Vísir - 24.06.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 24.06.1953, Blaðsíða 1
VI 43. árg. Miðvikudaginn 24, júní 1953 139. tbl. Hvað veit Gylfi um fram- boð Þjóðvamarflokksins ? Er framboð Alþýðuflokbmanns í N.-Þing- eyjarsýslu ráðið með vltund hans og vilja? Nokkru eftir síðustu áramót gekk maður að nafni Her- mann Jónsson í Alþýðuflokkinn. Er maður þessi fulltrúi Fjárhagsráðs hjá verðgæzlustjóra. Að því er bezt er vitað, er maður þessi enn í Alþýðuflokknum, en hann á fleiri strengi á hörpu sinni, því að hann er frambjóðandi Þjóð- varnarflokksins í Norður-Þingeyjarsýslu. Er fullyrt af þeim, er kunnugir eru í völunarhúsi því, sem heitir miðstjórn Alþýðuflokksins, að framboð Hermanns sé ráðið með vitund sumra þeirra manna, er þar eru hvað umsvifamestir, og jafnvel með vilja þeirra. Vegna þess, er eftirfarandi spurning lögð fyrir Gylfa Þ. Gíslason, sem er ritari Alþýðuflokksins. ER ÞAÐ MEÐ VITUND YÐAR, AÐ HERMANN JÓNS- SON, FULLTRÚI FJÁRHAGSRÁÐS HJÁ VERÐGÆZLU- STJÓRA, ER í FRAMBOÐI FYRIR ÞJÓÐVARNARFLOKK- INN í NORÐUR-ÞINGEYJARSÝSLU? Svar óskast hið bráðasta, því að ekki má blettur falla á hinn hreina skjöld Gylfa. Rðritdafirfur spifia kartöfiu- ‘ grasi. Vísir hefir spurt Geir Gígju náttúrufræðing, hvort nokkurs staðar hefði orðið vart við gras- maðk í ár. Kvaðst hann ekki vita til þess, en fiðrildalirfur, skyldar grasmaðki, hefði valdið spjöll- um á kartöflugasi á einum bæ undir Eyjafjöllum. Fiðrildalirfur þessar eru ekki eins skæðar og venjulegur gras- maðkur. Þeirra varð vart í tún- inu á umræddum bæ, en þar höfðu kartöflur verið settar í flag, en þegar lirfurnar fóru í „hungurgöngu sína“ varð kar- töfluflagið fyrir þeim. — Gerð- ar hafa verið ráðstafanir til þess að eyða þeim með sérstökum lyfjum, en um árangurinn af því var ófrétt, er blaðið átti tal við Geir Gígju. Rhee hefir í hótunum. Tokyo (AP). — Syngman Rhee forseti Suður-Kóreu hefur látið birta bréf, sem hann skrif- aði Mark Clark hershöfðingja s.i. sunnudag. Bréfið var birt í morgun. í bréfi þesu tilkynnir Rhee hershöfðingjanum, að her Suður-Kóreu verði tek- j inn undan herstjórn Sam- einuðu þjóðanna, ef fallist verði á vopnahiésskilmála þá, sem nú er um rætt. Þetta er Otto Nuschke, varafór- sætisráðherra Austur-Þýzka- lands, er beiddist verndar í Vestur-Berlín. Svo bregðast krosstré... London (AP). — Skipstjórinn' á pólska hafskipinu Batory varð eftir af skipinu, er það hafði viðdvöl í brezkri höfn í vikunni, og hefur beðið um landvistár- leyfi sem pólitískur flóttamað- ur. Fregnin um þetta hefur vakið geysimikla athygli, ekki sízt vegna þess að skipstjórinn er víðkunnur og var heiðraður af bandamönnum á stríðsárunum fyrir frammistöðu sína. Brezku blöðin telja, að áróðursstarf- semi kommúnista verði mikill hnekkir að ákvörðun skipherr- ans. ■ Batory er mesta kaupskip Pólverja. Fjártnálastjórn -Sjáifstæðismanrsa: Árin 1940-49 jukust eign- ir ríkisins um 164 miilj. * A fyrsta ári Eysteins mynduðust erl. skuldir að upphæð 76 milij. kr. Frámsóknarmenn tala digurbarkalega um það, að fjár- málastjórn Sjálfstæðismanna 1940—1949, hafi farið svo illa úr hendi, að öllu hafi verið éytt, og þeir hafi skilið við rikis- sjóð á barmi gjaldþrots. Allt er þetta blekkingar og ósann- indi. Á því tímabili sem Sjálfstæðismenn fóru með fjármálin JUKUST EIGNIR EÍKISSJÓÐS UM 164 MILLJÓNIR KRÓNA, svo sem hér segir: Jakob Möller........ 