Vísir - 15.09.1953, Blaðsíða 1
«3. árg.
Þriðjudaginn 15. september 1953
209. tbl.
Stúlka finnst liggjandi úti
á götu í nótt.
Handaldgmál í veitingahúsi.
t nótt fannst stúlka liggjandi
á Suðurlandsbrautinni me'ð
noklcra áverka.
Voru það tveir bifreiðarstjór
ar, sem komu fyrst að stúlk-
unni þar sem hún lá á götunni
við vegamót Reykjavegar og
gerðu lögreglunni aðvart um
hana. Engar upplýsingar gátu
þeir gefið um slysið, en töldu
sig báðir hafa séð bifreið ekið
allhratt framhjá slysstaðnum í
austurátt rétt áður.
Lögregla og sjúkrabíll komu
á slysstaðinn og var stúlkan,
Sjöfn Helgadóttir að nafni,
flutt til læknis til athugunar.
Blaðinu er ekki kunnugt um
meiðslin,. en þau voru ekki tai-
•in alvarleg, samkvæmt fyrstu
athugun læknis.
Handalögmál.
í gærkveldi kom til handa-
lögmáls á Adlonbar í Aðal-
stræti.
Hafði tveimur mönnum, er
þar voru gestkomandi, sinnast
og hlutust af því handalögmál.
1 átökunum brotnaði eitthvað
af leirtaui og augabrún annars
óróaseggsins sprakk. Lögregl-
an var kvödd á véttvang og fór
hún með báða mennina á lög-
reglustöðina. Þar kom í Ijós að
þarna var um vinnufélaga að
ræða, tókust með þeim sættir
og greiddu þeir áfallinn kostn-
að.
Grunaður um þjófnað.
Um líkt leyti var lögreglan
kvödd á veitingastofuna Centr-
al vegna manns sem grunaður
var um að hafa stolið 500 kr.
8S»!íéi8BiSiS88SiS!S8W^
af bróður sínum. Maðurinn
neitaði með öllu þessum áburði
og var hann þá fluttur á lög-
reglustöðina og settur í gæzlu.
Eftir nokkra stund játaði hann
þó stuldinn og var honum þá1
sleppt. ___________
Af sem áður var.
London (AP). — Bretar hafa
nú fest kaup á hálfri milljón
smálesta af kolum frá megin-
landinu.
Voru fyrsta keyptar 300,000
lestir í Frakklandi, en það var
ekki talið nóg, svo að keyptar
verða 200,000 lestir að auki frá
Belgíu. Ætti þá öliu að vérða
óhætt í vetur.
Lík Finns Ólafs-
sonar fannst í gær.
í gærmorgun fannst lík
Finns heitins Ólafssonar, sem
drukknaði í Hvítá í Borgar-
firði hinn 11. júlí í sumar.
Kristján Guðjónsson, bóndi
að Ferjubakka, fann líkið, þar
sem það var á floti í ánui und-
an bænum. Finnur heitinn var
frá Bergvík á Kjalarnesi.
15.000 síkiar
merktar í sumar.
Þar a( 10.000
fyrúr norðan.
í stuttu viðtali, sem Vísir
hefur átt við Ama Friðriksson
fiskifræðing, um síldarmerk-
ingarnar í sumar, sagði hann að
merktar hefðu verið 15.000
síldar.
Er það nokkru mimia en
í fyrra, sagði Á. F., en það
sem nýtt væri og athyglis-
vert, að nú hefðu í fýrsta
skipti verið merktar síldar
við Suðurland.
Væri þess að vænta, að það
gæfi mikilvægar upplýsingar
um Faxasíldina, er fram liðu
stundir.
Mb. Auðbjörg frá Norðfirði vai
leigð af Fiskideild atvinnu-
deildar Háskólans til síldar-
merkinganna, en þær annaðist
nú Jakob Jakobsson frá Norð-
firði, sem stundar nám í fiski-
fræði við háskólann í Glasgow.
Alls voru merktar 10.000
síldar við Norðurland og 5000
fyrir sunnan og suðvestan land.
Árni Friðriksson er á förum
til Danmerkur, en þar situr
hann í mánaðarlokin fund Al-
þjóða hafrannsóknaráðsins.
4 togarar munu landa í
Þýzkalandi í vikunni.
Togarar á karfaveiðum afla vel.
Margir togarar erun nú á1 aflað vel að undanförnu. Ing-
veiðum fyrir Þýzkalandsmark- ólfur Arnarson landaði í Vest-
að og Ianda f jórir í þessari viku. mannaeyjum í gær, vegna þess
að hér var ekki hægt að taka
við aflanum. í Vestmannaeyj-
um eru mörg og stór frystihús
og ágæt skilyrði til að taka
við karfa til flökunar, en þegar
skipin eru að veiðum fyrir
vestan land, þykir nokkuð langt
að fara þangað. Ingólfur hafði
fullfermi, um 300 lestir. —
Askur kom til Reykjavíkur,
einnig með fullfermi. — ísólfur
landar karfa í Vestmannaeyjum
í vikunni. — Karfinn er flák-
aður handa Rússum. Skipin
hafa verið að veiðum í Víkur-
álnum og þar fyrir norðan.
Jón forseti landaði í Bremer-
haven í dag og er fyrsti togar-
inn, sem landar í ýzkalandi á
þessu ári. Jón forseti átti að
landa í gær, en komst ekki að.
Röðull landar í dag, Júlí
á fimmtudag og aldbak-
ur á laugardag, allir í Cux-
haven.
Næstkomandi mánudag land-
ar Bjarni riddari- i Þýzkalandi
og Jón Þorláksson síðar x vik-
unni, en í nvikunni, sem byrjar
27. septémber Skúli Magnús-
scn og Neptúnus.
