Vísir - 04.08.1953, Side 2

Vísir - 04.08.1953, Side 2
2 VÍSIB Þriðjudaginn 4. ágúst 1953. ftiinfiisfofatl afmennings* Þriðiudagur, 4. ágúst, — 216. dagur ársins. FlóS verður næst í Reykjavík kl. 14.10. K.F.U.M. Biblíulestur: Fil. 3. 1.—11. Metnaður hans. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. — Sími 1618. Næturlæknir er í Læknavarðstofunni. — Sími 5030. Rafmagnsskömmtun verður á morgun, miðviku dag, sem hér segir: Kl. 9.30— 11 II. hverfi. Kl. 10.45—12.15 III. hverfi. Kl. 11—12.30 IV: hverfi. Kl. 12.30—14.30 V. hverfi. Kl. 14.30—16.30 I. hverfi. ÚtvarpiS í kvöld. Kl. 20.20 Fréttir. — 20.30 Erindi: Landnám íslendinga í Norður-Dakota, fyrra erindi. (Richard Beck prófessor). — 20.55 Tónleikar: Jeanita Melin syngur létt lög. (Carl Billich aðstoðar). — 21.15 Á víðavangi. (Guðmundur Eiarsson frá Mið- dal). — 21.30 Tónleikar (plöt- ur). —• 21.45 íþróttaþáttur. (Sigurður Sigurðsson), — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Kammertónleikgr (plötur) til kl. 22.35. Gengisskráning. (Söluverð) Kr. 1 bandarískur dollar .. 16.32 1 kanadískur dollar .... 16.46 100 r.mark V.-Þýzkal. 388.60 1 enskt pund ........... 45.70 100 danskar kr. ...... 236.30 100 norskar kr. ...... 228.50 100 sænskar kr. ...... 315.50 100 finnsk mörk....... 7.09 100 belg. frankar .... 32.67 1000 íamskir frankar .. 46.63 100 tvissn. frankar .... 373.70 100 gyllini............ 429.90 1000 lírur.............. 26.12 Gullgildi krónunnar: 100 gullkr. = 738,95 pappírs- krónur. ^VWVUW^WWtftfWWVWWVtfWWWWWJWtfWW ING? X.esí“rfJ0 Simi 6434 VvW1.W^WWVVWAVWUWV\.VAWUVWWVW^W^JV« MrcMfátaht*. 1975 Lárétt: 1 Fiskinn, 7 hávaði, 8 óvit, 10 miska, 11 lægðar, 14 stefnur, 17 kaupstaður (sk.st.), 18 málms, 20 miklu. Lóðrétt: 1 Brotið, 2 eftir frost, 3 lézt, 4 Evrópumanna, 5 lær- dóms, 6 skel, 9 trjátegund, 12 ílát, 13 tímarit, 15 stórborg, 16 kvennafns, 19 í röð. .Lausn á krossgátu nr. 1974: Lárétt: IJsirting, 7 öl, 8 órar, 10 AUÓ, 11 vals, 14 Áldan, 17 RS, 18 góna, 20 hanar. Lóðrétt: 2 Böðvar, 2 il, 3 tó, 4 IRA, 5 naum, 6 gró, 9 öld, 12 als, 13 saga, 15 nón, 16 mar, 19 Félög Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík efna til hinnar árlegu skemmtiferðar fyrir safnaðarfólk á sunnudag, 9. ágúst næstkomandi. Verður farið að þessu sinni í Þjórsárdal, að Sogsfossum og virkjunin skoðuð, og síðan heim um Þing- VÖll. Mikill straumur manna var úr bænum um helgina eins og vænta mátti, þar sem sumir áttu frí í þrjá daga samfleytt, en aðrir hálfan þriðja dag. Mestur mun straumurinn hafa verið austur að Laugar- vatni, og varð að fá miklu fleiri bíla til að flytja farþega þangað en venjulega. Óregla mun hafa verið með ódæmum víða úti um sveitir, og er nánar frá því sagt annars staðar í blaðinu. Happdrætti S.Í.B.S. Menn eru minntir á það, að dregið verður í áttunda flokki vöruhappdrættis S.