Vísir - 24.08.1953, Page 1

Vísir - 24.08.1953, Page 1
43, árg. Mánudagiim 24. ágúst 1953. 180. tbi. VI Tveggja ára fangelsi fyrir Farþegafluga með 925 km. meðalhraða. árás, fiílstiiMi o. fl. Auk þess gert að greiða nær 24000 kr. í skaðabætur, auk málskostnaðar. Fyrir skömmu var í Saka- dómi Reykjavíkur kveðinn upp dómur yfir Sigurði Kristjáni Kristjánssyni sjómanni til heimilis að Bergþórugötu 20 hér í bæ, en hann var ákærður fyrir marga bílstuldi, innbrots- tilraunir, árás og rán. Eitt helzta ákæruatriðið á hendur Sigurði Kristjáni var árás er hann framdi á mann nokkurn hér í bænum aðfara- nótt 2. marz sl. Var Sigurður þá á gangi niðri í bæ ásamt kunningjum sínum og hittu þeir þá sjómann Ásgeir Þórar- insson Bollagötu 6. Þeir þektu hvorugir Ásgeir, en gáfu sig á tal við hann í þeim tilgangi að fá hann til þess að útvega áfengi, en sjálfur var Sigurður Kristján með hálfa flösku af áfengisblöndu. Ekkert varð þó úr því að Ásgeir útvegaði neitt áfengi, hinsvegar greiddi hann leigu á bíl sem þeir félagar tóku og óku í um bæinn. , Vildi ná áfengi. Eftir að þeir höfðu látið bíl- inn fara, g^ngu þeir félagar upp að Iðnskólabyggingunni. Taldi Sigurður Kristján líklegt að Ásgeir myndi vera með áfengi á sér og ákvað að taka það af honiun, þó hann yrði að beita valdi til þess. Réðst hann að Ásgeiri og mun hafa slegið til hans en hann vék sér undan og tók til fótanna og hljóp nið- ur með Austurbæjarbarnaskól- anum. Sigurður hljóp á eftir honum, náði honum og sló hann hnefahögg í andlitið svo að hann fékk blóðnasir. Ásgeir tók aftur til fótanna og hljóp Sig- urður enn á eftir honum, náði j honum í barnaskólaportinu og sló hann annað högg í andlitið' svo Ásgeir féll við. Athugaði Sigurður nú hvort Ásgeir væri með áfengisflösku á sér, en ( varð einskis var. Hinsvegar tók hann armbandsúr af Ásgeiri og stakk því á sig. Hrópaði Ásgeir nú á hjálp og hljóp Sigurður þá á brott, en var handtekinn daginn eftir og játaði þá brot sitt. Ásgeir hlaut nokkurn áverka og leitaði læknis strax um nóttina. 24 þús kr. skaðabætur. Auk þessa sem hér hefur verið sagt frá hefur Sigurður . gerzt brótiegur um ýmislegt annað, t.d. var það hann sem | stal bifreiðum hér í bænum ásamt féiaga sínum aðfaranótt 11. mai sl. og óku þá austur yfir fjall, en voru handteknir við Rauðavatn í bakaleiðinni. Hefur Vísir áður skýrt frá þeim stuldi. í Sakadómi Reykjavíkur var Sigurður Kirstján dæmdur til 2ja ára fangelsisvistar var sviftur kosningarrétti og kjör- gengi, dæmdur til greiðslu ^ málskostnaðar og til skaðabóta að upphæð nær 24 þús. kr. N. York (AP) — Boeing-* verksmiðjurnar amerísku von- ast til að géta prófað farþega- fluguí knúna þrýstihreyflum, á næsta ári. ( Flugvél þessi verður búift fjórum hreyflum, á að geta flutt 100 farþega, og meðal- hraði hennar verður um 92a km. á klst. Verður síðan nægt að hefja fjöldaframleiðslu á slíkum flugvélum árið 1955, Aðeins eitt amerískt félag hef- ur fest kaup á Comet-vélum, þar sem menn telja, að þær sé of dýrar og eyði of miklu eids- neyti í hlutfalli við burðar-i magn. Góð reknetaveiði Hafnarfjarðarbáta. Um 10 bátar stunda nú rek- netaveiðar frá Hafnarfirði og var veiði bátanna ágæt lim helgina. Komu þeir flestir inn á laug- ardag og sunnudag og höfðu frá 80—150 tunnur hver bátur. Síldin veiðist bæði í Miðnessjó og í Jökuldjúpi. Bæjarbruni í Eyjafirði. Frá fréttaritara Vísis. — Akureyri í morgun. Á laugardaginn brann íbúð- arhús ásamt hlöðubragga að Ytra-Krossanesi í Eyjafirði. Eldsvoði þessi varð um hálf- sexleytið siðdegis og kom eld- urinn upp í hlöðubragga, sem var rétt við bæinn og munu hafa verið í honum um 150 hest ar af heyi. Ekki er kunnugt um 1 eldsupptök, en helzt gizkað á,' að krakkar hafi verið að leika sér með eld í námunda við braggann. Er bóndinn að Ytra-Krossa- nesi, Brynjólfur Sigtryggsson, varð eldsins var í heyinu, gerði hann strax aðvart til Akureyr- ar og bað slökkviliðið um að- stoð, því sjálfur var hann fá- liðaður heima. Slökkviliðið kom þegar á vett vang með dælubíl, en engin tök voru á að ná í vatn á bænum og fékk slökkviliðið ekki við neit't ráðið. Eldurinn læsti sig úr hlöðubragganum og í íbúðar-j húsið, sem var gamalt timbur- hús, og brann það ásamt bragg- anum til ösku. Enda þótt miklu af innbúi hafi verið bjargað úr íbúðar- húsinu varð Brynjólfur bóndi samt fyrir tilfinnanlegu tjóni. Jörðin Ytra-Krossanes er í ríkiseign. Fyrir skemmstu kom rússneskur hermaður til aðalbækistöðvar Bandaríkjamanna í V.