Vísir - 13.08.1953, Blaðsíða 6

Vísir - 13.08.1953, Blaðsíða 6
VlSIR Fimmtudaginn 13. ágúst 1953 neitt á. Ýmsar gamansamar athugasemdir um farartækið heyrðust frá piltunum meðan vagninn skrönglaðist eftir spor- inu út að Trianglen á Austur- brú. — Þar var farið úr og gengið út í Fælledparken þar sem fyrir var mikill fjöldi af ungu fólki við allskonar íþróttaæfingar og leiki. En garðurinn er góður og víðáttu- mikill og Hólmverjarnir fundu sér góðan, sléttan skika og sum- ir tóku til við knattspyrnu og aðrir við handbolta. Við slíkar aðstæður er ekki að undra þótt Danir nái leikni í meðferð knatt arins og láti sig ekki muna um að ,,bursta“ landann í iandsleik í knattspyrnu með 4 mörkum gegn 0. Júlíkvöldin í Danmörku. Júlíkvöldin í Danmörku eru •ekki eins björt og hér heima svo að leiknum var hætt rétt fyrir kl. 10 og þá var afráðið að spara fargjaldið til baka og ganga heim. En Austurbrú, I Stóra Kóngsgata, Strikið og Vesturbrú út að Valdimarsgötu er enginn smá spotti miðað við. reykvískar aðstæður, enda voru margir orðnir rislágir og lúnir þegar loksins var komið í KFUM. En á þessari göngu sáu drengirnir hina marglituj Ijósadýrð Kaupmannahafnar og jþótti mikið til koma. Áður en lagst var til hvíldar á flatsængurnar í samkomu-' salnum stóra, sungu drengirnir kvöldsöng sinn og enduðu þenn- an fyrsta dag í framandi landi® með lestri úr Heilagri Ritningu! og bæn til Guðs og þakklæti fyrir handleiðslu hans og vernd. Til Jótlands. Morguninn eftir, hinn 10. júlí var haldið til Jótlands með lest! frá Kaupmannahöfn, og það var nær undantekningarlaust fyrsta ferð íslenzku drengjanna með slíku farartæki. Lestin var yfirfull af farþegum og flestir þeirra voru drengir víðsvegar að á leiðinni til KFUM-sumar- búðanna við Horsens. Hólm- verjarnir voru hlédrægir og! þögulsr í lestinni fyrst í stað. j :En dönsku drengirnir létu þá ■ekki lengi í friði svo að áðurj en langur tími var liðinn heyrð oist margar útgáfur af „dönsku“ ^ ■úr hverjum klefa og allir voru í bezta skapi. Ferðin með ferj-; unni yfir Stórabelti var hress- * 1 andi tilbreyting og var þá lag- ið óspart tekið. í Nýborg urðu iestarþjónarnir svo skelkaðir, :þegar þeir sáu farangursfjall Hólmverjanna, að þeim féllust -alveg hendur, enda voru lestar vagnarnir allir yfirfullir af -öðrum farþegum. En þar sem apláss hafði sérstaklega verið pantað fyrir íslenzku drengina mörgum vikum fyrirfram, þá •var ekki með góðu móti hægt að skilja þá eftir. En hvað átti til bragðs að taka? Loksins kom Ækipunin: Inn í veitingavagninn með þá og allt draslið. Þeir blá- lclæddu létu ekki segja sér það tvisvar og var farangurinn all- "ur handlangaður inn um glugga og dyr á ótrúlega skömmum líma. En þegar siðasti Hólm- verjinn var kominn inn í vagn- 3nn urðu ýmsir að láta sér nægja -að standa á öðrum fæti, rúms- ;ins vegria. úlvænt dagskipan. Nú gerðu allir ráð fyrir að Sestin — sem þegar var orðin á eftir áætlun — brunaði af stað. Nei, í stað þess heyrðist hrópað með þrumuraust: „Ud med ba- I gagen“. Mörg Hólmverjahöfuð voru samtímis rekin út um lestargluggana til að sjá, hvað-( an þessi dagskipan kæmi. Þar var þá kominn mjög svo borða- lagður járnbrautarstarfsmaður með hvítklædda veitingamenn á eftir.sér, en þeir höfðu gert uppsteit yfir átroðningi blá- stakkanna og töJ.du sig ekki geta sinnt sínum „business11, fyrir