Vísir - 28.08.1953, Síða 1
43. árg.
Föstudagimi 28. ágúst 1953.
194. tbl.
Eldey er þéttsetnasti
blettur á ísbndi.
Engar breytingar e5a hrun hefur
orðið úr eynni, eins og þó var
haldið fram fyrir tveim árum.
¥erið a5 setja „Fisk-
stöflun" upp við
Sjómannaskólann.
Um þessar mundir er unnið
að því að setja upp Iágmynd við
Sjómannaskólann.
Er það myndin Fiskstöílun
eftir Sigurjón Ólafsson mynd-
höggvara. Er myndin sett upp
rétt hjá Vatnsgeyminum við
brautina heim að Sjómannaskól
anum, og miðar verkinu vel á-
fram og verður lokið innan
skamms.
Framkvæmd þessi er kostuð
af Fegrunarfélagi Reykjavíkur,
sem ver nú til þess ágóðanum,
sem varð af fegurðarsamkeppn-
inni og hátíðahöldum félagsins
í Tivoli fyrir skömmu. — Enn
fremur er félagið að hefja und-
irbúning að lagfæringu við
tjörnina fyrir framan Iðnó, og
á því verki einnig að verða lok-
ið í haust.
.... »
Flugvélm grandaói
30 — 60 máfum.
Fyrir nokkru skýrfti Vísir frá
því, að ensk flugvél hefði orðið
að nauðlenda á Kastrup-velli
við Kaupmannahöfn eftir á-
rekstur við máfa.
Nú skýra nýkomin blöð frá
því, að þetta hafi átt sér stað
aftur, og biðu milli 50 og 60
fuglar bana af þessum sökum.
Flestir lágu í ,,kjölfari“ flug-
vélarinnar, en nokkrir voru
fastir inni á milli „cylindra“
annars hreyfilsins.
............
25 mamts fer-
ast i bílslysi.
Nýlega fórust aílir — 25
manns — sem voru á ferð í
langferðabíl í fjallahéraði í
Perú.
Var bifreið þessi á feið í
bratta á gilbarmi, þegar neml-
arnir biluðu svo að ökumaður-
inn missti stjórn á bilnum nær
strax, og hrapaði bíllinn ofan
í 300 feta djúþt gljúfur.
Þann 10. september næst-
komandi verður áfengisútsöl-
unr.i í Vestmannaeyjum lokað.
Frá og með þeim degi kemur
til framkvæmda héraðsbannið,
sem Vestmanneyingar sam-
þykktu sl. vetur.
Samkvæmt reglugerðinni um
héraðabönn ber að loka áfeng-
issölunni á þeim stöðum, þar
sem héraðabann er samþykkt,
6 mánuðum eftir að samþykktin
hefir verið gerð, eða öllu held-
ur 6 mánuðum eftir að bæjar-
Eldey stendur enn úr hafi og
óbreytt frá því sem áður var,
að 'því er Þorstein Einarssoh
íþróttafulltrúi og fuglafræð-
ingur hefur tjáð Vísi.
Fyrir tveimur árum fullyrti
skipstjóri nokkur, sem var að
veiðum undan Eldey að hann
hefði séð merki þess að nokkur
hluti Eldeyjar hefði hrapað í
sjó.
Til þess að ganga úr skugga
um breytingar þær sem orðið
hefðu á eynni og hve mikið
hefði hrunið úr henni voru
ljósmyndir teknar af henni i
sumar og eftir þeim síðan mæl-
ingar og aðrar athuganir gerð-
ar. Myndatökurnar annaðist
ljósmyndunardeild bandaríska
flotans hér fyrir milligöngu
L. Moe forstöðumanns banda-
rísku Upplýsingaþjónustunnar
hér, en hann er kunnur fugla-
fræðingur og hefur áhuga á öllu
er þar að lýtur.
stjóra eða forseta bæjarstjórn-
ar viðkomandi bæjar hefir ver-
ið tilkynnt niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar. Lokunin
miðast því ekki við þann dag,
sem atkvæðagreiðslan fer fram,
heldur þann dag, sem úrslitin
eru formlega tilkynnt.
