Vísir - 12.08.1953, Side 7

Vísir - 12.08.1953, Side 7
Miðvikudaginn 12. ágúst 1953 VlSÍB njVWVWWUVWUWVWUVVWUWUVUWUVW.VUVUWUVUWi 11 eftiw emií ZOM ^WWVW jV«"WWWUWVWWWWWU“J*J%fWWU^^1^rtW^ÍWV skjálfandi og vissi ekki siít rjúkandi ráð. Unga stúlkan, sem enn hafði ekki nuggað stýrurnar úr augunum, vafði utan um sig lakinu og grét af blygðun og örvæntingu. Philippe sá að nú var öll von úti og að ekki, var um annað að velja en að gefast upp. Draumur hans um auð var að eng'u orðinn — hann mundi aldrei verða viðurkenndur eiginmaður Blanche. Hann hafði numið á burt ríkan erfingja og ekki haft annað upp úr því en að vera fleygt í fangelsi. í stað ríkmann- legu salarkynnanna sem hann hafði dreymt um átti hann nú fangaklefa í vændum. Svo datt honum dálítið ragmannlegt í hug. Hann gat yfirgefið ástmey sína og flúið um Vauvenargues upp í gljúfrin í Saint-Victorie. Ef til vill gat hann sloppið út um gluggann bakatil á kofanum. Hann laut niður að Blanche og sagði henni hvíslandi frá þessu áformi. Unga stúlkan, sem var hálfvöknuð af gráti, skildi hann ekki. Honum gramdist er hann sá að hugarástand hennar var þannig að hún mundi ekki geta leynt flótta hans. í sömu andránni heyrði hann ískra í þjófalyklinum, sem lása- smiðurinn var að reyna fyrir sér með. Þessi kveljandi harm- leikur sem var að byrja þarna uppi á loftinu hafði nú staðið tvær eða þrjár mínútur. Philippe fann að hann var tröllum gefinn, en stærilæti hans blés honum þor í brjóst aftur. Ilefði hann verið vopnaður mundi hann hafa reynt að verjast. Nú huggaði hann sig við að hann væri enginn kvennabósi, að Blanche hefði sjálf kosið að fara með honum og giftast honum og að hann þyrfti alls ekki að skammast sín fyrir hvernig komið var. Og svp hrinti hann upp gluggahleranum í bræði og spurði hvað þeir vildu sér. — Opnið dyrnar fyrir okkur! kallaði lögreglufulltrúinn. — Eg skal segja yðnr síðar hvert erindið er. Philippe kom niður stigann og opnaði dyrnar. — Eruð þér Philippe Cayol? spurði fulltrúinn. — Já, svaraði ungi maðurinn hiklaust. — Þá tek eg yður fastan fyrir konurán. Þér hafið numið á burt stúlku innan sextán ára, sem þér hafið hjá yður á laun. Philippe glotti. — Fyrrverandi ungfrú Blanche de Cazalis, sem nú er konan mín, er hérna uppi, sagði hann. — Hún getur skýrt frá hvort um ofbeldi hafi verið að ræða af minni hálfu. Eg veit hvað fyrir yður vakir þegar þér eruð að tala um konu- rán. Eg er boðinn og búinn til að fleygja mér fyrir fætur de Cazalis og biðja hann um samþykki til þessa ráðahags. Nú kom Blanche niður stigann, föl og skjálfandi. Hún hafði klætt sig í flýti. — Ungfrú, mér er skipað að fara með yður til frænda yðar, sem bíður yðar í Aix, sagði fulltrúinn. — Hann grætur. — Mér þykir leitt að hafa bakað frænda mínum raunir, svar- aði Blanche, sem var nú orðin rólegri. — En enginn má áfellast Philippe Cayol, sem eg fór með af frjálsum vilja og giftist. Svo sneri hún sér að Philippe, svo hrærð að henni lá við gráti: — Vertu hughraustur, Philippe, sagði hún. — Eg elska þig, og eg mun grátbæna frænda minn um að verða okkur' góður. Við verðum ekki aðskilin nema fáeina daga. Philippe horfði raunalega á hana og hristi höfuðið. — Þú ert kvíðið og veikt barn, sagði hann hægt. Svo bætti hann við, byrstur í rómnum: — Mundu aðeins að þú ert konan mín, að þú ert mín eign, bæði líkami og sál. Ef þú yíirgefur mig mun endurminningin um mig kvelja þig dag og nótt. Þú munt finna heitan þrýsting kossa minna á vörum þínum, og það skal verða refsingin sem þú færð. Blanche grét, — Elska þú mig eins og eg elska þig, bætti hann við í mýkri tón. Lögreglufulltrúinn setti Blance upp í vagn, sem hann hafði látið sækja, og fór með henni til Aix, en lögregluþjónarnir tveir fóru með Philippe milli sín i fangelsið í sama bæ. VII. BLANCHE AFNEITAE PHILIPPE. Fregnin um handtökuna