Í.B.S. á morgun — 5. dag mánaðarins, eins og venjulega. Verða menn að endurnýja strax í dag, því að ella kunna þeir að verða af miklu happi. Symfóniuhljómsveitin. Útvarpsstjóri og borgarstjóri Reykjavíkur hafa nýlega skipzt á bréfum um skipun stöðu hljómsveitarinnar framvegis. Mun verða skýrt nánar frá bréfaskiptum þessum bráðlega. Gatnagerð. Bæjarráði hefir nýverið falið bæjarverkfræðingi að hefja á ný gatnagerð á Lokastíg. Var byrjað á verki þessu fyrir nokkrum árum, og búið að grafa mikið götuna vegna fyrirhugaðrar undirstöðu, er verkið stöðvaðist vegna tregðu einhvers húseiganda við götuna. Hún mun nú úr sögunni, þar sem hafizt verður handa á nýj- an leik. Nafnanefnd bæjarins hefir nýlega ritað bæjarráði um nafn opna svæð- isins: Miklubrautar, Flókagötu, Lönguhlíðar og Rauðarárstígs. Var samþykkt að svæði þetta skuli heita Miklatún framvegis. Rafmagnsbilanh. Bæjarráð hefir nýlega falið rafmagnsstjóra að semja um bætur vegna rafmagnsbilana í Garðahreppi 13. janúar 1952. Bæjarútgerð Reykjavíkur 1. ágúst 1953. Bv. Ingólfur Arnarson kom frá Grænlandi í morgun. Bv. Skúli Magnússon, Hallveig fróðadóttir og Þorsteinn Ing- ólfsson eru í Rvk. Bv. Jón Þor- láksson er á síldveiðum. Bv. Pétur Halldórsson fór til Græn- lands 25. júlí. Bv. Jón Baldvins- son fór til Grænlands 18. júlí. Bv. Þorkell máni fór til Græn- lands 9. júlí. — Sl. viku unnu 200 manns við fiskverkun, pökkun og önnur framleiðslu- störf í Fiskverkunarstöðinni. Hvar eru skipin? Eimskip: Brúarfoss er í Ham- borg. Dettifoss og Goðafoss eru í Rvk. Gullfoss fór frá Ryk. á hádegi á laugardag til Leith og K.hafnar. Lagarfoss fór frá New York á föstud. til Rvk. Reykjafoss fer frá Rvk kl. 14 á laugardag til Rotterdam, Antwerpen og Flækkefjord. Selfoss fer frá Flækkefjord á láugardag til íslands. Tröllafoss fór frá Rvk. 27. júlí til New York. Héraðsmót Sjálfstæðismanna í Reykjanesi við ísafjarðar- djúp verður haldið næstkom- andi sunnudag, 9. ágúst. Verður efnt til hópferðar héðan á sam- komuna, lagt upp á föstudags- kvöld og farið í svefnvagni Norðurleiðar og komið haim á ný á mánudagsmorgunn Margt verðUr til skemmtunar. Nánari upplýsingar eru gefnar um ferðina í síma 82327. JLandntanna* 1 lautgar — Framliald af 1. síðu. að óg vinna af góðum hug og kappi, gengur verk fljótt og vel. Skóflur voru fáar og önnur verkfæri, en memi notuðu fjal- ir og jafnvel fæturna til þess að hjálpa til, og tókst að gera þarna nothæfa flugbraut. Um lágnættið á sunnudag var þessu lokið. Varð að hætta við þrisvar vegna þoku. í Veður var hið fegursta þar ‘efra. Ágætlega tókst, að fyrr- nefndum undirbúningi loknum, að hefja sig til flugs. Áform mitt var að fljúga með stúlk- una til Reykjavíkur. Yfir Lyng dalsheiði ( milli Laugarvatns og Þingvalla) varð eg að snúa við vegna þoku. Reyndi þá að fljúga aðra leið — yfir