Auk Vestmannaeyja hafa
tveir kaupstaðir aðrir sam-
þykkt héraðsbann, það eru ísa-
fjörður og Akureyri, og verður
áfengissölunni á ísafirði lokað
20. október, en á Akureyri ekki
fyrr en fyrstu dagana í janúar.
Engin breyting
er sjáanleg.
Við nákvæma athugun á ljós-
myndunum héfur komið í ljós
að Eldey stendur óbreytt frá
þvi sem áður var og engin
breyting sjáanleg á henni. Það
er því alls ekki um það að
ræða að nokkur hluti eyjarinn-
ar hafi hrapað í sjó eins og
haldið hefur verið fram, en
einhverjar jarðhræringar hafa
kannske átt sér stað fyrir
tveimur árum, því fugl hvarf
þaðan nokkra daga. Þótti það
ekki einleikið því venjulega er
hún hvít af fugli.
Ljósmyndir þær, sem teknar
voru af Eldey í sumar, leiddu
það ennfremur í Ijós, að fugl
er þar sízt minni en árið 1949,
er eyjan var einnig ljósmynduð
í þeim tilgangi að sjá fugla-
mergðina þar. Fullyrða má að
Eldey er eins þétt setin fugli
og unnt er að koma hreiðrum
fyrir uppi á henni, en auk þess
er mergð fugls utan í bjarginu.
Er áætlað að um 12—13 þúsund
súlnahjón verpi þar núna, og
ef það reynist rétt mun Eldey
vera stærsta einstök súlubyggð
í heimi. Aðrar súlubyggðir. sem
nokkuð kveður að eru í St.
Lawrence-flda við strendur-
Norður-Ameríku, kringum
Bretlandseyjar, við Frakk-
lands- og Noregsstrendur. Eru
þær allar friðaðar, enda þykir
sjálfsagt að vernda þennan
litla fuglsstofn, en súlán mun
vera einhver elzta fuglstegund
jarðarinnar.
EIdejr var
nytjuð áður.
Eggert Ólafsson getur þess í
Ferðabók sinni að þá og þar
áður hafi jafnan verið gengið á
Eldey og hún nytjuð, en þær
íFram a 8. síðu)
Áfengisútsölunni í Eyjum
lokað 10. september n. k.
Á Ísafir5i ver5ur vínbú5inni loka5 20. októ-
fter og á Akureyri í byrjun janúar.
9 skip veiia fyrir Þýzkaland.
Tvö eru farin út, hin að búast á veiðar.
Jón forseti fór á veiðar í gær,
og er honum ætlað að veiða í
ís fyrir Þýzkalandsmarkað.
Þá fór Fylkir einnig á veiðar
fyrr í vikunni, og mun hann
líka veiða fyrir Þýzkaland,
og Röðull fer á morgun. Auk
þess er verið að búa nokkra
togara á veiðar fyrir þenna
markað, og eru þeir þessir:
Askur, Jón Þorlákss. og Karls-
efni hér í bænum, Bjarni ridd-
ari og Júlí í Hafnarfirði og Kald
bakur á Akureyri.
Samningarnir um fisklandan-
ir í Þýzkalandi eru á þann veg,
að íslenzk skip mega leggja þar
afla á land á vissum tíma árs!
fyrir ákveðna f járhæð, er nem- !
ur um 30 milljónum króna fyr-
ir þetta ár. Undanfarin tvö ár
hafa íslenzku fiskiskipin ekki
fyllt „kvóta“ þann, sem þeim
var ætlaður með samningum. í
annað skiptið kom verkfallið á
togurunum í veg fyrir, að hægt
væri að hagnýta þenna mai'k-
að, og í hitt skiptið var vei'ð-
lag á fiskinum svo lágt, að ekki
þótti svara kostnaði að veiða
fyrir Þýzkaland. Þar er upp-
boðsfyrirkomulag á aflasölum,
svo að fiskmagnið er mismun-
andi, sem hægt er að leggja á
land.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Vísir aflaði sér í morg-
un hjá Ólafi Jónssyni, framkv.-
stjóra h.f. Alliance, hefur mark-
aður í Þýzkalandi verið sæmi-
lega hagstæður að undanförnu,
og stafar það af því, að þar
hefur verið heldur svalt í veðri,
en þegar hitar eru rniklir, fell-
ur verðið óðai'a. Horfur eru því
ekki sem vei'star. þótt ekkert
vei'ði um það sagt, hvernig verð
Erfið heyskapartíð
austanlands.
