Vísir - 08.08.1953, Síða 1

Vísir - 08.08.1953, Síða 1
4-3. irg. Laugardaginn 8. ágúst 1953. 177. tbL Sansu á að gera „skipa- skurð" í Hornafirii. Samniugar um þetta senni- lega gerðir eftir lielgi. Svona leit bandaríska skipið „Hawaiian Pilot“ út, eftir árekstur viS annað skip. Það komst þó til hafnar, og þótti mörgum undarlegt. Ríkisreikni ugurinn 1932: Tekjur urðu 420 millj. - rekstrarafgangur 62 millj. Skuidir ríkissjóös lækkuðu um 17,3 millj. A mánudag verður endanlega úr því skorið hvort sandtöku- skipið Sansu fer til Hornafjarð- ar til þess að grafa þar skipa- skurð. Eru allar líkur til þess, að samningar verði undirritaðir um þetta eftir helgi. — Fram- kvæmdir þessar munu kosta 1—IV2 millj. króna. Eins og Vísir hefur áður get- ið allítarlega hefur þetta mál verið á döfinni um skeið, eða síðan er í ljós kom hve ágæta raun tilraunir með sandtöku á Sviði gafst, fyrir Sementsverk- smiðjuna. Vísir spurðist fyrir um málið í gær hjá vitamálastjóra og fékk það staðfest, að góðar líkur væru fyrir, að samningar tækj- ust um að grafa skurðinn. Væri Mouritzsen verkfræðngur, eig- andi Sansu, væntanlegur hing- að loftleiðis á morgun, og yrðu . þá endanlegar ákvarðanir tekn- ar. Gamli skipaskurðurinn i Hornafirði er farinn að grynn- ast og torfarinn orðinn og ekki á hentugum stað. Nýi skurður- inn verður grafinn annarsstað- ar. Hann er, sem fyrr hefur verið getið, 5—600 metra lang- ur, og verður 50 metra breiður að ofan. Áætlað er, sagði vitamála- stjóri, að þessar framkvæmdir kosti 1—IV2 millj. króna. Vonir standa til, að ve'rkið verði fram. kvæmt á tæpum 2 mánuðuiry ef til vill 5—6 vikum. Friðrik efstur í Esbjerg. Friðrik Ólafsson er nú efstur á Norðurlandaskákmótinu í Esbjerg með 4 vinninga, eftir 5. umferð. Vanu hann Danann Larsen. Næstir eru Svíinn Skjöld með 3y2> Vestöl Neregi og Svíinn Störner með 3. Fangi sieppur af Litla-Hrauni. Ingólfur Einarsson, geðbilað- ur maður, sem vann voðaverk fyrir fáum árum, er hann deyddi barn með hníf, eins og menn muna, slapp úr haldi að Litla-Hrauni í fyrradag. Ingólfur, sem verið hefur í haldi uridanfarið þar eystra, mun hafa verið að viðra sig síðdegis í fyrradag, ásamt öðr- um föngum, er hann mun hafa komizt undan með einhverjum hætti. Var þegar hafin leit að honum á 5. tímanum í fyrradag, og leitað fram í myrkur, og þegar tekið til við leitina í birt- ingu í gærmox-gun og haldið á- fram allan daginn. í útvarpi í gærkvöldi var til-« kynnt að Ingólfur væri fundinn. SAS þriðja í röðinni Stokkhólmi. — í júní flutti SAS 4431 fai*þega yfir Atlants- haf norðanvert, eða 14 af hundr- aði. Flytja aðeins tvö félög fleiri farþega á þessari leið — Pan American og Trans World Air- iines (TWA). En að tiltölu við sætafjölda hefir farþegafjöld- inn verið mestur hjá SAS. (SIP). . Meðal fyrstu fanganna, sem SÞ afhentu í Kóreu voru 450 konur, auk 23 barna, er fæðzt höfðu í fangabúðum. Bretar hætta smíði risaflugu. Átíi aft gela flutí 72 farþega 42SOO km. leið. Símaskrá kemur ekki fyrr en 1954 Eins og kunnugt er af aug- lysingum er unnið að undir- búningi nýrrar símaskrár, (.g mun hafa verið gert ráð fyrir því upphaflega, að hún kæmi út á þessu ári, en hennar mun ekki að vænta fyrr en að ári. Það verður því „Símaski’á 1954“, sem menn fá í hendurn- ar, er sú stund upprennur, að hægt verður að kasta „Síma- ski-á 1950“ í pappírskörfuna. Blaðið hefur ekki fregnir af hvernig á því stendur að útgáfa símaskrárinnar dregst svo mjög, því að þeir sem gerzt mega um þetta vita, eru í sumarleyfi, en ætla má að undirbúningur taki lengri tíma en ætlað var og e. t. v. kann fleira að valda drætt- inum. Það kemur sér óþægilega fvrir símanotendur, að síma- skráin er ekki endurnýjuð oft- ar en reynd ber vitni, og þyrfti að finna einhverja leið til þess að láta hana koma oftar út. 12 kommúnistaleiötogar kmdteknir í N.-Kóreu. London AP. — Útvarpið í Pyongyang höfuðborg Norður- Kóreu, tilkynnti í gærkvöldi, að 12 af leiðtogum kommúnista hefðu verið handteknir. Eru þeir sakaðir um að hafa setið á svikráðum við norður- kóreska lýðveldið — rekið er- indi Syngman’s Rhee og Bandarikjamanna, og miðað að þvl að koma á stjórnarfari á auðvaldsskipulags grundvelli. Meðal hinna handteknu eru tveir fyrrv. ráðherrar, utanrík- is— og dómsmálaráðherra. — Nam II hershöfðingi tók fyrir skemmstu við embætti utan- ríkisráðherra þess, er nú hefur verið handtekinn. 