Vísir - 06.08.1953, Blaðsíða 1
43. árg.
Fimmtudaginn 6. ágúst 1953.
175. tbl.
3 bátar við humarveiðar
sunnan Reykjaness í sumar.
Pessi óigerð ei* sniáisi saman aft
koinasl á öruggari grundvöll.
Humarveiðarnar, sem stund-
aðar hafa verið sunnan Reykja-
ness undangengin tvö sumur, í
tiiraunaskyni, eru smátt og
'smátt - að kœnast í öruggara
horf. Þrír bátar stunda veið-
arnar, og það er um þessa út-
gerð, eins og rækjuveiðarnar,
að hún skapar mikla vinnu í
landi.
Vísir hefur leitað upplýs-
inga um humarveiðarnar hjá
Sveinbirni Einnssyni, er stofn-
aði til þessarar útgerðar fyrir
rúmum tveimur árum, og í til-
raunaskyni eins og fyrr var
sagt, og hefur gert út bátinn
Aðalbjörgu til þessara veiða
sumarríiánuðina.
S. F. kvað veiðarnar hafa
gengið allvel í júlí í sumar, allt
af verið reytingur þegar gæftir
hafa verið góðar, en það voru
þær tíðast í mánuðinum. Hins-
vegar voru gæftir slæmar í júní
og aflinn rýr.
Veiðarnar stunda nú 3 bátar,
allir af svipaðri stærð (um 22
lestir), og eru það nú auk Aðal-
bjargar, íslendingur úr Reykja-
vík og Gulltoppur úr Njarðvík-
um, sem veiðarnar stunda.
Miðað hefur verið að því, að
koma þessari útgerð á fastari
grundvöll og er stefnt áfram að
því marki. Aflinn er landaður
í Höfnum og er hann verkaður
í frystihúsinu þar og pakkaður,
hvorttveggja samkvæmt þeim
kröfum, sem gerðar eru til
þessarar markaðsvöru í Banda-
ríkjunum, en hún er flutt út
þangað, og hefúr líkað vel.
Verður seiglast áfram í von um
öruggan markað þar.
Góð sumar-
atvinna.
Humarútgerðin skapar ágæta
sumaratvinnu fyrir allmargt
fólk, og um hana má segja hið
sama og rækjuútgerðina, að lít-
ið magn skapar mikla vinnu.
Aðallega eru það konur og
unglingar, sem vinna að því að
verka humarinn.
Þegar flest er vinna við hum-
arútgerðina 60—70 manns, en
að sjálfsögðu er starfslið sem
að verkuninni vinnur því færra
sem minna aflast.
Humarveiðar eru.ekki stund-
aðar annarsstaðar hér á landi
en sunnan Reykjaness, en skil-
yrði til þeirra eru sérstaklega
góð þar.
Ekki er blaðinu kunnugt
hvort skilyrði til slíkra veiða
eru víðar fyrir hendi hér á landi.
Bailey fer í rugby.
London (AP). — MacDonald
Bailey, hlaupagarpurinn fraegi,
er hættur þátttöku i hlaUpum.
Hann hefur þó ekki sagt
skiljð við íþróttirnar, því að
hann ætlar í staðinn að stunda
rugby-knattleik og ætlar að
hafa framfæri sitt af því.
Laxá í Þiitgeyj-
arsýsln bezt.
Laxveiðiárnar eru mjög vatns
litlar orðnar og með allra dauf-
astá móti yfir stangaveiðinni.
Afli í net er einnig rýr.
Stangaveiðin mun einna skárst
í Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu,
enda jafnan vatnsmikil, o.g
mun vatnsmagn í henni í sum-
ar jafnan hafa verið meira en
í meðallagi, en lítið vatnsmagn
orðið í öðrum laxveiðiám og
hefur verið um tíma. Laxveiði-
menn gera sér enga von um,
að veiðin glæðist, nema bregði
til úrkomu.
I Ölvusá hefur verið réyt-
ingsafii í net, en lítill í Hvítá
í Borgarfirði,. en þær eru aðai-
árnar, þar sem netaveiði er
stunduð.
Reknetaveiðar á flóafium
miinu brátt glæðast.
IHÍítf Mírsmesbátm á veiðum.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akranesi í gær.
Eihs og'stendur er dauft yf-
ir reknetaveiðinni, en sjómenn
vongóðir .nm, að veiðin. glæðist
aftur. \
Gæftir hafa verið misjafnar
að undanförnu, stundum strekk
ingur. Sjómenn kenna smokk
pg háf mest um hve dauft er
yfir reknetaveiðunum, og þeg-
ar svo strekkingur er, er erfið-
ara að hitta á síldina, en sjó-
menn ætla að nóg sild sé í fló-
anurn, og eru vongóðir um, að
afli muni glæðast.
Búið er að frysta í sumar
(júní og júlíj í 5090 tn. hjá H.
Böðvarssyni og Co., en fremur
lítið annars. staðar. Veiðin var
góð framan aí. Annars byrjuðu
reknetaveiðarnar aðallega upp
úr miðjum júlí, og er Reynir
hæstur frá 17. júlí með 700 tru.
Einn bátur fór út í nótt og fékk
20 tn. Níu bátar stunda nú rek-
netaveiðar. ;
Fyrsti báturinn
kóminn að norðan.
Fyrsti báturinn er kominn
af snurpinótaveiðum fyrir norð
an. Er það Svanur. HaUn fékk
1200 tn. í salt. Hann fór 15./7.
og kom 5./8. Hásetahlutur
varð 4600 kr. og er það gott,
Svanur byrjar á reknetaveið-
um nú þegar.
Dettif oss
er hér og lestar fryst hval-<
kjöt og skreið.
ísrael fær bætur.
