Vísir - 28.07.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 28.07.1953, Blaðsíða 1
4.3, árg. Þriðjudaginn 28. júlí 1953. 168. Ibi. Svarta þoka hatnlaði síldveiðum í morgun. JVakkur skip höföu santí fengið 700-1000 tunnuB'. í morgun var blíðviðri, en svartaþoka á síldarmiðum norð aniands, og hamlaði það að sjálfsögðu veiði. Þegar Vísir átti tal við frétta ritara sinn á Siglufirði um kl. 9 í morgun, tjáði hann blaðinu, að ímlsvört þoka væri á mið- unum, bæði á vestur- og aust- ursvæðinu. Meiri veiði taldi hann á aust- ursvæðinu, en þar hafði frétzt til um 40 skipa, sem höfðu feagið afbragðs veiði, þrátt fyrir þokuna. Vitað var, að vb. Edda frá Hafnarfirði, hafði fengið um 1000 tunnur og Víð- ir SU milli 6 og 7 hundruð tn. Á austursvæðinu gátu skipin tæjast hreyft sig úr stað af ótta við að rekast á önnur, en þoku- lúðrar þeyttir í sífellu. Af vestursvæðinu eru þær fregnir helztar í morgun, að um 20 skip hafa orðið síldar yör, en síldin var „stutt uppi“, eins og kallað er. Þó er vitað, að nokkur skip á því svæði voru með sæmilega veiði. Yf- irleitt virðist fregnum bera saman um, að nóg síld sé á mið- unum, en hins vegar erfitt .að athafna sig vegna dimmyiðris. f morgun var blíðskaparveð- ur á Siglufirði, logn en þoka. Þó sá upp í miðjar hlíðar. Sretar sækja enn á a Kenya. 4 keppemiur béðan á Norðurlanftameístara- moti í skák. Næstkomandi sunnudag, 2. ágúst, hefst í Esbjerg á Jótlandi meistaramót Norðurlanda í skák. íslendingar senda f jóra menn til keppninnar, og eru þeir þess- ir: Friðrik Ólafsson í lands- liðsflokki, Óli Valdimarsson í meistaraflokki og þeir Jón Pálsson og Arinbjörn Guð- mundsson í 1. flokki. Það er danska skáksamband- ið, sem stendur fyrir keppn- inni, sem stendur dagana 2.—13. ágúst. Skákkeppni Norðurlanda var síðast haldin hér í Reykjavík árið 1950, en nú er röðin komin að Dönum, eins og fyrr greinir. m. k. 50 skip með ágætan afla austan til. Sjóntenn teljja ntjjög sildar- iegt — híöa reöurs. Að minnsta kosti 50 skip höfðu fenghð góðan síldarafia á austursvæðinu í morgun, að því er fréttaritari Vísis á Rauf- arhöfn tjáði blaðinu um kl. 10.30 í morgun. | Þoka var úti fyrir, og því erfitt að athafna sig, en engu að síður höfðu mörg skip feng- ið ágætan afla, og voru á leið til lahds með hann. 116.000 feta hæð í svifflup. .London (AP). — 18 ára pilt- cr komst í 16.000 enskra feta hæð í svifflugu milli London og Grimsby í gæ. Kennari hans var með hon- um í sviffluginu. Var þess getið, að í flugu af þeirri gerð, sem þeir voru í, hefði aldrei verið komizt hærra en 12.000 fet frá jörðu áður, svo að skilyrði hafa verið mjög góð. (16.000 fet er nærri 4900 m.). London (AP). — Breyting hefur verið gerð á héraðaskip- un í Kehya til þess að auðvelda framkyæmdastjórnina. 8 Mau-Maumenn voru felldir í Riftdalnum í gær og 40 hand- teknir. Margir hinna handteknu játuðu, að þeir væru stuðn- ingsmenn Mau-Mau. Ríkisskuldir Svía hækkuðu í rúmlega 12,5 milljarða s. kr. í júní. Vitað var um þessi skip: Edda 1000 tunnur, Víðir 500, Skíði (Rvík) 400, Einar Þver- æingur 300, Helga (Rvík) 250, INjörður 300, Böðvar 250, Marz 250, Freydís 200, Sæfell 200, Fagriklettur 200, Sæfugl 200, ‘ Sæfari 200, Særún 180, Haf björg 150 og Erna 150 tunnur. Önnur skip voru með minni afla, en öll höfðu nokkuo. í gær var mjög lítið saltað á Raufar- höfn, eða á annað hundrað tn, Sjómenn telja mjög síldarlegt úti fyrir og vænta góðs aflá, ef þokunni léttir. Þær freg'nir höfðu t. d. borizt frá togaran- um Skallagrími, sem er að veið- um um 30 sjómílur út af Langa- nesi, að miklar síldartorfur séu þar, en svört þoka hamlaði veiðum í bili. Ekkert bendir til þes s, að síldin sé á förum, en menn bíða þess, að veður gerist hagscæð- ara til veiðanna. Ágæt veiði í flóanum. Ágæt síldveiði var á Akranesi í gær, að því er fréttaritari Vísis tjáði hlaðinu í morgun. í gær bárust á land 290 tunn- ur síldar af fjórum bátum, en í dag er vitað, að fimm bátar leggja upp 360 tunnur. Síldin veiðist í Jökuldjúpi, og virðist þar vera gnægð síldar. Bátarnir, sem leggja upp afla sinn í dag, eru þessir: Ásbjörn 50 tunnur, Reynir 120, Ólafur Magnússon 100, Sæfari 30 og Sigrún 30. Mikið rýkur enn úr Heklu. Rýkur úr axlargígnum og alveg upp á hátind. Mikið rauk úr Heklu í morg- «n, að því er fréttaritari Vísis á