Vísir - 23.07.1953, Page 4

Vísir - 23.07.1953, Page 4
VÍSIR TTimmtudaginn 23..júlí 1953. VISXK i DAGBLAÐ Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (íimm línur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Fundir og ferðsmaimastrauimir. TTér á landi hafa að undanförnu verið haldnar nokKrar ráð- stefnur með fulltrúum annarra þjóða, og munu fleiri á eftir fara. Er viðhorfið í þessu efni mjög breytt frá því, sem var fyrir stríð, þegar engar flugferðir voru til landsins, og öll ferðalög þess vegna tímafrek, en í ráðstefnur er ekki hægt að eyða ótakmörkuðum tíma frekar en annað. Nú geta ráðstefnu fulltrúar og aðrir skotizt hingað til lands og haldið til síns heima aftur á fáeinum klukkustundum, svo að það er engin frágangssök að efna til funda hér, þótt leiðin sé nokkuð löng. Og þar við bætist vafalaust, að þeir eru svo fáir, sem komið hafa hingað til lands, að það er tulsverð tilbreyting frá þeim löndum, sem eru gamall vettvangur í þessu efni. En það er á hinn bóginn mjög takmarkað, hversu miklum Íóllísstraumi er hægt að beina hingað til lands, hvort sem það er gert í þeim tilgangi, sem að ofan er getið eða komumenn hafa farið eftir auglýsingum um landið og leitað hingað, til þess að skemmta sér með því að skoða sig um í nýju og óvenjulegu umhverfi. Við getum aðeins skotið skjólshúsi yfir sárafáa gesti, hvort sem er r í höfuðstaðnum eða úti um land, og þar sem innlendir menn og útlendir eru um'sömu gistihúsin, koma enn færri herbergi og rúm í hlut „gjaldeyris“-gesta en fyrir hendi eru, því að auðvitað verður íslendingum ekki út- hýst þeirra vegna. Svo oft hefur verið um þetta rætt hér í blaðinu, bæði af því sjálfu og öðrum, sem tekið hafa til máls um þetta efni, að það virðist vera að bera í bakkafullan lækinn, að ræða það enn. Þó er örvænt um, að skriður komist á málið, nema því verði enn hreyft að noklcru, og á hitt er líka að líta, að við getum sparað okkur allt ómak við að reyna að laða hingað erlenda ferðamenn, ef ekki er hægt að veita þeim móttöku, sem jafnast á við það, er menn eiga að venjast í ferðamanna- löndum úti um heim. Gestgjafar hafa þráfaldlega bent á það, að þeir sé fúsir til þess að gera það, sem þeir geta í þessu efni, en þannig sé nú búið að þeim, að þeir hafi ekki bolmagn til þess að koma upp gistihúsum með öllum þeim þægindum, sem krafizt er. Ems og allir aðrir á þessu landi eru þeir að sligast af sköttum og telja þeir meira að segja, að þeir sé verr settir en margir aðrir, og er þá langt gengið, ef rétt er hermt. En þá er heldur ekki mikilla átaka að vænta af þeirra hálfu, þótt viljann skorti ekki. Það cr orðin tízka, að hið opinbera styðji eða styrki menn í ýmsum tilgangi, og jafnvel mismunandi þörfum. Um það er þó ekki að villast, að þjóðin hagnast öll á því, ef unnt er að fá hingað straum ferðamanna, er skilja eftir verulega gjaldeyris- fúlgu á ári hverju, svo að það er ekki frágangssök, að hið opin- bera athugi eða láti athuga, hvernig það geti bezt ýtt undir það, að hægt sé að gera ísland að ferðamannalandi. Vera má, að þess gerist ekki þörf með beinum fjárframlögum, ef aðrar leiðir eru tiltækar, og væri það ef til vill bezt, því að ríkis- sjóður mun hafa nóg við fé sitt að gera. En um það verður varla deilt, að ekki getur af þessu orðið, nema hið opinbera eigi ein- hvern hlut að því, hvort sem hann yrði mikill eða lítill. Mack og Scania - Vabis smíða fullkomnasta strætisvagninn. Það er m. a. til öryggis, að hemiar eru „læstir“, meðan hurðir eru opnar. hestafla Scania-Vabis-diesel, sem komið er fyrir aftast í vagninum, þar sem auðvelt er að komast að honum, en auk þess hefur það í för með sér skynsamlega dreifingu á þung- anum í vagninum og tryggir rólegan og hristingslítinn gang. Hurðir opnar — hemlar „læstir“. Vökva-þrýstiútbúnaður knýr