Vísir


Vísir - 21.07.1953, Qupperneq 1

Vísir - 21.07.1953, Qupperneq 1
43. árg. Þriðjudaginn 21. júlí 1953. 162. tbl. =• * Austanbræla á miðun- um hamlar veiðum. Menn eru vongóðir um veiði þegar lægir. Nær engin síldveiði var í nótt á miðúnum vegna austanbrælu. Þó mun lítilsháttar hafa veiðzt á austursvæðinu, og vitað var t. d. um að Vörður hafði fengið 500 tunnur síldar og yar á leið tll Húsavíkur í morgun. Til Siglufjarðar barst engin ‘síld í morgun og liggur flotinn þar í höfn vegna óhagstæðs veð urs úti fyrir. í gær barst þang- að mikil síld og var saltað í all- án gærdag og í sumum söltun- arstöðvunum í mestalla nót.t. Voru sumar þeirra þúnar að taka á móti 1000—1100 tunnum til söltunar í gær, en ekki var vitað hve heildarsöltunin þar nemur miklu eftir gærdaginn. í fyrradag voru saltaðar þar 852 tunnur og í fyrrakvöld var búið að salta í 36.467 tunnur á Siglufirði, en 39.430 tunnur í öðrum söltunarstöðvum norð- anlands. Nam heildarsöltunin þá 75897 tunnum á öllu land- inu. í gær voru saltaðar á Rauf- arhöfn rösklega 2000 tunnur. Hæstu söltunarstöðvar á land- inu voru í fyrrakvöld: Hafsilfur á Raufarhöfn með 4080 tunnur, Hafliði h.f. á Siglufirði með 3606 tunnur, kaupfélagið á Dal vík með 3565,tunnur, íslenzkur fiskur á Siglufirði 3435 tn., Nöf Siglufirði 3246 tn., kaupfélagið á Raufarhöfn 3173 tn. og sölt- unarstöð Óskars Halldórssonar á Raufarhöfn 3113 tunnur. Menn eru vongóðir um það að hvassviðrið, sem nú er á mið unum, verði til þess að þjappa síldinni saman og þétta torfurn ar. Búast þeir því við meiri veiði en áður þegar veður lægir. Svíar hafa miklar siglingatekjur. St.hólm. — Tekjur Svía af siglingum á s.l. árí urðu 1,9 milljarðar sænskra kr. (um 6 milljarðar ísl. kr.). Höfðu tekjur þessar aukizt um 8 af hundraði á árinu, voru 1750 milljónir árið 1951. Megn- ið af þessum tekjum — 94% — var fyrir siglingar til eða milli annara landa. (SIP). Lána matvæli hjá Riíssum. Berlín (AP). — Austur- þýzka stjórnin hefur fengið lán tii matvælakaupa hjá Rússum eða sem svarar 20 millj. stpd. Kaupa þeir kjöt, smjör o. fl. fyrir lánsféð. — Þúsundir Austur-Berlínaxbúa streymdu til V.-B. í gær til þess að fá matvæli og skömmtunarmiða, sem þar voru látnir í té. Tökin hert á Ungverjum. London (AP). — Skipt heiur verið/um menn í ráðherraem- Bættum í Ungverjalandi. Mikilvægasta breytingin er sú, að Piroz herforingi hefur verið skipaður yfirmaður lög- feglunnar, en hann er í til- kynningu um þetta nefndur fyrsti innanríkisráðherra, og Ktur því út fyrir, að þessi tvö embætti hafi verið sett undir einn hatt. íslendingar í íþróttaför tii Færeyja. Þrettán manna hópur fór héðan með Drottningunni til Færeyja um helgina til að keppa þar í frjálsum íþróttum og handknattleik. Þessi hópur eru félagar í stúkunni Sóley í Reykjavík. — Munu þeir keppa í Færeyjum við íþróttafélagið „Bragðið", en auk þess munu þeir keppa í handknattleik á þjóðhátíð Fær- eyinga, Ólafsvökunni. Annars er það stúka í Færeyjum sem tekur á móti íslendingunum og sér um dvöl þeirra þar. Gert er ráð fyrir að ferðin vari i allt að þrjár vikur sam- tals. Fararstjóri verður Bjarni Kjartansson. Hver fær 500 kr. í Tivolí í kvöld? Forráðamenn Tivolis gera ráð fyrir, að í, kvöld komi þangað 40.000. gesturinn á þessu sumri, og heita honum 500 króna verð launa í tilefni þess. Að sjálfsögðu skemmtir hann sér ókeypis í garðinum í kvöld. Bie Alardis, hinir snjöllu, þýzku loftfimleikamenn, munu skemmta í síðasta sinn í kvöld, því að í fyrramálið hverfa þeir af landi burt. Sýningar þeirra hafa vakið hina mestu athygli. Myndin hér að ofan birtist í Ekstrabladet í Kaupmannahöfn á iaugardag, og fylgir herini þetta lesmál: „Skákíþróttin á einnig sína gyðju. Hin unga og viðfelldna frk. Hrönn Johnson frá Reykjavík (hún er raunar frá Vestmannaeyjum) fylgist á hverju kvöldi með mikilli athygli með skákum landa síns, Friðriks Ólafssoriar. íslenzki meistarínn tapaði tveim fyrstu skákunum í úrslitakeppninni. í gærkvöld fór ungfrú Hrönn inn fyrir véböndin og hvíslaði nokkrum orðum að Friðrik. Þá sigraði hann Sherwin“. Heitasti cbgnr sumarsms í gær. Hér var 19 st. hiti - líkt og í Osio og Khöfn. I gær var heitasti dagur þessa sumars sunnanlands það sem a£ er, og sáust þess víða merki, er, menn nutu sólarinnar á tún- blettum og í görðum, en ýmsir brugðu sér úr jakkanum í þessri dásamlega veðri. Hér í Reykjavík mældist hit- inn 19 stig í gær, að því er Veð- urstofan tjáði Vísi, og hefur hann ekki orðið meiri hér í sumar. Sami hiti mældist á Þing völlum, en vel má vera, að enn heitara hafi orðið sums staðar í Borgarfirði, án þess að Veð- urstofan hafi um það nákvæm- ar fregnir. Geta má þess til gamans, að í tveim öðrum höfuðborgum Norðurlanda, Osló og Kaupm.