Vísir - 10.06.1953, Qupperneq 1
VI
«3. árg.
Miðvikudaginn 10. júní 1953
128. tbi*
Refurinn er nærgöngulli
í byggð en áður.
Dýrbítur hefur iagzt á fé í Öifusi.
Síðari dagur herferðarinnar
gegn refum og minkum milli
ölfusár og Hvalf jarðarbotns
átii að vera í fyrradag.
Mun víða hafa verið leitað, en
sums staðar ekki, því að reynd-
ir menn töldu of snemma af
stað farið.
Vísir átti í gær viðtal við
Tryggva Einax-sson í MiSdal,
sem blaðið ræddi við á dögun-
um um hina fyrirhuguðu her-
ferð.
„Eg taldi fyrir mitt leyti,‘‘
sagði Tryggvi, ,,of snemma leit-
að og neitaði að fara. Ráðamenn
hafa sjálfsagt haldið, að dýrin
.muridu leggja fyrr, vegna þess
hve tíðarfar hefur verið gott,
en ég var á annarri skoðun, þ.
e. að þau mundu sízt leggja fyrr
en vanalega, því að þau hafa
haft lítið æti og' eru mögur.
Eg tel hæfilegt að leita, þegar
cýrin fara að bera að grenjun-
um, enda finnast þau vart nema
eitthvað bendi á þau, bein,
fjaðrir o. s. frv. Þótt greni finn-
i'si, næst aðeins grenlægjan,
þegar of snemma er farið, því
að rebbi sést ekki fyrr en hann
fer að bera að, og hætt við að
folindir -yrðlingarnir náist ekki
úr grenjunum og þau spillist.“
Hefur dýrbítur
gert nokkurn usla?
„Ekki hér um slóðir, svo að
vitað sé, en f rétt hef ég að lömb
hafi verið bitin í Ölfusi um sein-
ustu helgi. Þar var einnig frest-
að leit, af sömu ástæðum og ég
frestaði leit á mínu svæði.“
Vísir talaði aftur við Tryggva
í Miðdal í morgun. Kvaðst hann
hafa leitað í gær ofarlega, þar
sem hann taldi víst að verða
refa var, en sá engin verksum-
merki. Sannar þetta, að þeir
hafa lagzt neðar eða jafnvel í
byggð. Er og orðið alltítt að
•sjá þá í grennd við alfaravegi.
í þessu sambandi má geta
þess. að í vor hafa fundist
greni í Dölum við sjó frammi,
en síður til dala.
Almeimar trygglsigan
hafa greitt 35 mflij.
kr. á 10 árum.
Hvenær leggur
|jú upp í leit?
„Eg er að fara af stað og
leggst í mig, að ég muni liggja
á greni bráðlega.
Vísir hafði áður frétt. að í
fyrri leitinni hefðu fundizt greni
í Garðahverfi og að Hálsi í Kjós, (
en grenin ekki verið unnin.
„Greni munu hafa fundizt í
Garðahverfi,“ sagði Tryggvi í
Miðdal, er blaðið spurði hann
um þetta, „en líklega' eitthvað
málum blandað, að greni hefði
fundizt í vor að Hálsi. Þar
fannst greni í fyrra.“
Að lokum kvaðst Tryggvi bú
ast við, að grenjaleit yrði hald-
ið áfram þessa viku, a. m. k.
á hans svæði og í Ölfusinu.
vestan.
Á þeim tíu árum sem Almenn
ar tryggingar hafa starfað, hef-
ur félagið greitt alls 35 millj-
ónir króna í tjónabætur.
Iðgjöld félagsins á síðastliðnu
ári námu 1214 milljón króna í
öllum deildum, og höfðu auk-
izt urn tæplega milljón króna
frá því á árinu áður.
Formaður félagsins, Carl Ol-
sen, greindi frá þessu á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn var
10. þ. m. í skrifstofu félagsins.