þrengslum í veitingavagn inum (sem vonlegt varj. Þegar hrópin „Ud, ud“ héldu áfram, kvað við blístur í flautu sem allir Hólmverjar skildu. Þeir streymdu út úr vagninum og söfnuðust í þéttan hnapp. ,.Já og út með farangurinn,“ sagði sá borðalagði á sínu máli. „Það megið þér gjarna taka að yður, því við höfum áður fengið fyr- irmæli um að setja hann inn“, var svarið frá Hólmverjunum, sem nú þótti nóg komið af svo góðu. Veslings embættismann- inum féllust alveg hendur við þetta ósvífna svar og hann var ekki buinn að átta sig á hvað gera skyldi, þegar annar enn- þá meira borðalagður kom og kallaði hátt og skipandi: „Ind, ind, hurtigt, hurtigt." — Ósvikið blátt strik. Og það var ósvikið blátt strik, þegar Hólmverjarnir þutu inn í vagninn aftur og sá síðasti var tæplega kominn allur inn, þegar lestin var runnin af stað. Vonandi hafa þeir borðalögðu jafnað málin sín á milli í bróð- erni, en Hóimverjarnir höfðu gaman af þessu ævintýri og hafa í hjarta sínu löngu fyrir- gefið hinum minna borðalagða út-hróp hans. Ferðin yfir Fjón og Jótland til Horsens gekk mjög að ósk- um, þótt þröngt væri í þingi í vagninum. Veitingamennirnir voru dálítið stúrnir til að byrjaí með en tóku þó gleði sína aftur j þegar ■ á daginn leið, enda var" hægt að hagræða farangrvnum og rýma vel til fyrir þá. | Undir ísi. fánanum gegnum Horsens. Edv. W. Bramsen fram- kvæmdarstjóri Landssambands K.F.U.M. í Danm. kom til móts víð drengina á brautarstöðina í Horsens og bauð þá velkomna og lét flutningavagn flytja far- angur þeirra út í sumarbúðirn- ar. En Hólmverjarnir fylktu liði fyrir utan brautarstöðina og gengu í tvöfaldri röð með ís- lenzka fánann í fararbroddi um götur Ilorsens út í sumarbúð- irnar, sem voru á fögrúm stáð um 2 km. fyrir utan borgina. Eftirvæntingin skein út úr andlitum drengjanna, þegar þeir komu að hliðum hinnar miklu tjaldbúðar, þvíað á þess um stað biðu þeirra 8 dagar meðal 1000 KFUM-drengja frá 5 löndum, — dagar, sem þeir höfðu mikið hugsað og talað um og búið sig undir á ýmsan hátt. Aðaláfangastaðnum var náð og sjálft höfuð-ævintýrið var rétt að byrja. — Niðurl. FERÐA- FÉLAG ÍSLANDS FER þrjár ferðir um næstu helgi, 1V2 dags í Hítardal og að Hítarvatni. Lagt af stað kl. 2 á Laugardag frá Austurvelli og ekið fyrir Hvalfjörð og vestur í Hítardal alla leið að Hólmshrauni; gengið þaðan inn að Hólmi; gist þar í sæluhúsi er stendur við Hít- arvatn. Á sunnudag eru skoðaðir merkustu staðirnir í dalnum: Hellarnir, Nafna- klettur og fleiri staðir. — IV2 dags ferð í Landmanna- laugar. Lagt af stað.kl. 2 á laugardag og ekið upp í Landsveit að Landmanna- laugum og gist í sæluhúsi félagsins þar. Á sunnudags- morguninn gengið á nálæg fjöll. Farmiðar séu teknir fyrir kl. 6 á föstudag. — Þriðja ferðin er gönguför á Skjaldbreið. Lagt af stað á sunnudagsmorguninn, og ek- ið um Þingvöll að Skjald- breiðarhrauni, norðan við Gatfell. Gengið þaðan á fjallið. — Farmiðar séu teknir fyrir kl. 12 á laug- ardag. (113 SL. MÁNUDAG tapaðist frakki á leiðinni um Vestur- götu að Glæsi. Uppl. í síma 4038. (104 LÍTIL, grá barnapeysa fannst á Háaleitisvegi fyrir nokkru. Eigandi vitji hennar í Hólmgarð 28, uppi. (107 UNGA skrifstofustúlku vantar herbergi riú þegar eða 1. september. Upplýsingar á skrifstofu EHi- og hjúkrun- arheimilisins Grund í síma 4080. (124 LJOSIBRÚNIR kvenhanzk- ar töpuðust