Vísir - 17.07.1953, Síða 1

Vísir - 17.07.1953, Síða 1
43. árg. Föstudaginn 17. júlí 1953. 159. thl* Höfðingleg gjöf til Skálholtsfélagsins. Ðr. Björn Þórðarson, fyrrv. forsætis- ráðherra, gefur sögulegan ritling. Dr. juris Björn Þórðarson, fyrrverandi forsætisráðherra, afhenti Skálholtsfélaginu í gær að gjöf prentaðan ritling, sögu- legs efnis, „Móðir Jóru bisk- upsdóttur“. Verður hann seldur til ágóða fyrir endurreisn Skálholtsstað- ar, en félagið hefur að marki, sem kunnugt er, endurreisn þessa fornfræga sögustaðar. Er þetta hin bezta gjöf, sem ber vitni höfðinglyndi gefand- ans, og einlægan áhuga hans fyrir, að félagið nái hinu göf- uga marki, ér það hefur sett sér. Jóra var dóttir Klængs biskups. Er ritgerðin skemmti- leg og fróðleg söguleg lýsing. Ritlingurinn er 4 arkir prént- aðar og hefur höfundurinn aí- hent hann félaginu fullbúinn til sölu, því algerlega að kostn- aðarlausu. Upplagið er ekki ýkja mikið, og mætti ætla að færri fengju en vildu, þar séíri ritlingúrinn er hinn eigulegasti, en auk þess mun það mörgum hvatning að kaupa hann til stuðnings hinu góða rriáli, sem félagið hefur á stefnuskrá sinrii. Verður ritlingurinn til sölu á Skálholtshátíðinni, sem hald- in verður næstkomandi sunnu- dag, en þann árlega sið héfur félagið upp tekið, að efna til hátiðarsamkomu í Skálholti þann sunnudag, sem næstur er Þorláksmessu á srimri, en hún er 20. dag júlímánaðar. Mjög er vandað til alls und- irbúnings hátíðarinnar. Messu- gerðina annast vígslubiskupinn dr. Bjarni Jónsson og dr. theol. síra Friðrik Friðriksson, en Kirkjukór Eyrarbakkakirkju syngur. Að messugerð lokinni verður útisamkoma og verður þar m. a. fluttur sögulegur leikþáttur. Veitingar verða í skála, sem Skálholtsfélagið hef ur látið reisa, en ferðir austur verða frá Ferðaskrifstofunni. Mynd þessi, sem tekin var í Alþingishússgarðinum í gær, sýnir alla fulltrúana, er sitja fund nonrænu félagsmálaráðherranna, sem nú er haf/nn hér í bæ. (Ljósm.: P.”Thomsen), SVF-sveitin fræga „Bræöra- bandiö" 20 ára í þ. mánuðL „Guðrúnarbúð“ \igð og afmæiisins minnst vestra 26. júlí. Borcfeauxhiti í M.-Svíþjoð. St.hólmi. — Hitar voru meiri í N.-Svíþjóð í júní en nokkru simni fyrr. í borginni Haparanda varð meðalhitinn til dæmis 17,5° C., en það er meðalhitinn í Bord- eáux í Frakklandi. Þurrkar og sólfar var meira í nær allri . Svíþjóð en venja er í júní. — (SIP). ' Á þessu sumri á 20 ára af- mæli hin víðfræga slysavarna- deild ,Bræðrabandið“ í Rauða- sandshreppi, Barðastrandar- sýslu. Verður afmælisins minnzt sunnudaginn 26. þ. m. við skip- brotsmannaskýlið nýja, „Guð- rúnarbúð“. Formaður Bræðrabandsins er sem kunnugt er Þórður Jóns- son og við hans stjórn og for- ystu, oft í miklum mannraun- um, hefir hún getið sér frægð- arorð, og hróður hennar farið um nágrannalöndin og víðar. Eitt mesta afrek hennar var björgunin, er brezki togarinn „Dhoon“ strandaði við Látra- bjarg, en kvikmynd — „Björg- unin við Látrabjarg“ — var gerð síðar til þess að lýsa því afreki, og átti Þórður þar mest- an hlut að öllu, nema sjálfri kvikmyndatökunni, en hana framkvæmdi Óskar Gíslason Ijósmyndari. Kvikmynd þessa sýndi Jón Oddgeir Jónsson er- indreki í Færeyjum, hún var og sýnd í Danmörku og Englandi, og vakti mikla athygli, og auk þess var kvikmyndin, nokkuð stytt, sýnd í öllum slysavarna- deilöum Noregs. ' ’« ' ■ „Guðrúnarbúð“. SMpbrotsmannaskýii þetta er reist í Keflavík í Rauðasands- hreppi af kvennadeild Slysa- vanrafélagsins í Rvk., og ber skýlið nafn formanns deildar- innar, frú Guðrúnar Jónasson, sem með óþreytandi elju og á- huga hefir barizt fyrir slysa- vamaraálunum alla . tíð. Þarna verður mikið um hátíðahöld, afmælis Bræðrabandsins minnzt og hið nýja skýli tekið í notk- un. Má gera ráð fyrir, að þar verð margt um manninn. Þar mun verða að forfallalausu for- seti Siysavarnafélagsins, Guð- bjartur Ólafsson og fleiri héð- an. FuncÉur hinna „stó?u“ kemitr enn til greina. London (AP). — Hugmynd ChurchiIIs um fund æðstu inanna f jórveldanna hefur ekki verið lögð á hiiluna, sagði Butl- er f jármálaráðherra í neðri mál stofunni í gær. Butler hefur nú stjórnarfor- ýstuna með höndum í veikinda- 1 forföllum Churchills. Sagði Butler þetta, er hann svaraðíj fyrirspurn þingmanns úr Verk lýðsflokknum, sem kvað mests árangurs að vænta, ef