Vísir - 07.07.1953, Qupperneq 1
43. árg.
Þriðjudagúm 7. júlí 1953
150. tbl.
Schjeiderup heimtar úr-
skurð um helvíti!
Eu kirkjumálaráðunejtið vill láta
úrskurðinn bíða, unz kwlnar í veðri.
Frá fréttaritara Vísis —
Osló 30. júní.
Hallesby prófessor og helvít-
iskenningar hans hafa valdið
feikna umræðum í Noregi í
vetur.
Útvarpsræðu hans hefur
áður verið getið, en þótt hún
þætti allrosaleg, keyrði samt
fvrst um þverbák, þegar hann
prédikaði í lítilli sveitakirkju,
sem var troðfull af fólki.
Prófessorinn benti þá ógn-
andi út á kirkjugarðinn og
sagði: „Eg fullvissa ykkur um,
að fjöldi þeirra, sem hér eru
grafnir, hafa hlotið dvalarstað
í helvíti". Þar eð ættingjar, vin-
ir og afkomendur þeirra, sem
jarðaðir höfðu verið í kirkju-
garðinum, hlýddu messu, þóttu
þeim þetta nokkuð harðir kost-
ir.
Schjelderup Hamarsbiskup
hefur opinberlega andmælt
helvítiskenningu Hallesby, en
Hallesby situr við sinn keip.
Nú hefur Schjelderup ritað
kirkjumálaráðuneytinu bréf og
farið þess á leit að- það skeri
úr því, hvort helvítiskenningin
eigi að vera grundvallur norsku
Eldsumbrot á
hafsbotni.
Fólk flutt frá eyjum
norðan l\i.-Guineu.
Pt. Moresby (AP). — Mikil
eldsumbrot hafa orðið á hafs-
ibotni fyrir norðan Nýju Guineu.
Hafa umbrotin orðið innan
um Admiralty-eyjarnar, en þar
sem þær eru allar með eld-
fjöllum hefur verið gripið til
þess ráðs að flytja á brott íbúa
næstu eyja — nærri 3000 manns
— ef eldfjöllin á þeim skyldu
byrja að gjósa líka. Sjórinn er
á stóru svæði alþakinn vikri,
sem komið hefur upp af sjáv-
arbotni, og dauðir fiskar fljóta
í þúsundatali innan um vikur-
inn. Er hans vegna illfært á
þessum slóðum öðrum skipum
en þeim, sem eru vélknúin, auk
þess sem siglingar eru stór-
hættulegar vegna umbrotanna,
sem staðið hafa all-lengi.
kirkjunnar. ítáðuneytinu þyk-
ir óþægilegt að þurfa að skera
úr slíku og hefur fyrst um
sinn afsakað sig með því, að
um þetta verði ekki hægt að
taka ákvörðun í sumarhitanum
— það verði að bíða þangað
til sumafleyfum ljúki.
Þing fylkismanna hefur ein-
róma tjáð Schjelderup biskupi
þakkir fyrir afstöðu hans í
helvítismálinu og allur al-
menningur fylgir honum að
málum. Hinsvegar berjast
Hallesbymenn fyrir varðveizlu
helvítis af miklu kappi og
telja menninguna og móralinn
í bráðri hættu, ef helvítistrú
verði afnumin. Hammerlund,
hinn þekkti skopteiknari, hef-
ur teiknað mynd af hliði hel-
vítis í Dagbladet og stendur
undir myndinni. „Lokað vegna
sumarlevfa."
Mynd þessi er af meðlimum úr Gamo hreyfingunni í Indó-Kína, en sú hreyfing berst gegn
kommúnistiskum áhrifum. Hafa menn úr Gam o verið sendir til svæða, sem Vietnam hefur
leyst undan oki Vietmin, til þess að vinna gegn kommúnistum.
