Vísir - 25.08.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 25.08.1953, Blaðsíða 1
4S. árg. Þriðjudaginn 2$. ágúst 1953. 191. tbl. Spennandi tugþrautarkeppni á íþróttavellinum. Húrbw ná5i bezta tíma sumarsins t 100 ttt. hlaupi, 10,8 sek. Tugþrautarkeppni meistara- móts Reykjavíkur hófst á í- þróttavellinum í gær, en hún er síðasta greinin í stigamótinu og ræður væntanlcga úrslitum' um það, hvort félaganna, Ár-j rnanns eða K.R., hlýtur flest stig á mótinu í heild. Áður en tugþrautin hófst mun KR hafa haft 2 stig yfir| Ármann, en önnur höfðu lægri stigatölu. Eftir fyrri dag tugþrautar- keppninnar standa leikar þann- igj að tveir Ármenningar halda forystunni, Hörður Haraidsson með 3197 stig og Guðmnndur Lárusson með 3149 st. Þriðji í röðinni er Valdimar Örnólfsson ÍR með 2796 st. 4. Þórir Þor- steinsson Á 2766 st. 5. Hreiðar Jónsson Á 2687 st. og 6. Pétur Rögnvaldsson KR 2628 stig. í 100 metra hlaupinu í gær Tito afhenf trúnaðarbrét. Dr. Helgi P. Briem afhenti í gær forseta Júgóslavíu, Titó marskálki, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Júgó- slavíu. Fór afhending trúnaðarbréfs- ins fram á sumarsetri forsetans á eyjunni Brioni. Dr. Helgi P. Briem hefur áfram aðsetur í Stokkhólmi. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík 25. ágúst 1953. Þór á leið til landsins. Varðskipið Þór, sem undan- farið hefir verið í Álaborg til \iðgerðar og eftirlits, er nú á leið hingað. Skipið fór þangað til þess að athugaðar yrðu vélar þess, sem reyndust gallaðár, eins og menn muna. Nú er þessari við- gerð lokið, og tjáði Pétur Sig- urðsson blaðinu, að hún hefði tekizt vel. náði Hörður Haraldsson bezta tíma sumarsins, eða 10.8 sek. og Guðmundur á 11.0 sek. Guð- mundur hljóp 400 metrana á 49.8 sek. Beztum árangri náði Valdimar í langstökki, 6.08 m., og í kúluvarpi 12.23 m. í há- stökkinu stökk Pétur hæst, 1.85 m. Keppninni lýkur í kvöld og er þá búizt við að röð kepp- endanna breytist nokkuð frá því í gær. BemharS var nærri kafnaðttr. Nýlega var sagt frá því hér í blaðinu, að Júlíana Hol- landsdrottning hefði næstum lent|!„í klónum“ á Iögregl- unni vegna smávægilegs ó- happs. Nú segja nýútkomin er- lend blöð frá því, að annað og alvarlega óhapp hafi kom- ið fyrir mann hennar, Bern- harð prins, og munaði minnstu, að hann biði bana — kafnaði á hafsbotni. — Prinsinn hefur verið á Hol- lenzku Vestur-Indíum, og einn daginn kafaði hann í Caracas-flóa til að taka myndir á hafsbotni. Var hann með köfunarútbúnað, en skyndilega bilaði útbúnað- urinn, svo að prinsinn var að köfnun kominn. Urðu menn, er voru með honum, að skera útbúnaðinn af hon- um, til þess að hann kæmist upp á yfirborðið aftur. (Jm 150 jarð* brærinpr taldar. Ekki hefur orðið vart neinna jarðhræringa síðan aðfaranótt laugardags. Þá nótt sýndu jarðskjálfta- mælarnir 10 smáhræringar og einn allstóran kipp, sem m. a. fannst greinilega hér í Reykja- vík. Annars var sá kippur ekki eins stór og stærstu kippirnir á íimmtudaginn. Á föstudaginn varð engra jarðskjálfta vart. — Samtals hafa