Mos- fellsheiði, en það fór á sömu leið. Ákvað ég þá að reyna lendingu í Kaldaðarnesi og flaug yfir ánni, en þótt ég væri ekki nema 200 metra frá flug- vellinum gat ég ekki séð hann. Fjórða tilraun heppnast. Lent á Hellu. Að því búnu sá eg þann kost vænztan að reyna lendingu á Hellu á Rangárvöllum. Gekk lending þar að óskum. Þar var fyrir Ingólfur Jónsson kaupfé- lagsstjóri í bifreið, til þess að greiða fyrir okkur, en skömmu síðar kom sjúkrabíll frá Sel- fossi, en hann hafði einnig far- ið áleiðis að Kaldaðarnesi, er ég ætlaði að lenda þar. Eg lenti á Hellu kl. hálftvö um nóttma. Læknir var í sjúkrabílnum frá Selfossi og var svo stúlkan flutt í Landsspítalann í Reykjavík. Mikilvæg aðstoð. Eg vil að síðustu, sagði Björn Pásson, leyfa mér að minnast þakksamlega allrar þeirrar mik ilvægu aðstoðar, sem flugþjón- ustan í Reykjavík og landssíma þjónustan veitti á þessu flugi, eins og ávallt áður. Starfsfólk þessara stofnana fylgdist ná- kvæmlega með fluginu, stöðvar voru hafðar opnar o. s. frv., og vegna þessarar árvekni var jafnan hægt að veita alla þá að- stoð, sem þörf var fyrir. VerðUr slík aðstoð aldrei metin og þökkuð sem vert er. Mikið öryggi. Við þessa hógværu frásögn vill Vísir því við bæta, að hér hefur enn sannast áþreifanlega hvert öryggi er að þeirri þjón- ustu, sem veitt er með rekstri sjúkraflugvélar Björns Pálsson ar og' Slysavarnafélagsins. Þetta sjúkraflug sannar svo ljóst sem verða má, að slíkrar þjónustu getur verið þörf jafnt í blíðu sumarsins sem hörkum vetrar- ins, og einnjg, að um hásumar- ið getur verið við mikla erfið- leika að etja, en allt fór giftu- samlega sem jafnan áður. 3tÍMtningawarð — Frh. áf 4. síðu. bæði hagsýnn um rekstur og vildi aldrei unna sér hvíldar við störf. Eftir að þau hjónin fluttust til Reykjavíkur, starfaði Einar um skeið hjá Viðtækjaverzlun ríkisins, en síðar hjá tollstjóra- skrifstofunni eða þar til hann, vegna heilsubrests, varð að leggja niður störf. Einar Friðriksson var fjöl- gáfaður maður, skáld gott, hnyttinn og skemmtilegur. Hann var víðlesinn og fróður, og svo létt var honum um að yrkja, að hann svaraði eigi ó- sjaldan kunningjum sínum í ljóðum svo snöggt, að mönnum kom á óvart þetta vald hans á tungunni. Hann undirbjó síð- ustu mánuðina útgáfu ljóða sinna og lausavísna og er von- andi, að fráfall hans tefji ekki fyrir þeirri útgáfu. Einar var fríður maður sýn- um, þéttur á velli, góðmann- legur og drengskaparmaður, greiðvikinn svo af bar, gestris- inn eins og bezt verður á kosið, kurteis og hlýr í fasi, enda átti hann fjölda vina, sem kunnu að meta mannkosti hans og þótti væht um hann. Sambúð þeirra hjóna var til fyrirmyndar og bar aldrei skugga á, svo samhent voru þau í því að gera hvort öðru og þeim, sem þau umgengust, lífið eins fagurt og unnt var. Þau voru gæfumanneskjur. Enda þótt Einar sæktist