— Félagið tekur nú að sér flest-
ar tegundir trygginga, þar á
meðal líftryggingar, en á þeim
byrjaði félagið í júlx s.l. ár. í
stjórn félagsins sitja nú, Carl
Olsen, konsúll, formaður, Gunn
ar Einarsson, prentsmiðjustjóri,
varaformaður, Jónas Hvann-
berg, kaupmaður, Kristján Sig-
geirsson, kaupmaður og Gunn-
ar Hall, kaupmaður. Forstjóri
félagsins er Baldvin Einarsson,
og hefur hann veíið bað frá
stofnun þess.
Harður árekstur
morgun.
i
I morgun um tíuleytið varð
harkalegur árekstur milli
tveggja bifreiða á gatnamótum
Lönguhlíðar og Miklubrautar.
Rákust þar saman tvær bif—
reiðar, R-415 og R-5500 svo
harkalega að báðar bifreiðarn-
ar stórskemmdust, en miklu-
meir þó sú fyrr nefnda.
í gær afhenti sendiherra Kanada hér á landi, Mr. John B. C.
Watkins, forseta Islands embættisskilríki sín að Bessastöðium,
að viðstöddnm utanríkisráðherra, Bjarna Benediktssyni. Var
myndin tekin við bað tækifæri. (Ljósm.: P. Thomsen).
Fárviiri banar
200 manns í
USA
N. York (AP).— Herlög
feafa verið sett í borginni
Flint í Michigan, norður af
Detroit, bar sem talið er, að
yfir 100 mann hafi farist af
völdum hvirfilsvinds.
Kunnugt er, að nálægt
200 manns hafa farist af
völdum hvirfilvinds.
Ohio og norðvesturhluta
Michigan.
I Massachusett hafa 74
íarist samkvæmt seinustu
fregnum.
Fundir daglega í Kóreu, þó
að nefndirnar hittist ekki.
Óvíst, hvort Rhee fer til Washington.
Börn siasast af sprengiefni.
Var óvarið i opnum sktírr.
í gær var lögreglunni tilkynnt
itm óvarið sprengiefni í opnum
skúr inni í Blesagróf.
Hvellhvettur voru xneð
sprengiefninu og höfðu börn
verið að leika sér að því að
sprengja það. Meira að segja
hafði eitt þeirra orðið fyrir
meiðslum af þessum sökurn, en
þó minna en á horfðist.
Þegar lögreglan kom á stað-
inn höfðu börnin borið sprengi-
efnið á víð og dreif og þui'ftu
löðreglumennirnir að tína það
saman. Þar eð eigandi sprengi-
efnisins var ekki heirna í gær
tók lögreglan það í vörzlu sína.
Slys.
í morgun varð umferðarslys
á gatnamótum Skólavörðustígs
og Bergstaðastrætis. Þar varð
árekstur milli strætisvagns er
var ekið niður Skólavprðustíg
og hjólreiðarmanns sem hélt
norður Bergstaðastræti.
Hjólreið'armaðurinn, Ingólf-
ur Guðmundsson, Bergstaðastr.
33, skarst töluvert á hægii
hendi við áreksturinn og var
hann fluttur á Landsspítaiann,
þar sem gei't.var að sárum hans.
Einkaskeyti frá AP.
Tokyo og London. í
morgun.
Samninganefndirnar komu
saman á hálfrar klukkustundar
fund í Panmunjom í morgun.
Frekari fundir verða ekkl
haldnir um sinn, nema önnur
hvor nefndin óski þess sérstak-
lega, en sambandsliðsforingjaf
beggja koma saman daglega
hér eftir'.
Ræða þeir fyrst í stað, hversu
afmarka skuli hið hlutlausa
svæði milli herjanna og ýmis
framkvæmdaatriði önnur.
Churchill gerði í gær í neðri
málstofunni grein fyrir horfun-
um í Kóreu. Kvað hann líkt að'
orði og Nehru, — erfiðleikarn-
ir væru ekki allir að baki, en
hinum stærsta hefði verið rutt
úr vegi (fangaskiptadeilunni),
og horfurnar góðar um að úr
öllu rættist. Hann kvað hers-
höfðingjana Harrison og Clark
hafa sætt ómaklegri gagnrýni.
Hlutverk þeirra væri m. a. erf-
itt vegna Suður-Kóreu, þar sem
væri mikill her, er þeir hefðu
hjálpað til að skapa. — Tass-
fréttastofan í Moskvu hefur
sagt frá svörum Churchills.