verið taldar um hálft annað hundrað jarð- skjálftahræringar frá því er þær hófust á fimmtudaginn og er þó talningu ekki fyllilega lokið Onn. SíldarlaiKst á norðurmiðtin. Engin síld barst til Raufar- liafnar í nótt eða morgun. Rigning var á miðunum í nótt og ekki gott veiðiveður. í gær komu fáeinir bátar með lítilsháttar slatta, sem þeir höfðu fengið undanfarna daga, meðal þeirra voru Einar Hálf- dán, Áslaug og Heimir. Síldveiðiskipin eru nú smám saman áð hætta veiðum og fara til heimahafna sinna. Á morgun er von á sænsku skipi til Raufarhpfnar til að lesta síld til Rússlands. Búizt er við að það taki a. m. k. 4000 tunnur og er þetta fyr'sta síldin, sem þaðan fer til útlanda. Flokkadrættír á jiíngi §iþ, Lamað fólk frá mörgum löndum tók nýlega þátt í íþróttamóti í Mandeville í Buckingham-skíri í Brctlandi. Þótti aðdáan- legt, hversu röskir margir sjúklinganna voru. Myndin er af einum spjótkastaranum, Margaret Webb fra London, rétt áður en hún kastar spjótinu. íslendingar 3. í röðinni í heimimim um símanotkun. Aðeins Kanadamenn og Ilautla- ríkjamenn nota símann meira, næst Svíar. tJrsisýitiiMp í Frankfurt. Frankfurt (dpá). — Fimmta alþjóðasýningin á úrum og skartgripum stóð hér í borg 22.—25. þ.m. Þar sýndu 57 þýzkar úr- smiðjur framleiðslu sína, auk 42ja verksmiðja í Sviss, en auk þess voru sýndir allskonar skartgripir. frá 55 fyrirtækjum. þar Hver fslendingur talaði sem svarar einu sinni á dag að með- altali í síma árið 1951, en það táknar, að við erum þriðja þjóð in í röðinni í heiminum, að því er snertir talsímanotkun. Þessar upplýsingar og marg- ar fleiri má finna í skýrslu, sem nefnist „Telephone Statistics of the World“, sem gefin er út í New York, en hér er um að ræða yfirlit um talsímafjölda, notkun og annað, er að þeim málum lýtur. í hitteðfyrra námu símtöl íz- lendinga samtals hvorki meira né minna en 52.900.000, en það svarar til 364.8 á hvert manns- barn á landinu, eða sem næst einu á dag allan ársins hring, eins og fyrr segir. Kanadamenn tala mest. Það eru Kanadamenn, sem nota símann mest, en þar námu samtölin 378.2 á mann á ári. Bandaríkjamenn voru aðrir í röðinni, og voru þeir álíka dug- legir við símanotkunina og ná- grannar þeirra, en hver Banda- ríkjamaður tálaði 376.3 sinnum í síma það ár. Svíar voru fjórðu í röðinni (309.6), þarnæst Dan- ir -(257.1), þá Argentínumenn (167.7) en Norðmenn voru sjö- undu (157.5). Geta má þess, að alls voru í notkun hinn 1. janúar 1952 um það bil 79.4 millj. talsímaá- áhalda. í niu löndum voru tal- símar fleiri en ein milljón: Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada, Vestur-Þýzkalandi, Frakklandi, Japan, Svíþjóð, ítal íu og Ástralíu. TJtbreiddastur var síminn í Bandaríkjunum, þar sem 29.3 áhöld komu á hvert hundrað íbúa. Svíþjóð var næst (25.2), Kanada (22.1), Sviss (19-9), Nýja Sjáland (19.9) og Danmörk (17.5). 