benzíngjöfina, „kúplinguna“, hurða-loku-útbúnað, glugga— þurrkur, lofthreinsunarútbún- að o. fl. Það þykir auka mjög öryggi vagnsins, að hemlar og benzíngjöf eru „læst“, meðan hurðir hans eru opnar. Scania-Vabis smíðar vagn- inn samkVæmt teikningum um- vagn, traustlega smíðaður, er ferðarmálanefndar New York. 12.1 metri á lengd, mesta breidd Auk þess hefir Scania-Vabis- |2,45 m., en milli hjólaöxlanna j framleiðsluleyfi og söluumboð ; eru þeir 6.9 m. Vagnarnir eru fyrir allan heiminn utan Am- i ýmist gerðir fyrir tveggja1 eríku. Á hinn bóginn hafa for- manna „áhöfn“ eða eins manns, ráðamenn Mack-smiðjanna tal Merkileg samvinna hefur nú verið tekin upp milli sænsku verksmiðjunnar Scania-Vabis, sem framleiðir firn af strætis- vögnum og diesel-vélum, og Mack-bílasmiðjanna í Banda- ríkjunum. Árangur þessarar samvinnu er strætisvagninn Metropol, sem er ný gerð slíkra farar- tækja, sérlega sterkbyggð, en þó auðveld í meðförum, þar * sem umferð er mikil og krefst liðlegrar meðferðar. Hafa stræt! isvagnar Stokkhólms tryggt sér 200 slíka vagna, og vænta sér mikils af. Getur borið 130 manns. Metropol, sem er 10 lesta en bera 80 farþega, þar af 48 í sætum. Þó er vagninn svo sterklegur, að unnt er að leggja yfir 60% til viðbótar á hann, þannig að hann geti borið allt að 130 farþega. Hreyfill vagnsins er 180 Þinghaldi frestað. T^yrir nokkru var frá því skýrt, að þing hefði verið kvatt saman í Sovétríkjunum, og skyldi það koma saman næst- komandi þriðjudag — 28. júlí. Nú hefur þingsetningu verið frestað, en engin skýring gefin á því, hvað því veldur. Ekki þarf að fara í neinar grafgötur um það, hvert verður aðalhlutverk þessa „þings“. Það verður látið leggja blessun sína yfir gðrðir Malenkovs og samherja hans í hreingerningunni, sem hófst með handtöku Beria fyrir skemmstu. Og þingfrest- unin getur vel táknað, að Malenkov og hans menn sé ekki alveg eins fastir í sessi og þeir ætluðu, svo að þeim þyki hyggilegra að búa betur um hnútana, áður en þeir leggju gögnin á borðið fyrir hina „kosnu“ samkomu. Þegar eftir lát Stalíns var boðaður fundur til þess að velja eftirmann hans. Á síðustu stundu varð að fresta honum, og hefur tvímælalaust valdið togstreita hinna, aiðstu manna, og fyrst og fremst Malenkovs og Beria. Nú fiefui á ný orðið að fresta fundi, er ætlað var álíka veigamikið hlutverk. Honúm %r éinnig frestað. Hvað er sennilegra en að sýndareining vald- hafanna sé nú einmitt að fara út um þúfur og að það komi í fjós, að rúsjsneski risinn, standí á brauðfótum, þótt hann sé grár fýrir járnum? Viti með 5.6 millj. kerta Ijósstyrk. Bjartasta Ijósmerki, sem til er í heiminum, er nú í Ambrose- vitaskipinu, utan við New York. Þetta þykir hið mesta furðu- verk, smíðað af brezkri verk- smiðju. Það er svo öflugt, að það sést í 30 sjómílna fjarlægð, alla leið inn til New Yorg-borg- ar. Þessi nýja ljóssúla skín með 5.6 milljón kerta afli. Væri jörðin flöt, myndi hið nýja ljós- merki sjást í 64 sjómílna fjar- lægð. Hins vegar skín það ekkij ávallt með sömu birtu. Unnt er að samræma rafmagnsstyrk- j leika ljóssins veðurskilyrðum. Þegar skyggni er lítið, skín ljós! ið þeim mun skærar, og það sést í mistri, eða jafnvel í þoku. ið Scania-Vabis-dieselvélina betri en nolckra aðra dieselvél ameríska, og nota hana nú í strætisvögnum sínum. (SIP). Rækta býflugur, sem stinga ekki. Með tilraunum og sérstakri frjóvgun bý-drottninga hefur brezkum vísindamönnum tekizt að rækta sérstakar býflugna- tegundir, sem hvorki stinga -né fljúga í hópum. Að þessu hefur verið starfað af kostgæfni í rannsóknastofum og'með smásjánni nú um 5 ára skeiö og ei- nú góðurn árangri náð. : Býdróttningarnar voi u svæfðar fyrir frjóvgunina. Þessi nýjg býflugnategund er aðal- lega til þesá ætluð, gð, kepn(a börnum að fara með býflugur. Bretar prófa