höfuð-1 leiðtogar fjórveldanna kæmu saman á fund. — Butler sagði,1 að sú skoðun hefði orðið ofan á, að leggja fyrst til að utan- ríkisráðherrarhir kæmu saman í septemberlok, og yrði það þá m. a. hlutverk þess fundar. að taka ákvörðun um hvort leggja skyldi til, að höfuðleiðtogarnir kæmu saman síðar. London (AP). — Sabre þrýsti loftsvél hefur sett nýtt hraða- met, sem bíður staðfestingar. Náði hún 1129.6 km. hraða á klst. Metið var sett í Kali- forníu. ur ágengt. Einkaskejrti frá AP. Tokyo í morgun. Gagnsókn 45.000 manna liðs Sameinuðu þjóðanna í Kóreu er haldið áfram í grennd við Kumhwa og á þéim slóðum, og liefur. nokkur árangur náðst. Suður-Kóreumenn hafa sótt fram um 1.6 km. og aðrar her- sveitir einnig, en nokkru skem- ur. — Kommúnistar tefldu fram 10.000 manna liði á nýj- um stað, en sú framsókn var stöðvuð með stórskotahríð. —- Stórskotalið Sameinuðu þjóð- anna lætur mjög.til sín taka í gagnsókninni og mikluin loft*s árásum er haldið uppi á lið og stöðvar kommúnista. Flugvirki Bandaríkjanna frá Okinawa hafa gert einhverjar mestu næturárásir sínar í styrj- öldinni til stuðnings í gagn- inni. Manntjón Kínverja s.I. viku er áætlað 21.000 — og er það eitt mesta manntjón þeirra á einni viku í meira en ár. Klettaf jallaskáldinu reistur minnisvarði á Vatnsskarði. Verdur úr fförugrjóti og studlabergi með eirmyndum. Ríkarður Jónsson inynd- höggvari er íyrir nokkru far- ism norður í Skagaf jörð, en þar verður afhjúpaður næstkom- andi sunnudag, í Vatnsskarði, miimisvarði til minningar um Skagfirðinginn Stephan G. Stephansson Kiettafjallaskáld. Sér Ríkarður um verkið, en það eru ungmennafélögin í Skagafirði, sem hafa beitt sér fyrir því, að minning Stephans væri heiðruð með þessu móti. Verkinu hefur verið hraðað, til þess að viðstödd gséti verið frú Rósa Benediktsson, dóttir skáldsins, en. hún kom sem kunnugt er með vestur-ísíenzka flokknum, og fer vestur með honum aftur 26. þ. m. Minnisvarðinn er hlaðinn úr fjörugrjóti og stuðlabergi, og er á þriðja metra á hæð. Hann er reistur á Arnarstapa í Vatns- skarði, en þaðan sér yftt yfir hið gróðurríka og fagra Skaga- fjarðarhérað. Táknmyndir úr eir verða á hliðum varðans með áletrunum úr kvæðum Kletta- fjallaskáldsins. Búist er við, að þarna verði mikið fjölmenni saman komið, ,úr Skagafirði hvaðanæva og víðar að. Meiri afti viS Langar.es í nött, en veriS hefir í mörg undanfarin ár< Grímsey fannst srtd r gærkveídr og ölt skip þar hafa fengið nokknrn afta. ViS Langanes og á Þistilfirði var m'éiri síldarafli í nótt en veriff hcfur í mörg ár. Hafa mörg 'skipanna, sem eru þar á veiðum, fengið 409— 800 mál og ér áflínn það mikill að ekki verðúr söltun einni lengur við kofnið á Raufarhöfn, svo tðka verður meira eða minna af aflanum í bræðslu. í niorgun var þoka á Raufar- höfn en annars gott veð\u-. f þokunni st-fandaði eitt síldveiði- sk'inið Mimir. : á flúðum und- sn Hólshöfða. Engari mann.sak- aði og var talið að skipið myndi nást út á flóðinu í dag. Drangúr átti að gera tilraun til: þess á flóðinu kl. 2. Fyrri tilrawn misheppnaðist vegna , þess- að yirar slitnuðu. Síldarleitarflugvél fann síld á stóru svæði norðyestur af | Grímsey í gærkveldi. Síldveiði- flotinn fór þangað í gærkveldi og hefur verið þar að veiðum í nótt. j Síldin heldur sig þarna á stóru svæði en er í smáum torf- j um og ekki um neinn mokafla að ræða. Hinsvegar var aflinn yfirleitt jafn, flest skipin með 100^—200 tunnur, sum allt upp í 300 tunnur, en nokkur líka neðan við 100 tunnur. i Seinni hluta nætur og í morgun hafa skipin verið að | koma inn á Sigluf jörð og laust fyrir hádegið er Vísir átti tal við fréttaritara sinn þar var heil röð af skipum á leið inn t fjörðinn, öll með meiri eða minni síld. Söltun var hafin þar á öllum plönum og nóg að gera. Hér fer á eftir nöfn nokkurra beirra skipa sem fengu síldar- afla í nótt, og vitað var um £ morgun. Raufarhöfn: Björn Jónsson, 300 tn. Snæfugl, 600 tn. Akraborg, 400 tn. Valþór, 800 tn. Björg Sh„ 250 tn. Víðir Gk„ 700 tn. Víðir Sh„ 600 tn. j Björgvin EA, 100 tn. Heimir, 350 tn. Stjarnan, 80 tn. Guðmundur Þórðarson, 180 tn„ Helga — góð veiði. : Gylfi, 200 tn. I Kári Sölmundarson, 400 tn. I Hólmábörg, 400 tn. Stígandi, 200 tn. , ’ Jón Finnsson, 300 tn. i Framh. á 2. síðu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.