21.368 talsimar hér á landi. Alls voru í Bandaríkjunum hinn 1. janúar 1952 rúmlega 45.6 millj. talsíma, en 5.7 millj. á Bretlandi. — Talsímar á ís- landi miðað við sama tíma voru 21.368. Engar skýrslur lágu fyrir um talsímafjölda í Rússlandi á þessum tíma, en síðustu skýrsl- ur, sem menn hafa aðgang, að, eru frá 31. marz 1936, en þá töldust talsímar í landinu 861 þúsund. í Vestur-Þýzkalandi voru samtals 2.7 millj., en í Austur- Þýzkalandi og Berlín aðeins 359.000. 248 hvaiir hafa Indland mun ekki sitja Kóreuráð- stefnuna. Mörg ríki ntiinu shja Iija vift at- kvæðagreiðslu. Einkaskeyti frá AP. —• N. York í morgun. Það er nú komið á daginn, sem margir óttuðust, að treg- lega horfir um samkomulag um skipan fulltrúa á væntanlega Kóreuráðstefnu. Henry Cabot Lodge, aðalfull- trúi Bandaríkjanna á allsherjar þingi Sþ, lýsti yíir því í gær, að Bandaríkin hefðu nú nægi- lega mikið fylgi á þinginu, til þess að koma í veg fyrir aðild Indlands á Kóreuráðstefnunni. Þykir sennilegt, að hann hafi sagt þetta með því að hann viti, að Suður-Ameríkuríkin. muni greiða atkvæði með Banda ríkjunum, en mjög mörg Ev- rópuríki munu sitja hjá, meðal annars Frakkland og Luxem- borg. Hins vegar hafa fulltruar flestra samveldislanda Breta lýst yfir því, að þau muni styðja þá tillögu, að Indverjar toki þátt í hinni fyrirhuguðu ráð- stefnu. Styður Vishinsky — vitanlega. Heyrzt hefur hljóð úr horni frá kommúnistastjórninni í Peking. Chou-en-lai, utanrík- isráðherra Pekingstjórnarinnar, hefur lýst yfir fylgi sínu við til- lögu Vishinskys, aðalfulltrúa Rússa hjá Sþ, sem gerir ráð fyrir, að 11 ríki taki þátt í Kóreuráðstefnunni. Utanríkisráðherra S-Kóreu flutti ræðu í stjórnmálanefnd allsherjarþings Sþ í gær, og lýsti þá m. a. yfir því, að S.- Kóreumenn líti svo á, að óger- legt sé að leyfa Indverjum ailí eiga fultrúa á ráðstefnu urc framtíð Kóreu, þar eð Indlands« stjórn hafi jafnan dregið taura kommúnista. Þykir horfa heldur óvænlega um ráðstefnu þessa, að því er- margir fréttaritarar segja, og óvíst með öllu, hvort hún komi að nokkru gagni, þar eð mena séu svo ósammála um flesta hluti áður en hún hefst Þrátt fyrir ótíð undanfarið hafa borizt samtals 248 hvalir til stöðvarinnar í Hvalfirði. Langmestur hluti veiðinnar er langreyður, sem hefur yfir- leitt verið 55—70 fet á lengd, en auk þess hafa veiðzt nokkur búrhveli og 4 bláhveli á þessari vei’tíð. Stærsta bláhvelið, sem veiðzt hefur í ár, var 86 fet á lengd. Bezta kjötið af hvalnum fer hinga ( í bæinn, þar sem tals- verðu r og vaxandi markaður er fyrir hvalkjöt, en annað kjöt er fryst á Akranesi til útflutn- ings til Bretlands. í sumar hef- ur verið afskipað um 630 lest- um af hvralkjöti þangað. Hitt fer í bræðslu í Hvalfirði. Hjól brotnaði undan bifreið í gær vildi það óhapp til hér , í bænum, að framhjól brotnaði undan bifreið sem var á ferð og orsakaði slys^ Varð kona að nafni Sigur- laug Daðadóttir, til heimilis að Rauðarárstíg 20, fyrir bifreið- inni og meiddist bæði á hand- legg og í andliti. Kona, sem var í bifreiðinni, mun hafa hlotið höfuðhögg og fékk kúlu á enn- ið. í gær tók lögi’eglan tvo bif- reiðarstjóra, báða grunaða um ölvun við akstur. .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.