1940—42, aukning: 38 millj. Björn Ólafsson ..... 1943—44, — 43 — Pétur Magnússon ..... 1945—47, — 52 — Jóhann Þ. Jósefsson .... 1948—49, — 31 — Aldrei hafa eignir rikisins, síðan íslendingar tóku fjár- málin í sínar hendur, aukist meira á nokkru tíu ára tímabili en á árunum 1949—49, er Sjálfstæðismenn fóru með fjár- málin. Björn Ólafsson sagði upp öllum erlendum lánum ríkissjóðs 1944, nema dönskum vegna hernáms Danmerkur. Þegar Pétur Magnússon lét af störfum fjármálaráðherra voru erlendar skuldir ríkissjóðs aðeins 4.8 millj. ísl. kr. og hvergi nema í Banmörku. Þegar Jóhann Þ. Jósefsson lét af störfum 1949 höfðu bæzt við enskt lán 7,2 millj. vegna togarakaupanna og 18,7 Marshall-lán vegna fiskimjölsverk- smiðja. Þetta sýnir varfærna og góða fjármálastjórn, og færi betur, að Eysteini tækist að feta í fótspor ofangreindra manna. Þá faefðru Framsóknarmenn af einhverju að státa. Eftir að Eysteinn hafði verið EITT ÁR í embætti fjármála- ráðherra höfðu erlendar skuldir ríkissjóðs aukist UM 76 MILLJÓNIR KRÖNA. Dágóð byrjun. Þrír bræður leita 2ja bræira. ifátiarífiist, sern lýst var eftir, komst Bi|álparlaust að lamdi. land, fengin til þess að leggja lykkju á leið sína og vita, hvort I gærkveldi lýsti Slysavarna- félagið eftir opnum báti í út- varpinu. Höfðu bátverjar farið hún yrði ekki bátsins vör. í róður í gærmorgun, en voru Flugmennirnir tilkynntu litlu ókomnir að landi seint í gær- síðar að þeir hefðu séð lítinn kveldi. Bátur þessi, sem mannaður var tveim mönnum, hafði far- ið héðan um tíuleytið í gær- morgun. Á honum voru bræð- urnir Sigurður og Yilberg Sig- urðssynir frá Selbrekkum við Vesturgötu og var ferð þeirra heitið á handfæraveiðar úti á Flóa. Töluvert hvassviðri gerði, er á leið daginn, og þegar bátur- j ur í leitina. Fór hann héðan um inn kom ekki að landi í gær- j eittleytið í nótt, en þegar hann kveldi var tekið að óttast um var skammt á veg kominn, eða bát, er. væri á leiðinni til hafn- ar. Var þá talið, að um einn og sama bát væri að ræða, en skömmu síðar kom upp úr kaf- inu, að þessi bátur var allt ann ar og stærri miklu en sá, sem að var leitað. Þegar báturinn var ókominn að landi um miðnæturleytið, var bátur mannaður og sendur í leitarför. Var þetta m.b. Happa sæll og fóru á honum þrír bræð hann og Slysavarnafélagið beð- ið aðstoðar. Bað það báta og skip, er stödd kynnu að vera rétt út fyrir eyjar, varð hann hins týnda báts var, sem var þá á leiðinni til lands og allt í á þessum slóðum að svipast um j fullkomnu lagi með hann. eftir bátnum, og ennfremur var Munu þeir félagar hafa komið flugvél, sem ætlaði norður í til hafnar um