barst ekki til Marseilles fyrr en daginri eftir, Þóttu þetta mikil tíðindi. Síðdegis sást de Cazalis á gangi með frænku sinni á Cannebiére. Stórstraumsflóð var í kjaftasögunum. Allir töluðu um sigurdramb þingmannsins, um hörmungar og hneysu Blanche, sem nú hafði verið auglýst alþjóð. Herra de Cazalis hafði það á valdi sínu að neyða Blanche til að ganga um allar götur Marseilles, og hann lét hana gera það svo að allir gætu séð að hún var undir hann gefin. Marius, sem Fine hafði látið vita um atburðinn snemma um morguninn hafði verið á þönurji um bæinn í marga klukku- tíma. Almaxmarómur sfaðfesti að fregnin var sönn. Smám saman komst harni að nokkru samhengi í kjaftasöguútgáfunum, og nú gat hann myndað sér skoðun á hvernig allt hefði atvikazt. En sagan var þ.egar farin að fá á sig þjóðsögublæ. Hún var svo ótrúleg. Þetta hefði gefað verið fræg ástarsaga frá fyrri öld. Maríus varð dauðþreyttur á öllu þessu skvaldri. Þegar hann fór á skriístofuna hafði hann fengið afleitan höfuðverk. Og hann vissi ekkert hvað hann ætti að taka til bragðs. Því miður var Martelly fjarverandi og ekki von á honum fyrr en annað kvöld. Maríus sá að hann varð' að hafast eitthvað að fyrir þann tíma. Hann langaði til að gera eitthvað til að fá vissu sína um hvaða örlög biðu bróður hans. Fyrsta hræðslu- kastið var nú liðið hjá. Hann þóttist viss um að ekki væri hægt að höfða mál gegn Philippe og dæma hann fyrir kónurán, því að framburður Blanehe, sem alltaf yrði tiltækur, mundi nægja til þess að verja hann. í barnslegu sakleysi sínu datt honum í hug að hann skyldi heimsækja herra de Cazalis. Hann ætlaði fyrir hönd bróður síns að biðja hinn volduga aðalsmann að leggja blessun sína yfir hjónbandið. Morguninn eftir fór hann í beztu svörtu sparifötin sín og var kominn niður í stigann þegar Fine kom, eftir umtali. Vesl- ings stúlkan varð náföl þegar Maríus sagði henni hvert hahn ætlaði og í hvaða erindum. — Lofið mér að verða yður samferða, sagði hún biðjandi. — Eg get staðið á götunni og beðið meðan þér talið við frænda ungu stúlkunnar. Hún fór með honum. Þau komu að Cours Bonaparíe og Maríus hljóp upp stigann í húsi þingmannsins cg bað um að láta segja til sín. Ofsabræði herra de Cazalis hafði náð hámarki. Nú var hann viss um að ná hefndum. Hann sýndi mátt sinn og mikilleik með því að kremja einn af þessum blövuðu frjálslyndu spjátr- ungum. Og nú vildi hann gjarnan leika sama leikinn og köttur- inn sem kvelur mús. Hann sagði þjóninum að láta Maríus koma inn. Hann bjóst við térum og brennheitum bænum. Maríus hitti hann á miðju gólfi í stóra salnum, drembinn og þjóstmikinn. Ungi maðurinn gekk djarflega fyrir hann, og án þess að gefa ríka manninum tækifæri til að verða fyrri til sagði hann: — Herra de Cazalis. Mér veitist sá heiður fyrir hönd bróður míns, Philippes Cayol, að biðja um samþykki yðar á hjónabandi hans og ungfrú Blanche de Cazalis frænku yðar. Það var líkast og de Cazalis hefði orðið fyrir eldingu. Hon- um fundust þessi tilmæli svo fjarri öllum sanni að hann gat ekki einu sinni orðið reiður. Hann steig nokkur skref aftur á bak, starði á piltinn og hló fyrirlitlega. Svo svaraði hann: — Þér erUð brjálaður. Eg veit að þér eruð ærlegur og á- stundunarsamur piltungi, þess vegna skipa eg ekki þjónum mínum að reka yður út. Bróðir yðar er þorpari og skítmenni, og mun -fá refsingu fyrir glæp sinn. HVað er það eiginlega sem þér viljið? Þegar Maríus heyrði bróður sínum hrakmælt svo eftirminni- lega, sárlangaði hann til að ráðast á þennan fyrirmann og slá hann í rot. En hann stillti sig á*síðustu stundu. Röddin skalf af reiði er hann svaraði: — Eg hefi sagt yður hvað eg vil, herra de Cazalis. Eg kom hingað til að bjóða ungfrú Blanche de Cazalis einu uppreisnina sem möguleg er fyrir hana — lögmætt hjónaband, samþykkt af Danskir blaðamenn þakka