Vísir - 06.06.1953, Page 1

Vísir - 06.06.1953, Page 1
WI 43, árg. jLaugardaginn 6. júní 19S3, 125. tbi, i Slökkvistöð verður reist í Mosfellssveit. Hreppurinn undirbýr stofnun brunaliðs. Mosfellssveitarbúar hafa nú í undirbúningi að koma upp sibkkvistöð í hreppnum og siofna brunalið innan sveitar- jnnar. Hefur hreppsnefnd Mosfells- hrepps unnið að þessu máli að undanfömu ásamt brunaeftir- litsmanni ríkisins, Erlendi Halldórssyni, og er nú fuilráðið a3 slökkvistöðin verði byggð og undirbúningur hafinn. Hins- vegar er ekki búið að velja henni endanlega stað ennþá, en þó má ákveðið g'era ráð fvrir að hann verði valinn þar sem fjölbýlið er mest og mest verðmæti samankomin á ein- um stað. En þarna er fyrst og fremst um að ræða Álafoss- byggðina, Reykjalund og Reykjahverfið. Kostnaðarhlið- in við byggingu stöðvarinnar er nú í athugun. í sambandi ýjð stöðina hefur verið um það rætt að festa kaup á mótordælu á hjólvun, sern dregin er af bíl á bruna- stað. Til þessa hafa hrepps- búar notast við miklu ófull- komnari dælu, sem hefur verið geymd á Álafossi, en auk þess hefur Slökkviliðið í Reykja- vík gegnt brunakalli þegar nauðsyn krafði.- Þegar hrepps- búum fjölgar og efni leyfa verða stórvirkari slökkvitæki að sjálfsögðu keypt. Samkvæmt lögum um stofn- uii brunaliða má það ekki vera skipað færri mönnum en 25 á hverjum stað. — Ekki hafa lireppsbúar hugsað sér að hafa neina þeirra fastráðna sem slökkviliðsmenn, heldur að þeir hafi slökkvistarfið sem auka- starf og gegni útköllun þegar á þarf að halda. 3 flugferðir til ísa- fjarðar í gær. Sjómannakonur þreyta íþróttir, — og seíja kaffi á morgun. Sjómannakonur í Reykjavík seíla ekki að láta sitt eftir liggja á Sjómannadaginn á morgun. Þær ætla að gangast fyrir fjáröflun með ýmsum hætti, og rennur ágóðinn til dvalar- heimilis aldraðara sjómanna, sem senn rís af grunni inni í Laugarási. M. a. ætla þær að þreyta kappróðurí kvöld (laugardag), og kostar tvær krónur að horfa á róðurinn, sem ekki getur talizt dýrt, enda leggja konurn- ar, sem flestar eru húsmæður tneð stóran barnahóp, mikið í sölumar. Þá ætla þær að þreyta reiptog á íþróttavellinum á tnorgun, og freista þess að draga upp Sjómannadagsráð. Verður það vafalaust góð skemmtun. Þá ætla konurnar að selja kaffi allan daginn á morgun í Æskilegt væri, að menn létu Sjálfstæðishúsinu, eða frá kl.! kökur af hendi rakna og kæmu lí rf. h. til 6,30 um kvöldið. þeim í Sjálfstæðishúsið. Nýlega fór oddviti Mosfells- sveitarhrepps, Magnús Sveins- son í Leirvogstungu, þess á leit við bæjarráð Reykjavíkur að slökkviliði bæjarins yrði leyft að gegna útköllun í sam- bandi við eldsvoða í Mosfells- sveit þai- til hreppsbúar hefðu kornið nauðsynlegri skipan á brunavarnir sínar. Hefur mál þetta verið rætt í bæjarráði og leitað umsagnar slökkviliðs- stjóra um það, en endanieg á- kvörðun ekki tekin. SÍBS: 50 þús. félln á miSa í Flatey. Dregið var í gær í happdrætti S.I.B.S. Hæsti vinningurinn kom upp á miða seldan á Flat- ey á Breiðafirði. Hæsti vinningurinn, 50 þús. kr. kom upp á miða nr. 2915, en hann var seldur í Flateyjarum- boði á Breiðafirði. Þrír stærstu vinningarnir þar á eftir, 10 þús. kr. að upphæð, komu upp á miða