi-u allir
konunglegir gestir, Sir Win-
ston Churchill, forsætisráðherr-
ar samveldislandanna o. s. frv.
Gestir voru 250 talsins.
Ökuferðin um norðaústur-
hverfin var hin fyrsta af 4, sem
drottningin fer ásamt manni
sínum, u.m borgina, í tilefni
krýningarinnar. Var allsstaðEir
krökt af fólki og þót-t 20 lög-
regluþjónar færu fyrir bifreið
drottningar t-ókst ekki að halda
opinni braut, því að fjórum
sinnum þustu menn fagnandi
að bifreiðinnl, þrátt fyrir lög-
regluvörðinn. Þúsundir bama
veifuðu fánum sinum. — Fj'rr
um daginn sæmdi drottningin
3000 hermenn frá samveldis-
löndunum heiðursmerki, fyrir
þátttöku þeirra, en hermerm
þessir voru frá Ástralíu, Kan-
ada, Nýja-Sjálandi, Pakistan,
Suður-Aríku og Ceylon og víð-
ar að, og tóku þátt. í skrúð-
göngunni og gengdu skyldu
störfum.
68 veiðimenn - af 350
- veiddu þar 2250
silunga sf. ár.
í Meðalfellsvatni veiddust
s.l. sumar 60 laxar og 2250 sil-
ungár samkvæmt veiðiskýrsl-
um manna þeirra, sem stund-
uðu veiðar í vatninu.
Þó skal þess getið að af á að
gizka 350 veiðimönnum, sem
keyptu veiðiléyfi í vatninu skil-
uðu ekki nema 68 skýrslum eða.
ekki fimmti hver maður.
Þrátt fyrir þetta, og þó að-
eins sé miðað við þær skýi-slur
sem veiðimenn hafa skilað má.
telja Meðalfellsvatn . frjósamt
vatn miðað við hnattstöðu þess„
Vatnið gefur að meðaltali, sam-
kvæmt framangreindum skýrsl
um, 3.6 kg. af silungi á hvern.
hektara. Til samanburðar má
geta þess að afraksturinn af
stórum vötnum í Noregi er
sjaldan yfir 1 kg. á hektar að
meðaltali á ári. í Svíþjóð er
meðalafrakstur af vötnum á ári
um 2.5 kg. og í Finnlandi er
hann heldur lægri
Laxinn sem veiddist í vatn-
inu í fyrrasumar var, sam-
kvæmt veiðiskýrslunum, vænn,
eða nær 7.7 pund að meðal-
þyngd. Þyngsti laxinn var 16
pund og sá léttasti 3 pund.
Mesta veiði hjá einum manni
var 63 silungar á dag eða hluta
úr degi.
í fyrravor voru merktir 275
silungar í Meðalfellsvatni. Af
þeim veiddust 18 silungar aft-
ur, eða 6.5%.
Samviiina veiði-
manna nauðsynleg.
Rannsóknir í Meðalfellsvatni
hafa þeir Unnsteinn Stefánsson
efnafræðingur, dr. Sigurður H.
Pétursson gerlafræðingur og
Þór Guðjónsson veiðimálastjóri.
annast. Verður þessum rann-
sóknum haldið áfram a. m. k.
næsta ár. En til þess að þær náí.
tilgangi sínum að fullu verða
veiðimenn að gera sér ljóst að
þeir verða að útfylla veiði-
skýrslur vel og samvizkusam-
lega, því að undir aðstoð þeirva
er gildi niðurstaðanna af rann-
sóknunum að langmestu leyti
komið.
Tilgangurinn með rannsókn-
unum er að kynnast lífinu í
vatninu og komast að því hvern
ig haga skuli veiðunum í því
með sem beztum árangri, en
slíkt miðar að því að tryggja
góða veiði í vatninu í framtíð-
Eden í sjúkrahús
vestan hafs.
London (AP). — Anthony
Eden mun fara vestur um haf
flugleiðis á föstudaginn 5. júní.
Ráðherrann fer ekki opin-
berra erinda heldur til þess að
leggjast í sjúkrahús. í Boston.
Mun þar verða gerð á honum
skurðaðgerð, en Eden hefur
þjáðst af þarmasjúkdómi und-
anfarið, og verið skorinn upp
einu sinni nýlega. _ ,