Vísir - 11.06.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 11.06.1953, Blaðsíða 1
VI «. árg. Fimmtuclagimi 11. júní 1953 129. tbl. Tvær sveitir hé5an á Nor&uriandamót í bridge. A laugardaginn fara héðan tvær sveitir bridgemanna á Norðurlandamót í bridge sem háð verður í Árósum dagana 18.—21 júní n.k. Bridgemennirnir sern f ara eru: Eggert Benónýsson, Guð- laug'ur Guðmundsson, Jóhann Jóhannsson, Kristján Kristjáns- son, Lárus Karlsson, Ragnar Jóhannesson, Stefán Stefánsson og Vilhjálmur Sigurðsscn. Fararstjóri verður Sigurður Kristjánsson frá Sig'lufirði. Norðurlandamót í oridge eru háð reglulega annao hvort ár og það síðasta var háð í Ncregi fyrir tveimur árum. Stjómmál rædd í útvarpi 23. og 24. þ. m. Ákveðið hefur verið, að út- varpsumræður verði í sambandi við kofeningarnar, svo sem tíðk- ast hefur undanfarin ár. Umræðurnar fara fram þriðjú daginn 23. júní og miðvikudag- jnn 24. júní. Verður umræðum hagað þannig, að fyrra kvöldið verða eingöngu fluttar fram- söguræður. Munu flokkarnir sex, sem boðið hafa fram við kosningar, taka þátt í umræð- unum, en enn hefur ekki verið ákveðið um tímalengd umræðn- anna, né röð flokkanna i þeim. Fær hver flokkur tiltekinn tíma, sem þeim er svo frjálat að skipta, eða nota í heilu lag'i af .einum og sama manni. 2. Slansky dæmdur. Fyrir nokkru var Richard Slansky, bróðir Rudolfs Slanskys, er var um tíma ritari kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu, dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir njósnir. Annar maður hlaut einnig ævilángt fangelsi og tveir að auki 25 ára fangelsi. AHir eru menn bcssir Gyð- ingar, svo að ofsóknunum gegn þeim er ekki alveg hætí austan járntjaldsins. Bidault féll á einu atkvæii. Vaudi IVrir Anriol. Einkaskeyti frá AP. París í morgun. Fulltrúadeild franska þjóð- þingsins felldi við atkvæða- greiðslu, er komið var fram undir morgun, að fallast á Bi- dault sem forsætisráðherra. Fékk hann 313 atkvæði, en þurfti 314 eða eitt atkvæði um- fram helming, og skorti bví að- eins eitt atkvæði, til þess að fá traustsyfirlýsinguna samþykkta Bidault hafði farið fram á, að hann feng'i sérstakt vaLd tii fjárhags- og efnahagslegra ráð- stafana. Kommúnistar og jafn- aðarmenn greiddu atkvæði gegn honum og nokkrir bing- menn úr Róttæka flokknum. í morgun var álitið að Auriol for- seti mundi ekki fara eftir venju legum reglum, er hann Jhefur viðræður að nýju við stjórn- málaleiðtogana, og leggja fast að þeim að koma sér saman um forsætisráðherrefni, svo að Frakkland geti átt fulltrúa á Bermudaráðstefnuhni. Fluttu aða í 2 slas- gær. Slökkviliðsmcnn voru tvisvar kvaddir til þess að flytja slas- aða menn í gær. Síðdegis í gær var tilkynnt, að maður hefði fallið af veið- reiðhjóli á Kópavogshálsi, r.eð- an við Álfhólsveg. Slökkviliðs- menn fóru á staðinn í sjúkra- bíl, og fluttu hjólreiðamanninn, Hlöðver Jóhannsson, í Lands- spítalann, en hann liafði meiðzt á höfði. Þá var beðið um sjúkrabíl að húsinu nr. 3 við Þórsgötu, en þar var fyrir maður að nafni Þórarinn Kristjánsson. Var talið sennilegt, að hann væri fótbrotinn, og var hann fluttur í Landsspítalann. Ekki. voru slökkviliðsmemi kvaddir út í gær vegna elds- voða, ef frá er talin skyndi- heimsókn þess í Múlakamp, þar sem pottur á eldavél hafði of- hitnað. Skemmdir urðu ekki teljandi. - - 2 Atlantsmet „iáguT sama dagiitn. Þrýstiloftsflugválar hrundu báðum metunum. Brezk og amerískar flug- tvær Canberra-vélar þessa leið Kommúnistar í A.-Þýzkalandi reyna að fá fióttamenn til að snúa aftur. Anthony Eden, utamíkismálaiáðberra Breta, sést hér stíga út úr flugvél í Boston, en þangað er hann korninn til þess að gangast undir uppskurð vegna gallblöðrusjúkdóms, sem lengi hefur þjáð hann. Rauðliðar eiga að draga úr hnjóðsyrðunum. leíðbeiningar gefnar út vegna þess. í fregnum erlendra blaða segir frá 'því, að í A.