300, vottar féllu í ön^vit. í lok síðasta mánaðar efndu Vottar Jehóva til mikils árs- þings á einum stærsta knatt- leikvaitgi í New York. Um leið og þingið kom sam- anð gekk hitabylgja með mikl- um raka yfir borgina og leiddi það til þess, að 300 vottanna féllu í yfirlið fyrsta daginn, sem þingið sat. Alls voru um 100.000 manns á leikvangnum, er flest var. Óvíst um þjói- hátíð í Eyjum. Þjóðhátíð Vestmanneyinga, sem átti að hefjast í gær, var frestað vegna veðurs, eins og kunnugt er. Vonir stóðu til, að hún gæti hafizt í dag, en í gærkvöldi var það þó talið ósennilegt vegna óhagstæðar veðurspár. Ófært var með öllu að fljúga til Eyja í gær, 8 vindstig á suð- austan, svo að ekki leit björgu- lega út með fólksflutninga þang a'ð. Lokið er við að semja ríkis- reikninginn fyrir árið 1952 og eru helztu niðurstöður þessar: Rekstrartekjur reyndust 420 milljónir kr. Voru áætlaðar 376 milijónir. Fóru 11.66% fram úr áætlun. Rekstrarútgjöld urðu 357 milljónir kr. Þar af samkvæmt sérstökúm lögum og þingsálykt- unum 3.2 milljónir. Útgjöld á fjárlögum voru áætluð 332 milljónir. Útgjöld á rekstrar- reikingi umfram fjárlög og þessar sérstöku heimildir hafa því orðið 6.6%. Rekstrarafgangur varð 62 milljónir kr. en var áætlaður 44 milljónir. Greiðsluafgangur varð 7,1 milljón kr., en var áætlaður 2.6 milljónir á fjárlögum. • Þegar þessi niðurstaða er fengin um greiðsluafganginn hafa m. a. verið taldar til út- Jepen ætlar fé til lamSvarna. Tokyo (AP). — Þingið hefur samþykkt fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Niðurstöðutölur frumvarps- ins. nema sem svarar 45 mill- jörðum króna, og er þar m. a. ætluð nokkur fúlga til land- varna. gjalda á greiðsluyfirliti 7 millj. kr., sem á árinu 1952 voru greiddar af andvirði þeirra 10 togara, sem ríkissjóður keypti síðast í Bretlandi, og 4.4 millj. kr., sem á árinu 1952 voru lán- aðar til atvinnuaukningar víðs- vegar um landið skv. sérstökum heimildum Alþingis. Skuldir þær, sem ríkissjóður stendur straum af, lækkuðu um 17.3 milljónir á árinu 1952. Babelstum Sam- etinuðu þjóðanna. Menn frá fjórum þjóðum hafa eftirlit með framkvæmd vopnahlésins og afhendingu fanganna, og það reyndist talsvert erfitt fyrir þá að koma sér saman um það, hvernig þeir ættu að tala saman. Þetta eru Svíar, Sviss ar, Pólverjar og Tékkar. Niðurstaðan verð sú, að Svíar og Svissar tala frönsku, sem verður þýdd á pólsku og tékknesku. Pólverjinn tal ar pólsku og Tékkinn tékkn- esku, en mál þeirra verður þýtt á ensku, sem Svíar og Svisslendingar skilja. Sam- tals tala þessir fulltrúar og nota samtals sex þjóðtung- ur, og minnir það dálítið á söguna um Babelsturninn. London (AP). — Það er nú| endanlega ákveðið, að ekkert verður úr framleiðslu Braba- zon-flugvélarinnar. Höfðu Bretar á sínum tíma gert sér vonir um það, að flug- vél þessi yrði fi'amtiðarfarar- tæki loftsins, en nú hefur sá dómur verið kveðinn upp yfir henni, að rekstur hennar geti aldi-ei borgað sig, og er þá sá draumurinn búinn. Hafði að- eins ein flugvél verið fullgerð af þessari tegund, • og í meira en ár höfðu verkfræðingar og rekst'i rsfræðingar flugféiaga bollalagt um það, hvort halda sky-Idi áfram smíðinni á ann- arri flugvélinni, er byrjað hafði verið á, en smíðinni var frest- að um óákveðinn tíma í febiú- ! ar á síðasta ári. I Brabazon I var stærsta fiug- vél, sem Bretar höfðu smíðað. Hún ^ó alls 126 lestir, og-átti að geta flutt 72 farþega 4800 km. leið. Var hún reynd í sept- ember 1949 og flaug vel. Var þá hafizt handa um smíði ann- arrar Brabazon-vélar, og áiti hún að hefja farþegaflug, ei þar að kæmi. En í febrúar 1352 var smíðin stöðvuð, og var það Comet-flugvélin, sem sökina átti. Mikill kostnaður. Bretar eyddu alls 12 mil’j. punda í Brabazon-vélarnar tvær, sérstakan flugvöll fyrir þær og sérstaka vinnuskála, er reisa þurfti vegna smíði þeirra. Flugvöllinn og skálann er vít- anlega hægt að nota eftir som 1 áður. • j

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.