-Berlín og bað hæiis sem flóttamaður. Hugmyndina að flóttanum hafði Iiann fengið, er bpnn var á verði við stríðsminnismerki Russa í miðborginni, en þar í grennd hafði amerískt kvikmyndafélag verið að taka mynd, er fjallaði um flótta rússnesks hermanns inn á hernámssvæðið ameríska. Afréð Rússinn að leika þetta eftir og tókst það. Hér sést hann leiddur að bíl, er átti að flytja hann í flóttamannabúðir Þeir ætla ríðandi suður á flugvöll og að vélinni. Brezku gestirnir forYÍða, er þeir sáu sundriðið í Þverá. Fram vaiin lið atvínnu- vnanna í Koblenz. Knattspyrnufélagið Fram háði í gær kappleik í Þýzka- landi við árvalslið atvinnu- manna í Rínarhéruðunum, og unnu Framarar leikinn með 3 mörkum gegn 2. Hefur Fram nú leikið þrjá leiki í Þýzkalandi, tapað tveim fyrri leikjunum, en sigrað í þriðja. Síðasti leikur þeirra verður í Köln. Síðastliðinn fimmtudag kepptu Framarar við úrvalslið í Kob- lenz og töpuðu þar með 2 mörk um gegn. 1. Brezku ,hestamennirnir‘, sem nú eru á förum héðan, láta á- kaflega vel af förinni, ekki sízt íslenzka hestinum, að því er Gunnar Bjarnason ráðunautuv, sem er í för með þeim ásamtj Þorleifi Þórðarsyni forstjóra, I tjáði Vísi í morgun. Þeir voru þá staddir að Varmalandi í Borgarfirði. Þeír riðu frá Þingvöllum í fyrradag að Hvanneyri og gistu þar. — Síðan héldu þeir áfram úm Bæj arsveitina, drukku kaffi i Deild artungu, og þótti þeim skemrúti legt að kynnast nýtízku sveita- bæ á íslandi. Kunna vel við töltið. Veðrið hefur leikið við gest- ina, og eru þeir hrifnir af land- inu, en einkum hefur .íslenzki hesturinn vakið aðdáun þeirra. Þeir kunna afbragðs vei við töltið, en þá gangtegund þekkja þeir ekki hjá erlendum hestum. Þeir Kerr Hunter og Pater- son, báðir skozkir, hafa hug á því að koma upp skóla í Edin- borg, hafa þar 10 hesta héðan eða svo, og kenna mönnum að sitja íslenzka hestinn og kyhn- ast töltinú. í gær sáu gestirnir, er sund- riðið var í Þverá. Gerðu það' þeir Páll í Fornahvammi og Höskuldur á Hofsstöðum. Voru Bretarnir nánast gáttaðir á Framh. á 2. síðu. Dðkaslátrun hefst á miBvfkudag. Dilkaslátrun hefst á miðviku- daginn, bæði hér sunnan lands, norðan og vestan. Búizt er við að dilkarnir, sem koma á Reykjavíkurmarkaðinn fyrstu dagana, verði aðallega úr Borgarfirði, Dölum og Snæfells nesi, eða yfirleitt af svæðinu vestan Hvalfjarðar, þar eð nýr fjárstofn er nú í sveitum hér austanfjalls. Kjötverðið hefur ekki verið ákveðið ennþá, en það mun verða auglýst í kvöldútvarpi annað kvöld, að því er fram- leiðsluráð landöúnaðarins tjáði Vísi í morgun. Eft-ir venju verð- ur sumarverðið nokkru hærra, en þegar líður fram á haustið, og meira kjöt berst á markað- inn. Fjölbreytí SÍBS-há- tíðahöid um helgina. SÍBS gekkst fyrir fjölbreytt-. um hátíðahöldum í skemmti- garðinum Tivoli um helgina. Höfðu SÍBS-menn vandað vel til skemmtiskrárinnar, svo sem venja er til á samkomum, sem þeir gangast fyrir. Meðal þess, sem til skemmtunar var, mun hljómsveit Kristjáns Kristjáns- sonar og nýir dægurlagasöngv- arar, sem hann hefur komið á framfæri, hafa vakið mesta at- hygli. Hátíðahöldin voru allvel sótt, en einkum var fjölmennt þar suður frá í gær. Skemmtanirn- ar fóru fram með hinni raestu prýði. Ölvaðir bílstjórar teknir. Geysimikil ölvun var liér í bænum um helgina. Hafði lögreglan mikið að gera í sambandi við hana. Margir menn voru teknir fastir af þess- um sökum og fluttií í fanga- geymslu. Tveir bifreiðastjórar voru teknir við akstur, aðrir tveir voru kærðir fyrir of hraðan akstur og loks var kvenmaður tekinn fastur fyrir að aka b$ réttindalaus. Bíl stolið. f gærkvöldi var bifreiðinm R-5102 stolið. Er það svört fólksbifreið af Humbergerð, sem skilin hafði verið eftir um áttaleytið fyrir utan Ásvallagötu 37. Nokkru seinna var bifreiðin horfin og í morgun hafði lögreglunni ekki borizt tilkynning um að hún hefði fundizt. Vistmenn strjúka frá Amarholti. Á föstudagskvöldið struku tveir vistmenn frá Arnarholts- liælinu. Var þeirra leitað þá um kvöid ið, en án árangurs. Ekki et b'að inu kunnugt um hvort þeir bafa fundizt síðan. . *

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.