Þýzkir klífa
Nanga Parbat
Bonn (AP). — Heuss forseti
Vestur-Þýzkalands, heíur sent
heillaóskaskeyti til þýzkra og
austurrískra fjallgöngumanna,
sem kiifið hafa Nanga Parbat,
sem er í Himalaya og eitt af
hæstu fjöllum jarðar.
Fregnir um þessa fjall<fngu
bárust í gær frá Karáohi í
Pakistan, en Pakistanar tóku
þátt í leiðangrinum.
Fjallið er 8120 metrar á hæð.
Láta ekki aur og
svað á sig fá.
Tokyo (AP). — Kínverjar
hófu óvænt harðar árásir í nóít
á miðvígstöðvunum og tefldu
fram 2000 manna liði.
Úrhellisrigning var og feikna
aur og leðja á vígstöðvunum,
en árásarmenn létu það ekki
aftra sér frá að gera áias. —
Báðir aðilar sendu varaiið á
vettvang.
Enn var barist er síðast
fréttist. Flugvélum vei'ður ekki
beitt eins og sakir standa veó'-
urs vegna.
Vesturveldin krefjast afnáms allra
hafta, er sett voru 17. júní og síðar.
Laxveiði lítil, þótt að-
stæður sé að ýmsu góðar.
Laxveiði hefur verið heldur
treg í sumar, að sögn Alberts
Erlingssonar í Veiðimanninum,
sem er nýkominn að norðan, og
fór allt norðnr að Laxá í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu.
Kvað hann aðeins hafa verið
reytingsveiði það, sem af er
laxveiðitímanum, miklu minni
en undanfarin ár. í fyrra — og
hitt eð fyrra sumár var góð
laxveiði og sumsstaðar ágæt,
þrátt fyrir þurrka og lítið
vatnsmagn í ánum. Nú væri all-
mikið vatnsmagn í öllum lax-
veiðiám, en þrátt fyrir það og
að aðrar aðstæður til laxveiða
væru ágætar, væri lítil veiði.
Er allsstaðar sömu sögu um
þetta að segja.
í ám, þar sem stangaveiði
hófst 1. júní lýkur henni 31.
ágúst, en þar sem hún byrjar
15. júní lýkur henni 15. sept. —
Laxveiði í net í jökulám byrj-
aði 20. maí og lýkur 20. ágúst.
Hefur netjaveiði einnig verið
lítil það aí er.
Það voru kúgun og
mistök, sem orsök-
uðu uppreistina.
Bjarlsýni um
Wasliington-
fundinn.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Hérnámsstjórar Vesturveld-
anna í Berlín hafa sent her-
námsstjóra Rússa skorinorða
orðsendingu.
Þar segir m. a. svo: Það var
örvæntingin, sem gripið hafði
fólkið vegna kúgunar og mis-
taka stjórnarvalda Austur-
Þýzkalands, sem varð þess vald
andi, að fólkið reis upp hinn
17. júní s.l., og fyrir þessu eru
nægar sannanir í tilkynningum
stjórnarvaldanna sjálfra, i til-
slökunartilkynningum og á-
vörpum, þótt reynt sé að skella
skuldinni á áróðursmenn og er-
indreka Vesturveldanna.
Þetta er eitt af því, sem hald-
ið er fram í þriðju orðsending-
unni, sem hernámsstjórarnir
hafa sent hernámsstjórn Rússa
til þess að krefjast þess, að af-
létt verði þegar öllum hömlum,
sem settar voru á umferð milli
Austur- og Vestur-Berlínar
vegna óeirðanna 17. júní og
dagana þar á eftir.
Hernámsstjórarnir endurtaka,
að þeir vilji af alefli stuðla að
því, að velvild skapist og góð
samvinna, er verði grundvöllur
að því, að hægt verði að sam
eina landið og skapa einingu
þjóðarinnar.
Bjartsýni um
Washingtonfundinn.