Bonn (AP). — V.-þýzka
sambandslýðveldið hefur byrj-
að skaðabótagreiðslur til Isra-
els.
Var samið um þær í vor og
vakti mikla gremju Arabaríkja.
Nú er fyrsti farmurinn kom-
inn langleiðina til Israels, nærri
5000 letsir steypustyrktarjárns.
Sólfar í júlí
imdtr meðallagi!
Seinustu 10 dagar júlí-
mánaðar voru sólríkir mjög
og allur mánuðurinn fremur
hlýr, en þó vat' ekki um ó^
vanaleg hlýindi að ræða.
Hinir sólríku dagar frá 21.
til 31. júlí nægðu ekki til
þess að sólfar í mánuðinum
öllum næði meðallagi.
Leitaði mioa við
SA-Grænland.
I dag verður lokið við aS
landa úr Ingólfi Arnarsyni fiski
af Grænlandsmiðum.
Skipið var 42 daga í seinustu
veiðiferð þangað, og var þ'etta
góð ferð og tók ekki iangan
tíma, þegar miðað er við það,
að
togarinn tafðist 3 daga við
þreifa fyrir sér úti fyrir
austurströndinni — undan
Angmagsalik — en ekki ber
sú fiskileit árangur nú. —'
Þarna munu íslenzkir tog-
ar ekki hafa reynt fyrir sér
fyrr.
Hélt þá togarinn áfram vest-
ur fyrir á venjuleg mið þar, en
þar hefur verið góður afh a3
undanförnu. Patreksfjarðartog-
ararnir komu þaðaiv nýlega af
veiðum með ágætan afla, og
þar eru að veiðum tveir togar-
ar frá Bæjarútgerð Rvíkur, ísa-
fjarðartogararnir báðir og Eg-
ill rauði. — Fiskurinn er heldur
vænni en í fyrra.
Fyrir nokkru er lokið sjóprófum í sambandi við það, er ferjan
Princess Victoría fórst við Norður-írland í vetur. Komst dómur-
inn að þeirri niðurstöðu, að skipið hefði verið ósjófært, og
eigi drukknun 133 manna rót sína að rekja til sleifarlags eig-
enda og framkvæmdarstjóra skipafélagsins. Myndin hér að
ofan var tekin í vetur, þegar unnið var að björgun manna af
skipinu.
Frystihtis SR kontið áleiðas.
IJppssetiting véla er pegar byrjiid*
Frá fréttaritara Vísis. -j
Siglufirði í gær.
Hingað komu fyrir skemmstu
fyrstu frystivélarnar í hrað-
frystihúsið, sem Síldarverk-
smiðjur ríkisins eru að koma
upp.
Frystivélarnar eru erlendar.
Sumt af þeim er komið og upp-
setning þeirra byrjuð, aðrar
komnar til Rvíktir, en það sem
'eftir er, er væntanlegt bráð-
lega. IJér er aðeins um frysti-
vélarnar sjálfar að ræða. ÖIl
önnur tæki eru smíðuð hér.
Það er gamalt mjölhús, sem
hefur verið innréttað sem
frystihús, og verður það vænt-
anlega tilbúið eigi síðar en í
október.
Saltað í 50000
tunuur í gær.
Hér og við Eyjafjörð muu
hafa verið saltað í 4—5000 tn.
í gær.
Mikið ernnrtki
Sijá FDiE-gf- Isl.
Flugfflag íslands á geysi-
annríkt þessa dagana, ekki sízt
í sambandi við þjóðhátíð Vest-
mannaeyinga, sem hefst á
morgun.
í gær voru farnar 8 ferðir til
Eyja með þjóðhátíðargesti, og
voru allar fullskipaðar. I dag
verða farnar 10 ferðir, en á
morgun hvorki meira né minna
en 13.
í gær fluttu flugvélar F.í.
samtals 395 manns í innanlands
PrýSilegur afli á síldar-
fiiiðum síðdegis í gær.
Alls bárust á land á Siglufirði í gær
um eða yfir 8000 tunnur.
ferðumv en það þykir geysi-
mikið.
Afli var prýðilegur á síldar-
slóðum við Grímsey síðdegis í
gær, en í gærkveldi var kom-
inn stormur, og engrar síldar
vart þá.
Láta mun nærri, að alls hafi
borizt á land á Siglufirði eftir
hrotuna í gærdag um 8000 tn.,
en saltað mun hafa verið í um
5000 tunnur á Siglufirði í gær.
í morgun var verið að losa
Eddu, sem var með 500 tunnur.
Annars var afli einstakra skipa
sem hér segir: Ágúst Þórarins-
son 150 tn., Bjarmi 300, Þor-
steinn, Dalvík, 400, Páll Pálsson
400, Örn Arnarson 150, Særún
200, Freydís 150, Meta 250,
Njörður 150, Erlingur III 150,
Kári VE 300, Stígandi 250,
Baldur 100, Flosi 70.
Engar síldarfregnir höfðu
borizt frá Raufarhöfn í morg-
un, og var talið líklegt, að
mestur hluti flotans væri nú.
kominn á vestursvæðið.
í morgun hafði veðrinu slot-
að, og var komið hvítalogn og
sólskin. ¦
Góð atvinna nú.
Atvinna er að sjálfsögðu mik
il og góð á Siglufirði þessa dag-
ana,. og hlutur síldarstúlkna
ágætur. Þær fá á 18. krónu fyr-
ir hverja saltaða tunnu, geta
saltað allt að 30 tunnum yfir
daginn, og þannig komizt upp
í 500 króna daglaun.
Síldin, sem síðast veiddist, er
misstór, en kappfeit, eihs og
fréttaritari Vísis á Siglufirði
komst að orði, .... . »,*.