tvöleytið í nótt. Blekking eða fávizka. Alþýðubl., sem jafnan er bert að fáfræði í öllum efna- hagsmálum, hefur haldið því 1 fram undanfarið að 38% af innflutningnum hafi verið á frílista síðastliðið ár, en 62% hafi verið háð leyfum. Þetta sýnir aðeins hina takmarka- lausu fáfræði blaðsins, sem með þessu er að reyna að gera lítið úr því viðskipta- frjálsræði, sem fengizt hefir í tíð núverandi stjórnar. Það er ekki að furða, þótt lcrötum sámi, hvað vel hefur geng- ið að útrýma svarta markað- inum, sem spratt upp einsj og fífill í túni, meðan krat- arnir höfðu stjórnarforustu og höfðu viðskiptamálin í sínum höndum. Samkvæmt athugun Hag- stofunnar skiptist innflutn- ingur síðasta árs þannig, að 69.7% af vörunum voru á frílistum en 30.3% háðar ieyfum. Ef Alþýðublaðið óskar að rengja þessar tölur og rugla þeim saman við tölur um gjaldeyrissölu, sem blaðið ber ekkert skyn á, þá má það gjarna halda vitleys- uuni áfram. Mínnsta flugvél í Atlants- fhigi kom bingað í nótt. Er með aðeins 90 hs. hreyfli Laust fyrir kl. 2 í nótt lenti lítil einkaflugvél á Reykjavík- j urflugvelli, en út úr henni sté Peter Gluckmann, úrsmiður frá San Francisco, en hér hefur hann viðdvöl á leiðinni San Francisco—London. í nótt kom Gluckmann frá flugvellinum Bluie West One á Grænlandi, og hafði hann þá verið 10 stundir og 40 mínúturj á lofti. Hann flýgur tveggja manna Luscombe-vél, sem hef- ur 90 hestafla hreyfil, og mun þetta vera minnsta flugvél, sem fer yfir Atlantshaf. Tíðindamaður Vísis átti tal við Gluckmann í morgun í her- bergi hans á Hótel Borg, og intni hann fregna af þessu djarf lega tiltæki hans. Peter Gluck- mann er 27 ára gamall, fæddur í Þýzkalandi, fluttist frá heima- landi sínu fyrir stríð, ásamt for- eldrum sínum, til London, þar sem þau eiga heinia, en sjálfur , bjó hann þar um níu ára skeið, þar til hann fluttist vestur til j San Francisco, og er hann nú ^ bandarískur borgari. Hann er | úrsmiður að atvinnu, og rekur j verzlun við Port Street nr. 233 í þeirri borg. Luscombe-vélina á hann sjálf ur, og hann er alger áhugaflug- maður, hefur verið samtals um 650 stundir á lofti. Nú langaði hann til að heim- sækja foreldra sína í London, sté því upp í flugvél sína í San Franeisco hinn 5. þ. m., flaug síðan um Oklahama, Michigan, Kanada (Ontario og Quebec) til Labrador (Goose Bay), Græn- land, og er nú hingað kominn, eins og fyrr greinir. í Grænlandi var hann véður- tepptur í 9 daga, en leidaist þófið, og lagði af stað í gær, enda þótt veðurútlit hafi verið óhagstætt. Lá honum á, því að hann verður að vera kominn til Framh. á 2. siðu. 100.000 mutiaðarleys* ingfar s Kóreu. N. York (AP). — Ameríska Kóreustofnunin hefur gefið út skýrslu, sem sýnir að í Kóreu eru nú um 100,000 munaðar- laus börn. Er talið, að 100 af hverjum. 1000 lifandi fæddum börnum í N.-Kóreu deyi mjög ung, og 75 af þúsundi í S.-Kóreu. Urn 40,000 böigi eru í barnaheimil- um, en 10.000 eiga hvergi skjól yfir höfuðíð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.