ekki eftir metorðum, komst hann ekki hjá því að gegna oddvita- störfum fyrir Fáskrúðsfjarðar- hrepp og taka að sér sýslu- nefndarmannsstarfið fyrir sama hrepp, störf sem voru tímafrek, en nálega ólaunuð og töfðu því áðeins fyrir framtákssemi hans í eigin þarfir. Eg get ekki hjá því komizt að nefna hér lítið atvik, sem mér skildist, að Ein- ari hafi þótt vænt um. Hér í bæ er fámennur hópur góðs fólks, sem nefnir sig Eskfirð- inga- og Reyðfirðingafélag og hefir meðal annars það hlut- vérk, að viðhalda tengslum við áttahgana. Á árshátíð þessa fé- lags, sem haldin var 11. febrúar 1953, var prentað Ijóð eftir Einar á hverju borði, sem hann. hafði ort í tilefni dagsins. Þeg- ar allir viðtsaddir höfðu sung- ið hið fagra ljóð, voru þau hjón- in, Guðrún og Einar, gerð að fyrstu heiðursfélögum Eskfirð- inga- og Reyðfirðingafélagsins. Og mér kæmi ekki á óvart, þótt síðar yrði minningu þessara hjóna haldið uppi með styttu af þeim í nokkurra hektara gróðurreit félagisns að Heið- mörk. Kjartan bróðir Einars, 72 ára að aldri, sem búsettur hefir verið í Noregi í 53 ár, en ekki vitjað ættlands síns í 22 ár, kom til Reykjavíkur þann 17. júlí. Fögnuður bræðranna yfir endurfundum entist þeím ekki nema 11 daga. En það voru langir og góðir dagar báðum. Börn þeirra Guðrúnar og Einars, á lífi, eru: Anna, gift Eiríki Björnssyni, lækni í Hafn- arf.; Jóhanna, gift Sigmund Lövdal, bakarameistara; Frið- rik læknir, kvæntur Ingeborg; Egill, bifreiðarstjóri, kvæntur Ingu Ingvarsdóttur; Skúli, verzlunarmaður, giftur Brynju Þórðardóttur; Hálfdán, verzl- unarmaður, giftur Ingibjörgu Erlendsdóttur; Lára, gift Oli- ver Guðmundssyni prentara og fósturbörn: Þóra Sigurðardótt- ir, gift Júlíusi-Kemp, stýri- manni og Oddný Jóhpnnesdótt- i, ógift. Þau frú Ingibjörg og Hálfdán hafa frá því þau giftust, búið í sama húsi og gömlu hjónin. Nutu þau alúðar, árvekni og umhyggju tengdadóttur og sonar svo sem framast mátti, enda létu þau ekkert tækifæri ónotað, sem verða mátti til að létta þeim elliárin. En öll hafa börn þeirra og fósturbörn látið sér umhugað um velferð gömlu hjónanna. Þótt sár sé nú söknuður ást- ríkrar eiginkonu og barna, fóst- urbarna, systur hans Lukku á Eskifirði, Kjartans og annarra náinna frænda, þá er einnig söknuður í brjóstum fjölmargra vina Einars Friðrikssonar við fráfall hans. En endurminning- ar um þennan göfuga sæmd- armann græða þau sár. Austurland hefir misst einn sinn bezta son við fráfall hans. Eiríkur Bjarnason. Móðir okkar, tengdamóðir og amma €uðríðnr Hinarsilóltir. Haðarstíg 8, andaðist í Landsspitalanum 3. ágúsi. Fyrir hönd aðstandenda Einar Gunnarsson. Hjartkær eiginkona mín, móðir og dóttir Guðfiniia Guðjónsdóttir, lézt að heimili sínu Grettisgötu 42, þ. 3. þ. m. Fritz Berndsen, 1 * jónióaJónsdóttirogbörn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.