forseta, Forseta Islands hefur nýlega borizt bréf frá Andreas El- snab, formanni dönsku sendi- nefndarinnar, er hingað kom á ársfund Norræna blaða- manriasambandsins um daginn, og hefur skrifstofa forseta góð- fúslega gefið leyfi til þess að það yrði birt. Fer það hér á eftir í lauslegri þýðingu: j „Sem forustumaður dönsku Inefndarinnar á norræna blaða- jmannamótinu í Reykjavík bið ég forsetann að veita viðtöku innilegu þakklæti fyrir alúðleg- ar móttökur á Bessastöðum. Eftir íslandsförina erum við: öll hugfangin af hinu fagra landi yðar og frelsiselskandi1 þjóð. Við vonum, að ísland hljóti bjarta og hamingjttríka framtíð, eins og öll skilyrði virðast benda til, og við finn- um til persónulegrar ábyrgðar um að vinna að því, að sam- bandið milli dönsku og áslenzku þjóðarinnar mótist af gagn- kvæmum skilningi og nánu samstarfi.“ Á kvöldvökiuini, Kommúnisti var gerður landrækur og var hann í káetu nr. 350. í hafi andaðist farþeg- inn í káetu 250; var skipverjum fyrirskipað að búa um líkið og varpa því fyrir borð. Þegar allt var um garð gengið kom það í ljós, að líkið var enn í káetu 250. Kallaði skipstjórinn þá bátsmanninn fyrir sig, og við rannsókn málsins varð ljóst, að manninum í káetu 350 hafði verið varpað fyrir borð í mis- gripum. „Það hefir verið kommúnist- inn,“ sagði skipstjóri. „Og hann hefir verið lifandi.“ „Já, hann sagði okkur það, en þér vitið nú, hvernig þéi’r eru. Það er ekki einu orði trúandi, sem þeir segja.“ © © Maður og lítil dóttir hans voru á ferð í strætisvagni. Allt í einu vatt kona ein, sem stóð fyrir framan manninn, sér að honum og rak honum löðr-ung. Aður en manninum gæfist tóm til að spyrja konuna, ’nverju þetta sætti, var hún farin úr yagninum. Telpan gaf hinsveg- ar ftilla skýririgu á þe*sa ér hana, pabbi. Hún steig ofan á mig og eg kleip hana.“ Aébúnaður smá- Gmr ámi fg?^, Islenzk kol. Úr Vísi 13. ágúst 1918: — „íslenzku kolin hafa yfirleitt reynzt mildu ver en við var bú- izt, en ef til vill er það að nokkru leyti því að kenna, að menn kunna ekki að fara með þau. Nú er farið að flytja til bæjarins ,,kol“ úr námu einni á Skarðsströnd, er um langan ald- ur hefir verið tekinn eldiviður úr þar vestra til heimanotkun- ar, og hefir það verið talinn ágætur surtarbrandur, en kol hefir engum komið til hugar að kalla þetta vestra. Reynt hefir verið að brenna gas úr kolum úr Dufansdal og nú ný- lega úr Stálfjallskolum, en þau jreynast mjög léleg til þess og j koksið er alónýtt. j Páfiim talar máli keisaraekkjunnar. Úr símskeyti til Visis frá Khöfn fyrir 35 árum: .... „Páfinn hefir tekið að sér að höfitímti hér. Smábátaútvegur í Eeykjavík fer nú ört vaxandi og hafa eig- endur smábáta undanfarin títt ár haft með sér bátafélagáð Björg. Berst félagið nú fyrir bættum skilyrðum fyrir útgerð. Fyrst og fremst vantar tilfinnanlega við- legupláss fyrir bátana á höfn- inni, en úr því er nú verið að bæta. Fram að þessu hefur verið ókleift að fá smábáta tryggða^ en Samvinnutryggingar hafa tekið að sér að tryggja bátana fyrir 5 af hundraði af matsverði. Einn f.ullkomnasti smábá.tur- inn hér er „Reykvíkingur“, eign Bjarna Kjartanssonar, Al- freðs Þórðarsonar og Jóns HalL- dórssonar. Báturinn er 4,19 rúmlestir, smíðaður í Hafnar- firði hjá Sveinbirni Zophoní.as- syni, knúinn 24 ha. dieselvéL Meðal öryggistækja er sjálfrit- andi dýptarmælir, er sýnir botn og dýpi á hverjum stað, frá Bendix-verksmiðjunum í Bandaríkjunum, og fer vart meira fyrir honum en útvarps- tæki. Verð hans er 535 doliarar með varahlutasetti. tala máli 1 keisaraekkjunnar hún sagði; „Mér er lika ife. við! rússnesku.“ Það er drjúgur spölur Inra f Miðbæ, en til a3 kema smáauglýsingu f Vísi, þarf ekki að far® Icngra en í Neshúð* N ©»▼*$! Sparið íé kssI |>vi al *etja stnáauglpifigB í VísL

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.