-Þýzka- landi hafí verið gefinn út bæklingur með leiðbeiningum um orðbragð manna gagnvart lýræðísþjóðunum. Alls eru 178 orð og orðatil- tæki „tekin af dagskrá“ um tíma, og er þar einungis um hnjóðsyrði að ræða, og gilda reglur þessar, „þar til annað kann að verða ákveðið". Meðal orða þeirra og orðasambanda, sem bannað er að nota í ræðum framvegis má nefna: ,K.apitalistiskir þ.ræla- haMarar“; „kapitalista- skepmir"; „hebnsveldissinn- aðar blóðsugur“; „vestrænir batulítt.ar“; „fjöldamorðingj- ar og brennuvargar“; „fjöidaslátrarar"; „peninga- hýenur“; „auðvaldssvín“; „stéttasníkjudýr“; „hræ- æíur“ og „dreggjar þjóðíe- ... lagsins”. Það~er vitanlega hin nýja stefna eða’ sýndarstefna Rýssa. gagnvart lýðræðisríkjunum, sem gerir það nauðsynlegt, að undirtyllurnar og flugumenn- irnir breyti um tön eins og hús- bændumir, og sumir þykjast jafnvel hafa orðið varir við ein- hverja breytingu á orðbragði Þjóðviljans. En þetta er, eins og tekið er fram í bæklingnum, aðeins til bráðabirgða, eða þar til komið verður í Ijós, hvort fagurgali og blíðmælgi koma að gagni. ■t Lofa borgararéUmdtitn, afbendingu eigna o. iL Játað, að músíök ha£i átt sér stað. Einkaskeyti frá AP. Berlín í morgun. í Austur-Þýzkalandi hefur kommúnistaflokkurinn birt til- lögur, sem sýna fráhvarf fr® fyrri stefnu. Er og berlega játað í yfirlýs- ingunni, að mistök hafi átt sér stað, sem hafi leitt til þess, að fjöldi manna hefur flúið land. Tillögurnar eru sagðar born- ar fram til þess að bæta sam- komulagið við Vestur-Þýzka- land og' til þess að skapa em- ingu. Lagt er til við ríkisstjórn- ina, að flóttamenn verði hvattir til þess að koma heim, og þeint lofað, m. a.: 1. Fullum borgaralegum rétt- indum, 2. eignum, sem upptækar voru gerðar, verði skilað aftur. 3. Fangar, sem dæmdir hafa verið fyrir afbrot gegn rík- inu, í þriggja ára fangelsí. eða minna, verði náðaðir. 4. Þeir, er sviptir voru skömmt unarbókum, fái þær að nýju. Tekið er fram, að ekki skuli horfið frá samyrkjubúskapar- stefnunni. Áður hafði austur-þýzka rík- jsstjórnin birt yfirlýsingu um, að sættir hefðu tekizt milli hennar og Mótmælendakirkj - unnar, og samkomulag gert í ýmsum atriðum. Samkvæmt því hættir ríkis- stjórnin áróðri og ádeilum á hendur kirkjunni og m. a. af- skiptum af æskulýðsfélögum hennar, en kifkjan lofar hins végar að hafa ekki afskipti af í stjórnmálum. vélar settu í sl. viku met í At- lantshafsflugi — sú brezka frá austri til vestur, þær amerísku frá vestri til austurs. Brezka flugvélin—Canberra- vél, sem seld hafði verið til Venezuela og var á leið þangað til afhendingar — flaug frá Warton í Lancashire til Gander á Nýfundnalandi á 4:26 klst., og var meðalhraðinn 820 km. á klst. Fyrra metið á þessari leið var sett 1 maí, en þá flugu með 790 km. meðalhraða. Amerísku vélafnaK..fJugtKl5 í hóp frá flugvelli í Maine 'T - norðausturhorni Bandaríkjanna — til Fairford í Gloucesters-' hire, rúmlega 5000 km. leið, á 5:26 klst. Meðalhraðinn var um 930 km. á klst. Tveir 15 flug - véla hópar höfðu áður flogið þessa leið, en sá síðasti vai' skt-pf -i R.nngo-oíí (AP). — í haust 'verður byrjað að úthluta jarð- næði £ Burma og koma 4 millj. ha. til skipta. Það mun ekki taka minna en tíu ár að skiþtá landfiæmi þessu öllu milli bænda, og verður fljótastur. Þessar vélar voru af1 80,000 hekturum skipt á þessu gerðinni B-47, sem eru búnar j ári. Milljónir manna munu sex hreyflum. i njóta góðs af þessu. Fyrir hvern vinnur Aki? Kunnugir fullyrða, að hann vinni nú gegn kommúnistum. „Tímarnir breytast og mennirnir með“, segir máltækið, og nærtækasta dæmið að þessu Ieyti í íslenzkum stjórnmál- um um þessar mundir eru upphefð og fall Áka Jakobssonar. Árum saraati hafði Áki verið einhver áhrifamesti maður kommúnistaílokksins, og þegar flokkurinn varð þátttakandi í ríkisstjórn í lok styrjaldarinnar, var hann settur í ríkis- stjórnina með sjálfum forsprakkanum, Brynjólfi Bjarnasyni. Þá gekk ekki hnífurinn á milli Áka og annarra harðsvíraðra kommúnista, og þaunig var þetta árum saman eða þar til á því liérrans ári 1952. Þá gerðist það, að Aki vildi skyndilega hafa heknild til bess að hafa sjálfstæða skoðun á málunum, og það varð til þess að upp úr sauð og lauk með-því, að hann var settur út af sakramentinu og NÚ ER HANN EKKI LENGUR í FKAMBOÐI FYRIR KOMMÚNISTA. Fyrst eftir að ljóst varð, að Áki fengi ekki að vera í framboði, var talið, að hánn mundi reyna að sýna iðrun sína og leita eftir fyrirgefningu með því að styðja hinn gamla flokk sinn þrátt fyrir allt. Síðar kom greinilega í ljós, að hann ætlaði að verða hlutlaus. En nú fullyrða þeir, sem eru honum kunnugir, að liann vinni gegn kommúnistaflokknum, og er honum þá víst ekki uppreisnar von á h\á kærleiksheimili framar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.