Eyrarbakka skýrði blaðinu frá í símtali. Rauk meira úr axlargígnum og alla leið upp á hátind í morgun, en gert hefur um langt skeið, en oft líður svo langur tími, að enginn reykur sést úr fjallinu. Sést því af þessu, að Hekla gamla er ekki alveg dauð úr öllum æðum, þótt engin hætta sé á því, að hún rumski neitt á borð við það, sem hún gerði 1947 þegar gosið mikla hófst. Af Eyrarbakka var það einn- ig að frétta, að kartöfluspretta hefur verið svo góð í vor, aft rnenn eru fárnir að taka upp úr görðum í stórum stíl og selja til Reykjavíkur. Enn verður ekkert um það sagt, hversu margföld uppskeran verður að þessu sinni, því að enn getur brugðið til óþurrka, og þá er alltaf hætt við myglu. Heyskapur í nærsveitum nef- ur gengið með ágætum, eins og víða annars staðar, en útgerð er engin nú frá Eyrarbakka. Þar voru gerðir út sex bátar í vetur, en þeir eru í sumaríríi núna. Ein trilla er þar, en hún mun að kalla ekkert hafa feng- ið, og er afarlítill fiskur á Sel- vogsbanka um þessar mundir, miklu minni en hér í flóanum, en menn eru vongóðir um að á því verði fljótlega breyting. Nýr rafmótor væntanlegur til Eyja. Undanfarið hefir orðið að grípa til rafmagnsskömmtunar í Vestmannaeyjum, vegna þess ■ að annar rafmótorinn í rafstöð- inni þar brotnaði, eins og Vxsir 'sagði frá á sínum tíma. ' Eyjaskeggjar hafa lagt drög 1 að því að fá annan mótor, en hafa í bili orðið að sætta sig við . skömmtun, eins og fyrr segir. Vísi er kunnugt um, að ísleifur Magnússon, yfirvélstjóri raf- stöðvarinnar í Eyjum, er stadd- ur, eða hefir verið undanfarið, á Bretlandi, til þess að fá ann- an mótor. Er hér um svonefnd- an Mirlees-mótor að ræða, og er hann væntanlegur til Eyja innan tíðar. Hinsvegar standa vonir til, að Eyjarskeggjar fái rafmagn frá Sogsvirkjuninni nýju, og vona menn fastlega og trúa, að svo verði. Franskur ofurhugi, Michel Berlin, sýndi nýlgea listir sínar x flugvél á flugsýningu, sem efnt var til í Alsír, en fór bá heldur lágt, svo að broddurinn á hægri væng nam við jörðu, og brotn- aði aðeins andartaki eftir að myndin var tekin. Berlin slapp ómeiddur, og þakkar því, að um leið og hann falxn vængbrodd- inn koma við jörðu, rauf hann rafstrauminn til hreyfilsins, til þess að koma í veg fyrir eldsvoða í vélinni, og tókst það. Islenzkir togarar byrja löndun í brezkum höfnum síðast í ágúst. 7410 skip fóru liiTi Panama. New York. (A.P.). — Gjöld fyrir skip, er fóru um Panama- skurð á síðasta ári, voru í al- geru hámarki. Námu þau alls 37.5 millj. dollurum (rúml. 600 millj kr.), en áður námu gjöldin mest 33 millj. dollara árið 1928. Alls fóru 7410 hafskip um skurðinn, og er hann að verða of lítill fvrir svo mikla umferð. Þór. Olgeirsson væntanlegur í vikunni, m. a. til skrafs og ráðagerða. Vísir hefir það eftir áreiðan- af hálfú brezkra fiskkaupenda dag. Þórarinn kemur hingað í legum heimildum, að fárið verði og útgerðarmanna, sem hafa sumarleyfi sínu, en vitað er, að skipa fiski á land á Bretlandi dulbúnar hótanir í frammi. I að hann mun jafnfrarrtt ræða Eins og áður hefir verið skýrt við tog'araeigendur hér um frá í Vísi, hefir George Daw- fyrirkomulag á löndun fisks á son skuldbundið sig til þess að Bretlar.di. ástand og' horfur 1 úr íslenzkum togurum síðari hluta ágústmánaðar. Georg Dawson, maðurinn, 20 manns íarast í AndesfjöUum. sem hefir tekið að sér að kaupa kaupa 2—5 togarafarma á viku, þeim málmn. Ekki er enn um íslenzkan togarafisk í trássi við. en það mun vera hæfilégt sérstakan viðbúnað íslenzkra brezka útgerðamenn, hefir mik- j verkefni fyrir 20 togara eða togaraeigenda að ræða vegna inn viðbúnað til þess að taka svo. J væntanlegrar fisksölu til Bret- við fiskinum og dreifa honum. I Þórarinn Olgeirsson, umboðs- lands, en þetta munu þeir m. a. Er ekki arinað vjtað, en að | maður írlenzkra togaraeigenda ræða við Þórarin þegar hann Dawson haldi áfram viðbúnaði1 á Bretlandi, er væntanlegur kemur hingað. sínum, þrátt fyrir ýmisleg skrif hingað • ð Gullfossi á fimmtu- New York. (A.P.). — Mesta slys, sem um getur í sambandi við Andesfjöll síðari ár, varð nýlega í Chile. Hafði prestur nokkur farið með rúmlega 20 nemendur sína í gönguferð til fjalla, er allt í einu skall á stórviðri með mik- illi fannkomu. Týndist allur hópurinn. (

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.