Meðal Vesturveldanna ríkir
nú bjartsýni um árangur af
Washingtonráðstefnunni, sem
hefst næstkomandi föstudag. —
Hún er haldin í stað Bermuda-
ráðstefnunnar, sem fresta varð
vegna lasleika Churchills. Þar
verður eitt höfuðviðfangsefnið
að skapa einingu Vesturveld-
anna um Þýzkalandsmálin. —
Sir Roger Makin, sendiherra
Hreindýr Lappa
deyja af hita.
Frá fréttaritara Vísis —
Osló 30. júní.
Síðast liðinn hálfan mánuð
hafa verið. miklir hitar á öllum
N or ðurlöndum.
Ber öllum saman um að
annað eins sumar hafi ekki
komið síðan hitasumarið mikla
1947. í Noregi hefur hitinn ver-
ið 24—31 gráða. í Danmörku
var 29 stiga hiti sl. sunnudag.
Grasspretta er ágæt í Noregi
og eru bændur nú sem óðast
að hirða hvanngræna töðu af
túnum. í Lapplandi valda hit-
arnir tjóni, því að hreindýrin
þola þá ekki og deyja unn-
vörpum úr hita.
12 st. hiti
hér kl. 9.
Horfur eru nú vænlegri um
þurrk, þar sem norðaustlæg átt
er um land allt, að kalla þurrt
veður víðast, og ekki líklegt að
breytist næstu dægur a. m. k.
Yfirleitt er kalt norðanlands
og allhvasst, enda geta síld-
veiðiskipin ekki stundað veið-
arnar eins og er.
Hiti er 7—12 stig. í Reykja-
vík var 12 stiga hiti kl. 9 í
morgun, en á Akureýri 9.5. —
Á Raufarhöfn var hiti 7.5 stig
— Skýjað er um land allt, víð-
ast úrkomulaust, nema sum-
staðar dálítill úði.
„Fossi" hleypt af
stokkum 13. ágúst n.k.
Langt er nú komið smíði ánn-
ars skipsins, sem Eimskipafélag
íslands hefur í smíðum hjá
skipasmíðastöð Burmeister &
ðVain í Kaupmannahöfn og
verður því hleypt af stokkun-
um 13. ágúst n. k.
Skip þetta verður 1700 þunga
lestir að stærð og á afhending
þess að fara fram 8. október
n. k.
Hitt skipið er allmiklu stærra,
eða 2500 þungalestir að stærð,
og á afhending þess að fara
fram í febrúarmánuði n. k.
Bæði skipin eru afturbyggð
og með áþekku byggingafyrir-
komulagi og Tröllafoss og Sel-
foss. Þau eru ætluð til hvers
konar almennra vöruflutninga
bæði innanlands og eins milli
landa og eru einkar héntug í
því skyni. Eru þau útbúin öll-
um fullkomnustu lestunartækj -
um og með stórum lestaropum.
Enn fremur er það kostur við
þau, að þau eru grunnsigld.
Breta í Washington, sagði
ræðu í gær, að hann væri þess
fullviss, að árangurinn af Was-
hingtonráðstefnunni yrði ný
eining og samhugur allra hinna
frjálsu þjóða, um lausn vanda-
málanna.
Fulltrúar Frakka og Breta,
sem að heiman fara til þátt-
töku í fundinum, leggja af stað
á morgun.
Umferðaslys
Skólavörðustíg.
Um sjöleytið síðdegis í gær
var hringt á lögreglustöðina frá
Landspítaianum og tilkynnt, að
komið hafi verið þangað nokkru
áður með slasaðan dreng, sem
lent hafi í bílslysi.
Drengur þessi, Örn Bjarnason
Skólavörðustíg 40, þrettán ára
að aldri, hafði lent fyrir bíl á
Skólavörðustígnum og bíllinn
haldið áfram án þess að sinna
hinum slasaða, enda víst að bif-
reiðarstjórinn hafi oröið' slyss-
ins var.
Sjónarvottur flutti Örn á
Landspítalann, en hann hafði
skorizt töluvert og. voru sáv
hans saumuð saman á sjúkra-
húsinu.