Óvíst um ferðir Rhess.
Engin staðfesting hefur feng-
ist á fregn um að Syngman
Rhee ætli til Washington til
fundar við Eisenhower forseta,
til þess að gei'a lokatilraun íil
að fá hann til að styðja stefnu
Suð'ur-Kóreustjórnar í vopna-
hlésmálinu.
Svíar hafa tilkynnt, að þeir
séu, fúsir til þess að taka að
sér það hlutverk, sem þeini er
ætlað, sömuleiðis Indverjar, en
Svisslendingar því aðeins, að
allir aðilar (og þ. á m. Suður-
Kórea) séu því samþykkir að
þeir eigi þar fulltrúa.
V.4s1endingafflir Ikoma
í fyrramálið.
Hekla, millilandaílugvél Loft
leiða, er væntanleg í.fyrramálið
til Reykjavíkur me'ð Vestur-
Islendingana, er bundizt hafa
samtökum um Islandsför á
þessu sumri.
Vestur-íslendingarnir verða
hérlendis til 26. júlí, að þeir
fljúga vestur aftur.
Á morgun verða þeir í hádeg-
isverðarboði hjá forsætisráð-
herra. Síðar munu þeir ferðast
víðsvegar um landið til ættingja
og kunningja.
Vestur-íslendingarnir eru 39
talsins, en fararstjóri þeírra
verður Finnbogi Guðmundsson
prófessor.
Víkingur sigraði
Þrótt, 5:0.
Annar leikur knattspyrnu-
móts íslands var þreyttur á
íþróttavellinum * gærkveldi,
milli Víkings og Þróttar, og
sigraði fyrrnefnd félagið með
5 mörkum gegn engu.
Sýndi Víkingur talsverða
yfirburði, og skoraði 2 mörk í
fyrra hálfleik en 3 í peim síð-
ari. Þeir Reynir og Bjaxni voru
einna virkastir í liðí Víkings,
en Þróttarar virtust miður sín.
jr
Ovíst enn um
úrslitin á Ítalíu.
Róm (AP). — Miðflokka-
samsteypan fékk 125 af 237
þingsætum í efri deild ítalska
þjóðþingsins.
Horfur eru mjög óvissar um
úrslitin í kosningunum til neðri
deildar. Þó öllu sennilegra, að
miðflokkasamsteypan sigri. —
en með naumum meirihluta. —
Vissa um úrslit verður eigi fyr-
ir hendi fvrr en talningu er lok
ið — svo jafnir eru stjórnar-
sinnar og stjórnarandstæðingar
enn.
í neðri deild fá miðflokkarn-
ir sennilega nauman meiri-
hluta, en ekki yfir 50% kjör-
fylgi, og því ekki 43 þingsæta.
Landráðastarl kommúnista
i
landhelgismálinti.
Landhelgismálið hefur til bessa verið hafið yfir deilur
stjórnmálaflokkanna. Þjóðin hefur staðið sem einn maður
með afstöðu og aðgerðum ríkisstjórnarinnar í málinu, enda
hefur þar aldrei verið neinn bilbug að finna. Hefur verið
haldið fast og viturlega á rétti íslendinga.
En nú hafa kommúnistar, eins og vænta mátti, tekið upp
ótvíræða landráðastarfsemi í sambandi við landhelgismálið.
Reyna þeir að læða inn þeirri grunsemd, að ríkisstjórnin
sitji á svikráðum í málinu. Segja þeir í málgagni sínu á
sunnudag: „Mikil hætta er á því, að ríkisstjórnin slaki til
fyrir Bretum í landhelgismálunum eftir kosningar“. Slíkur
áróður sem 'þessi bítur ekki á íslendinga, en hann getur haft
þjóðhættuleg áhrif erlendis, þar sem vel er fylgst með öllu
sem gerist í landhelgismálinu. Þeir, sem breiða það út gegn
betri vitund, að ríkisstjórnin ætli að gefa eftir í máiinu,
verðskuida reiði og fyrirlitningu alirar þjóðarinnar. Hún
, ein getur dæmt slíka landráðamenn eins og þeir eiga skilið.