frá Laufásvegi að Grundarstíg. Skilvís finn- andi skili þeim á Hringbraut 10. — (116 KARLMANNSÚR tapaðist nálægt Austurbæjarbíói sl. laugardagskvöld. Vinsaml. skilist í Auðarstræti 13. (82 LÍTIÐ kvenúr hefir tapazt. Finnandi hringi í síma 80153 eftir kl. 7. (109 LYKLAKIPPA ’ tapaðist nálægt Grettisgötu 43. Skil- vís finnandi vinsaml. skili henni á sama stað. (122 WL VANTAR yður málara? — Málara vantar íbúð, 1—2 herbergi og eldhús eða eld- unarpláss, strax. — Uppl. í síma 2901. (30 HERBERGI. Gott herbergi óskast fyrir reglusaman karlmann, helzt 1 austur- bænum. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. — Uppl. í síma 7142 kl. 6—8. (108 HERBERGI til leigu. — Uppl. á Vitastíg 11 eftir kl. 7. (120 SIMA geta þeir fengið tií afnota, sem vilja leigja ró- legu fólki sem sjaldan er í bænum, herbergi og eldhús eða 2 lítil herbergi, helzt ná- lægt miðbænum. — Tilboð sendist afgr. blaðsins, merkt: „Tvö herbergi — 269.“ (125 STOFA til leigu í Skipholti 18. Barnakarfa til sölu á sama stað. (121 FATAVIÐGERÐIN, Laugavegi 72. Allskonar við- gerðir. Saumum, breytum, kúnststoppum. Sími 5187 SAUMA úr tillögðum efn- um. Ný tízkublöð. Valgeir Kristjánsson, Bankastræti 14. Bakhúsið. RAFLAGNIR OG VIÐGERÐIR á rafiögnum. Gerum við straujám og £ Bnnur heimilistæki. Raf tæk j averzlunin Ljós ag Hiti h.f. Laueavegi 79. — Síim 5184 NÝJA fataviðgerðin á Vesturgötu 48. — Kúnst- stopp og allskonar fatavið- gerðir. Seljum fatasnið. — Sími 4923. (111 KANARÍFUGLAR (án búrs) til sölu strax. — Simi 5747. (119 STOPPAÐ SETT, otto- man, með áfastri bókahillu og tveir stólar til sölu á Miklubraut 42. (118 DANSKT barnarúm, ný- legt, til sölu á Miklubraut 42. s (117 BARNAKOJUR óskast. — Uppl. í síma 81327. (110 SILVER CROSS barna- vagn til sölu á Vatnsstíg 4. (106 AFTURÖXLAR í Dodge Weapon og kveikja óskast keypt. Sími 81091 kl. 5—6 e. h. (105 VEIÐIMENN. Bezti ána- maðkurinn er á Lauíásvegi 50. — (112 TIL SÓLU tvísettur klæða- skápur, sem taka má sundur, á Bergþórugötu 29, fyrstu hæð hægra megin. (115 IBUÐARSKUR til sölu 2 herbergi og eldhús. Tilboð sendist á afgr, Vísis, merkt: „Tækifæriskaup — 268.“ (114 HÚSMÆÐUR: Þegar þér kaupið lyftiduft frá oss, þá eruð þér ekki einungis að efla íslenzkan iðnað, heldur einnig að tryggja yður ör- uggan árangur af fyrirhöfn yðar. Notið því ávallt „Chemiu lyftiduft“, það ó- dýrasta og bezta. — Fæst í hverri búð. Chemia h.f. — TÆKIFÆRISG JAFIR: Málverk, ljósmyndir, myndarammar. Innrömmum myndir, málverk og saumað- ar myndir. — Setjum upp veggteppi. Ásbrú, Grettis- götu 54. LAXVEIÐIMENN. Stór, nýtíndur ánamaðkur til sölu á Laugarnesvegi 40. — Sími 1274. (95 PLÖTUR á grafreiti. Út- vegum áletraðar plötur á grafreiti með stuttum fyrir- vara. Uppl. á Rauðarárstíg 26 (kjallara). — Sími 6123 73 WIBDRAJORÐIN |FTHR THE PS8RI6 STÖPPE7 WLUSS, THSV /gfj eftlr Lebeck og Willlams. >• . . Y OUROgCWR'S SVÖ5E j Lögreglumennirnir fleýgja sér til jarðar í sama mund og bifreið kvennanna springur í loft upp. Með ógurlegum gný tvístrast bifreiðin, og ekki verður éftir nokkur heillegur' hluti hennar. Þe'gar braki og 'rusli hættn- að rigna niður, taka lögreglu- mennirnir til fótanna að sprengingarstaðnum. Þeir sjá nú ékkert nema stór- an gíg þar sem bifreiðin liafði verið, og furða sig á krafti sprengingarinnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.