mann- lausar flugvéfar. Bretar hafa nýlega gert til- raunir með nýja tegund flug- véla í sandaunðum Afríku, og fljúga þær flugmannslausar eftir visbendingum firðtækja. Hin nýja flugvél er sögð á- kaflega lík venjulegum flugvél um, nema að því leyti, að hún er miklu minni. Hún er svo ó- dýr, að ekkert þykir að því, þó að loftvarnaskyttur hæfi hana og skjóti niður, því að til þess er hún að nokkru leyti gerð. Hins vegar mun flugvél þessi halda áfram fluginu, ef hún verður ekki fyrir skoti, þar til eldsneyti þrýtur, en þá opnast fallhlíf, og hún fellur hægt til jarðar. Þessi litla flugvél er knúin lítilli benzín-vél, en er skotið á loft með tveim eld- flaugum. Hún er tæpir fjórir metrar á lengd og vænghafið álíka. Hraðinn er um 200 km. á klst„ allt upp í 6500 m. hæð. Nú fæst bjór, sem fitar ekki. Það hefuf lcngi tiðkast hér á landi, að héraðss’kólar hafa verið notaðir til þess yfir sumarmán- uðina að taka á móti gestum úr bæjunum. Þeir hafa komið í stað gistihúsanna, sem engin eru að kalla niá til í sveitum landsins. Þessi hugmynd að reka hcraðs- skólana sem gistihús á sumrmh er ágæt, og bæta þeir í þvi tillifci úr brýnni þörf, enda raunin sýnt og sannað, að gistiliúsanna er þörf. Fólkið leitar upp í sveit. Þúsundir Reykvikinga t. d. nota sér það á hverju sumri að gela gist i héraðsskólunum og notið sumarleyfisdaganna uppi í sveit. Þegar vel viðrar munu þessi sveitagistihús vera mjög vel sóti og sjálfsagt hagnaður af rckstri þeirra, þótt yfirleitt liafi verði verið stillt i hóf. Yfirleitt. má scgja að hugmyndin um að reka veitingasölu og gistingu í hératSs- skólunum sé ágæt og Iiafi átt vinsældum að i'agna. Lágmarkskrafan. Þó verður ekki liægt að hafa greiðasölu og gistingu í skólun- um nema ákveðnum lágmarks- kröfum sé fullnægt, sem gera verður til gistihúsa, og á þá sama við um skólana, sem reknir eru sem gististaðir yfir sumarið. Og þótt ýniislegir ágallar komi ef .il vill ekki að sök að vetrinum, þeg- ar byggingin cr skóli, geta þeir verið þannig að telja verði ó- viðunandi, ef þar er gistihús. — Fjölskyldumaður sagði mér eft- irfarandi sögu um gistilms í Borgarfirði: Herbergi Ivkillaus. „Eg fór upp í Borgarfjörð fyr- ir nokkrum dögum og ætlaði mér að gista í Reykholtsskóla, en þar er rekið gistihús í sumar. Hafði ég fyrir mörgum áruái gist þar og líkað vel. Mér brá þvi i briin, þegar ég kom þang- að með fjölskyldu mína, því svo j fannst mér allt úr sér gengið ' þar. Frágangur allur er mjög lé- legur nú, dúkar á gólfum eru í tætlum. Hvergi virðist liafa ver- I ið Imgsað um að bæta eða hafda j við, heldur látið slarka ár frá ’ ári. Herbergið, sem ég fékk var líka þannig að enginn var að því lykillinn, og myndi það telj- I ast óhæft i öllum gistihúsum í kaupstöðum a. m. k. I Hætt við sumarfríið. j Þótt illt sé frá því að segja, þá I leið mér og minni fjölskyldu ekki j betur en það á Jjessuin gististað, I áð við hættum við að dvelja þar þann tíma, sem við annars ætl- uðum. Og ofan á illan frágang á húsakynnum var niatur ekki ' góður, að okkar hyggju, og reið það baggamuninn. Svo fór um sjóferð þá. En úr þessu hefði raátt hæta öllu með nokkrum tif- kostnaði, en nauðsynlegum, þvi viðhald húsa hefur liingað til þótt sjálfsagt.“ Eg segi lik:u Svo fór um sjó- fei’ð þá. -— kr. Ejoim (AP). —- Það hefur löngum verið áhyggjuéfni bjór- svelgja, hve fitandi bjór er jafnan. Nú berast góðar fregnir fyr- ir þá, er hafa áhyggjur af þessu, því að ölgerðarhúsi í Múnchen hefur tekizt að brugga bjór, er má heita’ algerlega næringar- laus, en er sterkur samt. Pappifspckageröin h.f. \Vltastio 3. All*k..vappirtrpo>e*'\ Spakmæli. dagsins: Oft er fiagð undir skinni. fögru Gáta dagsim Nr. 470: Snöggt inn rekið, loðið út tekið. Svar við gátu nr. 469: / Tóbakspípa.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.