Togarar á karfaveiðum hafa
1* í\ 'J lcrotio'í a A f Ilirmóloi* f olrí kntl'vín n Infli nn 'Uiíf n.. n.Í
Það þykir ékki lengur óalgengt, að flugvélar taki benzín á Iofti, en hitt er sjaldgæfara, að
þrýstiloftsvélar skuli gera það. Benzínvélin á myndinni er áf Boeing-gerð, en vélin sem ætlar
að taka benzín, er Strato-Jet-vél, B-47.
Ailsherjarþing Sþ komið saman:
Markmið kommúnista að hagnast
á skoðanamun iýðræðisþjóianna.
éhjákvæmilegt, að Móreu-
niálið verði rætt á iiVjjan leik
Bridge:
Nýí bærinn vann
gamla bæinn.
Hverfiakcppni Bi-idgefélags
Revkjavíkur fór fram í Mjóllt-
urstöðininni í gær.
Gamli bærinn, þ. e. vestan
Snorrabrautar og Nýi bærinn,
sá er liggur austan Snorra-
brautar og utan Hringbrautar,
keptpu sín á milli.
Foringjar liðanna voru Ás-
björn Jónsson fyrir Gamla bæ-
inn og Svinn Ingvarsson fyrir
hina.
Spilað var á 20 borðum, 10
lið fi'á hvorum bæjarhluta, og
urðu úrslit þau, að Nýi bærinn
sigraði með 7% gegn 2%.
Tvímenningskeppni Bridge-
félagsins í neðri flokkunum
hefst n. lc. mánudagskvöld. Þeir
sem ætla sér að taka þátt í
keppninni þurfa að gefa sig
fram í Skátaheimilinu á sunnu-
daginn.
Síðasti veÉðidagut
í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá
veiðimálastjóra er í dag síðasti
dagur sumarsins, sem leyfilegt
er að veiða lax og göngusilung
í ám og vötnum.
Netaveiði í vötnum er hins
vegar bönnuð á tímabilinu frá
27. sept. til 31. janúar.
Laxveiði hefur verið treg i
sumar, samkvæmt þeim skýrsl
um sem þegar hafa borizt, og
vár það raunar vitað áður. Sil-
ungsveiði hefur líka verið léleg
víðasthvar.
Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðamia var sett í New York í
dag. Óhjákvæmilegt er talið,
að hið nýja viðhorf, sem skap-
ast hefur við það, að kommún-
istar krefjast þess, að verksvið
fyrirhugaðs stjórnmálafundar
verði víðtækara en allsherjar-
þingið hefur samþykkt, leiði til
þess að raálið verði rætt að
nýju.
Útvarpið í Pyonyang tilkynnti
í gærkveldi, að Norður-Kóreu-
stjórn hefði sent Hammarsköld,
aðalritara Sameinuðu þjóðanna
bréf, og borið fram sömu kröf
ur varðandi stjórnmálafundinn
og Pekingstjórnin, um aðiíd
fleiri ríkja að fundinum , en
Lítil söltun í
síðustu viku.
Síldarsöltun var mjög lítil í
vikunni sem leið í söltunar-
stöðvum á svæðinu frá Vesí-
mannaeyjum til Breiðafjarðar
og nam hún samtals frá byrjun
32.500 tn.
Þar af er rúmlega helmingur
eða 17.000 tn. millisíld og
15 .£00 tn. stórsíld. — Engin af-
skipun á síld af þessu söltunar-
svæði hefur átt sér stað enn.
Frá söltunarstöðvum á Norð-
urlandi og Norðausturlandi
hefur talsvert af saltsíld verið
flutt ut að undanförnu og all-
mikið síldarmagn mun fara tii
Rússlands bráðlega. — Nokkrir
bátar, sem eru á reknetjaveið-
um á Húnaflóa, og djúpmiðum
og salta um borð, komu til
Siglufjai'ðar í gær.
samþykkt hafði verið á alls-
herjarþinginu.
Nýr 16 þjóða fundur.
Fréttaritarar telja óhjá-
kvæmilegt, að fultlrúar þeirra
16 þjóða, sem bai'izt hafa gegn
kommúnistum í Kóreu, hefji
viðræður sín í milli af nýju
vegna hins nýja viðhorfs.
í gærkveldi var birt tilkynn-
ing í útvarpi í Pyonyang þess
efnis, að N.K.-stjórn hefði bor-
ið fram sömu kröfur og Peking
stjórnin.
Brezkum blöðum í morgun
verður tíðrætt um hið breytta
viðhorf og kemur þar m. a.
fram, að hvað sem segja megi
um gaghtillögur kommúnista,
sé augljóst, að þeir ætli að mata
krókinn á þeirri óeiningu, sem
fram kom meðal þeirra, sem
börðust gegn kommúnistum, á
fundum þeirra í New York í
fyrra mánuði, en þótt skoðana
munur væri, hélzt þó samvinn-
an, og segja brezku blöðin, að
hvernig sem allt velkist, megi
kommúnistum ekki heppnast
að spilla samvinnu lýðræðis-
þjóðanna, en það sé þeirra höf-
uðmark.
Álit Breta.
Times segir, að skoðanir
Breta varðandi stjórnmála-
fundinn séu heilbrigðar — fyrir
fundinn muni koma mál, sem
styrjaldaraðilar einir geti ekki
útkljáð og nú sé mikilvægast,
að stjórnmálafundurinn verði
haldinn, því að allt sé undir
því komið, að viðræðum verði
haldið áfram um vandamálin.
Frsmhald á 7. síðu.