nr. 1583, en hann var seld ur í Keflavíkurumboði; nr. 23643 seldur í Austurstræti og Sanddæluskipið, sem leigt hefur verið til 'þess að dæla sandi úr Faxaflóa til Sementsverksmiðjunnar fyrirhuguðu kom til nr. 37649, en hann var seldur Akraness í fyrradag. Vísir skýrði nýlega frá undirbúnings í Berufjarðarúmboði. íslenzkir sviffhigmenn fara til Þýzkalands. Fimm Þjóðverjar dvelja m á Sandskeiði. Ehis og Visir skýrði frá fyrir skemmstu var hingað von nokkurra þýzkra svifflug- manna. , Þeir eru nú fyrir nokkru komnir, eru fimm saman og hafazt við á Sandskeiði. Þar búa þeiX' að mestu leyti þann tíma sem þeir dvelja hérlendis. Þeir verða hér rúmar þrjár vik- ur, og af hálfu íslendinga dvelst Helgi Filippusson, formaður Svifflugfélagsins, með þeim á meðan þeir halda til á Sand- skeiði. Þrátt fyrir ágætis veður hafa skilyrði til svifflugs verið altl annað en góð þann tíma sem þýzku svifflugsmennimir hafa dvalið hér og þeir hafa miklu minna getað flogið en búist var við. í fyrra dvöldu hér einnig nokkrir þýzkir svifflugsmenn og þá voru skilyrði hin ákjós- anlegustu til flugs, enda flugu þá sumir hinna erlendu gesta þann stutta tíma sem þeir dvöldu hér, meir en þeir höfðu flogið á allri ævi sinni áður. Eftir miðjan ágústmánuð fara héðan fimm íslendingar til Duisburg í Þýzkalandi og dvelja þar jafnlangan tíma og Þjóð- verjarnir hér. Verður Helgi Filippusson fararstjóri þeirra. í fyrra fóru einnig nokkrir íslenzkir svifflugsmenn til Þýzkalands og voru þar nokk- urn tima tjl þess að kynna sér svifflug þar í landi. Létu þeir vel af dvölinni, en ekki varð mikið fiogið. framkvæmdum að verksmiðjunni og væntanlegri komu sand- dæluútbúnaðarins á skipinu, sem Árni Böðvarsson ljósmyndari á Akranesi tók við komu þess til Akraness. „Gömlu loreWrarnir" hiísnæóis- lausu var Maurice Thorez. Verkamannshjón með 5 börn urðu að vikja. Fyrir nokkrum mánuðum var ungur, velbúinn maður á hnot- skóg eftir myndarlegri húseign skammt frá París. Hann sneri sér til fasteigna- sala í smábænum Bazainville, skammt frá París, og kvaðst hafa í huga myndarlegí hús með hæfilegri landareign handa öldruðum foreldrum sín- um. Það skipti engu máli, hvert Mikil eggjatekja í Drangey. Buið að slá suma garða á Sauðárkróki Mjög mikið er að gera í inn- anlandsflugi þessa dagana. M. a. varð Flugfélagið að! lit á að veiðin gangi að óskurr. Frá fréttaritara Vísis. Sauðárkróki í gær. Eggjataka hefur staðið yfir í Drangey undanfarna daga og gengið að óskum. Hafa sigmennirnir komið með eggjafeng sinn til lands og reyndist hann mikill. Fóru þeir út strax aftur og bjuggust þá til þess að veiða fugl. Er allt út- senda þrjár flugvélar í gær til ísafjarðar og munu það vera næsta óvenjulegir flugflutn- ingar þangað á einum degi. Meðal farþega til ísafjarðar í gær var 18 manna lið frá knattspyrnufélaginu Víking, sem fer þangað til keppni við ísfirzka knattspyrnumenn. — Keppa þeir tvo leiki og koma aftur suður á sunnudagskvöld. Millilandavélin Gullfaxi komst ekki eins og til stóð til Grænlands og verður því að fresta þeirri för um sinn á með- an hann flýgur hin reglubundnu áætlunarflug sín til Evrópu. Á meðan bíða hér 50 Danir eftir að komast til Grænlands og á- líka