- höfn, var einnig 19 stiga hiti t gær, og megum við því vel við una. Hins vegar voru Lundúna- búar heldur „hærri“ en við, en þar var 22ja stiga hiti, en Par- ísarbúar nutu sumarsins í 24ra stiga hita. — Horfur eru -á, að hlýindin haldist eitthvað, að því er Veðurstofan tjáði Vísi í morgun. 400 bændur vilja jeppa Eftirspurn bænda eftir jepp. um er stöðugt mjög mikil og munu nú liggja fyrir um 400 beiðnir — og eru enn að berast. Sýnir þessi mikla eftirspurn svo að ekki verður um villst hvert hagræði bændum þykir að því að hafa jeppa, en vit- anlega eru ekki tök á að full- nægja þessari miklu eftirspurn. Þó mun nokkuð úr rætast, því að Fjárhagsráð mun hafa fallist á, að fluttir verði inn 80 jeppar til viðbótar þeim 40, sem áður var búið að leyfa. Allir þeir Sala Fordbíla fer mjög í vöxt. Detroit (AP). — Sala Ford- verksmiðjanna á fólksbifréiðum ér mjög vaxandi. Á fyrra helmingi þessa árs hefur salan aukizt um þriðjung frá sama tíma í fyrra, og á vörubifreiðum hefur hún auk- izt um fjórðung. Nálgast salan hámark það, sem náð var 1950. Heyskapur gengui hvarvetna vel. Heyskapur gengur vel um land allt. Menn eru almennt að Ijúka túnaslætti í mörgum sveitum. Víða hefur hey þornað eftir hendinni og lögð meiri áherzla á, að ná heyi upp í sæti, en að koma því í hlöðu, sökum þess hve úrkomulítið og göðviðra- samt er. Víða er og mikið hey í sæti, sem ekki þarf nema einn snarpan þurrkdag. í Bretlandi hefur verið reynt nýtt bóluefni við influenzu, sem nokkrar vonir eru bundnar við. jeppar sem innfluttir verða koma frá Israel (Willy’s- jeppar). Rússar telfa heimsókn herskipa Vest- urveldanna til Tyrkja ógnun við sig. Álsta, að verið sé að sýna, hverjir valdið hafi á sjónam. Von er um metuppskeru. Horfur á kartöfluuppskeru eru hinar beztu, og munu menn allvíða vera farnir að taka upp kartöflur til matar. Að því er blaðið bezt veit eru kartöfluuppskeruhorfur á- gætar um land allt og talsverð- ar líkur fyrir metuppskeru. Nýjar kartöflur ættu að koma óvanalega snemma á markaðinn í ár. i Einkaskeyti frá AP. Ráðstjórnin rússneská hefur sent tyrknesku stjórninni orð- sendingu út af fyrirhugaðri heimsókn brezkra og banda- rískra herskipa til Konstantín- ópeL Virðast Rússar telja, að þar sé stofnað til eins konar flota- sýningar í ögrunarskyni við sig. í orðsendingunni er óskað skýringa á hinum tíðu herskipa komum vestrænna þjóða til hafna í Tyrklandi, og er fyrir- spurn gerð í þessu efni með til- liti til öryggis á Svartahafi. Á það er bent, að ráðstjórnin hef- ur tilkynnt tyrknesku stj.órn- inninýlega, að hún hafi látið niður falla landakröfur á hend- ur henni, og tjáð sig' fúsa til vinsamlegs samkomulags um siglingar á Dardanellasundi. Tassfréttastofan birti orð- sendinguna í morg'un. Þar seg- ir, auk þess, sem að ofan get- ur, að væntanleg séu til Kon- stantínópel 10 bandarísk her- skip, sum stór, og 23 brezk her- skip, þeirra meðal 4 beitiskip, og gefi það tilefni til að halda því fram, að þarna sé verið að sýna, hver valdið hafi á sjón- um. Þess var getið í fregnum í gær, að flotaæfing'ar fara nú fram á Miðjarðarhafi á vegum NA-samtakanna, og að vegna aðildar Tyrklands og Grikk- lands að varnarsamtökunum, hefur flotasamvinnan á austur- hluta Miðjarðarhafs aukist mjög. 21 brezk herskip eru nú í heimsókn í grískum höfnum. 4000 timarit um heilbrigðismál. N. York. — í Bandaríkjunrimi mun fundið lyf, sem dregur úr vanlíðan beirra, er tekið hafa lönmnarveiki. Heitir lyf þetta priscoline og verkar þannis', að mjög dre^ur úr krampa siúklinea og k'-ala af beirra vnldum. En um lækn- ingu af því er ekki að ræða.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.