Frá fi-éttaritara Vísis. —
Mjög votviðrasamt hefir ver-
ið á austurlandi nú um langan
tíma, og hafa bændur átt í
miklum erfiðleikum um hey-
þurrkun. Hefir varla komið sá
dagur nú um mánaðartíma eða
meira, að ekki hafi rignt meira
eða minna. í gær var held-
ur að birta til, og vænta menn
nú þei'ris ,enda ekki oi'ðin van-
þöi'f á, því að víða ei'u mikil
hey úti.
lag verður, þegar togararnir
leggja afla sinn á land.
Dawson undir-
býr löndun.
George Dawson heldur áfram
undirbúningi sínum í sambandi
við væntanlega fisklöndun ís-
lenzkra togara í brezkum höfn-
um.
Undanfarið hefur fátt frétit
af viðbúnaði Dawsons, en margs
konar sögur verið á kreiki, —
Vitað er, að fyrir fáum dögum
áttu þeir viðræðufund i Lon-
don, Þórarinn Olgeirsson ræð-
ismaður, sem er fulltrúi ís-
lenzki'a togaraeigenda á Bret-
landi, og Dawson. Ræddust þeir
við í tvo daga um þessi mál, en
síðan fór Dawson til Gviinsby
til að athuga, hvað liði undir-
búningi þar.
Er því ekki annað vitað. erx
að landað verði íslenzkum fiski
á Bretlandi á vegum Dawsons,
exns og ráðgert haiði verxð, erx
hins vegar veit Vísir ekki á
þessu stigi málsins, hvenær iönd
un hefst.
Þarf nú að breyta
sögu Rússa?
London. (A.P.). — Mcnn
bollaleggja um það hér, hvort
ný „breyting“ sé í aðsigi á sögu
Ráðstjórnarríkjanna.
Hefir aðalrit ríksins á sviði
sagnfræði verið sett undir nýj-
an ritstjóra og' sá eldri rekinn
fyi'irvaralaust, og auk þess hef-
ir ritnefndin verið skipuð nýj-
um mönum að mestu. Er það
kona, sem tekið hefir við rit-
stjórninni.
Þjóðartekjur US
jukust um 5%.
Washington. — Viðskipta-
málaráðuneytið hefur tilkynnt,
að tekjur manna hafi hækkað
um 5% á sl. ári.
Alls urðu launagreiðslur 255
milljarðar dollarar, en höfðu
verið 243 milljarðar árið áður.
Tekjur á hvern landsmann
námu 1639 dollurum, og hækk-
uðu um 4% frá 1951.
Haföi 3 fiska eftir nóttina.
Mandfæi'aveiðín IicTir brngðizí.
Aflabrögð hér í Faxaflóa
hafa verið mjög stopul upp á
síðkastið og farið minnkandi
eftir því senx á sumarið hefir
liðið.
Framan af í vor öfluðu menn
prýðisvel á handfæri, en nú
vii'ðist fiskurinn vera gersam-
lega horfinn. T. d. kom einn
bátur til Reykjavíkur í gær-
morg, in með aðeins 3 fiska eft-
ir nóttina. Aftur á móti hafa
bátar, sem eru með lóð, aflað
vel undanfarna daga — feng-
ið einkum smálúðu — og lít-
ilsháttar af lýsu, sandkola,
skötu og ýsu, en smálúðan er
þó meginhluti veiðinnar.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Vísir fekk hjá Fiskhöllinni
í gær, eru flestir handfærabát-
arnir hættir veiðum, því að
segja má, að þeir fái ekki bein
úr sjó, og er ástandið nú mjög
bi'eytt frá því í vor og fyrri-
þartinn í sumar, er þeir höfðu
mokafla. Vii'ðist fiskurinn ger-
samlega hafa horfið upp á síð-
kastið, en í staðinn komið ganga
af smálúðu, en hún veiðist ein-
ungis á lóð. Um þessar mundir
er því skortur í bænxim á
þorski, en aftur á rnóti gnægð
smálúðu. ' " .