stór hópur bíður þar eftir að komast þaðan brott. því veður er hið ákjósanlegasta. Mjög góður afli er nú á báta á Skagafirði og má segja að hver maður, sem við sjó býr og vettlingi getur valdið, stundi sjóinn af kappi. Nokkur skortur hefur verið á beitu öðru hverju og hefur það helzt bagað við sjósókn þeirra Skagfirðinga. í sumar verður byrjað á bygg ingu póst- og símahúss á Sauð árkróki. Verður það allstór bygging og undirbúningur að henni hafinn. Landbúnaðurinn gengur að óskum. Lambahöld hafa verið með bézta móti í vor enda þurr- viðra- og góðviðrasamt. Nætur- frost var nokkrar nætur fyrir skemmstu en kom ekki að sök í neinu. Nú eru hlýviðri nyrðra. Búið er að slá suma garða á Sauðárkróki'. Gagnfræðaskólanum á Sauð- árkróki var slitið sunnudaginn 31. maí, en skólastjóri hans er síra Helgi Konráðsson prófast- ur. Nemendur voru 50 talsins og auk bóknámsdeildar var starfrækt verknámsdeild við 1. og 2. bekk skólans í vetur. Námstími gagnfræðaskólans eru 3 ár og þeir sem vilja, geta gengið undir landspróf úr hon- um. Hæstu einkunn upp úr 3. bekk hlaut Auður Torfadóttir, 8.85 st. á fullnaðarprófi, en 8.68 st. á landsprófi. Handavinnusýning var hald- in á námsefni nemenda Gagn- fræðaskólans og barnaskólans á Sauðárkróki. Sérstaka athygli vakti útsaumur drengja úr verk námsdeild skólans. Sýningin var vel sótt. Waterford: Úrval 4 gegn 1. írska liðið Waterford sigraði úrval úr Reykjavíkurfélögwn- um í gærkvöldi með 4 mörkum gegn éinu. Var þetta seinasti leikur ír- anna hér á landi að þessu sinni. verðið vi-ið, aðaiatriðið væri, að foreldrar háns yrðu ánægð- ir méð húsið. Fasteignasalinn sýndi hérra Rivirére, en svo kvaðst maðurinn heita, siórt hús, allmjög úr sér gengið, en traustbyggt og umkringt stór- um aldingarði. Þar bjuggu nú yerkamannshjónin Dupuis með fimm börnum sínum, án erid- urgjalds. Herra Riviére líkaði húsið ágæilega, en hann settí aðeins eitt skilyrði: „Núverandi leigj- andi verður að vera farinn út innan hálfs mánaðar.“ Fast- eignasalinn svaraði því til, að það væri ógerlegt, þvi að frönsk lög heimiluðu ekki svo fyrir- varalausan útburð á leigjend- um, en auk þess var húseigand- inn góðgjarn maður, sem ekki vildi bola verkamannshjónun- um út með þessum hætti. En Riviére varð ekki haggað. Loks tókst fasteignasalanum að flytja veslings Dupuis og fjöl- skyldu hans í tóma sölubúð og borga fyrir hana húsaleigu, til þess að koma þessu öllu í kring. Riviére gredddi nú verðið, sem upp var sett, og að auki um 1,5 millj. króna í viðgerð og breytingar í húsinu. Fyrir skemmstu. fluttu „hinir öldruðu foreldrar“ hans í húsið, en þau reyndust vera Maurice Thorez, aðalforsprakki franska kommúnistaflokksins. Blaðamenn, sem fóru að finna félaga Maurice, komust að raun um, að „Litla Moskva“, eins og íbúar Bazainville nefna húsið, vai- orðið eins konar Kreml í smáum stíl. Á frarn- hlið eru ramgerð eikarhlið og tveggja metra hár steinveggur, en til hliðanna enn hærri gadda vírsgirðing. Tíu fílefldir verðir gæta hússins, en til öryggis hafa þeir blóðhund og þýzkan lögregluhund. Dupuis-fjölskyldan býr hins vegar í ógeðslegu hreysi í um 12 km,, f jarlægð.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.